Morgunblaðið - 23.02.1988, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988
13
Margét
Einarsdóttir,
formaður framkvæmdaráðs
Félags vinstri manna: „Það kom
í ljós að stefna félaganna var sú
sama og fólk fór því að hugsa
hvort það væri ekki betra að
stofna eitt félag saman. Markmið
okkar voru þau sömu, við þurfum
öflugt stúdentaráð sem hefur
samskipti út í þjóðfélagið. Við
viljum vera með í
þjóðmálaumræðunni."
ágreiningurinn hefði verið fyrir 3-4
árum en þá hefðu umbar talið vinstri
menn koma með of mikla pólitík inn
í samstarfið. „Eftir að það hafði
sýnt sig í samstarfinu í vetur að
vinstri menn gerðu það ekki lengur
þá var þetta ákveðið. Það verður svo
að sjá hvemig þetta á eftir að ganga
fyrir sig. Ef þetta verður fíaskó
mælir ekkert á móti því að félögin
bjóði fram sitt í hvoru lagi næst.“
Ágúst Ómar sagði Félag umbóta-
sinna hafa verið orðið frekar lítið
og meiri vilji innan þess að bjóða
fram svona heldur en í nafni FUS.
Umbótasinnar hefðu verið í oddaað-
stöðu undanfarin ár og hefði honum
fundist það vera frekar leiðinleg
staða, „erfið og ósanngjöm". Eftir
síðustu kosningar hefðu þeir reynt
að koma á fót n.k. „þjóðstjóm" inn-
an stúdentaráðs til þess að vinna
að hagsmunamálum stúdenta. Einn
kosturinn við þessa sameiningu væri
að nú þyrftu menn ekki lengur að
vera hræddir við að kjósa umbana
vegna hræðslu um að þeir myndu
hlaupa annað hvort til Vöku eða þá
vinstri manna eftir kosningar.
Stefna félaganna
var sú sama
Margrét Einarsdóttir, formaður
framkvæmdaráðs Félags vinstri
manna, er sammála þvi að meiri-
hlutasamstarfið hafi verið aðdrag-
andinn að því að Röskva var stofn-
uð. „Það kom í ljós að stefna félag-
anna var sú sama og fólk fór því
að hugsa hvort það væri ekki betra
Ájgúst
Ómar Agústsson,
formaður Félags
umbótasiimaðra stúdenta: „Það
verður svo að sjá hvemig þetta
á eftir að ganga fyrir sig. Ef
þetta verður fíaskó mælir ekkert
á móti þvi að félögin bjóði fram
sitt í hvoru lagi næst.“
að stofna eitt félag saman. Markmið
okkar voru þau sömu, við þurfum
öflugt stúdentaráð sem hefur sam-
skipti út í þjóðfélagið. Við viljum
vera með í þjóðmálaumræðunni."
Þegar hún var spurð um hvort
þama væru að myndast skarpari
línur í stúdentapólitíkinni sagði
Margrét að svo væri. „Það má líta
svo á að við séum til vinstri og við
skipum okkur í flokk með félags-
hyggjuöflunum. Við viljum að Lána-
sjóðurinn verði félagslegur sjóður
sem styrkir námsmenn út frá félags-
legri aðstöðu og að Félagsstofnun
stúdenta verði rekin á félagslegum
grunni.
En hvað telur hún að skilji Vöku
og Röskvu að í stúdentapólitíkinni.
„Markmið Vöku hljóma oft ágætlega
á pappímum en ég held að það sé
meira leiðimar sem skilji hreyfing-
amar að.“ Margrét sagði að kosið
yrði um öfluga hagsmunabaráttu
stúdenta en það væri það sem
Röskva stæði fyrir. „Ég tel að Vaka
sé ekki málsvari þess. En það má
segja að það eigi við um þá sem
þeir em að reyna að bendla okkur
við, nefnilega að vera handbendi
ákveðinna pólitískra afla í samfélag-
inu.
Blekkjandi
auglýsingamennska
„Vaka hefur sýnt það þau ár sem
félagið hefur haldið um stjómar-
taumana, að stefna þess er meira
en orðin tóm. Starfið hefur skilað
árangri," sagði Sveinn Andri Sveins-
Benedikt
Bogason,
formaður Vöku: „Þeir stofnuðu
einfaldlega nýtt félag og reyna
að láta líta svo út að þar sé nýtt
afl á ferðinni og ræða siðan um
það sem þetta nýja afl ætlar að
gera i stað þess að skýra frá því
hvað hafi verið gert.“
son, oddviti stúdentaráðsliða Vöku,
þegar Morgunblaðið spurði hann
álits á stofnun Röskvu. „Þegar
Stígandi og Vaka störfuðu saman
varð ávöxturinn sá m.a. að koma
tókst í veg fyrir að ríkisstjómin setti
skerðingarlög á LÍN, stuðlað var að
öflugu félagslífi í skólanum með
ríflegum fjárframlögum til deildarfé-
laga og miklu fé v^ar veitt í Bygging-
arsjóð stúdenta. Auk þess vissu
flestir stúdentar af því sem þá var
að gerast í stúdentaráði. Ef við ber-
um þetta saman við starf vinstri
meirihlutans í vetur er samanburður-
inn alls staðar mjög óhagstæður.
Ég treysti því að. stúdentar sem
upplýst fólk átti sig á þessu en láti
ekki auglýsingamennskuna blekkja
sig,“ sagði Sveinn Andri.
Hvert fer fylgi
umbótasinna?
Það sem mun valda úrslitum í
Stúdentaráðskosningunum er hvem-
ig fylgi Félags umbótasinna á eftir
að skiptast niður á fylkingamar
tvær. Éf miðað er við fylgi fylking-
anna frá þvi í fyrra, þá er 20% fylgi
umbótasinna núna til ráðstöfunar
fyrir Röskvu og Vöku. Héldi Vaka
svipuðu fylgi og í fyrra, en bætti
auk þess við sig 7 af 20% fylgi
umbótasinna, fá þeir 8 af þeim 15
ráðsliðum sem kosið er um. Gengi
það eftir væri Vaka komin með 15
ráðsliða af 30 og ekki væri unnt að
mynda meirihluta án félagsins.
„Ég held að FUS hafi náð til
manna sem Röskva á ekki eftir að
Sveinn Andri
Sveinsson,
oddviti stúdentaráðsliða
Vöku:„ Vaka hefur sýnt það þau
ár sem félagið hefur haldið um
stjórnartaumana, að stefna þess
er meira en orðin tóm...Ef við
berum þetta saman við starf
vinstri meirihlutans í vetur er
samanburðurinn alls staðar mjög
óhagstæður. “
ná til,“ sagði Ari Edwald, sem sat
í stúdentaráði fyrir umbótasinna
1985-86. „Það hefur alltaf verið mín
hugmynd að Stúdentaráð eigi að
geta starfað sem eins konar stéttar-
félag. Það er staðreynd að Vaka
hefur breytt um steftiu og jafnvel
tekið upp á sín arma þessa umba-
hugsjón. Ég held líka að þessari
skoðun hafi almennt vaxið fylgi und-
anfarið og eftir situr tiltölulega
vinstrisinnað fólk. Það sem hefur
gerst núna er að vinstri menn hafa
sameinast í einu félagi. Það hefur
þó þann kost að það er auðveldara
fyrir hinn almenna stúdent að vara
sig á þeþn.“
Hefði viljað sterkt
miðjuafl áfram
„Mér líst ekki á þetta framboð
og hefði helst kosið að áfram yrði
til staðar sterkt miðjuafl í háskóla-
pólitíkinni," sagði Ama Guðmunds-
dóttir, ein þeirra umbótasinna sem
stofnuðu- Stúdentafélagið Stígandi á
sínum tíma. „Ég get ekki kosið
Röskvu þar sem ég tel þetta vera
framboð vinstriaflanna. Við sem
stofiiuðum Stíganda vorum ekki í
neinum skilningi að ganga í Vöku
og það kom mér á óvart að umbóta-
sinnar skyldu nú taka þátt í því að
stofna nýtt félag.“
Miðjuöfl rugla
myndinni
»Ég er heldur ánægður með
þetta,“ sagði Steingrímur J. Sigfús-
Arna
Guðmundsdóttir,
ein þeirra umbótasinna sem tóku
þátt í stofnun Stúdentafélagsins
Stíganda: „Mér líst ekki á þetta
framboð og hefði helst kosið að
áfram yrði til staðar sterkt _
miðjuafl í háskólapólitikinni. Ég
get ekki kosið Röskvu þar sem
ég tel þetta vera framboð
vinstriaflanna. “
son, þingflokksformaður Alþýðu-
bandalagsins og gamall refur úr
stúdentapólitíkinni. „Þegar ég var
þama á sínum tíma var bara eitt
félag félagshyggjumanna og ég held
að það sé fyrir bestu að þeir standi
saman í réttindamálunum. Það þarf
öfluga málsvara í t.d. húsnæðis- og
lánamálum sem eru og verða í
brennidepli."
Steingrimur J. sagði að með þessu
fengjust líka hreinni línur í stúdenta-
pólitíkinni. Miðjuöfl rugluðu á vissan
hátt myndinni og gætu jafnvel stuðl-
að að því að framboð sem ynni sigur
í kosningum lenti í minnihluta. Hann
sagðist vona að þetta yrði til þess
að efla félagshyggjuöflin í hags-
munabaráttunni.
En hvað segir Finnur Ingólfsson,
sem eins og áður sagði var einn af
aðalmönnunum á bak við stofnun
FUS, um þetta mál? „Mér skilst að
í sjálfu sér sé ekki verið að leggja
niður þessi tvö félög heldur bjóði þau
bara fram sameiginlega. Mér þætti
það hins vegar mjög miður ef FUS
legðist af.
Þegar ég var í Háskólanum á
sínum tíma fannst mér sem við ætt-
um litla samleið með últrakommum
í Félagi vinstri manna. Það getur
þó verið að það hafí breyst. Ef þetta
eru bara félagshyggjuöflin í Háskó-
lanum sem eru að sameinast þá er
ég ánægður en þá hlýtur líka að
hafa orðið mikil breyting á FVM
síðan ég var þama fyrst svo jarð-
bundið félag sem FUS ákveður að
bjóða fram í þeirra nafni.“
NY ÚTGÁFA BANKABRÉFA,
9,75% ÁVÖXTUN UMFRAM VERÐTRYGGINGU
Bankabréf Landsbankans fást nú mcð
7 misinunandi gjalddögum; frá eins árs
bréfum til fimm ára bréfa. Arsávöxtun 9,75%
umfram verðtryggingu. Endursölutrygging
Landsbankans tryggir að hægt er að innleysa
bréfin með skömmum fyrirvara. Bréfin eru í
50.000,-, 100.000,-og500.000,- kr. einingum.
Skuldabréf Lýsingar hf. Bréfin eru til 3ja
ára og eru í 100.000,- kr. einingum.
Ársávöxtun umfram verðtryggingu er 10,8%.
Eldri spariskírteini ríkissjóðs kaupum við
og seljum í gegnum Verðbréfaþing íslands.
Ársávöxtun er nú um 8,7%. Kaup- og
söluþóknun, aðeins 0,75%.
Skuldabréfin fást í verðbréfadeild
Aðalbanka og í útibúum bankans úm land
allt. Nánari upplýsingar og ráðgjöf veita
Verðbréfaviðskipti, Fj ármálasviði,
Laugavegi 7, símar 27722 (innanhússsími
388/391/392).
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
*■)■ .
L
Landsbaiikinn
býður örugg
skuldabréf