Morgunblaðið - 20.03.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1988
27
Sparisjóður Súðavíkur;
FALLIÐ FRÁ KRÖFUM í ÁVÍSANAMÁLI
á hann að hann hefur æ síðan lagt
áherzlu á að fá nákvæmar upplýs-
ingar um allt sem máli skiptir og
hafa á að skipa hæfu starfsliði, sem
kann að bijóta mál til mergjar og
semja greinargóðar skýrslur.
Mskipti Shamirs af stjómmál-
um hófust ekki fyrr en 1970 þegar
hann gekk í Herut (Frelsisflokk-
inn), arftaka Irgun, þá 53 ára að
aldri. Hann var kosinn á þing
þremur árum síðar, gat sér strax
gott orð fyrir ágæta skipulags- og
stjómunarhæfíleika og var kjörinn
forseti þingsins, Knesset, 1977.
Hann var oftast sammála Begin,
en tók stundum harðari afstöðu
en hann og sat hjá í atkvæða-
greiðslunni um friðarsamninginn
við Egypta 1979.
Harðlínumaður
Begin átti erfítt að vinna með
hæfíleikamönnum á borð við Ezer
Weizman, Moshe Dayan og Ariel
Sharon og áhrif Shamirs jukust
stöðugt. Hann varð utanríkisráð-
herra 1979 í stað Dayans og var
talinn standa sig vel í því starfí,
en var þó gagnrýndur fyrir afstöðu
sína til borgarastríðsins í Líbanon.
Einkum þótti hann of fylgispakur
við Sharon landvamaráðherra, að-
alhvatamann íhlutunar ísraels í
Líbanon, sem seinna átti mikinn
þátt í því að hann varð forsætisráð-
herra. Litlu munaði að völd Begins
kæmust í hættu þegar opinber
nefnd sakaði hann um að hafa að
engu haft ábendingar um að fjölda-
morð kynnu að verða framin í
Sabra- og Chatila-búðum Pa-
lestínumanna.
Shamir hefur alltaf verið einn
eindregnasti stuðningsmaður Er-
etz, þ.e. „Stór-ísraels“, og hófsam-
ir menn í ísrael, svokallaðar „dúf-
ur“, hafa sakað hann um að standa
of fast á kröfunum til Vesturbakk-
ans. Þegar hann var beðinn um
að réttlæta kröfuna 1982 svaraði
hann með hebresku orði, „Kacha",
sem merkir „þannig á það að vera“
eða „af því bara“.
Shamir lét aldrei á því bera að
hann æli pólitískan metnað og
forðaðist að eignast óvini í Likud-
bandalaginu. Sagt var að hann
hefði verið tregur til að taka við
starfí forsætisráðherra af Begin
1983, því að hann vildi láta lítið
fara fyrir sér. Val hans var talinn
sigur fyrir herskáa og gamla leið-
toga Likuds og olli þeim mönnum
vonbrigðum, sem höfðu vonað að
Israelsstjóm tæki upp sveigjan-
legri stefnu þegar Begin léti af
embætti.
Shimon Peres, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, tók við stjómar-
taumunum eftir kosningamar
1984 og sat Ail hausts 1985, en
úrslit kosninganna voru svo óljós
að það varð að samkomulagi að
hann og Shamir skiptust um að
fara með stjómarforystuna. Nú eru
nýjar kosningar á næsta leiti og
afstaða kjósenda kann að ráðast
af afstöðu þeirra til ástandsins á
Vesturbakkanum og Gaza-svæð-
inu, sem varð til þess að George
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
rílq'anna, fór í friðarleiðangur sína
til Miðausturlanda fyrr á þessu ári.
Síðan fór Shamir í ferð sína til
Washington. Þótt hann vildi lítið
gera úr kryt ísraels og Bandaríkja-
stjómar áður en hann fór og kall-
aði hann „misskilning milli vina“
í blaðaviðtali tókst honum og Re-
agan forseta ekki að jafna ágrein-
inginn. Reagan lagði áherzlu á að
friðaráætlun Bandaríkjamanna
yrði ekki breytt og varaði við þeim
afleiðingum, sem það gæti haft ef
henni yrði hafnað, en „harðjaxlinn
í ísrael“ þijózkaðist við. Hann vill
ekki láta af hendi landsvæði, sem
voru tekin herskildi í sex daga
stríðinu 1967, þar sem hann telur
að það muni stofna öryggi ísraels
í hættu.
LÖGMAÐUR Sparisjóðs Súðavík-
ur, sem höfðaði mál sfðasta haust
gegn framseljendum ávisana, hef-
ur nú tilkynnt aðilum að Sparisjóð-
urinn falli frá kröfum sínum.
Kröfumar námu að nafnvirði um
12-1300 þúsund krónum, en lög-
maðurinn segir að Sparisjóðurinn
eigi góða von um að fá þetta fé
greitt, þar sem hann hafi undir
höndum skuldabréf tíl greiðslu á
kröfunum. Nú er hins vegar rekið
riftunarmál vegna skuldabréfsins.
Fari svo að Sparisjóðurinn tapi þvf
þá á hann almenna kröfu f þrotabú
útgefanda tékkanna og fengi þá
hugsanlega greidd um 30-40% af
kröfunum.
Aðdragandi máls þessa var sá, að
í fyrravetur rak sambýlisfólk veit-
ingahús á ísafírði og var konan skráð
eigandi ávísanareiknings, sem mað-
urinn notaði einnig í þágu fyrirtækis-
ins. Síðastliðið vor gaf maðurinn út
ávísanimar, sem málaferlin spunnust
af. Um 4-5 mánuðum eftir framsal
ávísananna krafði Sparisjóður
Súðavíkur framseljendur, 14 talsins,
um greiðslu þeirra, þar sem ekki
reyndist innistæða fýrir þeim. Á með-
al þessara ávfsana var ein, sem bæjar-
fógetaembættið á ísafírði hafði veitt
viðtöku sem greiðslu á gjöldum.
Nú hefur lögmaður Sparisjóðs
Súðavikur, Sigurður Þóroddsson,
hdl., tilkynnt aðilum öllum að Spari-
sjóðurinn hafi fallið frá kröfum sfnum
á hendur þeim. „Það reyndist vera
formgalli á ávísununum, því útgáfu-
staðar var ekki getið nógu greini-
lega,“ sagði Sigurður. „í lok nóvemb-
er féll dómur í Hæstarétti, þar sem
komist var að þeirri niðurstöðu að
sýkna bæri mann af kröfu banka,
þar sem útgáfustaður var ekki til-
greindur á tékkunum. Með hliðsjón
af þessu var ákveðið að taka eitt mál
til úrlausnar og sýknudómur í því var
kveðinn upp þann 7. mars siðastlið-
inn. í framhaldi af því var málið fellt
niður."
Sigurður var inntur eftir því, hvort
rétt væri að Sparisjóður Súðavíkur
þyldi ekki að taka á sig þessar
12-1300 þúsund krónur. „Það er auð-
vitað ekki rétt og Sparisjóðurinn fékk
á sínum tíma skuldabréf frá þriðja
aðila, til greiðslu á þessum kröfum.
Það er nú verið að reka riftunarmál
út af því skuldabréfí. Ef niðurstaða
hefði fengist í riftunarmálinu í haust,
eins og búist hafði verið við, þá hefði
þetta tékkamál aldrei verið höfðað.
Það var fyrst og fremst höfðað til
að slíta 6 mánaða fymingu. Ef niður-
staða skiptaréttar verður sú, að
Sparisjóðurinn heldur skuldabréfínu,
þá er enginn vafi á því að hann fær
þessa tékka greidda.
Verði niðurstaða skiptaréttar
Sparisjóðnum í óhag, þá á hann al-
menna kröfu í búið og fær þá hugsan-
lega greidd um 30-40% af jfessari
upphæð," sagði Sigurður Þóroddsson,
lögmaður, að lokum.
m
HVAR
ER
ÖDÝRAST
AÐ VERSLA?
10.
ER UMBOÐIÐ
ALLTAF DÝRAST?
í nýgeröri verðkönnun Verðlags-
stofnunar kemur fram að verð á
varahlutum I þá bíla, sem
Hekla hf. hefur umboð fyrir, er
lægst í Varahlutaverslun
Heklu hf. I 7 tilfellum af 12. Þar
að auki var Hekla hf. aldrei með
hæsta verð á þeim varahlutum,
sem könnunin tók til. Þessar
niðurstöður eru sannarlega
góður vitnisburður um að
varahlutir geta verið ódýraStir
hjá viðkomandi bifreiðaumboði.
113% VERÐMUNUR
í könnun Verðlagsstofnunar
kom fram að það munaði allt
að 113% á verði varahlutar í
Heklu hf. og samskonar vara-
hlutar í þeirri verslun, sem
hæsta verðið hafði. Það liggur
því- í augum uppi að hægt er að
spara verulega með því að
kaupa þar sem verðið er lægst.
GÆÐIN SKIPTA
LÍKA MÁLI
í varahlutaverslun Heklu hf. eru
aðeins seldir viðurkenndir vara-
hlutir með ábyrgð, sem stand-
ast ýtrustu kröfur framleiðenda
bílanna.
Umboð Bilanaust Borgar- túni 26 Háberg Skeifunni 5a Óliu- élagið hf. (Esso) GS vara hlutir Hamars- höfða 1 I. Erlings- ' son Ármúla 36 Oliufólagið Skeljungur (Shell) Blossi Ármúla 15 Oliuversl- un íslands (Olis) Stilling Skeif- unni 11 Áiimingar Ármúla 22 Lægsta verð Hæsta Mismunur verð i % 1
MITSHUBISI GALANT 1600 í ÁRG . 1983 — HEKLA HF 1
Korti 1 stk oo 02 110 110 105 116 03 128 109 eo 125 38,0%
Platína 110 110 144 153 105 106 160 106 165 55,7%
Lofftsia 248 * 403 378 248 403 02,5% “
Oliusia 237 312 303 237 312 31,8% “
1078 1814 1277 1200 1078 1514 40,4% “
Bromsuklossar, 4 stk. 048 645 570 1200 877 884 870 1260 118,8%
Stýrlsendl 756 700 600 090 760 10,1%
1710 . 1780 2270 1080 1700 1710 2270 33,3% ~
Kúpllngspressa 22SO * 2270 3004 3014 2200 3814 00,5% “
Þurrkublað 108 * 320 301 415 314 287 105 416 112,8%
Vlftureim 201 107 170 205 170 205 20,6%
Kvolkjulok 280 248 210 200 34S 283 25S 216 345 50,7% 1
* Losgsta verð.
Kynntu þér okkar verð * það borgar sig!
HF
Laugavegi 170 172 Simi 695500
RAIMGE RGX/ER
MlNlTjytETRO |
GH