Morgunblaðið - 23.02.1988, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988
Morgunblaðið/Sverrir
AF INNLENDUM
VETTVANGI
STEINGRÍMUR SIGURGEIRSSON
Umbótasinnar og vinstrí menn sameinast í stúdentapólitíkiiiiii:
Er Röskva nýtt afl eða
hræðslubandalag vinstri
manna gegn V öku?
Morgunblaðið/Sverrir
Stúdentar í Háskóla íslands
ganga til stúdentaráðskosninga
15. mars nk. í vetur hafa þar
verið við völd vinstrimenn og
umbótasinnar en Vaka verið í
minnihluta. Það bar svo til
tíðinda fimmtudaginn 11.
febrúar að á baksíðu
Þjóðviljans var tilkynnt um
myndun nýs félags, Röskvu,
samtaka félagshyggjufólks í
Háskóla íslands. Fyrirsögn
fréttarinnar var „Sameining til
vinstri“ en að félaginu standa
Félag umbótasinnaðra stúdenta
(FUS) og Félag vinstri manna
(FVM). Stofnfundur félagsins
var síðan haldinn daginn eftir
í Stúdentakjallaranum og var
Þórunn Sveinbjarnardóttir
kosin formaður félagsins.
Ástæða þessa framboðs er að
sögn formanna FUS og FVM
að lítili sem enginn
málefnaágreiningur hafi verið
á milli félaganna í vetur og
hafi þau því ákveðið að gera
með sér málefnasamning og
láta núverandi meirihluta bjóða
sameiginlega. Markmiðin hefðu
verið þau sömu og menn talið
óþarfa að vera að eyða
kröftunum á tveimur stöðum.
Einnig mun hafa verið lítill vilji
meðal umbótasinna að bjóða
fram í nafni FUS. Ef þetta
samstarf gangi ekki upp sé
aftur á móti ekkert sem komi
í veg fyrir að „gömlu“ félögin
bjóði fram sitt í hvoru iagi í
næstu kosningum. Vökumenn
telja aftur á móti að hér sé á
ferðinni auglýsingabragð hjá
vinstri mönnum. Meirihlutinn
hafi litlu fengið áorkað í vetur
og reyni að breiða yfir þá
staðreynd með myndun
Röskvu. Ætlunin sé að láta
kosningabaráttuna snúast um
hvað hið nýja félag ætli að gera
í stað þess hvað núverandi
meirihluti hafi gert. Að sögn
forystumanna Vöku eru þeir
staðráðnir í að láta
kosningabaráttuna snúast um
hvað meirihlutinn haf i verið
„máttlítill“ og hvað Vaka
hyggist gera til úrbóta.
Umbótasinnar —
Stígandi — Röskva
Til að átta sig betur á þessu er
vert að rýna nokkuð aftur í tímann.
Félag umbótasinna var stofnað 1981
og var Finnur Ingólfsson, sem nú
gegnir stöðu aðstoðarmanns heil-
brigðisráðherra, helsti hvatamaður-
inn að stoftiun félagsins. Aðalstefnu-
mál félagsins var að gera stúdenta-
ráð ópólitískt og einbeita sér þess í
stað að hagsmunamálum stúdenta.
Félag vinstrimanna hafði árin á und-
an haft tögl og hagldir í Stúdenta-
ráði og var það gagnrýnt af mörgum
á þeim tíma að Stúdentaráð væri
virkur þátttakandi í pólitískri bar-
áttu vinstriaflanna. Fylgi Vöku var
oftast nokkuð minna en fýlgi Vinst-
rimanna. Við stofnun Félags um-
bótasinna missti Félag vinstrimanna
meirihluta sinn og samstarf tókst
með Vöku og hinu nýja félagi, sem
átti eftir að vara næstu ár að einu
undanskildu.
Vorið 1986 urðu hins vegar mikil
tímamót í sögu umbótasinna. Lang-
varandi viðræður höfðu átt sér stað
milli fulltrúa Vöku og FUS í Stúd-
entaráði og málefnasamningur
náðst. Andstæðingar þessa sam-
starfs innan félagsins undu þessu
ekki og felldu samstarfíð á félags-
fundi. Fjórir af fimm fulltrúum fé-
lagsins í Stúdentaráði gengu þá úr
félaginu og stofnuðu nýtt félag;
„Stúdentafélagið Stígandi".
Stígandi hóf meirihlutasamstarf við
Vöku, undir forystu Eyjólfs Sveins-
sonar, þáverandi formanns Vöku.
í kosningunum í fyrra vann Vaka
nokkum sigur, bætti við sig einum
stúdentaráðsliða og jók fylgi sitt í
43%, eða svipað og áður en Félag
umbótasinna var stofnað. Stúdenta-
félagið Stigandi bauð ekki fram í
þessum kosningum, en þeir sem eft-
ir voru í Félagi umbótasinna buðu
fram og náðu tveimur fulltrúum.
Vinstrimenn misstu hins vegar einn
fuiltrúa.
FUS og FVM mynduðu síðan
meirihluta í stúdentaráði með 17
fulltrúa gegn 13 fulltrúum Vöku.
Það er síðan í iqölfar þessa meiri-
hlutasamstarfs sem ákveðið var að
stofna Röskvu, samtok félags-
hyggjufólks.
Sameinmg1 fyrst reif-
uð í haust
„Aðdragandinn að stofnun
Röskvu var langur og má segja að
þessi mál hafi fyrst verið reifuð í
haust," sagði Þórunn Sveinbjamar-
dóttir, formaður Röskvu, í samtali
við Morgunblaðið. „Málin voru síðan
rædd óformlega og í desember vom
settar á stofn nefndir til þess að
kanna hvort þetta væri raunhæfur
möguleiki. Það gekk alveg ótrúlega
vel að ná saman. Munurinn á mönn-
um var ekki meiri en milli einstakra
manna í sama félagi. Við ákváðum
því að setja á stofn þetta nýja félag
og FUS og FVM drógu sig til baka
og lýstu yfir stuðningi við Röskvu."
Þómnn sagði meirihlutann í stúd-
entaráði í vetur vilja halda áfram
að vinna saman.að þeim málum sem
hann hefði náð fram og með þessari
sameiningu fengjust skýrari kostir
í komandi kosningum. Stúdentar
gætu valið á milli Vöku annarsvegar
og Röskvu hins vegar. Sagði Þómnn
að sér fyndist heiðarlega að málum
staðið að gera þetta svona.
Þegar Þómnn var spurð hver
hefði verið helsti ávinningur núver-
andi samstarfs nefndi hún fyrst
byggingasjóðina. „Ég tel bygginga-
sjóðina vera gott mál ef við ætlum
að reisa hjónagarðana. Einnig má
nefna Námsmannaútvarpið og Rót
sem var mikið deilumál á sínum tíma
en hefur reynst vel. Þetta gefur fé-
lögum námsmanna og almennum
námsmönnum tækifæri til þess að
nota þetta tæki sem útvarpið er. Það
hefur líka á ýmsu gengið í lánamál-
um. Það er nú orðið ljóst hver stað-
an er í meðlagsmálinu með áiiti
Lagastofnunar háskólans og bréfi
menntamálaráðherra til stjómar
Lánasjóðsins. Það er beinlínis ólög-
legt að telja meðlög til tekna.“
Ekkert slæmt að fá
vinstrí stimpil
Þórunn sagði þetta nýja félag
vera hagsmunasamtök fyrir stúd-
enta sem byggði á hugsjón félags-
hyggju. „Félagshyggja hefur alltaf
verið flokkuð til vinstri og ég sé
ekkert slæmt í því að fá einhvem
vinstri stimpil á okkur. Menn verða
að standa við það sem þeir segja og
gera. Ég held að þessi samtök eigi
eftir að rúma breiðan hóp fólks."
I stefnupunktum Röskvu segir í
kaflanum um utanríkismál: „Félagið
styður baráttu námsmanna fyrir
jafnrétti til náms, réttinum til mann-
sæmandi lífs og öðrum sjálfsögðum
mannréttindum, hvar sem er í heim-
inum.“
Og í kaflanum um þjóðmál segir:
„Stúdentar eru hluti adf samfélaginu
og hagsmunabaráttu þeirra er því
ekki hægt að slíta úr tengslum við
aðra baráttu í þjóðfélaginu. Félagið
leggur áherslu á þau þjóðmál sem
tengjast hagsmunabaráttu stúd-
enta.“ Morgunblaðið spurði Þórunni
hvað átt væri við með þessu. „Ég
held að við verðum að meta það í
hvert og eitt skipti fyrir sig,“ sagði
Þórunn. „Kjarabarátta kennara og
fóstra er hlutur sem kemur okkur
við. En það er spuming hvort við
eigum að gefa yfirlýsingar um ut-
anríkismál sem ekki koma hags-
munabaráttu stúdenta við. Við eig-
um líka að standa á bak við náms-
mannahreyfingar sem eiga erfitt
uppdráttar. Það eru til hreyfingar
sem stjómvöld eru að kúga. Við
hljótum þó alltaf að spyija okkur
fyrst hvort það sem við erum að
gera þjóni hagsmunum stúdenta.
Fólk getur kannski orðið sammála
um það en leiðimar að markmiðinu
geta orðið deiluefhi."
Vinstri meirihlutinn
lítið áberandi
„Þetta er svo sem ckkert nýtt,“
sagði Benedikt Bogason formaður
Vöku í samtali við Morgunblaðið.
„Þessi félög hafa nú myndað með
ÞÓRUNN
SVEINBJARNARDÓTTIR,
formaður Röskvu, samtaka
félagshyggjufólks í Háskóla
íslands: „Félagshyggja hefur
alltaf verið flokkuð tíl vinstri og
ég sé ekkert slæmt í því að fá
einhvem vinstri stimpil á okkur.
Menn verða að standa vtð það
sem þeir segja og gera. Ég held
að þessi samtök eigi eftir að
rúma breiðan hóp fólks.“
sér kosningabandalag en gömlu fé-
lögin eru áfram til. Það mátti búast
við þessu miðað við þá sem hafa
stjómað umbótasinnum undanfarin
ár. Þetta gerir bara kostina skýrari."
Benedikt sagði vinstrimeirihlut-
ann í Stúdentaráði hafa yerið frekar
lítið áberandi í vetur. „Árangur af
starfi meirihlutans hefur verið mjög
lítill. Helsta baráttumál þeirra um
leiðréttingu námslána hefur ekki náð'
í gegn, engar úrbætur hafa verið
gerðar í dagvistarmálum stúdenta
og útgáfustarfsemi gengið treglega.
Auk þessa hefur meirihlutinn tekið
nokkrar mjög umdeildar ákvarðanir,
m.a. keypt hlutabréf í Utvarpsfélag-
inu Rót og dregið úr stuðningi við
félagslíf í Háskólanum um tæp 40%.
Eina sviðið þar sem árangur hefur
náðst er rekstur Félagsstofnunar
stúdenta, sem lotið hefur stjóm full-
trúa Vöku, Óskars Magnússonar, og
fjármögnun Hjónagarða, en Tryggvi
Áxelsson, fulltrúi Vöku, hefur veitt
byggingarsjóði stúdenta forstöðu í
vetur.“
Benedikt sagði að í ljósi þess að
erfitt hefði verið fyrir vinstrimeiri-
hlutann að bera gerðir sínar undir
dóm stúdenta, hefðu þeir dottið á
gott ráð til þess að beina allri at-
hygli og umræðu annað. „Þeir stofn-
uðu einfaldlega nýtt félag og reyna
að láta líta svo út að þar sé nýtt afl
á ferðinni og ræða síðan um það sem
þetta nýja afl ætlar að gera í stað
þess að skýra frá því hvað hafi ver-
ið gert.“
Ekki vilji til að bjóða fram
í nafni umbótasinna
„Félag umbótasinna og Félag
vinstrimanna höfðu starfað saman í
meirihluta síðan í fyrra og gerðu
með sér málefnasamning þar sem
komið var með skýra steftiu og sagt
hvemig ætti að vinna að henni,“
sagði Ágúst Ómar Ágústsson, form-
aður FUS, við Morgunblaðið. Sagði
hann þetta hafa legið í loftinu í nokk-
um tíma og verið gert til að fá fram
skýrari og sterkari steftiu. Hvorugt
félagið væri lagt niður með þessu
heldur væri þetta tilraun til þess að
bjóða fólki upp á nýjan valkost og
kröftunum ekki eytt á tveimur stöð-
um.
Aðspurður sagði Ágúst Ómar að
málefnaágreiningur milli FUS og
FVM hefði ekki verið mikill. Aðal-