Morgunblaðið - 23.02.1988, Side 58

Morgunblaðið - 23.02.1988, Side 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988 BREYTINGAR Á UMFERÐARLÖGUM Talsverðar breytingar verða á umferðarlögum 1. mars næst- komandi. Vegna þessara breyt- inga starfrækir lögreglan sér- stakan upplýsingasima fram að mánaðamótum, 623635, alla virka daga milli kl. 14 og 16. Morgunblaðið mun á næstunni, í samvinnu við lögregluna, birta svör við spurningum vegna þess- ara breytinga. Númer óskoðaðra bíla — Hefur lögreglan heimild til þess að taka skráningamúmer af óskoðuðum bílum samkvæmt nýjum umferðarlögum? Svar: 69. gr. nýju umferðarlag- anna svarar til_ 1. mgr. 21. gr. gömlu laganna. í staðinn fyrir lög- reglustjóra kemur lögreglumaður, en það er gert til þess að heimila einnig bifreiðaeftirlitsmönnum að banna notkun ökutækis. Greinin í nýju lögunum er svona: „Nú kemur f ljós, að skráningarskylt ökutæki er til hættu fyrir umferðaröryggi eða er eigi fært til skoðunar þegar krafist er, og getur þá löggæslu- maður tekið af því skráningar- merki." Kynning’ á nýju lögunum — Verða nýju umferðarlögin ekki kynnt markvissara fyrir þjóðinni en verið hefur? Ég hef séð það f þessum upplýsingum ykkar í Morgunblaðinu að ýmis fleiri nýmæli og breytingar eru frá gömlu lögunum en ég hef áður talið. Svar: Nýju umferðarlögin fela í sér ýmsar breytingar um nýmæli frá gömlu lögunum. Lögreglunni er kunnugt um að þessi ákvæði verða kynnt allítarlega fyrir þjóð- inni á næstu vikum og mánuðum. Dómsmálaráðherra skipaði sér- staka nefnd til þess að annast m.a. þennan þátt málsins í samvinnu við Umferðarráð og Fararheill. Nefndin hefur unnið að undirbún- ingi þessa máls og er sú vinna þegar farin að skila sér. Allmikil umfjöllun um nýju umferðarlögin hefur verið að undanfömu í flöl- miðlum og virðist sem fólk almennt geri sér nokkuð glögga grein fyrir í hverju nýmæli og breytingar lag- anna séu fólgin. Sá þáttur, sem fólk hefur haft mestar áhyggjur af, eru ákvæði 10. gr. varðandi það atriði að fólk eigi að geta gert upp sín mál eftir minniháttar umferð- aróhöpp á eyðublöð, sem trygging- arfélögin útvega. Sá ótti ætti að vera ástæðulaus, en skiljanlegur að mörgu leyti. Fjölmiðlar hafa verið áhugasam- ir um nýju umferðarlögin og hafa almennt komið upplýsingum varð- andi þau til skila til fólks. Um- ferðarmálefni eru þess eðlis að þau eru stór hluti af tilverunni og því nauðsynlegt að hver og einn skilji og geri sér grein fyrir þeim reglum, sem gilda á hveijum tlma. Væn- legst til árangurs er að hver og einn kynni sér ákvæði laganna og einsetji sér að virða þau. Þannig getum við í sameiningu stefnt að •ákveðnu marki, okkur öllum til fararheilla. Lögreglan mun leggja sitt af mörkum til þess að svo megi verða. Að fjarlægja bíla með kranabíl — Er einhver heimild til lög- reglunnar í nýju lögunum til þess að geta flutt bíla á brott með kranabíl, t.d. ef þeir standa ólöglega, en valda engri teljandi hættu að öðru leyti? Svar: í 110. gr. nýju laganna er fjallað um brottflutning öku- tælg'a. Þar segin „Heimilt er lög- reglu að flytja eða láta flytja á brott ökutæki, sem stendur þannig að bijóti í bága við reglur um stöðv- un eða lagningu ökutækja, eða að öðru leyti þannig að það valdi trufl- un á umferð, snjómokstri eða vinnu við veg. Sama á við um skráningar- skylt ökutæki, sem skilið hefur verið eftir án skráningarmerkja, og ökutæki, sem telja verður að eigandi hafí yfírgefið að fullu. Enn- fremur ökutæki, sem stendur á einkalóð eða opinberri lóð þannig að valdi eiganda eða umráðamanni hennar tjóni eða óþægindum eða gegn banni hans. Standi ökutæki á svæði, sem ekki er ætlað til al- mennrar umferðar, skal það því aðeins flutt á brott, að eigandi eða umráðamaður lóðar kreflist þess.“ Samkvæmt þessu hefur lögregl- an heimild til þess að flytja eða láta flytja á brott ökutæki með kranabifreið ef það stendur ólög- lega. Hugtakið hætta er afstætt. Ef bíl er ólöglejga lagt, stendur t.d. að hluta til upp á gangstétt, en er ekki fyrir að öðru leyti, er hann sjáandi fólki einungis til óþæginda, en getur skapað blindu fólki eða sjóndöpru nokkra hættu. Krana- bílnum verður beitt í ríkara mæli í framtíðinni gagnvart þeim öku- tækjum, sem lagt verður ólöglega. í 5. mgr. 19. gr. nýrrar lögreglu- samþykktar fyrir Reylq'avík er kveðið á um flutning númerslausra bíla, en þar segir: „Heimilt er að flytja burtu og taka I vörslu borgar- innar bifreiðir, sem standa án skráningamúmera á götum og al- mennum bifreiðastæðum." Ef haldið er áfram með ákvæði 110. gr. nýju umferðarlaganna seg- ir m.a. um flutninginn: „Ökutæki skal færa til geymslu á tryggan stað, sem lögreglan vísar á, nema ökumaður eða eigandi (umráða- maður) sé viðstaddur og flytji það þegar á brott eða vísi á annan geymslustað. Er geymsla ökutæk- isins á ábyrgð eiganda. Kostnað vegna flutnings og geymslu skal ökumaður greiða. Ef ökumaður er óþekktur, eða greiðir ekki þrátt áskorun þar um, ber eigandi (um- ráðamaður) ökutækis jafnframt ábyrgð á greiðslu kostnaðarins, nema ökumaður hafí notað öku- tækið I algeru heimildarleysi. Heimilt er að halda ökutæki í geymslu til tryggingar greiðslu kostnaðar. Kostnað má innheimta með lögtaki. Lögreglustjóri skal tilkynna eig- anda ökutækisins um flutning þess, hvenær hann fór fram og hvar ökutækið er í geymslu. í tilkynn- ingunni skal jafnframt koma fram, að verði ökutækið eigi sótt innan tiltekins frests og áfallinn kostnað- ur greiddur verði það selt. Ef eig- andi er óþekktur má selja ökutæk- jð einum mánuði eftir að það var fjarlægt. Að lokum fresti samkvæmt 3. mgr. skal selja ökutækið á opin- beru uppboði eða til niðurrifs, ef ætla má að hærra verð fáist þann- ig. Söluandvirði rennur I ríkissjóð. Eigandi ökutækisins getur þó, inn- an árs frá því að sala fór fram, krafíst greiðslu á söluandvirðinu, að frádregnum kostnaði við flutn- ingj geymslu og sölu ökutækisins. Akvæðin um geymslu og sölu ökutækjanna gilda, eftir því sem við á, um önnur ökutæki í vörslu lögreglu eða bifreiðaeftirlits." Má bjóða upp bifreið ef sekt er ekki greidd? — Segjum að ég fengi sekt fyrir ólöglega stöðu bifreiðar minnar og að ég greiddi ekki sektina. Getur verið að hægt sé að sækja bifreiðina í framhaldi af þessu og bjóða hana síðan hæstbjóðanda á uppboði? Svar: í 109. gr. nýrra umferðar- laga er gert ráð fyrir að gjald vegna stöðu- og stöðvunarbrota njóti lög- veðs í hlutaðeigandi ökutæki. í 1. og 2. mgr. greinarinnar segir: „Gjald, sem lagt hefur verið skv. 1. mgr. 108. gr. (varðandi stöðu- og stöðvunarbrot), hvílir á þeim, sem ábyrgð ber á stöðvun ökutæk- is eða lagningu. Eigandi ökutækis eða umráðamaður ber einnig ábyrgð á greiðslu gjaldsins, ef það greiðist ekki innan tilskilins frests, nema sannað verði, að ökumaður hafí notað ökutækið í algeru heim- ildarleysi. Gjaldið nýtur lögtaks- réttar og lögveðs í viðkomandi öku- tæki. Lögveð þetta gengur fyrir öllum öðrum réttindum í ökutæk- inu, en fellur niður við eigenda- skipti, hafi hinn nýi eigandi hvorki vitað né mátt vita um lögveðið. Lögveðið gengur þá á eftir kröfum um opinber gjöld, sem tryggð eru með veði í ökutækinu, hafí veðinu verið þinglýst áður en gjaldið var lagt á. Verði álagt gjald ekki greitt inn- an tilskilins frests skal senda eig- anda ökutækisins eða umráða- manni, á sannanlegan hátt, tii- kynningu um, að málið verði, að tilteknum tíma liðnum, sent til meðferðar fógetaréttar eða upp- boðsréttar, enda hafí greiðsla eigi verið innt af hendi. Einnig skal honum gefínn kostur á að koma að mótbárum eða vörnum innan sama tíma.“ Besta ráðið gegn því að til ofan- ritaðs þurfí að koma er að virða stöðu- og stöðvunarbann. Ljósabúnaður — Ég hef séð að fyrirtæki hefur verið að auglýsa búnað til þess að tengja ljósabúnað þannig að aðalljósin kvikni þegar start- að er og slokkni þegar drepið er á bílnum. Er þetta löglegt samkvæmt nýjum umerðarlög- um? Svar: Ekki er að sjá að búnaður sem þessi, sé hann þannig tengd- ur, sem lýst er, sé ólöglegur. Hann ætti reyndar að auka líkumar á að aðalljós bifreiða verði notuð eins og lög gera ráð fyrir. Radarvarar ekki bannaðir — Er nokkuð kveðið á um radarvara I nyju umferðarlög- unum? Ég veit að þeir eru bann- aðir í mörgum löndum. Svar: Engin ákvæði eru í nýju umferðarlögunum varðandi radar- varana sérstaklega. Þeir myndu að öllum líkindum heyra undir ákvæði laga um fjarskipti. Lögreglunni er ekki kunnugt um að í þeim lögum séu sérákvæði um radarvara. Það er rétt að radarvarar eru bannaðir I mörgum löndum og er það yfirleitt byggt á fyrrgreindum lögum. Lögreglan sem slík hefur ekki beitt sér gegn notkun radar- vara hér á landi, enda hafa þeir sáralítii áhrif á radarmælingar lög- reglunnar. Ratsjár lögreglunnar hér á landi eru þannig búnar að hægt er að sjá við þessu tæki, enda hefur iðulega komið fyrir að öku- menn, sem teknir hafa verið fyrir of hraðan akstur á götum borgar- innar, hafa haft radarvara í bílum sínum, án þess að þeir hafí skilað því hlutverki, sem þeim var ætlað. Hins vegar getur lögreglan haft ákveðin not af radarvörum í bílum vegna markmiðs hennar við að stemma stigu við ökuhraða á ákveðnum stöðum og virka þeir þá eins og nokkurs konar „vekjara- klukka". Einstaka ökumaður þarf á slíkri „vekjaraklukku" að halda. Öðrum nægja þau skilningavit, sem guð gaf þeim. Morgunblaðið/Bæring Cesilsson Regnbogasilungi slátrað á mánudag. Regnbogasilungi slátrað hjá Snælaxi SNÆLAX hf. slátraði um einu tonni af regnbogasilungi úr kvíum sínum í Hellnafellsvík í Grundafirði i síðustu viku.. Er regnbogasilungi slátrað vikulega þjá Snælaxi, einu til þremur tonnum í einu, og sendur á mark- að í Boston í Bandaríkjunum. Fyrirhugað er að byija að slátra laxi um næstu mánaðamót og standa nú yfír viðræður við Frakka og Bandaríkjamenn um kaup á lax- inum. Svanur Guðmundsson sagði að í kuldakastinu undanfarið hafi eitt- hvað af fiski drepist. Ekki er ljóst hve mikið af fiski drapst en þessa dagana er verið að kanna það. Aðalfundur hestamannafélagsins Fáks: Landsmótíð 1990 verði á Melgerðismelum AÐALFUNDUR hestamannafé- lagsins Fáks, sem haldinn var sl. fimmtudag, telur að réttur fé- laga, sem standa að mótahaldi á Melgerðismelum, til að halda næsta landsmót hestamanna þar sé ótvíræður. Stjórn Landssam- bands hestamanna, sem ákveður hvar landsmótin eru haldin, hélt fund með hestamannafélögunum í Skagafirði og Eyjafirði í Varmahlíð í Skagafirði árið 1980. Þar var samþykkt að lands- mót hestamanna árið 1982 skyldi haldið á Vindheimamelum í Skagafirði og á Melgerðismelum í Eyjafirði árið 1990, að sögn Birgis Rafns Gunnarssonar formanns Fáks. í fyrrasumar spurði stjóm LH hestamannafélögin í Skagafirði og Eyjafirði hvar þau vildu að lands- mótið 1990 yrði haldið og valdi meirihluti þeirra Vindheimamela. Stjómin ákvað síðan í fyrrasumar að mótið skyldi haldið þar. Hesta- mannafélagið Hringur í Svarfað- ardal sagði sig nýlega úr Landssam- bandi hestamanna vegna þessa máls og önnur hestamannafélög í Eyjafírði hafa fylgt í kjölfarið. Aðalfundur Fáks samþykkti eft- irfarandi ályktun: „Aðalfundur Fáks, haldinn 18. febrúar 1988 í félagsheimili Fáks, lýsir áhyggjum sínum yfir því ástandi sem nú er að skapast í Landssambandi hesta- manna. Aðalfundurinn lýsir ábyrgð á hendur þeim meirihluta innan stjómar LII sem gekk í gegn því samkomulagi sem gert var á fundi í Varmahlíð árið 1980 um tilhögun landsmóta á Norðurlandi. Fundur- inn telur að réttur félaga, sem standa að mótahaldi á Melgerðis- melum, til að halda landsmótið árið 1990 þar sé ótvíræður. Fundurinn lýsir einnig áhyggjum sínum yfír þeim vinnubrögðum stjómar LH að víkja ritnefnd Hests- ins okkar frá störfum vegna skoð- anaágreinings. Fundurinn skorar á stjóm LH að leita nú þegar eftir sáttum sem tryggi einingu allra íslenskra hestamanna. Ef stjóm LH treystir sér ekki til að leysa þetta verkefni ber henni að boða til auka- þings LH.“ Eftir aðalfundinn er stjóm Fáks þannig skipuð: Birgir Rafn Gunn- arsson formaður, Geir Þorsteinsson gjaldkeri, Kristján Gunnlaugsson ritari, Viðar Halldórsson meðstjóm- andi, Katrín Briem varamaður og Hjalti Pálsson varamaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.