Morgunblaðið - 11.03.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1988
27
36. ÞING NORÐURLANDARAÐS I OSLO
Norræni fíárfestingarbankinn:
Tapið vegna Kongs-
bergs afskrifað
HAGNAÐUR Norræna fjárfest-
ingarbankans (NIB) á síðasta ári
nam 34 milljónum SDR, sem er
nokkurn veginn sama tala og
árið þar á undan. Þetta er eftir
að afskrifaðar hafa verið 6 millj-
ónir SDR vegna fyrsta lánstaps
í sögu bankans, en það var vegna
Kongsberg Vápenfabrikk í Nor-
egi.
• Kongsberg Vápenfabrikk A/S í
Noregi stöðvaði greiðslur til lána-
drottna í júní 1987. Bankinn átti
inni hjá fyrirtækinu sem svarar 76
milljónum norskra króna vegna
tveggja lána sem veitt voru árin
1977 og 1984. Þær 6 milljónir
SDR, sem nú eru afskrifaðar, sam-
svara um 70% af útistandandi lán-
um hjá Kongsberg Vápenfabrikk.
Útlán Norræna fjárfestingar-
bankans voru umfangsmikil á
síðastliðnu ári en útborguð lán
námu samtals 572 milljónum SDR.
Upphæð útistandandi lána hækkaði
um 33% og er nú 1,9 milljarðar
SDR.
Grunnfé NIB var tvöfaldað í
ágúst 1987 og er nú 1.600 milljón-
ir SDR. Um leið tvöfaldaðist hinn
almenni útlánarammi bankans og
er nú 4.000 milljónir SDR. Að auki
hefur bankinn 700 milljóna SDR
lánaramma til alþjóðlegra lána.
Bankinn greiddi eigendum sínum,
Norðurlöndunum, arð fyrir árin
1985 og 1986 en enginn arður verð-
ur greiddur fyrir árið 1987. Sam-
kvæmt samþykktum bankans verð-
ur varasjóður hans að nema að
minnsta kosti 10% af grunnfé til
að hægt sé að greiða arð. Varasjóð-
ur nemur nú 109 milljónum SDR.
Ekki minnst
á hvalveiðar
HVALIR og þá sér í lagi hvalveið-
ar íslendinga hafa oft orðið að
harðvítugu deiluefni á Norður-
landaráðsþingum. Ekki þó á
þessu þingi því varla hefur verið
minnst á hvali, hvað þá hvalveið-
ar.
Það hefur aðallega verið Márga-
rete Auken, þingmaður vinstrisósí-
alista í Danmörku, sem hefur fett
fingur út í hvalveiðar Islendinga
og stundum rifist hárkalega við
íslensku fulltrúana á Norðurlanda-
ráðsþingum. í þetta skipti lét hún
sér þó nægja að geta þess í al-
mennu umræðunum að hvalir og
fuglar hefðu sama tilverurétt hér á
jarðkringlunni og við mannfólkið.
Og þó að Auken hafi talað mikið
og oft þegar umhverfismál komu
til umræðu lét hún vera að minnast
á hvali á þeim vettvangi.
í sumar er ráðgert að stofna
samnorrænan sjóð, Norræna þróun-
arsamvinnusjóðinn, sem starfa á í
tengslum við NIB. Sjóðsupphæðin
á að nema 100 milljónum SDR.
Sjóðurinn er liður í norrænni þróun-
arsamvinnu og á að stuðla að efna-
hagslegum og félagslegum fram-
förum í þróunarlöndunum.
Sjóðurinn á að veita lán til verk-
efna í norræna þágu til fátækari
þróunarlanda. Lánin verða greidd
samkvæmt IDA-kjörum Alþjóða-
bankans, þ.e. vaxtalaus og greidd
til lengri tíma. Sjóðurinn á að taka
þátt í fjármögnun verkefna með
NIB og helstu alþjóða þróunarbönk-
unum. Þegar Norðurlandaráð hefur
fjallað um sjóðinn mun Norræna
ráðherranefndin taka endanlega
ákvörðun um stofnun hans.
Þingslitídag
Þingi Norðurlandaráðs, sem fram hefur farið í
húsakynnum norska Stórþingsins í Ósló, lýkur í
dag. Var myndin tekin við setningu þess en þá
þóttu bekkimir heldur þunnskipaðir.
Ekki náðist sainkomulag’
um TELE-X á þinginu
Reynt verður að f inna lausn á næstu tveimur mánuðum
Ósló, fi
NO
)sló, fr^ Steingrfmi Sigurgeirssyni.
IRRÆNU sjónvarpsráðherr-
unum tókst ekki að ná samkomu-
lagi um framtíð TELE-X-sjón-
varpssamstarfsins í gær. Sænski,
finnski og norski ráðherrann
ræddust við og varð niðurstaðan
af fundi þeirra, að málinu var
frestað en reynt verður að ná
samkomulagi innan tveggja mán-
aða. Það em aðallega Finnar sem
em mótfallnir þeim hugmyndum
sem uppi em, en þeir vilja fjár-
magna útsendingarnar með aug-
lýsingum en á það geta Svíar
ekki fallist.
„Ég held að þessi samþykkt, sem
var gerð á milli landanna árið 1985
um tvær rásir, sem senda áttu end-
ursýnt efni, sé ekki við lýði lengur.
Danir og íslendingar voru ekki aðil-
ar að þessu samkomulagi," sagði
Birgir Isleifur Gunnarsson, mennta-
málaráðherra, í samtali við Morg-
unblaðið. „Finnar, Norðmenn og
Svíar hafa hins vegar verið að reyna
að ná samkomulagi um samvinnu
en það hefur ekki enn tekist. Ráð-
herramir funduðu um þetta mál en
treystu sér ekki til að taka ákvörð-
un. Málinu var frestað en reynt
verður að ná niðurstöðu innan
tveggja mánaða.“
TELE-X-hnötturinn er nánast til-
búinn og hafa Svíar og Norðmenn
ákveðið að skjóta honum upp í maí
1989. Upphaflega var ætlunin að
inga virðist því endanlega vera
spmngin. Ef Finnar ganga nú út
úr þessu samstarfi standa Svíar og
Norðmenn einir eftir og þá fer að
verða hæpið að tala um norræna
samvinnu í þessum efnum.
Nýrri hugmynd hefur skotið upp
í þessu máli á þinginu og hefur
Carl Bildt, formaður sænska Hægri
flokksins, verið einn helsti talsmað-
ur hennar. Hann telur hugmyndina
um tvær rásir, þar sem sjónvarpað
yrði endursýndu efni, vera orðna
úrelta. Nær væri að stefna að því
að TELE-X yrði fyrsti hnötturinn í
stóru norrænu sjónvarpskerfi.
Hægt væri að ná mjög hagstæðum
kaupum á bandarískum gervihnött-
um sem gætu tekið allt að 8 rásir.
í samtali við Morgunblaðið sagði
hann að tveggja rása hugmyndin
væri bæði vond og dýr. Sjónvarps-
samstarf Norðurlanda væri stærsta
samstarfsverkefni Norðurlanda. Ef
það gengi ekki upp myndu menn
líklega fara að líta á möguleika
norrænnar samvinnu sem frekar
takmarkaða.
Birgir ísleifur sagði þessa hug-
mynd hafa verið rædda en sér virt-
ist hún væri ekki alveg í myndinni
á þessu fyrsta stigi. Þetta væri frek-
ar dýr lausn. Hreinn rekstrarkostn-
aður yrði 400—450 sænskar krónur
á ári fyrir utan þýðingarkostnað
og dagskrárgerð. Þess má geta að
fram að þessu hefur TELE-X kost-
að 1.500 milljónir sænskra króna.
Carl Bildt, formaður sænska
Hægriflokksins.
hafa þriggja ára reynslutímabil á
sendingunum en síðan gætu Danir
og íslendingar hugsanlega komið
inn í þessa samvinnu. Það er þó
orðið nokkuð ljóst að Danir hafa
lítinn sem engan hug á því að taka
þátt í þessari samvinnu. Birgir
Isleifur sagði það útilokað fyrir
okkur að vera með þó ekki væri
nema vegna þess að sendingarnar
myndu ekki ná til íslands. Hug-
myndin um víðtækt samstarf Norð-
urlandanna á sviði sjónvarpsútsend-
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs:
Mótmæla fyrirhug-
uðum breytingum
THOR Vilhjálnisson er efstur á
lista nokkurra listamanna, sem í
norskum dagblöðum í gær mót-
mæltu þeim breytingum sem fyr-
irhugað er að gera á tónlistar-
verðlaunum Norðurlandaráðs.
Áformað er að útvíkka verðlaun-
in þannig að einrfig verði hægt að
verðlauna t.d. flytjendur. Auk Thors
eru m.a. á listanum Félag norskra
tónskálda. Listamennimir mótmæla
því að verðlaunum sé breytt á þenn-
an hátt án þess að fjölga verðlauna-
veitingum. „í dag eru það tónskáld-
in. Hveijir koma næst?“ segir m.a.
í yfirlýsingunni.
Róstur
*
í
Panama
í gær fóru stjórnarandstæðingar
i Panama í mótmælagöngu um
götur Panama-borgar, en áður en
þeir höfðu lengi gengið skarst lög-
regla í leikinn og leystist gangan
þá upp en óeirðir tóku við. Notaði
lögregla einkum táragas og öflug-
ar vatnsbyssur á fjöldann, en skutu
einnig öðru hverju á fólkið. Ekki
var greint frá þvi hvort mannfall
hefði orðið.
Nicaragua:
Herskip tók rækjutog-
ara frá Costa Rica
San Jose, Costa Rica. Reuter.
HERSKIP úr sjóher Nicaragua
skaut í fyrradag að rækjutogara
frá Costa Rica og neyddi hann
til að sigla til hafnar í Nic-
aragua, að sÖgn yfirvalda á Costa
Rica.
í yfirlýsingu yfirvalda á Costa
Rica í gær sagði að rækjutogarinn,
sem heitir Eduja, hafi verið rænt.
Ekki kom fram hvort hann hafr
verið að veiðum í efnahagslögsögu
Costa Rica, Nicaragua eða á al-
þjóðlegri siglingaleið, þegar að hon-
um var skotið.
Áhafnir annarra báta, sem voru
í nágrenninu og urðu vitni að töku
rækjutogarans, sögðu að svo virtist
sem engan í áhöfn hans hefði særst
í árásinni.
Yfírvöld á Costa Rica sögðust
hafa sett sig í samband við yfírvöld
í Nicaragua til þess að fá bátinn
og áhöfnina lausa úr haidi. Engin
viðbrögð höfðu borist frá Managua
í gær.