Morgunblaðið - 19.02.1988, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988
Fiskmarkaðimir í Þýzkalandi:
Offramboð or-
sakar verðfall
- Stjórnleysi okkar við útflutninginn
til skanunar, segir Kristján Ragnarsson
OFFRAMBOÐ á karfa héðan hefur nú valdið verðhruni á fiskmörkuð-
unum í Þýzkalandi. LÍÚ varar menn eindregið við útflutningi á
karfa á þessa markaði, en verð í gœr hafði fallið úr 70 krónum i
síðustu viku í rúmar 30 krónur. Það er lögbundið lágmarksverð, en
auk þess var í einhverjum tilfellum samið um að flokka karfann
niður, greiða eitthvað til baka til kaupenda og í Cuxhaven voru 37
tonn dæmd í gúanó, þar sem þau náðu ekki lágmarksverði á upp-
boðinu.
„í síðustu viku vorum við að fá
70 krónur fyrir karfakílóið. Á
mánudag fengust 65 krónur, á mið-
vikudag var verðið komið niður í
45 og á fimmtudag var það fallið
í 30 krónur rúmar fyrir 300 tonn,“
sagði Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, í samtali við
Morgunblaðið. „Nú eru 270 tonn
af físki á leiðinni með sérstöku skipi
inn á þessa markaði, 290 tonn i
tveimur öðrum skipum og Ögri
verður úti á mánudag með 320
tonn. Þetta er allt of mikið og gjör-
samlega óviðunandi.
Frá því í haust höfum við verið
að selja karfann í Þýzkalandi fyrir
60 til 70 krónur kílóið. Það hefur
náðst með takmörkuðu framboði
Fleiri flóða-
bílar frá
Drammen
Keflavík.
Fjórmenningamir sem stóðu
að innflutningi 235 Subaru-bíla,
sem Ientu í flóðum í Drammen í
Noregi, hafa nú keypt rúmlega
100 bíla til viðbótar. Þeir eru af
tegundinni Mazda 626 og Dai-
hatsu Charade, árgerðir 1988.
Bílana keyptu þeir félagar í Hol-
landi og sagði Margeir Margeirs-
son, einn fjórmenninganna, að
þeir væru væntanlegir til lands-.
ins nm mánaðamótin.
Margeir sagði að bílamir hefðu
verið keyptir af bandarísku trygg-
ingafyrirtæki og hefði sámi aðili
og seldi þeim Subaru-bfla haft for-
göngu með þessi viðskipti. Margeir
sagðist eiga von á að þessir bflar
fengju sömu afgreiðslu hjá bifreiða-
eftirlitinu og Subaru-bfla. Margeir
sagði að afsláttur af þessum bflum
yrði svipaður og á Subaru-bflunum,
16-20% frá gangverði nýrra bfla og
ábyrgðir með svipuðum hætti.
Bflamir vom fluttir til Hollands
frá Drammen og þaðan koma þeir
hingað til lands.
- BB
og stjóm á siglingum skipanna.
Eigi verð að haldast uppi, verður
að takmarka framboðið, en eins og
málum er háttað, setja þeir, sem
ekki fá að senda skipin út, fískinn
í gáma og eyðileggja söluna fyrir
bæði hinum og sjálfum sér. Stjóm-
völd hafa ekki verið fáanleg til sam-
starfs við okkur útvegsmenn við
að stjóma þessum málum og því
höfum við einfaldlega orðið okkur
til skammar á mörkuðunum. Það
verður að draga þá til ábyrgðar á
einhvem hátt sem eyðileggja mark-
aðinn. Menn geta hreinlega ekki
leyft sér að segja að þetta hljóti
að sleppa, þegar þeir senda of mik-
ið utan. Það sleppur ekki og það
vita menn,“ sagði Kristján.
Sunnutindur SU seldi á miðviku-
dag 115 tonn, mest karfa í Bremer-
haven. Heildarverð var 5,2 milljónir
króna, meðalverð 45,27. Á mánu-
dag seldi Ýmir HF 167 tonn í Cux-
haven og var meðalverð þá 64,42
fyrir aflann, sem var að mestu
karfi. Á fimmtudag voru seld um
300 tonnn úr gámum héðan. Heild-
arverð var 10 milljónir, meðalverð
33,53. 37 tonn af fiskinum náðu
ekki lágmarksverði í Cuxhaven og
vom því dæmd í gúanó.
-
Eldurígömlu bakaríi
ELDUR kom upp í vinnslusal bakarísins að Nönnugötu 16 um klukkan 8 í gærkvöldi. Bakaríið
mun ekki hafa verið starfrækt um skeið. Slökkviliðið sendi tvo reykkafara inn í húsið og gekk
slökkvistarf újótt fyrir sig. Tjón er talið óverulegt. Eldsupptök eru ókunn en rafmagn var ekki á
þessum hluta hússins.
Háskólaráð ógilti teningakastið:
Hlutkesti ekki lengur
viðunantli vinnulag
- segir háskólarektor
SAMÞYKKT var i leynilegri atkvæðagreiðslu á fundi Háskólaráðs
í gær, með tólf atkvæðum gegn tveimur, að samþykkja beiðni tann-
læknanemans sem komst ekki áfram eftir úrslit teningakasts, um
að hann fengi að halda áfram námi i tannlæknadeild. Neminn sem
var felldur með þessum hætti sagði í samtali við Morgunblaðið i gær
að hann væri ánægður að þessu væri lokið, en að öðru leyti vildi
hann ekki segja neitt um málið.
„Málið var afgreitt á þann veg að
þessum stúdent, sem var 8. í röð-
Vandræðaástand
vegna vatnsskorts
VATNSLEIÐSLAN tíl Vest-
mannaeyja hefur nú bilað tvisvar
með skömmu millibili. Fyrri bilun-
in fannst um hádegið f fyrradag
en sú seinni siðdegis f gær. Við-
gerð á fyrri biluninni var lokið í
gærmorgun og búist var við að
viðgerð á seinni biluninni tækist
um miðnættið f nótt. Vandræða-
ástand hefur skapast- f Vest-
mannaeyjum vegna vatnsskortsins
og þurftu fiskvinnslufyrirtæki og
bræðslur t.d. að hætta starfsemi.
Fyrri bilunin á vatnsleiðslunni til
Yestmannaeyja var hjá svokölluðum
Álum sem er vatnasvæði í Austur-
Landeyjum. Þar hafði samskeyti á
milli asbest- og plastleiðslu gefið sig.
í dag
•ERorfiunblníúb
Seinni bilunin á vatnsleiðslunni til
Vestmannaeyja fannst um klukkan
17 í gær. Bilunin fannst í landi
Syðstu-Merkur undir Vestur-Eyja-
flöllum, ekki langt frá þeim stað sem
vatnið er tekið úr lind í 215 metra
hæð. í Ijós kom að asbestleiðsla hafi
brotnað.
Vandræðaástand hefur skapast í
Vestmannaeyjum vegna vatnsskorts-
ins. öll fiskvinnslufyrirtæki og loðnu-
bræðslur hafa hætt starfsemi nema
Fiskimjölsverksmiðja Einars Sig-
urðssonar sem hefur tekist að halda
starfseminni áfram með því að nota
vatn úr eigin brunni og spara til hins
ýtrasta. Skólamir voru allir lokaðir
í gær, svo og öll dagheimili og
íþróttamiðstöðin. Fjarhitun Vest-
mannaeyja, sem notar um 500 tonn
af vatni til hraunhitaveitunnar á
dag, notast nú við olíukyndingu.
Vegna leka í kerfínu hefur Fjar-
hitunin orðið að sækja vatn í tank-
bflum inn f Heijólfsdal þar sem dælt
hefur verið upp úr gömlum brunni.
Einnig hefur vatni verið safnað af
bryggjunum og það sett í stóran
tank, sem dælt hefur verið úr inn á
vatnskerfi sjúkrahússins. — bs
BLAÐ B
Neyðarblys
álofti
NEYÐARBLYS sást á lofti í
Grindavfk um klukkan 21 í gær-
kvöldi. Björgunarsveitir voru
þegar kallaðar út og þyrla Land-
helgisæslunnar var í viðbragðs-
stöðu.
Um klukkan 22 barst lögreglunni
síðan tilkynning um að blysið hefði
sést skjótast á loft úr miðju pláss-
inu, en ekki er vitað hveijir voru
að verki.
inni, var veitt heimild til að halda
áfram í námi og menn gera sér
grein fyrir því að það vinnulag sem
reglugerðir gera ráð fyrir, hlut-
kesti, er ekki lengur viðunandi,“
sagði Sigmundur Guðbjamason há-
skólarektor.
„Þessar reglur voru settar fyrir
9 eða 10 ámm og þóttu þá eðlileg-
ar enda hefur sama fyrirkomulag
gilt við ýmsa evrópska háskóla en
þessi aðferð þykir ekki viðunandi
nú,“ sagði rektor. „Það vom rædd-
ar ýmsar leiðir til að leysa vanda
af þessu tagi á annan hátt og ég
held að við höfum fundið vænlega
lausn á þeim vanda." Hann sagði
að ráðið hefði rætt 4 kosti í þessu
efni og hafí verið ákveðið að skoða
einn þeirra ítarlega en vildi ekki
að svo stöddu skýra frá í hveiju
hann fælist. „Ég tel eðlilegt að
málið verði skoðað innan veggja
háskólans og af þeim aðilum sem
við eiga að búa, áður en það verður
rætt opinberlega en ég ítreka að
ég held að það verði einfalt mál að
leysa þetta til frambúðar," sagði
hann.
Sigmundur kvaðst vilja taka
skýrt fram að tannlæknadeild hafi
I einu og öllu unnið eftir gildandi
reglum í þessu máli. „Hins vegar
var þetta í fyrsta skipti sem reyndi
á þetta ákvæði og þá kom á daginn
að menn geta ekki fellt sig við þetta
vinnulag og því verður að breyta
um aðferð," sagði háskólarektor.
„Ég efaðist aldrei um að þetta
færi svona, þetta var sanngimis-
mál,“ sagði Valborg Snævarr, ein
af §ómm fulltrúum stúdenta í Há-
skólaráði. Hallur Halldórsson,"
formaður Félags íslenskra tann-
læknanema, sagðist samgleðjast
nemanum á þessarri stundu. „Að
fara í gegnum þessi samkeppnis-
próf er nóg taugastríð út af fyrir
sig þó að ekki bætist við þessi óvissa
um hvort hann fái að halda áfram."
Höfðum ekki leyfi til að
afgreiða málið með öðrum
hætti
„Úr því sem komið var tel ég að
þaraa hafi fundist farsæl lausn á
málinu fyrir þennan nemanda,"
sagði Þórður Eydal Magnússon
prófessor. „Hún bitnar aftur á móti
á öðmm nemendum með minnkun
klínísks tíma, þ.e. verklegs náms
við sjúklinga, nema sérstakar ráð-
stafanir verði gerðar til lengingar
kennslu. Eg tel að ekki hafi komið
nægilega skýrt fram að Tann-
læknadeild vann í einu og öllu eftir
ótvíræðum reglum Háskólans og
hafði ekki leyfi til að afgreiða mál-
ið með öðmm hætti en þeim að
láta hlutkesti ráða.
Þessi 108. grein hefúr 'verið
óbreytt í gildi í Qöldamörg ár og
mér er ekki kunnugt um að fulltrú-
ar nemenda eða aðrir hafi gert
ágreining vegna hennar. Hins vegar
mun ég, eins og vafalaust allir
kennarar Tannlæknadeildar, fagna
því ef betri og sanngjamari leið
finnst, til að nota þegar gera þarf
upp á milli nemenda i tilfellum af
þessu tagi I framtíðinni," sagði
Þórður Eydal Magnússon.
Athuga-
semd vegna
fyrirsagnar
í FRÉTT Morgunblaðsins í
gær er vitnað {ummæli Þor-
steins Pálssonar forsætísráð-
herra um að enginn ágrein-
ingur hafi verið milli hans
og forseta íslands um með-
ferð málsins, þegar rætt var
um heimsóknina til Sov-
étríkjanna.
Ákveðið var á fiindi ríkis-
stjómar íslands 11. febrúar,
þ.e. á fímmtudaginn fyrir viku,
að þiggja boðið til forsetans en
að æskja viðræðna um aðra
dagsetningu en Sovétmenn
nefndu.
Fyrireögn í frétt þessari var
svohljóðandi í Morgunblaðinu:
„Boð Sovétmanna: Forseti og
foreætisráðherra einhuga um
málsmeðferð." Eins og sjá má
er blæbrigðamunur á fyrireögn
og því sem haft er eftir foraæt-
isráðherra.
Ljóst er að foreeti íslands
tekur ekki afstöðu til afgreiðslu
mála innan ríkisstjómarinnar,
enda hefur það komið fram í
ummælum foraætisráðherra
hér í blaðinu að foreeti faeri að
óskum ríkis8tjómarinnar.