Morgunblaðið - 23.02.1988, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.02.1988, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988 Versnandi lieilsa GLEYMDU EKKI AÐ PANTA MATINN FVRIR FERMINGARVEISLUNA TÍMANLEGA FERMINGARBORÐIÐ: (Kalt borð með hefðbundnum veisluréttum) Roast Beef Grillaðir kjúklingar Reykt grísalæri Graflax með ristuðu brauði Sveitapaté með salati eða Stroganoff pottréttur Grænmeti og kartöflur Sérlagaðar sósur: Heit sveppasósa, remúlaðisósa, sinnepssósa. Pá má ekki gleyma hinu afar vinsæla smáréttaborði MATBORÐSINS, sem margir kjósa frekar en snittur og brauð. Vinsamlegast hafið samband við okkur sem fyrst. Matreiðslumeistarar okkar leggja metnað sinn í að veita þér sem besta þjónustu. Pöntunarsími: 672770 GÖGNIN ÚR GÖMLU PC GANGA Á MILLI -IBM PS/2 með íhugnnar- tækni Maharishi? eftírJóhann Guðmundsson í Morgunblaðinu 20. janúar sl. er gfrein eftir Ara Halldórsson „Bætt heilsa með íhugunartækni Maharishi". í greininni segir m.a.: „Ljóst er þó að til þess að auðvelda ráðamönnum allt frum- kvæði þarf að koma af stað víðtækri kynningu og umræðu um tæknina meðal heiibrigðis- stétta og almennings." Til þess að auðvelda ráðamönn- um að gera upp hug sinn til inn- hverfrar íhugunar þá er mitt tillegg til umræðunnar tilvísun til greinar í amerísku tímariti „Sceptical In- quirer" (Efagjam spyrjandi) sem gefíð er út af nefnd til vísindalegr- ar könnunar á fullyrðíngum um yfirskilvitlega reynslu. Fer greinin hér á eftin Vandi innhverfrar íhugnn- ar og Maharishi- háskólans magnast Síðan í nóvember 1986 hefur hreyfmgin Innhverf íhugun (IÍ) og Alþjóðaháskóli Maharishi (AHM) í Fairfield í Iowa-fylki í Bandaríkjun- um orðið að sæta mörgum óþægi- legum uppljóstmnum og áföllum. Vandi þeirra hófst þegar Frank Santiago rannsóknarblaðamaður við Des Moines Register sendi frá sér röð kynningargreina um síðustu atburði á AHM. Robert Kropinski og fimm aðrir fyrrverandi nemendur AHM voru sagðir hafa stefnt AHM og Fram- kvæmdaráði Innhverfrar íhugunar fyrir svik. Þeir sögðu að þeim hefði verið heitið betri heilsu, að hafa betur í samkeppni í viðskiptum og hæfíleikum til að takast á loft. Kropinski segir að þvert á móti hafi Innhverf íhugun skert verulega getu hans til að lifa eðlilegu lífí. Þessi vandkvæði kunna að vara við ævina á enda og stjómendur AHM vissu um hugsanlegar hættur þessu samfara en skelitu skollaeymm við þeim. Lögsóknin hefur verið öðmm hvöt til að koma fram í dagsljósið og ræða um reynslu sína af AHM. Þeir greindu frá undarlegri hegðun sinni á eftir íhugun; andrúmsloftið þar væri eins og hjá trúarreglu; þar væri beitt hópíhugun til að bægja á brott hvirfílbyljum. Það kom fram að AHM hefði leitað fast eftir framlögum úr sjóð- um fyikisstjóma og alríkisstjómar. Eftir að hafa hlotið opinbera viður- kenningu hefur AHM komist efst á blað þeirra einkaskóla í Iowa-fylki sem hlotið hafa opinbera styrki. AHM hefur aðeins 400 til 700 nem- endur (enginn veit með vissu hve marga) en hefur samt hlotið meiri styrki en Drake-háskólinn þótt þar séu a.m.k. átta sinnum fleiri nem- endur en í AHM. Mitt í öllu þessu tók fylkissak- sóknarinn til rannsóknar mál Eds Beckleys, „mannsins sem gerst hafði milljónamæringur," en af öll- um frægðarsögunum sem gengu af AHM höfðu stjómendur skólans haft mest yndi af að segja söguna um velgengni hans. Sérstaka at- hygli vöktu áætlanir Beckleys um að hljóta skjótfenginn gróða: „Kerfí krítarkorta-milla" og „Námsstefna um fasteignaviðskipti án afborg- ana“. Til að komast hjá frekari málssókn af hálfu fylkissaksóknara féllst Beckley á að endurgreiða við- skiptavinum sínum 2,4 milljónir dala (86,4 milljónir kr.). Fyrirtæki Beckleys, sem verið hafði einn stærsti vinnuveitandi í Fairfield með um 560 starfsmenn, hefur orð- ið að draga svo saman seglin að þar starfa nú færri en 30 manns. Beckley hefur nú verið tekið til gjaldþrotaskipta. Um miðjan janúar 1987 vom Kropinski dæmdir 138.000 dalir (kr. 4.968.000) í bætur eftir máls- sókn hans gegn AHM. Þegar kunn- gerðar vom niðurstöður réttarhald- anna kom fyrir almenningssjónir margt í starfsemi hreyfíngarinnar Innhverf íhugun. Kropinski hafði lýst því yfír að IÍ hafði valdið hon- um „höfuðverk, kvíða, ofbeldis- hneigð, ofskynjunum, fáti, minnis- leysi, öskurköstum, óskýrri sjón, ofsóknarkennd og einfaralöngun". Kropinski hafði einnig dregið í efa fullyrðingar AHM um að hægt væri „að fljúga" meðan á íhugun stæði. A eftir komu mál fímm ann- arra stefnenda. Seint í janúar varð AHM aftur bitbein manna, þegar annar kvið- dómur veitti öðmm nemanda AHM, Jeffey Knox, 105.000 dali í bætur þegar hann sótti mál gegn skólan- um fyrir samningsbrot og rógburð. Knox hélt því fram að fyrirtækið Prime Energy, Inc. (Fmmorka) hefði sagt sér upp án ástæðu, vegna þess að hann hefði hætt við íhugun- araðferð Maharíshi, og tekið upp aðferð annars hindúakennara, Prakashnan Saraswati, keppinaut- ar hans. Kviðdómurinn var á sama máli og Knox og bauð verkstjóra hans, Roger D. Beaton, sem sagður var vera starfsmaður hreyfíngar- innar Innhverf íhugun, að greiða Knox í bætur samtals 105.000 dali (kr. 3.780.000). Þar með er vandi AHM sennilega ekki á enda. Hver unnin málssókn gegn AHM eða hliðargreinum hans verður öðmm óánægðum fylgjend- um hreyfíngarinnar hvöt til að koma fram. í náinni framtíð em allar líkur á að komi upp fjöldi at- vika, sem verða óþægileg hinum svífandi hindúakennara og þeim fylgjendum hans sem enn em hon- um trúir en fljúga þó nokkm neðar en hann. Vinningstölurnar 20. febrúar 1988. Heildarvinningsupphæð: 5.058.032,- 1. vinningur var kr. 2.536.428,- og skiptist hann á milli 3ia vinningshafa, kr. 845.476,- á mann. 2. vinningur var kr. 758.500,- og skiptist hann á milli 250 vinmngshafa, kr. 3.034,- á mann. 3. vinningur var kr. 1.763.104,- og skiptist á milli 7.871 vinn- ingshafa, sem fá 224 krónur hver. ' V'-f , Upplýsinga- simi: 685 111. WMó/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.