Morgunblaðið - 11.03.1988, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1988
Fjárlög Evrópubandalagsins:
Heildarútgjöld 2010
milljarðar króna
Brussel, frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Ráðherranefndir Evrópubandalagfsins hafa afgreitt fjárlaga-
frumvarp þessa árs til Evrópuþingsins í Strassborg. Heildarút-
gjöld samkvæmt frumvarpinu eru 2010 milljarðar íslenskra króna,
þar af á að ráðstafa 1237 milljörðum til landbúnaðar. Rekstrar-
kostnaður stofnana bandalagsins er rúmlega 85 milljarðar
íslenskra króna sem er töluvert hærra en fjárlög íslenska rikisins
fyrir árið í ár.
Samkvæmt lögum bandalags-
ins fara fram tvær umræður um
fjáriög bandalagsins í Evrópu-
þinginu. Ljóst er að frumvarpið
verður ekki tekið fyrir á fundi
þingsins sem hófst í Strassborg á
mánudaginn og lýkur á föstudag
í lok þessarar viku. Hins vegar
er ekki talið útilokað að umræð-
umar báðar fari fram á fundi
þingsins 11.—15. apríl nk. ef gott
samkomulag verður við ráðherra-
nefndina um afgreiðsluna.
Vegna ágreinings um túlkun á
niðurstöðum leiðtogafundarins í
febrúar hefur afgreiðsla frum-
HJÁ hinum ýmsu stofnunum
Evrópubandalagsíns starfa sam-
anlagt rúmlega 22 þúsund
manns, kom fram í svari við fyr-
irspum á Evrópuþinginu um
þetta efni.
varpsins tafíst. Leiðtogamir höfðu
ákveðið m.a. vegna mismunandi
hlutfalls innheimts virðisauka-
skatts af þjóðartekjum í aðild-
arríkjunum að seija upp sérstakan
tekjustofn fyrir bandalagið sem
miðaðist við þjóðartekjur. í tillög-
unum var gengið út frá því að
virðisaukaskatturinn legðist að
jafnaði á 55% af þjóðartekjum en
fjárþörf bandalagsins umfram það
yrði innheimt sem hlutfall af þeim.
Italir vildu ekki fallast á þá reikn-
ingsaðferð sem viðhöfð var en
gerðu ekki athugasemdir við út-
komuna. Þeir féllust því á að af-
greiða frumvarpið til Evrópu-
1.000, var lausráðinn. Af einstökum
verkefnum era flestir uppteknir við
þýðingar en endanlega era öll gögn
bandalagsins gefin út á 9 tungumál-
um, við það starfa um 3.100 túlkar.
þingsins með þeim fyrirvara að
samkomulag yrði gert um reikni-
reglumar á næsta fundi utanríkis-
ráðherra EB. Þessi ágreiningur
kom engum á óvart enda hafði
því verið haldið fram að þessar
nýju reglur væra með öllu óskilj-
anlegar. Jafnframt verður að hafa
það í huga að þjóðþing banda-
lagsríkjanna hafa ekki staðfest
niðurstöður leiðtoganna þannig
að tekjuhlið fjárlagaframvarpsins
byggist á góðum vilja til sam-
komulags en ekki bindandi regl-
um.
Ferill fjárlagaframvarpsins er í
grófum dráttum sá að fram-
kvæmdastjóm bandalagsins setur
saman fjárlagafrumvarp sem sent
er ráðherranefndum þess til um-
ijöllunar. Af skiljanlegum ástæð-
um era það helst fjármálaráð-
herrar bandalagsríkjanna sem
Ijalla um framvarpið sem síðan
senda það Evrópuþinginu sem
getur við fyrstu umræðu lagt fram
breytingatillögur við frumvarpið.
Að lokinni þeirri umræðu er fram-
varpið sent ráðherranefndunum á
ný og þær hafa heimild til að
gera breytingar á tillögum þings-
ins. Hvað varðar t.d. útgjöld til
landbúnaðar era tillögur ráðher-
ranna bindandi fyrir þingið. Evr-
ópuþingið fær síðan framvarpið
til annarrar umræðu og getur
gert smávægilegar breytingar,
samþykkt framvarpið eða hafnað
því, sem þýðir að framkvæmda-
stjómin verður að vinna fram-
varpið upp á nýtt.
Evrópubandalagið:
Rúmlega tuttugu og
tvö þúsund starfsmeim
Brilssel, frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunbladsins.
'Þýzkir tundurduflaslæðarar, sem þátt tóku í flotaæfingiun NATO í
Norðursjó í siðustu viku.
Danmörk:
Tveimur Tékk-
um vísað úr landi
Voru að ljósmynda þýzk herskip
Friðrikshöfn. Reuter.
DANSKA lögreglan skýrði frá
því að tveimur Tékkum hefði
verið vísað úr landi á miðviku-
dag. Lögreglan neitaði að segja
hver ástæðan væri en hermt hef-
ur verið að þeir hafi verið grun-
aðir um njósnir.
Blaðið B.T. sagði á miðvikudag
að mennimir hefðu verið hand-
teknir eftir að þeir hefðu ljósmyn-
dað vestur-þýzk herskip sl. laugar-
dag í höfninni í Fredereikshavn á
Jótlandi. Skipin lágu við bólfæri er
Tékkamir mynduðu þau. Að sögn
blaðsins voru mennimir með mjög
fullkomin tækjabúnað til ljósmynd-
unar. Talið er að þeir hafí haft sér-
stakan áhuga á splunkunýjum tund-
urduflaslæðuram Vestur-Þjóðverja.
Samkvæmt heimildum B.T. vora
fílmur Tékkanna framkallaðar og
komu þá í ljós fínar myndir, sem
aðeins er sagt á færi atvinnumanna
að taka. Myndgæðin voru slík að
ýms smáatriði og smáhlutir á skip-
unum voru afar skörp og greinileg.
Talsmaður lögreglunnar staðfesti
að mennimir hefðu verið reknir úr
landi en neitaði að segja á hvaða
forsendu. Embættismenn vildu
heldur ekkert um málið segja.
Tékkamir vora sagðir lækna-
stúdentar og komu til Danmerkur
á þeirri forsendu að þeir væru að
heimsækja þarlent fyrirtæki.
Fregnir herma að þeir hafí sagt við
handtökuna að þeir hefðu verið við
fuglaskoðun.
Samkvæmt upplýsingum fram-
kvæmdastjómarinnar starfar einn
af hveijum sextán þúsund íbúum
EB-landanna hjá bandalaginu.
Flestir era starfsmenn fram-
kvæmdastjómarinnar sjálfrar eða
15.000, hjá Evrópuþinginu starfa
tæpiega 3.000 og á vegum ráð-
herranefndanna 2.065 manns.
Dómarar við Evrópudómstólinn
hafa sér til aðstoðar rúmlega 600
starfsmenn en á endurskoðunar-
skrifstofu bandalagsins starfa 310
manns. Af þeim 22.068 sem störf-
uðu hjá bandalaginu á síðasta ári
vora rúmlega 20 þúsund fastráðnir
starfsmenn, afgangurinn, lauslega
Carrington framkvæmdasljóri NATO:
Ovissa um fynrætlaii
S o vétsti órnarinnar
Tomntn. Rpiiti>r.
Toronto, Reuter.
CARRINGTON lávarður, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalags-
ins, sagði í ávarpi er hann flutti i Toronto á miðvikudag að af-
vopnunartillögur væru af hinu góða en hins vegar mætti fölsk örygg-
iskennd ekki ná undirtökum í ríkjum NATO af þeim sökum.
Færeyjar:
104 ára gamall kútt-
er heimsækir Island
Þórshöfn, frá Snorra HaUdórssyni, fréttaritara Morgrmblaðsins.
INNAN skamms mun færeyski
kútterinn Jóhanna verða sjó-
klár og á komandi sumri er
ætlunin að þessi 104 ára gamli
farkostur fara í marga frægð-
arförina.
Skipið var smíðað í Englandi
árið 1884 og var keypt til Voga
á Suðurey tíu áram síðar. Þar
hefur kútterinn verið æ síðan og
var gerður út á íslands- og Græn-
landsmið og hefur séð tímana
tvenna. Árið 1976 var skipinu
lagt og fímm áruní síðar stóð til
að sökkva því. Þá tóku íbúar í
Vogum höndum saman um að fá
kútterinn varðveittan. Var hann
þá tekinn á land og hafíst handa
um viðgerðir. Segja má að smíða
hafí þurft kútterinn upp á nýtt og
í fyrra var kostnaður við viðgerð-
ina orðinn um 800.000 danskar
krónur eða 4,9 milljónir íslenskar.
Fýrir einu og hálfu ári var Jó-
hanna sjósett á ný og nú stendur
til að hefja siglingar á henni.
Ráðgert er að nota skipið meðal
annars til kennslu og leyfa skóla-
bömum að kynnast af eigin raun
lífínu um borð í fískikútter. Næsta
sumar er ætlunin að sigla til
Reykjavíkur þar sem haldið verð-
ur siglingamót með þátttöku
ijölda seglskipa frá mörgum lönd-
um. í ágústmánuði á að sigla Jó-
hönnu til Grimshy í Englandi
ásamt tveim öðrum færeyskum
kútteram, en þaðan komu flestir
kútterarnir á sínum tíma.
Carrington lávarður er nú stadd-
ur í Kanada en hann lætur af störf-
um sem framkvæmdastjóri NATO
í vor. í gær átti hann fund með
Brian Mulroney, forsætisráðherra
Kanada, en Carrington mun sækja
öll aðildarríki bandalagsins heim
áður en hann lætur af störfum.
Lávarðurinn sagði í ávarpi sínu
á miðvikudag að full ástæða væri
til að taka afvopnunartillögum Sov-
étstjómarinnar með varkárni.
Óvissa ríkti um tilgang Sovétstjóm-
arinnar og ógerlegt væri að segja
hvort tillögur núverandi valdhafa
eystra kæmu til með að marka
stefnu Sovétmanna í afvopnunar-
málum í framtíðinni.
Carrington vék að nýlegum til-
lögum Sovétmanna á þessu sviði
og sagði greinilegt að margar þeirra
miðuðu fyrst og fremst að því að
treysta öryggishagsmuni þeirra
sjálfra gagnvart ríkjum NATO. „Er
það til að mynda bláber tilviljun að
tillaga Sovétmanna um kjarnorku-
vopnalausa Evrópu myndi tryggja
þeim veralegt forskot i ljósi þess
að ríki Varsjárbandalagsins njóta
mikilla yfírburða á sviði hins hefð-
bundna herafla og efnavopna?"
sagði hann. Minnti hann á að í
lokaályktun leiðtogafundar NATO,
sem haldinn var í Brassel í byijun
mánaðarins, hefði verið lagst gegn
sérhverri tillögu um algera uppræt-
ingu kjamorkuvopna í Evrópu.
Bandalagið hefði að auki lýst sig
andvígt því að draga frekar úr fæl-
ingarmætti lqamorkuheraflans en
kveðið væri á um í afvopnunarsátt-
málanum sem leiðtogar risaveld-
anna undirrituðu í Washington í
desember á síðasta ári.
Framkvæmdastjórinn hvatti
Kanadabúa til þess að segja sig
ekki úr Atlantshafsbandalaginu.
Ástæða þessara ummæla er talin
sú að samkvæmt skoðanakönnun-
um hefur fylgi kanadíska sósíal-
istaflokksins farið vaxandi að und-
anförnu en flokkurinn hefur heitið
því að segja Kanada úr NATO kom-
ist hann til valda.
ERLENT
A-Þýskaland:
Loftsteinn lenti
á gróðurhúsi
Austur-Berlín, Reuter.
HLUTAR úr loftsteini lentu á
gróðurhúsi i Potsdam i síðustu
viku. Konur sem voru að vinna í
gróðurhúsinu þegar loftsteina-
drífan skall yfir héldu að borð
með blómapottum úr leir hefði
dottið og dreifamar væru úr þeim.
Eigandi gróðurhússins, Erich Ma-
etz, lýsir atvikinu þegar loftsteinninn
lenti þannig að skömmu eftir hádegi
11. mars hafí heyrst hvinur og svo
hár smellur þegar eitthvað skall til
jarðar. „Konumar sem starfa í gróð-
urhúsinu héldu að borð með blóma-
pottum hefði dottið," sagði Maetz í
samtali við blaðamenn.
Peter Bankwitz, prófessor í jarð-
fræði, sagði í samtali við dagblaðið
Berlin Zeitung að 16 stórir molar
úr loftsteininum og fyöldi smærri
hefðu fundist. Sýnin sem hafa fund-
ist vega samtals 1,25 kíló og er þetta
eitthver stærsti loftsteinafundur
síðari ára.