Morgunblaðið - 15.03.1988, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1988
STUTTAR
ÞINGFRETTIR
Þrír varaþingmenn tóku
sæti á Alþingi í gær: Sólveig
Pétursdóttir (S/Rvk), Elín Jó-
hannesdóttir (F/Rn) og Guð-
rún Halldórsdóttir (Kvl/Rvk).
Nálægt 35 varaþingmenn hafa
tekið sæti, tímabundið, á Al-
þingi, í fjarveru aðalmanna, á
þessu fyrsta þingi kjörtíma-
bilsins.
Tíu tillögur til þingsályktunar
’vóru afgreiddar til þingnefnda í
sameinuðu þingi í gær. Þær
spanna fjölbreytt svið að efni til:
1) eflingu RÚV, 2) mat á heimil-
isstörfum, 3) endurskoðun lán-
skjaravísitölu, 4) néyðarsíma á
Qallvegum, 5) verðtryggingu, 6)
veiðieftirlitsskip, 7) steinatöku í
náttúru landsins, 8) þjónustu og
ráðgjöf sérskóla, 9) vamargarða
sunnan Markarfljótsbrúar og 10)
starfshætti umboðsmanns Al-
þingis.
Þá vóm ennfremur ræddar til-
lögur um björgunar- og slysa-
vamaskóla, jafna skólaskyldu og
haf- og fiskirannsóknir.
* * *
Kristín Einarsdóttir (Kvl/Rvk)
fiytur ásamt fleiri þingmönnum
tillögu til þingsályktunar, þess
efnis, að félagsmálaráðherra
skuli í samráði við Jafnréttisráð
„móta og leggja fyrir Alþingi til-
lögur um sérstakar tímabundnar
aðgerðir til að bæta stöðu kvenna
þannig að koma megi sem fyrst
við jafnrétti og jafnri stöðu kynj-
anna, samanber 3. grein laga nr.
65/1985 um jafna stöðu og jafn-
an rétt kvenna og karla".
* * *
Jóhann A. Jónsson (SJF/Ne)
og fleiri þingmenn flytja tillögu
sem felur ríkisstjóminni, verði
tillagan samþykkt, að skipa
nefnd til að kanna „mismunandi
starfsskilyrði atvinnugreina og
þróunarforsendur byggða með
sérstöku tilliti til stjómarstefn-
unnar í gengis- og peningamál-
um“.
* * *
Jón Kristjánsson og Guðmund-
ur G. Þórarinsson, þingmenn
Framsóknarflokks, flytja tillögu
til ályktunar um að „efla beri
Menningarsjóð félagsheimila og
felur menntamálaráðherra að
láta fara fram endurskoðun á
lagaákvæðum um sjóðinn".
Umboðsmaður Alþingis:
Réttaröryggi og mannrétt-
indi þegnanna betur tryggð
- sagði Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti sameinaðs þings
Tillaga allra þingf lokka nema Borgaraflokks
„Það var mikill og sögulegur
viðburður þegar Alþingi ákvað
að setja á stofn embætti um-
boðsmanns. Með því er komið á
sérstöku eftirliti löggjafar-
valdsins með framkvæmdavald-
inu, sem er á sinn hátt hliðstætt
því eftirliti, sem Alþingi tók sér
með því að taka Ríkisendur-
skoðunina til sín frá fjármála-
ráðherra."
Samstaða þingf lokka
Það er Þovaldur Garðar Kristj
ánsson, forseti sameinaðs þings,
sem þanng komst að orði er hann
mælti fyrir tillögu til þingsálykt-
unar um störf og starfshætti um-
boðsmanns Alþingis. Tillagan fel-
ur í sér reglugerð um framkvæmd
laga nr. 13/1987 um umboðsmann
Alþingis. Flutningsmenn tillög-
unnar eru forsetar Alþingis, Þor-
valdur Garðar Kristjánsson, Karl
Steinar Guðnason og Jón Kristj-
ánsson, með og ásamt formönnum
allra þingflokka nema Borgara-
flokksins, sem eru Ólafur G. Ein-
arsson, Páll Pétursson, Eiður
Guðnason, Steingrímur J. Sigfús-
son og Þórhildur Þorleifsdóttir.
„Reglum þessum er ætlað að
marka nánar starfssvið umboðs-
manns og setja nákvæmari reglur
um starfshætti hans,“ sagði Þor-
valdur Garðar þegar hann gerði
grein fyrir þingsályktunartillög-
unni. Orðrétt sagði forseti:
Almenningi til trausts
og halds
„Umbosðmaður Alþingis hefur
miklu hlutverki að gegna. Honum
ber að hafa í umboði Alþingis eftir-
lit með stjómsýslu ríkisins og
sveitarfélaga. Og Alþingi skapar
einstaklingum tækifæri til að leita
réttar síns með skjótum og áhri-
faríkum hætti. Umboðsmaður Al-
þingis tekur við kvörtunum á
hendur stjómvöldum og stjóm-
sýslumönnum frá fólki sem þykir
misgert við sig. Umboðsmaður
rannsakar þessar kvartanir og ef
þær teljast á rökum reistar gerir
hann tillögur um á hvern hátt
menn skuli fá leiðréttingu mála
sinna. Þannig á umboðsmaður að
geta orðið borgurunum til trausts
og halds gegn mistökum og van-
rækslu frá hendi stjómvalda. Með
Ljósm. Mbl. Ó1.K.M.
Þingmenn Borgaraflokks, Guðmundur Lárusson og Hreggviður Jóns-
son, kampakátir í sameinuðu þingi.
þessum hætti er stuðlað að auknu
réttaröryggi borgaranna, mann-
réttindi þeirra betur tryggð en nú
er og stjómsýslan jafnframt gerð
réttlátari og virkari."
Þorvaldur Garðar sagði og að
það væri „afar mikilvægt að sem
víðtækust samstaða sé um slíkt
mál, er varðar svo mjög stöðu og
hlutverk Alþingis. Sú hefur raunin
líka verið..."
Valdastofnun — bákn
Albert Guðmundsson
(B/Rvk) sagði mikilvægt að hinn
almenni þegn hafi aðgang að
umboðsmanni, sem þessum, telji
hann á rétt sinn gengið. Hér væri
hinsvegar stefnt að víðfeðmara
embætti en nauðsyn bæri til,
valdastofnun, bákni. Hér væri ekki
starfað í anda kjörorðsins: Báknið
burt! Umboðsmanni Alþingis
mætti korría fyrir innan veggja
Ríkisendurskoðunar.
Svavar Gestsson (Abl/Rvk)
sagðist samsinna anda laganna
um umboðsmann Alþingis. Hann
hafi þó tvær athugasemdir. Sú
fyrri væri það ákvæði 5. greinar
að kvörtun þurfi að bera upp inn-
an árs frá því lokaákvörðun máls
liggur fyrir. Hin síðari væri ákvæði
6. greinar, þess efnis, að umboðs-
maður geti ekki krafist upplýsinga
sem varða öryggi ríkisins eða ut-
anríkismál, er leynt skulu fara,
nema með leyfi ráðherra, sem í
hlut á.
Samstaða
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son sagði forseta þingsins hafa
lagt sig fram um að ná sem
víðtækastri samvinnu um þetta
mál. Forsetar töldu, sagði Þorvald-
ur, að samkomulag væri orðið við
formenn allra þingflokka, einnig
þingflokk Borgaraflokksins. Þor-
valdur sagði gagnrýni Alberts
Guðmundssonar á misskilningi
byggða. Varðandi fyrri athuga-
semd Svavars væri það að segja
að þau tímamörk, sem þar væru
greind, væru í lögunum sjálfum.
Ekkert bannaði hinsvegar um-
boðsmanni að taka upp mál þó
þessi tímamörk væru að baki. Um
síðara atriðið hafi ekki verið
ágreiningur milli forseta og form-
anna þingflokka, er að tillögunni
standa. Þorvaldur sagði viðkom-
andi lög og reglur byggjst á
reynslu frænda okkar á Norðurl-
öndum, einkum Dana.
Fleiri þingmenn tóku til máls
þó hér sé ekki frekar rakið.
Tillagan var síðan afgreidd til
þingnefndar.
Alexander Stefánsson:
Endurbætur á fé-
lagslegum þætti hús-
næðislánakerfisins
Skortur á leiguíbúðum
Bær eða kaupstaður:
Réttarstaða bæja hin
sama og kaupstaða
Blöndúósbær 4. júlí 1988
„í kaupstöðum og bæjum
nefnist sveitarstjórn bæjar-
stjórn, framkvæmdastjóri
sveitarfélagsins bæjarstjóri og
byggðaráð sveitarfélagsins
bæjarráð. Ákveða má í sam-
þykkt um stjóm sveitarfélags,
þar sem meirihluti íbúanna býr
í þéttbýli og íbúafjöldinn hefur
náð a.m.k. 1.000 í þrjú ár sam-
fellt, að sveitarfélag nefnist
kaupstaður eða bær, þótt annað
heiti sé notað í einstökum lög-
um. Réttarstaða bæja skal vera
sú sama og kaupstaða sam-
kvæmt sérlögum."
Þannig hljóðar fyrri grein
stjómarfrumvarps til breytinga á
sveitarstjómarlögum nr. 8/1986.
Síðari grein: „Lög þessi öðlast
þegar gildi."
I greinargerð segir m.a.: „Óskir
hafa borizt frá bæjarstjórnum
ýmissa kaupstaða um að mega
nota orðið bær í stað kaupstaðar
í heiti sveitarfélags ...“
Fjögur sveitarfélög fengu
kaupstaðarréttindi 1987: Stykkis-
hólmur, Egilsstaðir, Hveragerði
og Mosfellshreppur. Þau nota öll
orðið bær í heiti sínu. Blönduós
fær kaupstaðarréttindi 4. júlí
næstkomandi. „Ákveðið hefur
verið að Blönduóshreppur verði
Blönduósbær," segir í frétt í Sveit-
arstjórnarmálum.
„Það er flestum ljóst að mik-
ill og vaxandi skortur er á leigu-
íbúðum á húsnæðismarkaðin-
um, hvort heldur er í þéttbýli
eða strjálbýli. Þess vegna verð-
ur að veita auknu fjármagni til
lausnar á þessu vandamáli svo
hægt verði að byggja leiguhús-
næði sem hægt er að leigja út
á hóflegu verði sem fólk ræður
við að greiða. En skortur á
leiguíbúðum sprengir upp verð-
lag á leigu ...“ sagði Álexander
Stefánsson (F/Vl) er hann mælti
fyrir frumvarpi sem hann flytur
til breytinga á lögum um Hús-
næðisstofnun ríkisins.
Alexander sagði að í starfs-
samningi ríkisstjómarinnar væri
lögð áherzla á endurskoðun og
uppbyggingu og fjármögnun fé-
lagslega íbúðakerfisins. Hann
vitnaði og til IV. kafla laga um
Byggingarsjóð verkamanna, 33.
greinar, stafliða b og c. Þar væri
ijallað um byggingu leiguíbúða .
I fyrsta lagi leiguíbúða á vegum
sveitarfélaga, sem ætlaðar væm
til útleigu á hóflegum kjömm. í
annan stað leiguíbúða á vegum
ríkis og/eða sveitarfélaga, sem
ætlaðar væm fýrir námsfólk, aldr-
aða og öryrkja.
Þingmaðurinn sagði að skortur
á fjármagni í Byggingarsjóði
verkamanna hafí hamlað bygg-
ingu íbúða samkvæmt framan-
greindum lagaákvæðum. Hann
sagði að 1986, 1987 og það sem
af væri 1988 hafi verið veitt 'án
til 412 íbúða, sem flokka megi
undir þessi ákvæði, þar af til nýrra
stúdentagarða með 160 íbúðir.
„Ljóst er,“ sagði þingmaðurinn,
„að hér er um valkost að ræða sem
getur haft jákvæð áhrif til þess
að leysa mikið vandamál," ef fyigt
væri betur eftir.
„Mismunurinn á þessu fmm-
varpi, sem hér er Iagt til, það er
að lengja lánin úr 31 ári í 43 ár,
hann er nálægt því að vera 48.000
krónur á ári sem leigan mundi
lækka miðað við núverandi
lög...“ Þingmaðurinn kvaðst
vona að fmmvarpið fengi af-
greiðslu á þessu þingi.