Morgunblaðið - 20.03.1988, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1988
Úrskurður siðanefndar BÍ:
Ummæli í fjöl-
miðlagagnrýni
ekki ámælisverð
SIÐANEFND Blaðamannafélags
íslands hefur úrskurðað að um-
mæli Illuga Jðkuissonar um
fyrsta tölublað tímaritsins Við
karlmenn, í fjölmiðlagagnrýni á
Rás 2, bijóti ekki f bága við siða-
reglur BI.
Illugi fjallaði um þetta tímarit í
þætti sínum í bytjun desember á
síðasta ári. í kærubréfí segir að í
útvarpserindi Illuga séu „móðgandi
og niðrandi ummæli" sem séu „æru-
meiðandi" fyrir ritstjórann og það
svo að um sé að ræða “hreinan
atvinnuróg".
Sérstaklega eru nefnd nokkur
ummæli kærunni til stuðnings. Þar
segir Illugi m.a. að Við karlmenn
sé „hallærislegasta tímarit sem ég
hef jséð lengi og til þess, hlustendur
góðir, að þið þurfið ekki að kynna
ykkur það sjálfír, þá skal ég nú
segja ykkur allt um það“. Hann
lýkur gagnrýni sinni á leiðara tíma-
ritsins með þessum orðum: „Þá er
leiðarinn búinn og það ætti að setja
Þórarinn
Þórarínsson
skólastjórí
látinn
ÞÓRARINN Þórarinsson skóla-
stjóri í Skúlagarði í Kelduhverfi
lést sl. fimmtudag, 55 ára að
aldri.
Þórarinn var fæddur 14. júní í
Krossdal í Kelduhverfi, sonur Þór-
arins Jóhannessonar bónda og konu
hans Guðnýjar Þórarinsdóttur.
Hann varð stúdent frá Menntaskól-
anum á Akureyri 1952 og lauk
guðfræðiprófí frá Háskóla lslands
1960.
Þórarinn var kennari við ungl-
ingaskóla í Skúlagarði 1960-61 og
var settur sóknarprestur í Vatn-
sendaprestakalli frá 1. júlí 1961.
Þórarinn var vígður 25. júní sama
ár og var honum veitt kallið 1962.
en fékk lausn frá prestskap 1. nóv-
ember 1968. Hann var kennari við
héraðsskólann á Laugum og
kvennaskólann þar 1962-65, og við
unglingaskólann að Köldukinn
þann mann í fangelsi sem tekst að
skrifa jafn stuttan texta jafn illa.“
í úrskurðinum segir að fjölmiðla-
gagnrýni Uluga á Rás 2 sé einn af
þeim afmörkuðu þáttum í fjölmiðl-
um þar sem höfundurinn segir und-
ir fullu nafni álit sitt á þvi málefni
sem hann fjallar um hveiju sinni.
Siðareglur setji ekki hömlur á tján-
ingafrelsi þeirra sem skrifa slíka
gagnrýni eða annast hliðstæða
þætti þar sem persónulegar skoðan-
ir höfundar eru í fyrirrúmi.
„Ulugi Jökulsson hefur ljóslega
mjög ákveðna skoðun á því við-
fangsefni, sem hann fjallar um í
hinu kærða útvarpserindi, eins og
í sumum öðrum erindum sömu teg-
undar þar sem hann hefur rætt um
efni annara fjölmiðla. Hann lætur
þessar skoðanir sínar í ljósi tæpi-
tungulaust en notar stundum vafa-
söm stóryrði. Samt sem áður verður
ekki séð að hann hafí með því brot-
ið greinar siðareglna Blaðamanna-
félags fslands." segir síðan orðrétt
í úrskurðinum.
Þórarinn Þórarinsson
1967-68. Hann var kennari við
bama- og unglingaskólann í Skúla-
garði 1968-70 og skólastjóri þar
sfðan.
Fyrri kona Þórarins var Guðrún
Þórðardóttir kennari og eignuðust
þau 3 böm. Þau skildu. Síðari kona
hans var Rósa Jónsdóttir og eignuð-
ust þau 2 böm.
Morgunblaðið/Þorkell
Frá námskeiði Félags fasteignasala.
Fasteignasalar á námskeiði
FÉLAG fasteignasala gekkst fyr-
ir námskeiði á föstudag, þar sem
farið var yfir skjöl sem tekin
verða i notkun í fasteignavið-
skiptum eftir páska, að sögn
Félags fasteignasala.
Um eitt hundrað fasteignasalar
og starfsmenn þeirra voru á nám-
skeiðinu. Samkvæmt nýrri reglu-
gerð dómsmálaráðuneytisins þarf
fasteignasali m.a. að leggja fram
10,5 milljóna króna tryggingu
vegna kostnaðar og tjóns sem við-
skiptamenn hans kynnu að verða
fyrir, að sögn Þórólfs.
Þórólfs HaUdórssonar, formanns
Skreið:
N ígeríumarkaður
opinn en \ágt verð
Gott verð fæst fyrir herta hausa
MIKIL eftirspum er nú eftir
skreið í Nígeríu, en háir innflutn-
ingstollar og óhagstæð gengis-
þróun nígeríska nairans gagn-
vart Bandaríkjadollar valda þvi,
að seljendur hér á landi geta
ekki fengið nægilega hátt verð
fyrir skreiðina, að sögn Ragnars
Siguijónssonar hjá sjávarafurða-
deild SÍS. Ragnar sagði, að hins
vegar liti betur út með hausa-
verkun, fengist gott verð fyrir
þá.
ánægðir með,“ sagði Ragnar. Hann
sagði innflutningstolla nú vera 50%
á skreiðina og að auki kemur til
óhagstæð gengisþróun nígeríska
gjaldmiðilsins gagnvart dollaran-
um. Þetta veldur litlum kaupmætti
Nígeríumanna og þar af leiðandi
að lágt verð fæst til seljenda hér.
Ragnar sagði engar birgðir vera til
( landinu núna og taldi framleiðslu
verða nánast enga á árinu. Hann
sagði, að til þess að það borgaði
sig að verka skreið, þyrfti fískurinn
að fást fyrir 10 til 16 krónur kílóið
upp úr sjó. Fyrir herta þorskhausa
sagði Ragnar að fengist þó gott
verð. 30 kg pakkar seljast á 60 til
65 dollara, CIF verði. „Við þurfum
að fylgjast vel með verðinu og sjá
hvort og hvenær hægt verður að
selia,“ sagði Ragnar Siguijónsson.
I norska blaðinu Fiskaren var
nýlega sagt frá því, að Norðmenn
eigi nú um 4.000 tonna birgðir af
skreið, en þeir selji ekki vegna hins
lága verðs sem fæst fyrir hana og
eru ekki bjartsýnir á, að úr rætist
í bráð.
Ragnar sagði, að Nígeríumark-
aður hefði verið opinn og gengið
greiðlega að eiga viðskipti við
Nígeríumenn, síðan gjaldeyris-
markaður var opnaður þar í sept-
ember 1986. Síðan þá hafa verið
opnaðar bankaábyrgðir og gengið
vandræðalaust að selja. „Það er
verðið sem við höfum ekki verið
Rekstrarvandi Landakotsspítala:
Rætt við fjármála-
ráðherra eftir helgi
Sá mórauðan hrút
í Jökulfjörðum
KaJdalóni.
HJÖRTUR heitir maður á ísafirði Bjarnason, kallaður Hjörtur
stapi, gamall útgerðarmaður og rækjubátaskipstjóri í tugi ára,
harðjaxl hinn mesti fram i tær og fingur og bítur hvorki á hann
frost né rok. Hjörtur þessi seldi fyrir nokkru útgerð sína og bát
en þótt 75 ára sé hann orðinn gat hann engan veginn lagst í
helgan stein, en keypti þá smá trillu sem hann fer á til færa á
sumrin en á vetrum á sela- og tófuskytterí.
Nýlega fór hann norður í Jökul-
fjörðinn til refaveiða og fékk þar
bæði tófu og sel. Fékk þó brælu
og gekk á með éljum. Lá hann
þá einn á bát sínum fram að
bænum Dynjanda. En viti menn.
Þá er upp rofar og minn maður
fer að líta í kringum sig sér hann
eitthvað sérkennilegt dýr við land-
flöruna nálægt Höfða, mórautt
að lit, sýnist honum í allri kólg-
unni, stórt og mikið. En þá betur
hann að gáir og upp birtir élið sér
hann að þetta er kind, stór og
fönguleg.
En allt getur þetta komið heim
og saman við það að ( haust sem
leið vantaði Pál bónda ( Bæjum
fjögurra vetra mórauðan hrút,
feikna fallega skepnu og er því
talið líklegast að þarna sé nú
gimbillinn kominn, bráðhress og
lifandi eftir þriggja mánaða sam-
fellda innistöðu §ár hér norðan
Djúps og hvíta mjöllina þakið alla
jörð. En að sjálfsögðu hefur
skepnan sú arna látið sér í léttu
rúmi liggja allur hinn gífurlegi
upphitunarkostnaður landa sinna
og bara brosir svo út í hryssinginn
upp á sitt eindæmi.
Hugað er svo að kanna alla
málavöxtu þá er upp styttist veð-
urfarið og mun þá móri að sjálf-
sögðu fús til að rekja ættartölu
sína til sinna farsælu kynstofna
þá ef fínnast kann.
Að auki skaut Hjörtur þessi
mink út á sjó hér undan Snæfjalla-
strönd. Sá þar tvo minka á sundi
en missti annan til lands enda
fáliðað svo sem fyrr segir. En
slíkum dýrum fínnst ekki meir að
sækja ætið í sjóinn en qkkur að
skreppa í volga sundlaug.
Jens.
GUÐMUNDUR Bjaraason heil-
brigðisráðherra segist munu
ræða málefni Landakotsspitala
við fjármálaráðherra nú eftir
helgina. Unnið hefur verið að því
í heilbrigðisráðuneytinu að fara
yfir stöðu spítalans en vanskila-
skuldir hans nema nú um 180
milljónum króna. Ákveðið hefur
verið að loka tveimur deildum á
spítalanum og mun hann hætta
bráðavöktum 1. apríl næstkom-
andi.
Guðmundur sagði að við fjárlaga-
afgreiðslu um síðustu áramót hefði
verið vitað að mörg sjúkrahús væru
með greiðsluhalla en ekki hefði leg-
ið fyrir hve mikill sá halli væri í
heild. „Ég áætlaði að það kynni að
vanta á bilinu 2-300 milljónir króna
til sjúkrahúsanna vegna rekstrar-
vanda ársins 1987 og áður. Það var
ekki orðið við óskum að setja þá
íjármuni til sjúkrahúsanna í fjárlög-
in, enda hafði ég ekki nógu ná-
kvæmar tölur, heldur var gert ráð
fyrir 50 milljónum króna til að
mæta greiðsluhalla sjúkrahúsa.
Þeim peningum er þegar búið að
ráðstafa til smærri sjúkrahúsa en
eftir er að takast á við rekstrar-
vanda stjóru sjúkrahúsanna fjög-
urra," sagði Guðmundur.
Hann bætti við að vandi annara
sjúkrahúsa væri þó ekki í líkingu
við vanda Landakotsspitala. Þar
hefði myndast meiri halli en annars-
staðar og verið væri að kanna
ástæður þess í heilbrigðisráðuneyt-
inu i samráði við forsvarsmenn
Landakots.
Selfoss:
Nýtt fyrirtæki
í úrvinnslu
sjávarafurða
Seifossi.
NÝTT fyririækí í úrvinnslu sjáv-
arafurða til útflutnings, Gagn
hf., mun hefja starfsemi á Sel-
fossi á næstunni. Fyrirtækið er í
eigu nokkurra einstaklinga á Sel-
fossi og er gert ráð fyrir að
starfsmenn verði 8-10.
Fyrirtækið sótti um til atvinnu-
málanefndar Selfoss að fá húsnæði
í iðngörðum bæjarins og mælir
nefndin með því við bæjarstjóm..Að
fengnu samþykki bæjarstjómar ligg-
ur fyrir hjá fyrirtækinu að panta
vélar til starfseminnar og koma
henni af stað en gert er ráð fyrir
að það taki um tvo mánuði.
Sig. Jóns.