Morgunblaðið - 23.02.1988, Side 19

Morgunblaðið - 23.02.1988, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988 19 koman faríð versnandi með hverjum mánuðinum, sem hefur Uðið. Sá rekstrarafgangur sem var hjá fyrirtækjum í sjávarút- vegi fyrrí hluta árs 1987, var að stórum hluta étinn upp á seinni hluta ársins. Staðan núna er ein- faldlega sú, að mörg fiskvinnslu- fyrirtæki eru að stöðvast. Staðan í öðrum útflutningsgreinum en sjávarútvegi er sizt betrí eins og við höfum heyrt og séð í fréttum að undanfömu," sagði Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjórí Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. „Meginástæða slakrar stöðu er sú, að innlendur kostnaður hefur hækkað um 20 til 30% að meðal- tali meðan útflutningstekjur hafa staðið í stað. Ríkisstjómin hefur stuðlað að gífurlegri hækkun vaxta á innlendum fjármagnsmarkaði með kaupphlaupi við aðra um láns- fé, gjaldskrár opinberra fyrirtækja svo sem rafmagnsveitna hafa stór- hækkað eða um allt að 40%, þjón- ustugjöld bankanna, og eru ríkis- bankamir þar ekki undan skildir, ‘Tiafa stórhækkað. Nýir skattar hafa verið lagðir á fyrirtækin. Stórfram- kvæmdir á vegum ríkisins og Reykjavíkurborgar hafa skapað miída umfram eftirspum eftir vinnuafli og Qármagni. Það eina, sem gert hefur verið til að halda verðbólgunni í skefjum, er að halda meðalgenginu stöðugu. Afleiðing þessa birtist okkur í verðbólgu, sem er margfalt meiri en í viðskiptaríkj- um okkar, þrátt fyrir stöðugt gengi og algerlega óviðunandi rekstrar- skilyrði fyrir útflutningsatvinnuvegi þjóðarinnar. I fyrsta lagi þarf að grípa til al- mennra efnahagsaðgerða til að koma í veg fyrir bullandi viðskipta- halla á þessu ári. í öðm lagi þarf að grípa til sértakra aðgerða fyrir sjávarútveginn. Þessar aðgerðir gætu meðal annars verið eftirfar- andi; Að afnema 'verðtryggingu á lánum og setja þak á útlánsvexti. Það gengur ekkert hagkerfi til lengdar með einn rekstrarþátt verð- tryggðan eftir innlendum kostnað- arhækkunum á sama tfma og út- flutningstekjur standa í stað og fyrirtækin eru neydd til að gefa gjaldeyrinn; Taka upp markvissa Qárfestingastjóm, sem miði að því að fresta fyrirhuguðum stórfram- kvæmdum á vegumn ríkis, sveitar- félaga og fyrirtækja í að minnsta kosti tvö ár, nema sýnt sé að þær skapi umtalsverðar útflutningstekj- ur eða séu beinlínis bráðnauðsyn- legar af öðmm ástæðum. Að mínu mati er hvergi í heiminum jafnauð- velt að stjóma ^árfestingum og hér á íslandi, þar sem allir stærstu bankamir og fjárfestingalánasjóð- imir em í höndum hins opinbera; Aðlaga þarf gengi að raunvemleik- anum. Sú aðlögun gæti að mínu mati verið í lágmarki, yrði tekið á vaxtadæminu og jafnframt gripið til sérstakra aðgerða fyrir sjávarút- veginn svo sem að endurgreiða sölu- skatt af aðföngum, hætta við launa- skatt á fískvinnslu og útgerð og með því að tryggja útgerðinni olíu á heimsmarkaðsverði og fískvinnsl- unni raftnagn á sama verði og helztu samkeppnisaðilamir, til dæmis Norðmenn og Kanadamenn njóta. Ég tel að um ákveðna offjárfest- ingu sé að ræða, bæði í fiskvinnslu og útgerð. Við leysum hins vegar engan vanda i dag með þvi að benda á að við séum með of mörg fiski- skip, of maigar loðnuverksmiðjur og of margar rækjuverksmiðjur. Að þessu þarf þó að hyggja vegna framtíðarinnar, en ég held hins veg- ar að sú offjárfesting, sem þegar er fyrir hendi, minnki ekki nema ríkið aðstoði fyrirtækin við að hætta rekstri skipa eða verksmiðja með einum eða öðmm hætti. Mörg frystihús eru mjög vel rek- in, önnur eru ekki eins vel rekin. Við, sem stjómum þessum fyrir- tækjum, emm aðvitað sífellt að spyija okkur hvað við getum gert betur. Margt af því, sem við gætum gert, kostar hins vegar peninga. Þeir peningar em ekki fyrir hendi í dag. Það er dýrt að vera fátæk- ur,“ sagði Finnbogi Jónsson. Signrður Einarsson, V estmannaeyjum: Gengislækkun ein leysir ekki málið „í DAG er meðalfyrirtæki í físk- vinnslu rekið með halla. Hann er mismikill eftir þvf hvaða físktegund er verið að vinna og eftir því á hvaða markaði fyrirtækin em að vinna, en að meðaltali er um halla- rekstur að ræða. Ástæður þessa em fyrst og fremst þær, að verðbólga hér á landi hefur verið miklu meiri en í markaðslöndum okkar og okk- ur hefur ekki tekizt að selja erlend- um neytendum innlendar kostnað- arhækkanir," sagði Sigurður Ein- arsson, framkvæmdastjóri Hrað- frystistöðvar Vestmannaeyja. „Það er margt, sem þarf að gera, en fyrst og fremst þarf að vinda ofan af þessum kostnaðarhækkun- um, sem hafa skollið á vinnslunni allt síðasta ár. Það er alveg ljóst að tekjur vinnslunnar hafa rýmað með lækkun dollarsins og það stenzt hún ekki til lengdar. Það þarf að endurgreiða fiskvinnslunni söluskattinn með sama hætti og gert var, hún þarf að njóta sam- bærilegs rafmagnsverðs og býðst í nágrannalöndunum, vextir þurfa einnig að vera sambærilegir og aðrir kostnaðarliðir þurfa að lækka. Gengislækkun ein og sér leysir ekki þessi mál. Það þarf að koma fíeira til, framleiðslukostnaðinn verður að lækka eða auka tekjumar með bættum rekstri. Það má segja að um offjárfest- ingu sé að ræða í frystihúsunum eins og á svo mörgum öðmm svið- um á Islandi. Það var í haust talað um að nægilegt væri að vera með 8 til 10 sláturhús, en þau em á milli 30 og 40. Það var líka talað um, að nægilegt væri að vera með 6 loðnuverksmiðjur, en þær em 25 og fer fjölgandi. Allir þekkja ofQár- festinguna í fískiskipaflotanum, sem haldið hefur áfram alveg fram eftir siðasta ári og það er fjárfest um of í hótelbyggingum og svona er þetta á fleiri sviðum hjá okkur íslendingum. Það er því ósann- gjamt að taka fiskvinnsluna út eina fyrir sig og segja að ástæðan fyrir stöðunni sé offjárfesting. Það er ljóst að færri fyrirtæki gætu fram- leitt það, sem við emm nú að fram- Nýr metsölubíll með fimm ára ábymð. Hyundai (borið fram hondæ) er í dag einn mest vaxandi bílaframleiðandi heims og sel- ur nú bíla í 65 þjóðlöndum. Hyundai Excel hefur verið mest seldi innflutti bíllinn, bæði í Bandaríkjunum og Kanada, síðustu 18 mán- uði.* Þennan árangur má þakka þeirri einföldu staðreynd að Hyundai er rétt byggður og rétt verðlagður. Hyundai Excel er fyrsti bíllinn á íslenskum markaði með 5 ára ábyrgð**. Hann er gerð- ur til að endast, viðhaldið er í lágmarki og þú getur verið áhyggjulaus í 5 ár. Excel er sterkbyggður og hannaður til að þola rysjótt veðurfar og misgóða vegi. Einnig hefur verið séð til þess að bílarnir séu aðlagaðir viðkomandi markaði, t.d. eru allir bílamir sem seldir eru hér á landi búnir styrktu raíkerfi og með sérstakri ryðvörn. Excel er með framhjóladrifi og sjálfetæðri íjöðrun á hverju hjóli, 1,5 lítra kraftmikilli vél og hægt er að velja um 4 eða 5 gíra bein- skiptingu eða 3 stiga sjálfskiptingu. Öryggi farþeganna gleymist heldur ekki. Hyundai Excel er með styrktarbitum í hurðum og öryggisstuðurum. Hyundai Excel kostar frá 428 þúsund krónum og er betur búinn en gengur og ger- ist með bíla í sama flokki. Excel er bíll fyrir skynsamt fólk sem vill eiga vel hannaðan, öruggan og endingargóðan bíl, án þess að þurfa að kosta allt of miklu til. ’Wards Automative Reports ** Kynnið ykkur ábyrgðarskilmála Iscan hf. HYunoni í Framtíð við Skeiíuna. Sími 685100. BÍLBELTl ERU SKYNSAMLEG.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.