Morgunblaðið - 23.02.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988
25
Hæstiréttur:
Dæmdur fyrir að
blanda áfengi sam-
an við önnur efni
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Guttorm Pétur Einarsson forstjóra Bjór-
samlagsins Ámunnar í 50.000 króna sekt fyrir brot á áfengislögunum.
Einnig verða gerðir upptækir 125 lítrar af áfengi með ílátum auk ann-
arra tækja. Guttormi-er gert að greiða 25.000 krónur í áfrýjunarkostn-
að og saksóknaralaun og 25.000 krónur í málsvarnarlaun.
í niðurstöðum dómsins segir að
Guttormur Pétur Einarsson hafi
staðið fyrir því að tekið var við
áfengisflöskum sem menn höfðu
keypt í Áfengis- og tóbaksverslun
nkisins á vegum Bjórsamlags
Ámunnar. Var áfengið notað til að
blanda því saman við önnur efni þar
á meðal bjór, sem ekki náði styrk-
leikanum 2,25% af vínanda og var
því ekki áfengi eftir lögum nr.
82/1969. Greitt var fyrir þennan
bjór og önnur efni auk þjónustu sem
þeim var veitt.
Þá segir orðrétt: „Drykkurinn,
sem þeir síðan fengu afhentan, hafði
sérstaka eiginleika, aðra en þá sem
hið framlagða áfengi hafði, og þau
efni sem ákærði sá um að útvega.
Var sú staðreynd grundvöllur þess-
arar starfsemi á vegum ákærða. í
málflutningi sínum taldi saksóknari,
að það skipti mestu um skýringu á
því ákvæði, sem hér er fjallað um,
að í raun hefði verið um nýjan drykk
að ræða.
Af hálfu ákærða var aftur á móti
lögð á það áhersla, að enginn vínandi
hefði verið framleiddur heldur aðeins
farið fram blöndun, og væri þess
vegna eigi unnt að tala um að áfengi
hefði verið bruggað eða búið til.
Myndi og að áliti ákærða, ef svo
yrði talið, margs konar algeng
vínblöndun á veitingahúsum og á
heimilum, svo og önnur algeng notk-
un áfengis, svo sem við matargerð
fela í sér brot á 7. gr. 1. mgr. áfengi-
slaga, en sú niðurstaða sé fjarstæð."
Þá segir í dómsniðurstöðunum að
skýring eftir orðanna hljóðan bendi
til að fyrri skýringin sé rétt, „því að
á vegum ákærða var áfengur drykk-
ur búinn til.“
Og síðar: „Það fær ekki hnekkt
þessari niðurstöðu, að ýmiss konar
vínblöndun og notkun áfengis við
veitingar og annað, verður ekki felld
undir lagaákvæði það, sem hér er
til meðferðar. Skilur þar á milli að
ákærði vann að því að búa til áfeng-
an drykk í atvinnuskyni en ekki á
ánn hátt, sem bersýnilega eftir eðli
máls og langri lagaframkvæmd fell-
úr utan hins umdeilda lagaákvæðis."
Ákærði er dæmdur fyrir brot á
1. málsgrein 7. greinar áfengislag-
anna, en þar segir: „Bannað er að
brugga á Islandi eða búa til áfenga
drykki eða áfengisvökva og gera
drykkhæft það áfengi, sem er eða
gert hefur verið óhæft til drykkjar.“
Hann er einnig dæmdur fyrir brot
á 18. grein áfengislaganna sem
kveður á um að öllum sé óheimilt
að veita, selja eða láta af hendi
áfengi til annarra manna gegn því,
að gjald eða annað verðmæti komi
fyrir. Samkvæmt 8. grein laganna
er fallist á kröfu um upptöku á 125
lítrum af áfengi ásamt ílátum.
Málið dæmdu hæstarréttardómar-
arnir Þór Vilhjálmsson og Bjami
K. Bjamason og Guðmundur Ingvi
Sigurðsson hæstaréttarlögmaður.
Guðmundur Ingvi skilaði sérat-
kvæði.
I greinargerð með sératkvæðinu
segir m.a.: „Tilbúningur áfengis
(bmggun) er lífefnafræðilegur þró-
unarferill sem felur í sér gerjun
ákveðinna efna, sem breytir sykri
(sykurtegundum) í alkóhól og kol-
sým (öl, vín), en við eimingu þessa
vökva, sem þannig verður til, verður
til sterkt áfengi. Einnig þekkist
efnafræðileg framleiðsla alkóhóls.
Samkvæmt þessu getur blöndun
áfengisvökva við önnur efni, svo sem
annan áfengisvökva, vatn, gos-
drykki, óáfengan bjór o.s.frv., ekki
verið tilbúningur áfengis (bmggun).
Hvergi í lögum er slík blöndun
áfengra drykkja bönnuð.
Ákærði blandaði tveim tegundum
áfengis við óáfengan bjór, auk þess
sem hann setti út í blönduna bragð-
og fyllingarefni. Þetta er ekki tilbún-
ingur áfengis samkvæmt því sem
lýst hefir verið, heldur blöndun..."
Guðmundur Ingvi telur að sýkna
beri ákærða af þeim hluta ákæmnn-
ar er lýtur að broti á 7. grein laga
nr. 82/1969. Forsenda fyrir upp-
tökukröfunni í ákæmnni samkvæmt
8. gr. 1. nr. 82/1969 er sakfelling
samkvæmt 7. gr. laganna. Þar sem
slíku er ekki til að dreifa beri að
sýkna ákærða af upptökukröfunni.
Viðskipti þegna með áfengi eru
settar þröngar skorður í lögum og
em háðar leyfum. Þar sem ákærði
hafði ekkert slíkt leyfi og blöndunar-
starfsemi hans tengdist áfengi og
afhendingu þess lýsir Guðmundur
Ingvi sig samþykkan atkyæði meiri-
hlutans um að ákærði hafi brotið
gegn 18. gr. 1. nr. 82/1969.
I dómsorði segir hann að refsing
ákærða Guttorms Péturs Einarsson-
ar skuli niður falla en að hann skuli
greiða sakarkostnað.
Dómurmn á ekkert
skylt við lögfræði
SKIN
HINN BJARTI TÓNN
- segir Jón Steinar Gunnlaugsson
hrl. verjandi Guttorms Einarssonar
„ÉG ER hættur að skilja lögfræði og- lögfræðileg sjónarmið ef þessi
dómur getur gengið,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlög-
maður, verjandi Guttorms Einarssonar, er Morgunblaðið innti hann álits
á dómnum.
Jón Steinar sagðist álíta að það
gæti ekki staðist að Guttormur væri
dæmdur fyrir að brjóta áfengislögin.
Hann sé dæmdur fyrir að búa til
áfengi með því að blanda áfengi sam-
an við óáfengan drykk.
Sagði hann að þetta vera algjör-
lega óskiljanlega niðurstöðu hjá
Hæstarétti. Einnig taldi hann dóms-
forsendumar vera mjög óvenjulegar
því þar væri tekið fram að þótt kom-
ist sé að þessari niðurstöðu þýði það
ekki það að venjubundin vínblöndun
sé ólögmæt.
„Það bendir til þess að dómaram-
ir hafi áttað sig á að menn myndu
skilja þetta þannig, enda er það al-
veg hliðstætt," sagði Jón Steinar.
„Þeir reyna að gera grein fyrir hvað
skilur á milli og það em hlutir sem
koma tilbúningi áfengis ekkert við.
Þeir segja einnig að Guttormur
hafí gert þetta í atvinnuskyni. Það
kemur málinu heldur ekkert við, enda
er áfengi blandað í atvinnuskyni úti
um allan bæ.
Þá er tilgreint að að ríkissaksókn-
ari hafi talið að hér væri um að
ræða nýjan drykk. Ég spyr: Verður
ekki alltaf nýr drykkur þegar tveim-
ur vökvum er blandað saman?
Að mínu áliti á þessi dómur ekk-
ert skylt við lögfræði. Sem betur
fer, því lögfræðin er ekki svona,"
sagði Jón Steinar Gunnlaugsson að
lokum.
gefur þér tilefni til að breyta skammdeginu.
Þú málar bara yfir það!
HÖRPUSKIN fæst í
HÖRPUSKIN ný
innanhússmálning
með 10% gljástigi
sem gerir hana
áferðarfallega og
auðvelda í þrifum.
HÖRPUSKIN skaltu
nota á herbergin og
stofurnar. Hún er afar
einföld í notkun og
þekur mjög vel.
t. 10 björtum staðallitum
en litamöguleikarnir
eru mun fleiri.
Skiptu um lit á
skammdeginu - með
HÖRPUSKINI.
HÖRPUSKIN
- líttu á björtu hliðarnar. HARPA
lífinu lit.