Morgunblaðið - 11.03.1988, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1988
47
Friðrik B. Halldórs
son — Minning
Fæddur 19. desember 1929
Dáinn 15. febrúar 1988
Þegar mér var sagt að afí minn,
Friðrik Baldur Halldórsson, væri
dáinn vildi ég fá að véra einn dá-
litla stund. Ég fór að hugsa um að
nú væri hann kominn upp í himin-
inn til Guðs, mér fannst það skrítið
því kvöldið áður hafði ég farið í
heimsókn á sjúkrahúsið og þá var
hann að horfa á sjónvarpið og tal-
aði við okkur.
Mamma hefur sagt mér að þegar
ég var skírður hafi afi tárfellt af
gleði. Honum þótti svo gaman að
vera búinn að fá lítinn nafna.
Ég var ekki hár í loftinu þegar
afí gaf mér fyrsta lambið sem ég
eignaðist. Við vorum báðir miklir
sveitamenn í okkur, því mér líður
best þegar ég er farinn að vasast
í verkunum í sveitinni og eins var
afa farið. Hann átti alltaf kindur,
þó hann byggi í kaupstað.
Ég var svo heppinn að afi kom
oft til okkar í Laxagötuna, sérstak-
lega eftir að hann hætti að vinna.
Hann varð veikari og veikari, en
var samt kátur og gerði að gamni
sínu við okkur, svo fór hann á
sjúkrahúsið. Ég heimsótti hann
síðasta kvöldið, svo ég gat kvatt
afa minn.
Þó vildi ég helst hafa afa lengur
hér hjá okkur. Hann var eini afinn
sem ég þekkti. Vissi ég þó að það
var best fyrir hann að fara til Guðs
þar sem enginn er veikur.
Mamma segir að afi fylgist samt
með mér og hinum krökkunum, sjái
okkur stækka og þroskast.
Ég sakna afa míns og kveð hann
með versinu sem sungið var í kirkj-
unni þegar við kvöddum hann.
„Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vðm í nótt.
Æ, virst mig að-þér taka,
mér yfír láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.“
Með þakklæti fyrir allt, afi minn.
Friðrik Baldur Gunnbjörnsson
Minning:
Ragnar Konráðsson
frá Hellissandi
Ragnar Konráðsson, sjómaður,
vandist snemma hörðum bátum, lét
heldur ekki mikið á sjá undan þeim
til síðustu stundar.
Hann var fæddur í Stykkishólmi
10. nóvember 1899. Konráðs nafnið
lét allsterkt í eyrum á þeim tíma.
Minnist ég þess frá bemsku og
ekki laust við stolt, á Norður- og
Vesturlandi. Allir könnuðust vel við
nöfnin og ég allt frá bemsku þar
eð einn bræðra minna var skírður
Bjöm Konráðs, eins og afi okkar.
Leiðrétting
í minningargrein þriðjudaginn
8. mars um Jón Jónsson fyrrver-
andi skólastjóra misritaðist föð-
urnafn Jóns. Faðir hans hét Jón
Sigtryggur Jónsson, sem var
bóndi á Ufsaströnd. Flest börn
Jóns eru búsett á Dalvík. En f
Reykjavík býr Kristján Tryggvi
verkstjóri.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæiis-
og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við
greinum á ritstjórn blaðsins á 2.
hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og
á skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast siðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð um
hinn látna. Leyfilegt er að birta
ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi
og skal þá höfundar getið. Sama
gildir ef sálmur er birtur. Megin-
regla er sú, að minningargreinar
birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins em birt-
ar greinar um fólk sem er 70 ára
eða eldra. Hins vegar em birtar
afmælisfréttir með mynd í dagbók
um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að
handrit séu vel frá gengin, vélrit-
uð og með góðu línubili.
Hafði hann jafnan stytt undirskrift
sína er hann þakkaði fyrir sig með
stöku, eins og margir' gerðu þá, ef
þeir töldu sig geta. Þetta má sjá í
ýmsum gömlum bréfum. Því" er
þetta tíundað hér að þessi bróðir
minn mun hafa verið eini maðurinn
á landinu sem var skírður Bjöm
Konráðs. Ekki fetaði hann í spor
Gísla Konráðssonar eins og margir
aðrir ættliðir með ljóðhæfni.
Móðir Ragnars Konráðssonar var
Kristín Friðriksdóttir. Ragnar
Konráðsson átti sex systkini og em
ijögur þeirra á lífi. 16 ára fluttist
hann með föður sínum til Hellis-
sands til sjóróðra, og varð sjó-
mennska ævistarf hans. Snemma á
ævi hóf hann sjálfstæðan atvinnu-
rekstur með vini sínum, Sigurði
Sveini, og gerðu út marga báta um
langt árabil. Síðar stundaði hann
vertíðar heima á eigin báti, afla-
sæll og mjög lánsamur í sínum sjó-
ferðum, léttur í lund og vinmargur
hvar sem hann var. Síðar fór hann
á vetmm í siglingar á togurum.
Árið 1924 giftist hann Hólmfríði
Ásbjamardóttur Gíslasonar og
Hólmfríðar Guðmundsdóttur.
Bjuggu þau allan sinn búskap á
Hellissandi. Þeim varð sjö bama
auðið. Þau misstu rétt tvítugan pilt
í sjóslysi.
Er aldur og lúi sagði alvarlega
til sín fluttust þau hjón til Reykja-
víkur, fyrst í hús til Guðrúnar, dótt-
ur sinnar, þar til Hólmfríður lést
1983. Hann fluttist á Hrafnistu hér
í borg og háði þar sitt harða þján-
ingastríð þó vel væri að honum búið.
Þar lést Ragnar 29. febrúar sl.
og var óneitanlega öllum nánustu
léttir, er þrautum linnti, þó borið
hefði hann þær með þrotlausri karl-
mennsku. Aldrei kvartað undan
neinu og fékk haldið sinni reisn til
loka.
Minningarathöfn verður í dag,
föstudag 12. mars, kl. 13.30 í Foss-
vogskapellu, en síðar jarðsunginn
við hlið eiginkonu sinnar í Ingjalds-
hólskirkjugarði, laugardaginn 13.
mars.
Þökk sé þessum dugnaðarhjón-
um fyrir langt og strangt ævistarf
og megi þau hvílast hlið við hlið í
Skaparans friði og kærri þökk
samtíðarinnar fyrir löng og góð
ævistörf.
Ingþór Sigurbjs.
t
Eiginmaður minn,
ÞÓRARINN HAFBERG,
andaðist í Borgarspítalanum aðfaranótt 9. mars.
Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd vandamanna,
Guðrún Ó. Hafberg.
t
Jarðarför móður okkar, ‘
INGUNNAR BJÖRNSDÓTTUR,
Svfnafelli,
Öræfum,
fer fram frá Hofskirkju laugardaginn 12. mars kl. 14.00.
Laufey Lárusdóttir,
Magnús Lárusson
og aðrir vandamenn.
t
Móðir mín og tengdamóðir,
SIGRÍÐUR JASONARDÓTTIR,
Grænumörk 3,
Selfossl,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 12. mars kl.
13.30.
Slgurður Eiríksson,
Sigurhanna V. Sigurjónsdóttir.
t
Kveðjuathöfn um
SIGURVEIGU GUÐBRANDSDÓTTUR
frá Loftsölum,
Kúrlandi 13, Reykjavik,
sem lést þann 4. mars síðastliöinn, fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 11. mars kl. 15.00.
Jarðsett veröur frá Víkurkirkju laugardaginn 12. mars kl. 14.00.
Margrét Þorsteinsdóttir,
Elín Þorsteinsdóttir, Sæmundur Nikulásson,
Halla Valdimarsdóttir, Örn Ævarr Markússon,
Sigrún Valdimarsdóttir, Björn Dagbjartsson
og barnabörn.
+
Eiginmaöur minn, faðir okkar og tengdafaöir,
EGGERTTH. JÓNSSON,
Háaleitisbraut 155,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 11. mars kl. 13.30.
Lára Petrfna Bjarnadóttir,
Birna M. Eggertsdóttir, Pétur E. Eggertsson,
Ásta Lóa Eggertsdóttir, Hilmar Þorvaldsson,
Ingigerður Eggertsdóttir, Jón Ólafsson,
Unnur I. Eggertsdóttir, Hermann Arnviðarson,
Gunnhildur Eggertsdóttir, Óskar Þorsteinsson,
Kolbrún Eggertsdóttir, Arnaldur Axfjörð.
+
Bróðir okkar,
GUÐMUNDUR INGVARSSON,
verður jarðsettur i Hvammi í Dölum laugardaginn 12. mars kl.
13.00.
Farið verður frá Umferðarmiðstöðinni sama dag kl. 8.00.
Systkinin.
+
Sonur minn, bróðir, mágur 'og frændi,
LEIFUR GÍSLI RAGNARSSON,
Fremri-Hundadal,
verður jarðsunginn frá Kvennabrekkukirkju laugardaginn 12. mars
kl. 15.00. Ferð verður frá BSÍ kl. 8.00 laugardagsmorgun.
Málfríð Kristjánsdóttir,
Kristín Ragnarsdóttir,
Ingvar Ragnarsson, Hanna Baldvinsdóttir,
Soffía Ragnarsdóttir, Hörður Björnsson,
Ólafur Ragnarsson, Snæbjörg Bjartmarsdóttir,
systkinabörn og vandamenn.
+
Faðir okkar,
RAGNARKONRÁÐSSON
frá Hellissandi,
verður jarðsunginn frá Ingjaldshólskirkju laugardaginn 12. mars
kl. 14.00. Kveöjuathöfn fer fram í Fossvogskirkju i dag, föstudag-
inn 11. mars, kl. 13.30.
Fyrir hönd systkina minna og annarra vandamanna,
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
AÐALHEIÐAR EGGERTSDÓTTUR,
Skúlagötu 76,
Reykjavík.
Bjarni Jónsson,
Birgir Jónsson,
Eggert Jónsson,
RúnarJónsson,
Aðalheiður Jónsdóttir,
Jón Daníel Jónsson,
Guðrún Jónsdóttir,
barnabörn og
Kristfn B. Sigurbjörnsdóttir,
Halla Steinsdóttir,
Aðalheiður Úlfsdóttir,
Elsa Olsen,
Jón Frfmannsson,
barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar,
VALGERÐAR EINARSDÓTTUR
frá Kalmanstungu.
Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki á Landa-
kotsspítala fyrir góða umönnun.
Ólafur Stnfánsson,
Kalman Stefánsson,
Jóhanna Stefánsdóttir.