Morgunblaðið - 11.03.1988, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1988
5Sr
Þessir hringdu . .
Gangandi
veg’farendur eru
hornrekur
Vegfarandi hringdi:
„Ódýrasti ferðamátinn er að
fara leiðar sinnar á tveimur jafn-
fljótum eða með öðrum orðum
gangandi. Það er einnig talinn
heilsusamlegt að ganga. Eflaust
eru göngumenn einnig þjóðhags-
lega hagkvæmari en t.d. ökumenn
og skyldi maður því ætla að þeir
væru í miklu uppáhaldi hjá ríki
og bæ. En það er nú ekki. Þegar
snjóar er keppst við að ryðja
snjónum upp á gangstéttir svo
þær verða torfarnar mjög og
hreinlega hættulegar gömlu fólki.
Þannig eru gangandi vegfarendur
hornrekur sem ávalt mæta af-
gangi. Algengt er að bílum sé
lagt upp á gangstéttir og virðist
lítið gert í því að sekta ökumenn
fyrir slíkt.“
Ráðhúsið
Karl Jakobsson hringdi:
„Þar sem borgaryfirvöldum
virðist ekki koma annar staður í
hug fyrir ráðhúsið en í og við
Tjörnina og bæta þannig enn við
umferðaröngþveitið í Miðbænum
vil ég koma með tillögu sem ég
hef ekki heyrt neinn minnast á.
Það er að byggja ráðhús ofaná
hitaveitugeymana í Öskjuhlíð. Það
hefur verið talað um að byggja
þar hótell en Hitaveitan hefur nóg
að gera annað og virðist hótelrými
vera nóg fyrir og í byggingu.
Borgarstjórn myndi þá komast
upp úr kvosinni og fengi þá ólíkt
meira útsýni. Talað hefur verið
um að láta umrætt hótel snúast
til hægri. Væri ekki hægt að kom-
ið til móts við þá sem teljast til
vinstri og láta það snúast einnig
í þá átta.“
Páfagaukur
Blár páfagaukur kom fljúgandi
inn um glugga í Selásnum fyrir
skömmu. Eigandi hans er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
74780.
Skólataska
Ljósdrapplituð skólataska með
axlaról var tekin í Undirheimum
í Fjölbrautarskóla Breiðholts fyrir
nokkru. Þeir sem orðið hafa varir
við hana eru vinsamlegast beðnir
að hringja í síma 73469.
Veski
Kvenveski tapaðist við Pylsu-
vagninn í Lækjargötu um miðjan
febrúar. I veskinu var m.a. rautt
seðlaveski. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
99-2432.
Trúlofunar hr ingur
Trúlofunarhringur fannst við
Hjálpræðishershúsið fyrir
skömmu. Upplýsingar í síma
41929.
Hagsmunum sparifjár
eigenda tef lt í tvísýnu
mmMsmsr
Eykur ójöfnuð
oghólfun á
fjátmagnsmarkaði
_ seeir Gunnar Helgi Hálfdánarson og deilir hart á ýmsar
hugmyndir (væntanlegri löggjöf um flármagnsmarkaðmn
.... ... ■JiV ■■ ~ ««-*■■*. i
Til Velvakanda.
Jón Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra, vinnur nú að undirbúningi lög-
gjafar um starfsemi á íslenskum fjár-
magnsmarkaði. Hann kynnti frum-
varpið fyrir nokkru og fellur það í
misgóðan jarðveg. Svo virðist sem
verðbréfasjóðum og innlánsstofnun-
um sé gert mishátt undir höfði þrátt
fyrir að viðskiptaráðherra hafí lýst
yfír vilja sínum um jöfnuð á fjár-
magnsmarkaði.
Gunnar Helgi Hálfdánarson fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingarfélags ís-
lands segir í ágætu viðtali við við-
skiptablað Morgunblaðsins, 18. fe-
brúar 1988, að fullkomlega eðlilegt
sé að setja einhveija rammalöggjöf
um starfsemina til þess að tryggja
áframhaldandi framfarir á fjár-
magnsmarkaði, en að nauðsynlega
heildaryfirsýn vanti í frumvarp ráð-
herra. Þeim aðilum sem mótað hafa
og starfa á þessum nýja markaði sé
haldið markvisst utan við undirbún-
ing lagasetningarinnar, þrátt fyrir
ítrekaðar óskir um þátttöku. Ef þetta
er rétt er það mjög ámælisvert.
Gunnar Helgi gagnrýnir einnig
hugmyndir ráðherra um eiginfjár-
hlutfall verðbréfasjóða. Hann telur
það eðlilega kröfu hvað varðar verð-
bréfamiðlara, en framíög sjóðfélaga
í verðbréfasjóði séu í reynd þeirra
eigið fé og því er eiginfjárhlutfall
sjóðanna 100%. Einungis sé greiddur
arður eða vextir í samræmi við af-
komu sjóðanna. Gunnar Helgi segir
að hér sé jafnvel um markvissa niður-
rifsstarfsemi að ræða. Mismunun
verðbréfasjóðanna felist einnig í því
að innlánsstofnanir megi annast
samskonar rekstur og verðbréfasjóð-
imir, en þær hafí hins vegar einka-
rétt á því að taka við innlánum.
Með tilkomu löggjafar viðskipta-
ráðherra myndu bankabréf njóta
betri samkeppnisaðstöðu og þar með
er verið að skapa ójöfnuð gagnvart
þeim bréfum sem verðbréfasjóðirnir
gefa út og selja. Með þessari mis-
munun er verið að tefla hagsmunum
þúsunda sparifjáreigenda í landinu í
tvísýnu. Ráðherra sagði í viðtali við
Morgunblaðið að hann vildi jafna
aðstöðuna á fjármagnsmarkaðnum,
en hann er í reynd að auka ójöfnuð
með tillögum sínum. Hann gæti
hæglega stuðlað að afturför á þróun
markaðarins þrátt fyrir yfirlýsta
stefnu stjórnvalda um hið gagn-
stæða.
Ég er ein þeirra sem hafa valið
verðbréf fjárfestingarfélaganna sem
arðvænlega leið til ávöxtunar á spa-
Velvakandi.
Ég undirritaður var sá þeim
klaufi að glata staf mínum, sem er
svartur með silfurhandfangi og
merktur Sigríði Jónsdóttur, á þann
veg að hengja hann á hurðarhún á
bíl er stóð fyrir utan dyr áfengisút-
sölunnar við Laugarásveg þann 7.
mars sl. meðan ég náði mér í far-
miða í strætisvagn. Í því kom vagn-
rifé mínu. Mér fínnst að vonum, að
núverandi fjármálaráðherra og við-
skiptaráðherra séu að gera mér og
mínum líkum erfíðara um vik en
öðrum. Þessi löggjöf verður væntan-
lega til þess að sparifé mitt getur
ekki talist eins öruggt þar sem það
er í dag og ef það væri á lægri vöxt-
um í einhveijum ríkisbankanum.
George Orwell skrifaði á sínum tíma
heila bók um „dýr jafnaðarmenns-
kunnar“ þar sem öll dýr voru jöfn,
nema sum sem voru jafnari en önn-
ur. Ef til vill ætti hin nýja fjármála-
stefna Alþýðuflokksins að gera þessi
orð Orwells að sínum.
inn og ég rauk af stað og gleymdi
stafnum. Því vona ég að eigandi
bílsins hafi orðið stafsins var og
tekið hann til umhirðu. Vil ég því
biðja hann eða aðra þá, sem kunna
að hafa stafinn milli handa, vinsam-
legast að láta mig vita hið allra
fyrsta í síma 32450;
Kristjón Ólafsson,
Dalbraut 27.
Hafdís
Göngustafur tapaðist
verðlags í marz, því allar
vörur eru reiknaðar á
sama gengi og í febrúar
ífyrra - 1/2 1987
REYKJAVlK
UÓ^ND^