Morgunblaðið - 23.02.1988, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988
Flýttu þér að klára súpuna
áður en hún mengast!
Með
morgxmkaffinu
Það er augljóst, auli. Ég
er svona miklu betri en þú.
HÖGNI HREKKVISI
Waldheim-málið:
Að vera sekur
Til Velvakanda.
Um þessar mundir eru tvö ár
síðan gyðingar hófu ófrægingaher-
ferð sína gegn Waldheim forseta
Austurríkis og fyrrum fram-
kvæmdastjóra SÞ og hefur þessu
haldið áfram linnulaust síðan og
ekkert lát er á nema síður sé, fyötdi
manna hefur unnið baki brotnu við
að reyna að grafa eitthvað upp til
þess að geta kennt Waldheim um
stríðsglæpi. Waidheim, eins og þús-
undir annarra Austurríkismanna,
var í þýska hemum og þá vitanlega
komungur maður. Þeir er nú leggja
fram sínar „skýrslur" hafa ekkert
getað sannað á Austurríkisforseta
og verða að láta sér nægja að segja
að hann hljóti að hafa vitað um
stríðsglæpina og því beri hann sið-
ferðilega sök á þeim. Strax og
óhróðurinn gegn Waldheim hófst
vom margir fljótir til og dæmdu
manninn sekan þegar í stað, þegar
fjölmiðlar hefla gegndarlausan
áróður gegn einhveijum eða ein-
hveiju þá fer fólk að trúa. Margur
maðurinn hefur verið brotinn niður
og líf hans lagt í rúst af svona
óheiðarlegum vinnubrögðum, það
er vitanlega alger óhæfa að dæma
menn af líkum, enginn er sekur
fyrr en óhyggjandi sannanir eru
fyrir sekt hans og séu þær til stað-
ar þá á að sjálfsögðu að dæma við-
komandi miskunnarlaust.
Enginn heilvita maður neitar því
að nasistamir frömdu slík voðaverk
að alveg með ólíkindum er og aldr-
ei fæst skýring á því hvernig það
gat gerst að hluti af gáfuðustu og
duglegustu þjóð veraldar breyttist
í slíka óþverra. Tvískinnungurinn
og hræsnin í öllu þessu Waldheims-
máli er alveg yfirgengilegur, þeir,
sem hvað mest hafa sig þar í
frammi eru einmitt mennimir er
ekkert sjá athugavert við fjölda-
morðingja í ísrael, Begin, Sharon
og Shamir svo aðeins séu nefndir
nokkrir af alverstu föntunum, ekki
aðeins hafa þessir menn líf þúsunda
palestínskra karla, kvenna og bama
á samviskunni og það í bókstaf-
legri merkingu heldur og líf hundr-
uða breskra her- og lögreglumanna
frá tímum breskra yfirráða í Pal-
estínu er náðu hámarki er hryðju-
verkasveitir þeirra sprengdu hótelið
Davíð konung í loft upp og drápu
um 100 manns enda vom tveir
þeirra fyrmefndu þegar á þessum
áram eftirlýstir sem mjög hættuleg-
ir hryðjuverkamenn, nefndur Begin
fékk friðarverðlaun Nóbels fyrir
nokkram áram. Já, hún birtist í
ýmsum óhugnanlegum myndum
vitfirring heimsins. Aðeins aftur að
Waldheim. Eins og vænta.mátti era
Bandaríkjamenn fremstir í röðum
andstæðinga hans, enda gyðingar
§ölmennir þar í landi og mjög
áhrifamiklir, Austurríkisforseti er
þar á svörtum lista og fær ekki að
koma til landsins, en til dæmis
Wemer von Braun, aðalmaðurínn á
bak við VI- og V-2-flugskeytin, sem
skotið var á England í seinni heims-
styijöldinni og ollu dauða fjölda
Breta, hann fór til Bandaríkjanna
strax í stríðslok og vann dyggilega
fyrir þarlenda allt til dauðadags
fýrir nokkram áram. Enginn talaði
um að sækja þennan mann til saka
eða að hann bæri siðferðilega sök
á einu eða neinu, það er samræmi
í þessum hlutum eða hitt þó held-
ur, einn er dæmdur vegna þess að
hann hlýtur að hafa verið með eða
að minnsta kosti að hafa vitað um
eitthvað skuggalegt, annar er sak-
laus enda þótt staðreyndimar segi
allt annað, samanber stjómarherr-
ana í ísrael, nýjasta tómstunda-
gaman ísraelsku dátanna er að
grafa palestinska unglinga lifandi.
Hvað lengi enn ætlar heimurinn að
horfa aðgerðarlaus upp á djöfulæði
þessara manna?
Guðjón V. Guðmundsson
Vísa vikunnar
Steingrímur Hermannsson, utanríkisráðherra:
Mistök að leggjast gegn heim-
sókn forseta í lok mánaðarins
Segist hafa lagt fram bókun sína á ríkisstjórnarf und-
inum en hún hafi ekki verið lesin þar upp
MÉg gerði grein fyrir málinu
á ríkÍMtjóre&rfundi í morgun,
þannig að það hegi ijóst fyrir
og þar lét ég bóka að vegna
híniia miklu viðskiptahags-
Engaryfír-
lýsingar
- segirJónSig-
urðsson, dóms-
málaráðherra
mÉG VIL engar yfirlýsingar um
muna sem við eigum að gœta
þaroa teldi ég það mistök að
leggjast gegn þvi að úr þeaa-
arri opinberu heimsókn yrði 1
lok mánaðarins,M sagði
Steingrimur Hermannaaon, ut-
anríkiaráðherra, i aamtali við
Morgunblaðið i gser. nÉg gerði
foruetisráðherra grein fyrir
minni afatöðu á laugardaginn,
avo að hún lá tfóa fyrir.“
Steingrimur aagöist hafa viljað
foröast að rœða málið, þar sem
það varðaði foreetann, en þjá því
yrði ekki komist þar sem frá þvi
hefði verið skýrt í Qölmiðlum.
Hann sagði að á ríkisstjómar-
fundi á fímmtudaginn hefði verið
samþykkt að þiggja boðið, en leita
eftir öðnim tima. Sovétmenn
Steingrimur Hen
Guðmundur dúllarí dögum á fyrr
dvaldi hjá höfðingjum mikið.
Því finnst mér óþarfur stormur og styr
um hann Steingrím og mal hans og prikið.
Hákur
Víkverji skrifar
Raymond Keene, stórmeistari í
skák, ritar um skáklistina í
breska vikuritið The Spectator. í
því hefti, sem dagsett er 13. febrú-
ar, birtir hann frásögn af viðureign
þeirra Jóhanns Hjartasonar og
Viktors Kortsnojs í Saint John í
New Branswick í Kanada á dögun-
um. Þótt ýmsum finnist kannski
að verið sé að bera í bakkafullan
lækinn með því að endursegja það,
sem fram kemur hjá Keene, ætlar
Víkveiji samt að gera það. Þeir sem
ekki hafa áhuga á skák eða átökum
á skákmótum geta þá snúið sér að
öðra efni í blaðinu. Keene segir
eftir að hafa lýst Jóhanni sem
óreyndum og sagt að flestir hefðu
talið hann auðvelda bráð fyrir hinn
gamalreynda Kortsnoj:
„Hjartarson skapaði stærsta at-
burðinn á mótinu með því að vinna
Kortsnoj tvisvar í skákum 1 og 4
en í skákum 2 og 3 varð jafntefli.
Við svo búið tók sá gamalreyndi
sig á og vann 5. og 6. skák, en
beið að iokum lægri hlut gagnvart
hinum viðbragðsfljóta ungliða í
seinni af aukaskákum þeirra. ís-
lenska sjónvarpið varði 75.000 doll-
uram (2,8 milljónum ísl. króna) í
þijár sendingar beint með gervi-
hnetti til Reykjavíkur frá þeim
skákum, sem gátu skipt sköpum
fyrir Hjartarson. Tvisvar sinnum
vora þeir óheppnir og fóra í loftið
í þann mund sem hetja þeirra var
að gefast upp, en íslendingar höfðu
heppnina með sér í þriðja skiptið
og slógu þannig met í áhorfenda-
§ölda.“
XXX
Keene heldur áfram í The Spec-
tator.
„A Islandi er auðvitað skákæði,
einkum eftir að Fischer og Spasskíj
háðu þar einvígi sitt 1972. Það var
sungið, dansað og drakkið á götum
úti þegar Hjartarson náði foryst-
unni og næstum þjóðarsorg, þegar
hann tapaði forskotinu. Einvígið
einkenndist líka dálítið af þeirri
heift, sem er nýnæmi fyrir íslend-
inginn en er sérfag Kortsnojs. Það
var deilt um, hvar skákborðið ætti
að standa á sviðinu, kvartað undan
því að Kortsnoj hallaði sér yfir and-
stæðing sinn til að drepa í sígarett-
ustubbum og almenn óánægja var
yfir því hjá íslensku sendinefndinni
(sem var undir forystu hins fræga
Friðriks Ólafssonar) að Kortsnoj
væri að breyta sviðinu í raunvera-
lega eftirmynd af íslensku eldfjalli
með keðjureykingum sínurn."
Víkveiji hefur engu við þessa
lýsingu Raymonds Keenes að bæta.
En sérfræðingar Víkveija í skákí-
þróttinni hafa upplýst hann um
það, að á sínum tíma hafi Keene
verið aðstoðarmaður Kortsnojs, upp
úr þeirri samvinnu slitnaði og sé
nú kalt á milli þeirra.
XXX
Ilok frásagnar sinnar af þessu
skákmóti í Saint John birtir Ke-
ene lokaskákina á milli þeirra Jó-
hanns og Kortsnojs. En hann segir
einnig, að þeir muni næst leiða sam-
an hesta sína í baráttunni um
heimsmeitaratitilinn Jóhann Hjart-
arson og Jusupov. Man Víkveiji
ekki betur en því hafi verið haldið
á loft, að næst ætti Jóhann að tefla
við Karpov. Segir Keene að Karpov
eigi að tefla við Spraggett frá
Kanada, sem kom veralega á óvart
í Saint John með því að sigra An-
drei Sokolov frá Sovétríkjunum.
Loks segir Keene að áhugi
manna á Vesturlöndum á að standa
sig vel í keppninni um heimsmeist-
aratitilinn í skák hafi stórlega vax-
ið á dögunum, þegar vestur-þýskt
tölvufyrirtæki tilkynnti að það
myndi gefa 1 milljón svissneskra
franka eða tæplega 27 miiljónir
íslenskra króna til þess Vestur-
landabúa sem yrði fyrstur til að
öðlast rétt til að beijast við heims-
meistarann.