Morgunblaðið - 11.03.1988, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 11.03.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1988 Qraham Rlx og Kanny Sansom sjást hér bregða á leik á æfíngu hjá Arsenal. Rix hefur ekki komist í Ars- enalliðið að undanfömu og allt bendir til að Sansom sé á förum frá félaginu. íH&mR FOLK ■ KENNY Sansom er líklega á leið frá Arsenal. Honum hefur ekki samið vel við Georg Graham fram- kvæmdastjóra liðsins og um síðustu ■■■■ helgi var Sansom Frá sviptur fyrirliða- BobHennessey stöðunni og Tony ' En9landi Adams gerður að fyrirliða. Talið er að Graham hafí þegar fundið nýjan leikmann til að leika stöðu vinstri bakvarðar. Það er Nigel Winter- burn sem nú leikur hægra megin. Svo mun Graham hafa í huga að setja Lee Dixon, sem Arsenal keypti frá Stoke fyrir skömmu, í stöðu hægri bakvarðar. Þannig væri Sansom óþarfur. Mörg félög hafa lýst yfír áhuga á að kaupa Sansom þ.á.m. Tottenham og Manchester United. Alex Fergu- son framkvæmdastjóri Manchest- er United hefur lýst því yfir að hann ætli að byggja upp nýtt lið á næsta keppnistímabili og þá vilji hann fá Sansom til að leika við hlið félaga síns frá Higbury, Viv Anderson. Þrátt fyrir öll þessi læti hefur Bobby Robson enski lands- liðsþjálfarinn sagt að Sansom haldi stöðu sinni í enska landsliðinu. ■ BRIAN Stein ristarbrotnaði í leik Luton gegn Portsmouth á þriðjudaginn. Hann ætlar þó að reyna að leika með Luton gegn Portsmouth í bikarkeppninni um helgina. Til þess að geta leikið verð- ur hann á fá leyfí til að nota sér- staka plasthlíf sem ver ristina fyrir höggi. ■ OLEG Blokhin einn frægasti knattspymumaður Sovétríkjanna er nú orðinn þreyttur á að bíða eft- ir að komast til austurríska félags- ins Steyr Vorwaerts. Hann samdi við Steyr að hann myndi koma og leika með liðinu, eftir að hann hefði lokið síðasta keppnistímabili með Dynamo Kiév, en hann hefur þó ekki fengið að fara. Opinbera ástæðan fyrir því að Blokhin fær ekki að fara er að hann gegnir mikilvægri stöðu í hemum, en sann- leikurinn mun vera sá að sovésk knattspymuyfírvöld voru búin að lofa ungverska liðinu Ujpest Dozsa að fá Blokhin eftir að hann hætti með Dynamo Kiev, án þess þó að hafa samráð við Blokhin. Forráða- menn Steyr segja að samningur þeirra við Blokhin sé fullkomlega löglegur og hafa ákveðið að kæra málið til Alþjóðlega knattspymu- sambandsins. ■ STOKE keypti í gær Gary Hackett frá Aberdeen fyrir 110.000 pund. Hackett er því kom- inn aftur til Englands eftir átta mánaða dvöl f Skotlandi. Hann lék með Shrewsbury áður en Aberde- en keypti hann fyrir 75.000 pund. IBK— KR 76 : 68 fþróttahúsið i Keflavík, úrvaisdeildin i körfuknattleik, fimmtudaginn 10. mars 1988. Gangur leiksins: 2:0, 11:11, 17:19, 25:21, 30:21, 34:27, 34:32, 41:3845: 40, 47:46, 57:52, 62:62, 65:66, 67:66, 67:68 76:68. Stig IBK: Hreinn Þorkelsson 21, Jón Kr. Gíslason 19, Magnús Guðfinnsson 11, Falur Harðarson 9, Sigurður Ingi- mundarson 7, Guðjón Skúlason 5, Axel Nikulásson 2, Brynjar Harðarson 2. Stig KR: Guðni Guðnason 32, Birgir Mikaelsson 12, Sfmon Ólafsson 9, Jón Sigurðsson 4, Jóhannes Kristbjömsson 4, Ástþór Ingason 4, Matthias Einars- son 3. Áhorfendur: 180. Dómarar: Jón Bender og Sigurður Valur Halldórsson. KORFUBOLTI / 1. DEILD KONUR ÍR fagnaði sigriv en síðan blasti tap við að leiðinlega atvik átti sér stað f Grindavík í gærkvöldi, að mistök áttu sér stað S skrift á leikskýslu í leik UMFG og ÍR. Þegar flautað var til leiksloka mátti sjá á ljóstatöflunni að IR-stúkumar höfðu farið með sigur af hólmi, 38:39. Þegar dómarar leiksins fóm yfir leikskýsluna kom í ljós að tvær Frá Kristni Benediktssyni í Grindevik körfur Grindavíkurliðsins höfðu verið ritaðar sem ein. Leiknum lauk því með sigri UMFG, 40:39. ÍR-stúlkumar vom að vonum sár- ar yfír þessum mistökum, en sættu sig við tapið, sem getur haft mikla þýðingu fyrir þær f meistarabaráttunni. Leikurinn var mjög jafn allan tímann. Marta Guðmundsdóttir skoraði 15 stig fyrir UMFG, en Sóley Oddsdóttir níu stig fyrir ÍR. KNATTSPYRNA / SPANN Fyrsti sigurinn í Madrid í 33 ár Real Sociedad sigraði Atletico Madrid í gær, 2:0, og komst þar með f annað sæti 1. deildarinn- ar á Spáni á eftir Real Madrid. Þetta var fyrsti sigur Real Sociedad yfír Atletico Madrid á útivelli í 33 ár eða síðan 1955. Markakóngur Spánveija, Jose Bakero, náði forystunni fyrir Sociedad á 59. mínútu er hann nýtti sér misskilning f vöm Atletico. Aitor Beguirristain bætti svo öðm marki við skömmu fyrir leikslok er hann lyfti boltanum snyrtilega yfír Resino, markvörð Atletico. Real Madrid er enn f efsta sæti með 44 stig. Real Sociedad er í 2. sæti með 37 stig, Atletico Madrid er með 36 stig og Athletic Bilbao er í 4. sæti með 35 stig. Þessi lið hafa öll lokið 27 leikjum nema Sociedad sem á einn leik til góða. FRJALSAR Innanhússmót í öldungaflokki Innanhússmót FRÍ í öldunga- flokki ftjálsra íþrótta verður haldið um helgina í Baldurshaga. Mótið hefst kl. 13.30 bæði laugar- dag og sunnudag er stendur til kl. 15.30 báða dagana. Keppnigreinar fyrri daginn eru 50 m hlaup, 50 m grindahlaup, langstökk, hástökk án atrennu og þrístökk með atrennu, og seinni daginn verður keppt i langstökki og þrístökki án atrennu, kúluvarpi og hástökki með atrennu. Konur verða að hafa náð þrítugsaldri til að öðlast þátttökurétt á mótinu og karlar þijátíu og fimm ára markinu. Msm FOLK ■ KURT Lindner var í gær ráð- inn þjálfari Ajax í stað Johan Cru- yff sem hætti fyrir rúmum tveimur mánuðum. Lindner er v-þýskur en hefur m.a. þjálfað unglingalandslið Sviss. Ajax á góða möguleika á að komast áfram í Evrópukeppni bikarhafa, en liðið sigraði sviss- neska liðið Young Boys í fyrri leik liðanna á útivelli 0:1. ■ OLDHAM keypti í gær mark- vörðinn Andy Rhodes frá Don- caster fyrir 65.000 pund. Rhodes lék áður með Bamsley. ■ DEAN Horrix leikmaður Re- ading skrifaði í gær undir samning við Millwall. Þar með missti hann af ferð til Wembley en Reading er komið í úrslit Simod bikarkeppn- innar gegn Luton. Það er þó frekar kaldhæðnislegt að Horrix skoraði sigurmörk Reading bæði í 8-liða úrslitum og undanúrslitum. ■ JOHN Bume einn lykilmanna Q.P.R. er líklega á leiðinni til Sund- erland fyrir 150.0000 pund. Sund- erland er nú í 3. deild, en á góða möguleika á að komast upp í 2. deild. Ástæðan fyrir sölu Burne er sú að Jim Smith, framkvæmda- stjóri Q.P.R vill fá pening svo hann geti keypt Trevor Francic frá Rangers, en þeir voru báðir hjjgr' Birmingham fyrir nokkrum árum. KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILD Keflvíkingar voru sterkari á lokasprettinum Skoruðu 9 síðustu stigin og sigruðu vesturbæjarlið KR Keflvíkingar léku betur á síðustu mínútunum á meðan hvorki gekk né rak hjá KR-ingum og tókst að tryggja sér sigur með ■■l^^^gg þvf að skora 9 Bjöm síðustu stigin í Blöndal leiknum. Útlitið var skrifarfrá fremur dökkt hjá heimamonnum fynr þennan leik, því þrír leikmenn voru meiddir, Gylfí Þorkelssspn, Ólafur Gottskálksson og Matti Ó. Stefáns- son. Ekki batnaði útlitið þegar Axel Nikulásson meiddist í upphafi leiksins og varð að fara af leikvelli, en Keflavíkurliðið gáfst ekki upp og tókst að tryggja sér tvö dýrmæt stig gegn KR-ingum, sem eru að ná upp ágætu liði. Leikurinn fór vel af stað, bæði liðin léku hraðan og skemmtilegan körfuknattleik. En síðan fór að færast meiri harka í leik líðanna og fyrir bragðið varð leikurinn ekki sú skemmtun sem hann bauð í upp- hafí ef frá eru taldar síðusru mín. Keflvíkingar höfðu oftast undirtök- in, en munurinn varð aldrei mikill og undir lokin höfðu KR-ingar for- ystuna 68:67, en þá fór allt í ba- klás hjá þeim og heimamenn tryggðu sér sigurinn með því að skora 9 stig gegn engu stigi vestur- bæjarliðsins. Þá höfðu þrír KR- ingar orðið að yfírgefa völlinn með 5 villur. lagnú r IBl fur ÍBK f leiknum, sterkur undir körfunni og nær mörgum fráköst- um. Hreinn Þorkelsson og Jón Kr. Gíslason voru einnig ágætir og skoruðu mikilvæg stig. Guðni Guðnason var bestur í KR- liðinu að þessu sinni ásamt þeim Símoni Ólafssyni og Birgi Mikaels- syni. Morgunblaðið/Einar Falur QuAnl QuAnason átti mjög góðan leik með KR og skoraði 32 stig gegn Keflavík. Magnús QuAflnnsson lék sem lagði KR-liðið að velli. Morgunblaðið/Einar Falur vel með Keflavíkurliðinu,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.