Morgunblaðið - 23.02.1988, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988
9
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRÐI, SlMI 651000.
ERT ÞU
KONA?
Viltu:
Fræðast um sérstöðu kvenna við stjórnunarstörf?
Kynnast eigin stjórnunarmáta?
Bæta samstarfshæfni þína?
Viltu:
Auka sjálfsöryggi þitt?
Styrkja sjálfsímynd þína?
Bæta tímastjórnun þína?
Ef svo er, þá er þetta námskeið fyrir þig.
Leiðbeinandi: Steinunn H. Lárusdóttir,
M Ed í stjórnun.
Námskeiðið verður haldið helgina 27.-28. febrúar.
Upplýsingar og innritun í síma 11293 kl. 18.00-23.00.
________________FRAMÞRÓUN s/f.___________________________
Námskeið og ráðgjöf á sviði stjórnunar, samskipta og fjölmiðlunar,
Espigeröi 12,108 Reykjavík.
Anna G. Magnúsdóttir, Einar I. Magnússon, Sigþór Magnússon og
Steinunn H. Lárusdóttir.
Steinunn
Ný Ijósmyndastofa
VANDAÐAR PASSAMYNDIR
15% kynningarafsláttur til 15. mars.
BARNAMYN DATÖKUR
FERMIN G ARMYN DATÖKUR
TÖKUM EFTIR GÖMLUM MYNDUM
ÖLL ALMENN LJÓSMYNDUN
Viðhorf grunn-
skólakennara
Athyglisvert er að sjá það í könnun, sem
Þórólfur Þórlindsson, prófessor, hefur unnið
fyrir menntamálaráðuneytið, að meirihluti
grunnskólakennara telur grunnskólalögin
hafa reynst frekar illa (44,66%) eða mjög illa
(8,79%), það hafa sem sé 53,45% kennara
þessa neikvæðu afstöðu til laganna. Ætti
þessi niðurstaða að verða yfirvöldum hvatn-
ing til að vinna skipulega að breytingum á
lögunum. í könnuninni kemur fram, að kenn-
arar vilja í ýmsu tilliti hverfa til starfshátta,
sem settu svip sinn á skólastarf fyrir setningu
grunnskólalaganna. Þannig telja 62,9% kenn-
arar að afburðanemendum sé haldið niðri í
grunnskólunum.
af þessu tagi eiga ekki
upp á pallborðið.
Islensku-
kennslan
Fyrir skömmu til-
kynntí Birgir fsL Gunn-
arsson, menntamálaráð-
herra, að hann hefði í
hyggju að auka hlut móð-
urmálskennslunnar i
skólakerfinu. í könnun
Þórólfs Þórlindssonar,
sem gerð er að frum-
kvœði menntamálaráðu-
neytísins og má rekja til
þess tíma, þegar Ragn-
hildur Helgadóttír var
menntamálaráðherra,
kemur fram að meiri-
hlutí grunnskólakennara
er þeirrar skoðunar, að
gnmnskólamir eigi að
leggja megináherslu á að
kenna grundvallargrein-
arnar lestur, skrift og
reikning. Eru 67,1%
kennara þessarar skoð-
unar. Sú gagnrýni hefur
verið höfð uppi af mörg-
um, að áherslan á
kennslu þessara greina
hafi verið að dvina auk
þess sem teknir hafi ver-
ið upp starfshættir við
kennslu og námsgagna-
gerð, sem gangi á svig
við þær aðferðir, er gefi
nemendum best tækifæri
tíl að tíleinka sér stað-
reyndir og almennan
fróðleik um land og þjóð.
íslenskukennsla er
ekki aðeins fólgin i þvi
að kenna móðurmálið
heldur einnig að rækta
með sjálfum okkur þau
sérkenni, sem gera okk-
ur að sjálfstæðri þjóð. í
þvi efni er ekki einungis
nauðsynlegt að lfta aldir
aftur í Hmann heldur
þarf að bijóta meginat-
burði seinni tima sögu tíl
mergjar svo að unnt sé
að skilja þá i stærra sam-
hengi. Það er tíl dæmis
forvitnilegt rannsókna-
efni að leita skýringa á
þeirri áráttu að gera þá,
sem stóðu að mótun og
framkvæmd utanríkis-
stefnunnar á fyrstu árum
lýðveldisins, tortryggi-
lega. Þessi iðja verður
þeim mun sérkennilegri
sem það sannast betur,
að stefnan sem þá var
mótuð með þátttöku Is-
lendinga hefur reynst vel
og skapað frið í okkar
heimshluta auk þess sem
hún hefur stuðlað að
þeirri þróun í alþjóðavið-
skiptum, sem hefur leitt
tíl meiri hagsældar á Is-
landi en nokkru sinni
fyrr í sögu landsins.
Nýlega máttí lesa eft-
irfarandi klausu í Þjóð-
vijjanum eftir Arna
Bergmann ritstjóra: „Sá
sem þetta skrifar er nógu
gamall tíl þess að muna
það, að á fyrstu árunum
eftír strið var það furðu
algengt viðhorf hjá ungu
fólki í nýstofnuðu
íslensku lýðveldi að troða
ensku inn í sht daglega
málfar og láta í leiðinni
upp þau viðhorf að
íslenska væri heldur
ómerkilegur pappir í
heimsbóldnni. — Um leið
og þeir eldri vældu um
það hvenær sem efna-
hagsörðugleikar létu á
sér kræla að best og
þægilegast væri vist að
segja sig tíl sveitar þjá
Engilsöxum.“ Á þeim
rúmlega fjörutíu árum,
sem liðin eru frá því að
Ámi Bergmann kynntist
þvi sem þama er lýst,
hefur sjálfstæði þjóðar-
innar og farsæld i sam-
sldptum við önnur ríki
leitt til þess að viðhorf
Pólitísk
óskhyggja
I f ramhaldi af þessum
orðum segir Ámi Berg-
mann i Þjóðvifjagrein-
inni:. „Þessar áráttur
vom ekkd lengi í fram-
sókn, sem betur fór. Þær
hörfuðu af ýmsum
ástæðum. Ein var sú að
íslenskt samfélag efldi
með sér sjálfstraust, okk-
ur tókst skár en mörgum
öðrum smáþjóðum að ná
tökum á verkefnum
samHmnns, tæknilegum
og öðrum, og leysa þau
á eigin forsendum. Og
það var barist af dijúgu
kappi fyrir íslenskri
menningu og þá gegn
engilsaxneskum áhrif-
um. Það væri fals að
segja að sá slagur hefði
ekki komið pólitík neitt
við. Hann var að nyög
verulegu leytí í höndum
andstæðinga NATO-
aðildar og hersetu, vinst-
rimanna ýmiskonar, sem
höfðu hátt um sina
„hræðslu" við kanaút-
varp og kanasjónvarp og
fleira. Meðan þær raddir
voru einatt mest áber-
andi í hægrimálgögnum,
að þetta tal væri eins og
hver önnur móðnrsýki.
íslensk menning, sögðu
þær, er sterk og hraust
og stenst allt. Við megum
ekki einangra okkur. Og
þar fram eftír götunum."
ístuttu máli er hér um
mikla einföldun að ræða
hjá Áma Bergmann og
vægið sem hann gefur
vinstrisinnum og and-
stöðu þeirra við höfuð-
þættí utanrfldsstefnunn-
ar þegar hann ræðir
varðveislu íslenskrar
menningar er byggt á
pólitískri óskhyggju.
Sagan hefur sýnt, að
samstarfið við vestrænar
þjóðir er ástæðan fyrir
hinu, að okkur hefur tek-
ist á eigin forsendum að
leysa þannig úr flóknum
viðfangsefnum samtím-
ans i samfélagi þjóðanna,
að undirstöðuraar undir
sjálfstæðinu, menningar-
legu og efnahagslegu,
eru öruggar. Það hefur
aldrei talist vera stuðn-
ingur við framgang
heilladijúgrar stefnu að
vera á mótí henni. Það
sýnir best, hve gjörsigr-
aðir vinstrisinnar eru i
þessu máli, þegar rit-
stjóri Þjóðviljans vill láta
eins og menningarieg
viðhorf hafi verið helsta
ástæðan fyrir andstöðu
þeirra við aðild Islands
að NATO og varaar-
samninginn við Banda-
rfldn. Að sjálfsögðu hef-
ur alitaf verið samstaða
um það, hvaða skoðanir
sem menn hafa á þessum
málnrn, að standa vörð
nm islenska menningu,
sögu og tungu.
Hitt er rétt þjá Áraa
Bergmann i þessari sömu
grein, að síðustu misseri
hefur „hræðslan“ við
enskuna orðið æ meira
sameiningartákn fyrir
alla þá sem áhyggjur
hafa af islenskri tungu i
bráð og lengd. Ástæðan
fyrir þessu er einföld,
vinstrisinnar hafa látíð
af fírrum sínum vegna
NATO og varnarliðsins í
umræðum um menning-
armál. Nú er rætt um
leiðir tíl að veija tunguna
{ hinu alþjóðlega fjöl-
miðlaflóði.
SKAMMTÍMABRÉF
IÐNAÐARBANKANS
Örugg ávöxtun án langs binditíma.
□ Skammtímabréf Iðnaðarbankans bera
9,8% ávöxtun yfir verðbólgu. Þau greiðast
upp með einni greiðslu á gjalddaga.
□ Velja má um gjalddaga frá 1. júní nk.
og síðan á tveggja mánaða fresti til 1.
febrúar 1990.
□ Skammtímabréf Iðnaðarbankans eru
fyrir þá sem vilja njóta öruggrar ávöxtunar
en vilja ekki binda fé sitt lengi.
□ VIB sér um sölu á skammtímabréfum
Iðnaðarbankans. Komið við að Ármúla 7
eða hringið í síma 91-68 15 30 og fáið
nánari upplýsingar.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármula 7, 108 Reykjavik. Sími 68 15 30