Morgunblaðið - 15.03.1988, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1988
55
hreinu áfengi á hvem íbúa 15 ára
og eldri) og þar af leiðandi stóraukið
tjón af hennar völdum. (Hufvud-
stadsbladet 4. okt. 1987.) Þetta seg-
ir okkur kannski meira en flest ann-
að um áhrif ftjálsrar sölu milliöls í
Finnlandi.
5. Norska Stórþingið virðist ekki
ætla að láta tilmæli Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar um að minnka
áfengisneyslu um íjórðung til alda-
móta sem vind um eyru þjóta. —
Þeir grípa nú til ýmissa aðgerða,
m.a. að stemma stigu við flölgun
áfengisdreifingarstaða.
6. Bandaríkjamenn og Sovétmenn
stefna í sömu átt, hafa m.a. hækkað
lögaldur til áfengiskaupa í 21 ár (hér
20 ár) en hann hafði áður verið lækk-
aður í 18 ár víðast hvar í ríkjum
þeirra. Og nú virðast Bretar hafa
fengið nægju sína af „frelsinu" í öl-
málunum.
7. Athygli hefur vakið áskorun
16 prófessora við læknadeild Há-
skóla íslands til alþingismanna. Þar
tala þeir sem gerst þekkja til heilsu-
farslegs tjóns af völdum áfengis. í
því sambandi er rétt að minna á að
nýjar rannsóknir benda til að áfengi
geti skaðað flest líffæri, svo og fóst-
ur á meðgöngutíma, auk þess sem
það veldur oft slysum sem hafa
líkamsáverka eða dauðsföll í för með
sér. — Kunnáttumenn segja að þekk-
ing okkar á áhrifum áfengis hafi
aukist meira á síðasta áratug en frá
upphafi vega fram til þess tíma. Það
ætti að gefa okkur vísbendingu um
að nauðsyn er að hrapa ekki að neinu
í þessum efnum heldur fara að öllu
með gát.
Að lokum minnum við á að meðal-
ævi íslendinga er lengri e_n annarra
þjóða. Áfengisneysla á íslandi er
minni en annars staðar í Evrópu og
áfengt öl ekki á boðstólum. Er út í
bláinn að tengja þetta saman? Kunn-
ugt er að áfengisneysla veldur fleiri
ótímabærum dauðsföllum í Evrópu
en aðrar orsakir sem menn geta
haft áhrif á. Væri ekki verðugt við-
fangsefni að rannsaka, hvem þátt
lítil áfengisneysla og sérstaklega
afar takmörkuð neysla áfengs öls
hefur átt í því að stuðla að langlífi
Islendinga? — Það gætum við gert
á þeim tíma sem eftir lifir aldarinnar
meðan við vinnum að því að draga
úr áfengisneyslu um fjórðung.
Morgunblaðið/Sverrir
Anna Jóna Halldórsdóttir við vinnu í verslun sinni.
Verslun með persnesk teppi
ANNA Jóna Halldórsdóttir opn-
aði nýlega verslunina Persn-
eskar mottur og teppi á Hrísa-
teigi 47.
Hún hefur verið undir hand-
leiðslu persneskra teppasala á
handhnýttum teppum síðan 1986
og hefur sérhæft sig í persneskum
teppum. Hún er einnig lærð í að
gera við og hreinsa þessi teppi.
Anna Jóna veitir fúslega faglegar
upplýsingar um handhnýtt teppi í
verslun sinni sem er opin alla virka
daga frá kl. 13—18. (Fréttatilkynning)
SAMSKIPTIVIÐ FJOLMIÐLA 24.3.
INNRmJNTIL
22.MARS
SIMh
621066
HVERNIG NÆRÐU ATHYGLI
FJÖLMIÐLA OG HVERNIG
NÝTIRÐU HANA SEM BEST?
Á þessu námskeiði verður fjallað um:
Starfsemi hljóðvarps og sjónvarps
• Dagblöð og tímarit • Gerð fréttatil- __________
kynninga • Blaðamannafundi • Samskipti, við blaða- og
fréttamenn • Framkomu í sjónvarpi og útvarpi
• Mat á fjölmiðlum.
LEIÐBEINENDUR: Magnús Bjarnfreðsson og Vilhelm G.
Kristinsson, starfsmenn Kynningarþjónustunnar sf. og
Björn Vignir Sigurpálsson, blaðamaður Morgunblaðsins.
TlMI OG STAÐUR: 24.-25 mars kl. 8.30-17.30 að
Ánanaustum 15.
STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKIR FÉLAGSMENN SÍNA
TIL ÞÁTTTÖKU f ÞESSU NÁMSKEIÐI.
Stjórnunarfélag íslands
Ánanaustum15 Sími: 6210 66