Morgunblaðið - 23.02.1988, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988
33
f - Morgunblaðið/Sverrir
Halldór Sigurðsson útskurðarmaður frá Miðhúsum við Egilsstaði og Sigurdur Blöndal skóræktar-
sljóri, virða fyrir sér hljófæri úr tré, þar á meðal langspil sem Halldór smíðaði í tilefni sýningarinnar.
Norræna húsið:
Fyrirlestur um skógminjasafn
Farandsýningin „Hið græna
gull Norðurlanda", var opnuð
í Norræna húsinu á laugardag
og er ísland síðasti viðkomu-
staður hennar. í kvöld heldur
Vibeke Koch frá Skógminja-
safninu í Hörsholm í Dan-
mörku, fyrirlestur í Norræna
húsinu, sem hún nefnir „Hvers
vegna eiga íslendingar að
koma sér upp skógminjasafni.1*
Skógminjasöfnin í Noregi, Dan-
mörku, Svíþjóð og Finnlandi
standa að sýningunni ásamt
Skógrækt ríkisins og Skógrækt-
arfélagi íslands. Á sýningunni eru
sýndir munir unnir úr tré að fomu
og nýju. Þar er einnig að finna
upplýsingar um nytjar, sem menn
hafa og hafa haft af skógi.
Skógminjasöfn á Norðurlönd-
um eru öflugar stofhanir, þar sem
auk sýninga er unnið að rann-
sóknum á sviði skógræktar. Þar
er einnig haldið uppi fræðslu og
menningarstarfi sem tengist
skógrækt.
Ráðherra staðfesti deiliskipulag miðbæjarins:
Kynning á ráðhús-
reit ekki lögformleg
- seg-ir Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra
JÓHANNA Sigurðardóttir félags-
málaráðherra staðfesti í gær
deiliskipulag af miðbæ Reykja-
vikur en beinir því jafnframt til
Davíðs Oddssonar borgarstjóra,
að skipulag ráðhússreitsins fái
kynningu á sérstakri sýningu.
Almenningi verði þannig gefið
tækifæri til að koma athugasemd-
um á framfæri áður en borgar-
stjórn tekur endanlega ákvörðun
um afgreiðslu málsins.
„Þama var ekki staðið lögform-
lega að ákveðnum þáttum er varðar
kynningu á ráðhússreitnum og ljóst
að úr því þurfti að bæta,“ sagði
Jóhanna. „Réttur fólks hafði ekki
verið. virtur og ekki að öllu leyti far-
ið að lögum og reglum. Það vantaði
ýmsar grundvallarupplýsingar, sem
eiga að iiggja fyrir þegar kynning
fer fram. Vona ég að úr því verði
bætt, þar sem borgarstjóri hefur
fallist á að beita sér fyrir kynningu
á reitnum þar sem þessar upplýsing-
ar liggi fyrir. Almenningur fær þá
tækifæri til að koma athugasemdum
sínum á framfæri, sem síðan verða
lagðar fyrir borgarstjórn til endan-
legrar ákvörðunar."
Jóhanna sagði þetta vera flókið
mál, sem langan tíma hafi tekið að
kanna. Kæran, sem ráðherra barst
frá einum aðila í skipulagsstjóm, var
í ellefu liðum og snerti bæði form
og efnisatriði málsins. Þurfti að leita
umsagna ýmissa aðila og sagði hún
að umfjöllun ráðuneytisins hefði tek-
ið skemmstan tíma.
„Ríkislögmaður er einn lögfræð-
inganna, sem leitað var til, en ég
hef einnig ráðfært mig við aðra lög-
fræðinga bæði innan ráðuneytis og
utan og byggi ég mína niðurstöðu á
þeim viðræðum," sagði Jóhanna.
„Mitt verkefni var fyrst og fremst
að athuga hvort lögum og reglum
hefði verið fylgt. Eg get ekki séð
að það sama gildi um alþingisreit,
sem nokkuð hefur verið í umræð-
unni, þó svo að borgarstjóm og
skipulagsnefnd hafi séð ástæðu til
Ánægður með
þessi málalok
- segir Davíð Oddsson borgarstjóri
DAVÍÐ Oddsson, borgarsfjóri, hefur ákveðið að verða við þeim
tilmælum Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra, að kynna
með sérstakri sýningu, skipulag ráðhússreits á horni Tjamargötu
og Vonarstrætis.
„Ég er ánægður með að þessum
þætti málsins er lokið. Nú hefur
skipulag miðbæjarins með ráð-
húsinu fengið lögformlega stað-
festingu," sagði Davíð Oddsson
borgarstjóri. „Eg er afar sáttur við
að hluti af lausn málsins sé enn
frekari kynning. Borgin hefur allt-
af verið opin fyrir kynningum og
reyndar staðið að þeim í ríkum
mæli. Hefur ekkert mál fengið jafn
mikla umfjöllun og bygging ráð-
húss. Allar athugasemdir em þeg-
ar komnar fram þannig að í raun
er verið að uppfylla formsatriði.
Við eigum ekki von á neinum þeim
umsögnum, sem ekki hafa komið
fram áður. Ég muu horfa á þær
og setja síðan í skjalasafnið en
borgarstjóm stendur við fyrri
ákvörðun. Það er alveg ljóst að
ráðherra gerir sér grein fyrir að
kynning hefur þegar átt sér stað.“
Davíð sagði að undirbúningi yrði
haldið áfram og að aldrei hefði
staðið til að stöðva áframhaldandi
framkvæmdir. Frekari kynning
hefðj ekki áhrif á þær.'
„Ég veit með vissu að ríkislög-
maður komst að þeirri niðurstöðu
að staðfesta bæri skipulagið,"
sagði Davíð. „Nú er þetta komið
úr höndum ráðuneytisins til borg-
aryfirvalda."
Sérstökkynn-
ing á ráðhúsreit
þess í sir.ni umfjöllun, að áskilja sér
rétt borgaryfirvalda til að fjalla sérs-
taklega um þann reit á ný og þá
hugsanlega að kynna hann. Þar lágu
þó fyrir þær upplýsingar þegar
skipulagið var kynnt, sem ekki lágu
fyrir um ráðhúsreit.“
Jóhanna sagði að ekki hafi verið
rætt um það sérstaklega að fram-
kvæmdir við ráðhúsbygginguna yrðu
stöðvaðar þar til kynning hefur farið
fram. Henni þætti þó eðlilegt að
fólk fengi að tjá sig um málið áður
en lengra væri haldið og koma skoð-
unum sínum á framfæri. í ljósi þeirra
tæki borgarstjórn síðan sína ákvörð-
JÓHANNA Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra gaf út eftir-
farandi fréttatilkynningu, þeg-
ar hún hafðir staðfest deili-
skipulag að miðbæ Reykjavíkur
í gær:
„Ráðherra hefur í dag staðfest
þann deiliskipulagsuppdrátt af
miðbæ Reykjavíkur (Kvosinni) sem
samþykktur var af borgarstjóm
Reykjavíkur 1. október 1987 og
afgreiddur í skipulagsstjóm ríkis-
ins 11. nóvember 1987 til stað-
festingar ráðherra.
Staðfestingin er gerð með eftir-
farandi athugasemdum: Ráðherra
telur að í ljós hafi komið að ekki
hafí verið nægilega vel staðið að
kynningu á deiliskipulaginu, sbr.
2. mgr. 11. gr. skipulagslaga nr.
19/1964 svo og fylgigögnum með
skipulagsuppdrætti þar að lútandi,
hvað varðar hluta þess, þ.e. reit á
homi Vonarstrætis og Tjanargötu,
þar sem áformað er að reisa sáð-
hús borgarinnar. Þessi ágalli þykir
þó eigi þess efnis að synja beri
staðfestingu á deiliskipulaginu.
Ráðherra hefur hins vegar á
fundi sínum með borgarstjóra i dag
beint því til hans að skipulag ráð-
hússreitsins fái viðbótarkynningu
með sérstakri sýningu á því, jafn-
framt því sem almenningi verði
gefinn kostur á að bera fram at-
hugasemdir við skipulagið. Að því
loknu verði skipulag ráðhússreits-
ins ásamt athugasemdum og um-
sögn skipulagsnefndar um þær
lagt fyrir borgarstjóm til endan-
legrar ákvörðunar.
Borgarstjóri hefur fallist á að
beita sér fyrir þessari meðferð
málsins, sem lokið verði fyrir miðj-
an apríl n.k.“
Tekið undir þau sjónar-
mið sem ég setti fram
- segir Guðrún Jónsdóttir í Skipulagsstjórn ríkisins
©
INNLENT
„ÞESSI niðurstaða ráðherrans
er í fullu samræmi við þær at-
hugasemdir sem ég setti fram
og því má líta á þetta em per-
sónulegan sigur fyrir mig,“
sagði Guðrún Jónsdóttir, full-
trúi félagsmálaráðherra í
Skipulagsstjórn ríkisins, en hún
gerði á sinum tíma athugasemd
varðandi meðferð skipulagstil-
lögu Kvosarinnar, sem hún taldi
ekki í samræmi við skipulags-
lög. Guðrún sagði að sú athuga-
semd hefði lotið að þvi að sú
skipulagstillaga sem kynnt var
og augýst hefði ekki verið með
ráðhúsinu teiknuðu inn á, en
hin, sem Skipulagsstjórn var
ætlað að skrifa upp á, hefði
hins vegar verið með ráðhúsinu.
Guðrún kvaðst á sínum tíma
hafa óskað eftir frestun á af-
greiðslu málsins í Skipulagsstjórn
en ekki fengið og því hefði ekki
verið um annað að ræða en að vísa
málinu til félagsmálaráðherra.
„Það var augljóslega ekki í sam-
ræmi við skipulagslög að sýna og
kynna skipulag án ráðhúss en ætla
svo að fá uppáskrift á skipulag
með ráðhúsi og við þetta gerði ég
athugasemd, sem ráðherra hefur
nú tekið undir“ sagði Guðrún.
Guðrún kvaðst vera ósátt með
að hafa orðið að sitja undir ávirð-
ingum um annarleg sjónarmið í
þessu máli, fyrir það eitt að gera
skyldu sína sem fulltrúi í Skipu-
lagsstjórn með því að krefjast þess,
að farið yrði að lögum við meðferð
málsins.
34. helgarskákmótið:
Jón L. Ama-
son sigraði
á Selfossi
Scif08si
JÓN L. ÁRNASON sigraði á
lielgarskákmótinu sem haldið
var á Selfossi um helgina. Jón
hlaut 6>/2 vinning af sjö mögu-
legum. Alls tóku 76 keppendur
þátt í mótinu sem var það 34.
í röðinni.
Gunnar Gunnarsson og Guð-
mundur Gíslason urðu í öðru til
þriðja sæti með 6 vinninga. I
fimm næstu sætum urðu Þröst-
ur Þórhallsson, Hannes Hlífar
Stefánsson Elvar Guðmundsson,
Jón Garðar, Viðarsson, Ásgeir
Þór Ámason og Guðmundur
Halldórsson allir með 5V2 vinn-
ing.
Hlutskarpastir heimamanna
urðu Þröstur Ámason einn aðal-
skipuleggjandi mótsins og Ingi-
mundur Sigurmundsson með
4V2 vinning. Bestur öldunga var
Óli Valdimarsson með 5 vinn-
inga. Af unglingum yngri en 20
ára voru bestir Sveinn Olafsson,
Baldur Pálsson og Þorsteinn G.
Þorsteinsson með 4 vinninga.
Sturla B. Johnsen sigraði í flokki
yngri en 16 ára með 4V2 vinn-
ing. Hjalti Glúmsson varð hlut-
skarpastur í flokki unglinga
yngri en 14 ára með 4 vinninga
og Sigfinnur Bjarkason f flokki
yngri en 12 ára með 2 vinninga.
Það bar öllum saman um að
mótið hefði verið hið skemmti-
legasta og sýndi þátttakan það
greinilega að áhugi fyrir skák
er mikill og gott lag til að fylgja
slíku eftir eins og margir heima
manna höfðu orð á og fögnuðu
framtakinu. Sig. Jóns.