Morgunblaðið - 11.03.1988, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
59. tbl. 76. árg.
FOSTUDAGUR 11. MAJRZ 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þrír farast í flugslysi íDetroit
Reuter
Tvíhreyfla flugvél brotlenti í gærmorgun i út- I hreyfill vélarinnar skömmu eftir flugtak. Vélin
jaðri Detroit í Bandarikjunum. Flugmaðurinn I lenti á bUskúr við húsið með þeim afleiðingum
fórst og tveir menn sem bjuggu í húsinu sem I að kviknaði í bensíngeymi bíls sem stóð í tröð-
sést á myndinni. Að sögn lögreglu bilaði annar | inni fyrir framan skúrinn.
Snjóflóð í Sviss:
Karl Bretaprins
slapp naumlega
Vinur Karls beið bana í flóðinu
London, Reuter.
KARL Bretaprins slapp naum-
lega þegar snjóflóð féll í skíða-
brekkunum við bæinn Klosters í
norðausturhluta Sviss i gær. Vin-
ur hans varð fyrir flóðinu og
beið bana.
Atvikið átti sér stað uppúr há-
degi í gær í hlíðum fjallsins
Gotschnagrat, skammt frá Klosters.
Prinsinn var þar á skíðum ásamt
fylgdarmönnum. Hann kom til
Klosters á þriðjudag ásamt konu
sinni, Díönu prinsessu, og mágkonu
sinni, hertogaynjunni af York, í
stutt skíðafrí. Þær voru ekki í hópn-
um, sem lagði á Gotschnagrat.
Að sögn talsmanns brezku hirð-
arinnar áttu skíðamennimir fótum
sínum fjör að launa og slapp prins-
inn naumlega. Flóðið hreif hins
vegar vin hans, Hugh Lindsay maj-
ór, fyrrum yfírmann hesthúsa Elísa-
betar drottningar, með sér og fórst
Persaflóastríðið:
Báðír aðiljar segjast vilja
hætta eldflaugaárásum
Bagdad, Nikósíu, Reuter.
ÍRAKAR sögðu i gær að þeir væru reiðubúnir að hætta eldflaugaár-
ásum á íranskar borgir innan sólarhrings hætti íranir sinum árásum
á íraskar borgir. írakar segjast þó ætla að gera síðustu árásina.
íranir tilkynntu einnig i gær að þeir ætluðu að hætta árásum sínum.
Fyrr um daginn höfðu Irakar haldið áfram eldflaugaárásum á ir-
anskar borgir. íranir skutu tíu eldflaugum á herstöð Iraka i Umm
Qasr og gerðu loftárás á hafnarhorg i suðurhluta íran.
Þótt írakar séu tilbúnir að hætta
eldflaugaárásum á íranskar borgir
segjast þeir þó ætla að gera síðastu
árásina, þar sem þeir kenna Irönum
Bandaríkin:
Kemp hætt-
ur o g Hart
á leiðinni
Washington, Reuter.
HINN ihaldssami þingmaður
Repúblikanaflokksins, Jack
Kemp, tilkynnti i gær, að hann
hefði ákveðið að draga sig i hlé
í sókn sinni eftir útnefningu repú-
blikana til forsetaframboðs.
Jack Kemp svaraði ekki spuming-
um um hvort hann hygðist styðja
einhvem þeirra þriggja repúblikana
sem enn eru eftir, en það eru þeir
George Bush, Robert Dole og Pat
Robertson.
Talið er víst að Gary Hart muni
leggja upp laupana í dag, en hann
hefur boðað til blaðamannafundar
síðdegis. Hart hefur gengið herfilega
í forkosningunum til þessa og eftir
útreið þá sem hann hlaut síðastliðinn
þriðjudag hefur hann neitað að ræða
við aðra en fjölskyldu og nánustu
samstarfsmenn.
um að hafa hafíð árásimar með því
að skjóta tveim eldflaugum á
Bagdad fyrir tólf dögum. íranir
segja hins vegar að þær árásir hafi
verið gerðar til að hefna loftárása
sem írakar gerðu á borgina Saqqez
dagana áður.
Utvarpsstöð í Teheran hafði eftir
forsætisráðherra írans, Mir-Hoss-
ein Mousavi, að íranir ætli að hætta
árásum sínum á íraskar borgir.
Mousavi sagði að þetta væri svar
írana við beiðni Turguts Ozals, for-
sætisráðherra Tyrklands, um að
endir yrði bundinn á árásimar.
Ozal sagði á blaðamannafundi í gær
að Tyrkir hefðu rejmt að koma á
sáttum. Bæði íranir og írakar halda
góðu sambandi við Tyrkland vegna
viðskiptahagsmuna.
Útvarpið í Teheran skýrði frá því
í gær að í það minnsta 31 maður
hefði fallið í eldflaugaárásum íraka
á Teheran og loftárásum á sjö borg-
ir í gærmorgun. Meðal þeirra sem
féllu hefðu verið böm í tveimur
skólum í Shahr Kord og sjúklingar
í sjúkrahúsi í borginni Shushtar.
írakar sögðust hafa skotið þremur
eldflaugum á Teheran í gær og
einni á hina helgu borg Qom, sem
er skammt frá höfuðborginni.
íranir sögðust hafa skotið tíu
eldflaugum á herstöð íraka í Umm
Quasr við landamæri Kuwaits og
gert árás á_ hafnarborgina Basra í
suðurhluta íraks. írakar greindu frá
því að nokkrir hefðu fallið í árás-
inni á Basra, þar á meðal böm og
konur. Síðasta árás írana á Bagdad,
sem fréttir hafa borist af, var gerð
á miðvikudagsmorgun.
írakar hafa skýrt frá næstum
60 eldflaugaárásum á Teheran og
fleiri borgir í íran, og íranir segjast
hafa skotið 29 flaugum, flestum á
Bagdad. Hundruð óbreyttra borg-
ara hafa fallið eða særst í árásun-
\
hann. Öðrum manni, sem flóðið
hreif einnig með sér, var bjargað
og mun hann hafa fótbrotnað.
Evrópuþing-
ið fordæmir
Israelsher
Brussel, frá Kristófer Má Kristinssyni,
fréttaritara Morgfunblaðsins.
Evrópuþingið í Strassborg for-
dæmdi í gær „pyntingar, tilvilj-
anakenndar handtökur, kúganir
og ofbeldisverk ísraelska hersins"
á hemumdu svæðunum.
Daginn áður felldu þingmenn á
Evrópuþinginu samninga sem fram-
kvæmdastjóm og ríkisstjómir Evr-
ópubandalagsins höfðu gert við ísra-
elsku stjómina. í máli þingmanna
kom fram að andstaða þeirra beind-
ist fyrst og fremst gegn framferði
ísraela gagnvart Palestínumönnum
á Vesturbakkanum og Gaza-svæð-
inu. Settar hafa verið fram hug-
myndir um að beita ísrael viðskipta-
þvingunum.
Atkvæðagreiðslur af þessu tagi
fara fram samkvæmt ákvæðum
Rómarsáttmálans, sem tóku gildi 1.
júlí á síðasta ári, en þá voru völd
þingsins í Strassborg aukin að
nokkru leyti. Samningamir, sem
felldir vom, flölluðu m.a. um toll-
frjálsan innflutning frá ísrael á
ávaxtasafa og afskomum blómum,
hagstæð lán til ísraela og breytingar
á viðskiptasamningi ísraels við EB.
Ljóst er að stjómmálalegar afleið-
ingar þessa atburðar em mun alvar-
legri en efnahagslegar afleiðingar
hans, þó rétt sé að gera ekki lítið
úr þeim.
50 ár liðin frá sameiningu Þýskalands og Austurríkis:
Waldheim biðst afsökunar á
stríðsglæpum landa sinna
Vínarborg, Reuter.
KURT Waldheim, forseti Aust-
urríkis, baðst í gær afsökunar
á stríðsglæpum þeirra Aust-
urríkismanna sem gengu Hitler
á hönd í seinni heimsstyrjöld-
inni. í sjónvarpsræðu í tilefni
þess að um þessar mundir eru
liðin 50 ár síðan Hitler samein-
aði Austurríki Þýskalandi hét
Waldheim að stuðia að betra
siðgæði almennings í Aust-
urriki. Hann sagði að eldri kyn-
slóðin yrði að segja sannleikann
um hvað gerðist til að koma í
veg fyrir trúnaðarbrest meðal
þjóðarinnar.
Waldheim hélt sjónvarpsræðu í
gær eftir að hafa hætt við að halda
ávarp við minningarathöfn, sem
haldin var fyrir utan ráðhúsið í
Vínarborg, vegna hálfrar aldar af-
Reuter
Kurt Waldheim býr sig undir
að halda sjónvarpsávarp í gær.
mælis innlimunarinnar. Háttsettir
stjómmálamenn höfðu hótað að
mæta ekki ef forsetinn héldi þar
ræðu, en hann hefur verið sakaður
um að vera viðriðinn stríðsglæpi
nasista á Balkanskaga.
í ræðunni, sem þótti óvenju per-
sónuleg, minntist Waldheim þess
er móðir hans bugaðist af harmi
er fréttin um innlimun Austurríkis
barst. Hann sagði að hundruð þús-
unda Austurríkismanna hefðu
fagnað innlimuninni og bundið
falskar vonir við hana. „En að sjálf-
sögðu er ekki til neitt sem heitir
sekt heillar þjóðar en engu að síður
vil ég sem þjóðhöfðingi... biðjast
afsökunar á stríðsglæpum Aust-
urríkismanna."
Paul Grosz, forsvarsmaður gyð-
inga í Austurríki, hélt ræðu við
minningarathöfnina í gær og sagði
meðal annars: „í dag minnumst við
ekki einungis þess að Austurríki
glataði sjálfstæði sínu heldur einn-
ig þess að heil siðmenning hrundi."