Morgunblaðið - 20.03.1988, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1988
43
Stjórnandinn Anthony Hose hnykkir á nokkrum atriðum við kórinn áður
Catherine William fylgir dyggilega eftir á píanóinu.
en sýningin rennur upp.
Hljómsveitarmennirnir gera klárt. Hér er það Hafsteinn Guðmunds-
son fagottleikan.sem pústar hljóðfœri sínu saman.
Við sjáum ekki á myndinni hvað er svona skoplegt undir kápu Krist-
ins, en þeim Viðari Gunnarssyni, Gunnari Guðbjörssyni og Sigríði
Gröndal er greinilega skemmt.
viðeigandi takta á ljósaborðið. Hann
er í sambandi við Kristínu og eins
ljósamann, sem situr á palli undir
rjáfri og stjómar eltiljósinu. Segir
honum nú að finna Gunnar og vera
tilbúinn með ljósið á hontim, passa
hausinn, stækka geislann rólega,
ef á þurfí að halda.
Niðri, þar sem söngvarar og kór
hefur sig til milli atriða, smitar tón-
listin úr hátölurum. Ólöf Kolbrún,
Elín Ósk Óskarsdóttir og Gunnar
tenór Guðbjömsson sveipa sig
svörtum skikkjum, taka svörtu
barðastóru hattana sína og draga
fram hvítar grímur, búa sig undir
að hræða líftóruna úr flagaranum.
„Eins gott að hneppa alla leið nið-
ur, svo þetta breytist ekki í can-can
sýningu," segir eitt þeirra. Gunnar
frestar því í lengstu lög að setja á
sig grímuna, svo hún haldist á
sínum stað allan tímann, en sígi
ekki niður á nefið og láti hann
syngja allt í nef.
Hringurinn farinn að þrengjast
um Don Giovanni. Enn einu sinni
tekst honum þó að komast undan,
vílar ekki fyrir sér að etja hinum
trúa og dygga Leporelló fram, til
að koma sér undan refsingu. Nokkr-
um töktum áður en Don Giovanni
kastar þjóninum fram er Bergþór
farinn að tvístíga við sviðsbrúnina
í klónum á Kristni. Nokkra seinna
er Don Giovanni sestur við dúkað
borð. Skiljanlegt að Kristinn taki
ánægjulega til matar síns, því ljúfur
ilmur veislukrása af nærliggjandi
matstað leggur um bakgangana.
Eilíf tortíming og þó ekki
Lokasenan í bígerð. Styttan
stendur baksviðs og liðkar sig til,
eftir að hafa staðið um stund hreyf-
ingarlaus á stalli. Kristín kastar sér
á gólfið með textann ómissandi,
snýr að sviðinu. Lætur prófa ljósin,
sem eiga að lýsa styttuna upp, líka
ljósin úr helvíti og allt virkar. Cath-
erine Williams er mætt á hinn sviðs-
vænginn með textann og nótumar
og auk þess heljar mikinn tréd-
ramb, sem kemur skelfilegu fóta-
taki styttunnar til skila. Styttan
treður fram til að sækja skúrkinn,
sem loksins sýnir óttamerki, reykur
fyllir aila ganga baksviðs um leið
og Don Giovanni er dreginn í neðra
til að tortímast að eilífu ... og þó
ekki. Meðan til eru konur,' sem láta
lokkast af fagurgala, verður þá
ekki alltaf einhver til þess?
Kristinn stígur léttilega niður af
pallinum, sem flutti hann niður í
þröngan ganginn baksviðs. Mátu-
lega sloppinn, því að ofan heyrist
samsöngur þeirra, sem misstu af
því að refsa Don Giovanni. Persón-
umar draga mismunandi lærdóm
af kynnum sínum við Don Gio-
Myndin segir meira en mörg orð
um húsakynnin baksviðs,en
Kristinn Sigmundsson er kominn
í góða æfingu að skáskjótast um.
vanni. Elvíra ákveður að ganga í
klaustur, Anna treystir sér ekki í
hjónaband við tryggðatröllið
Óttavíó fyrr en að ári, Leporelló
ætlar að finna sér annan herra á
næstu krá hið snarasta. Myrkur ...
Eitt augnablik, áður en ljósin
kvikna til að baða flytjendur. Hose
kemur léttur í spori upp úr hljóm-
sveitargryfjunni til að taka á móti
sínum skerf af þakklæti áhorfenda.
Svo deyr allt út, flytjendur tínast
inn, þar sem Kristín fær frá þeim
„Takk fyrir í kvöld, Stína mín“ og
klapp á öxlina ... Hún tekur dótið
sitt saman, slekkur.
Niðri er skrúfað frá sturtunum,
hreinsikrem á lofti og hvunndags-
fötin tekin ofan af snaga. Nokkrir
áhorfendur koma baksviðs til að
heilsa upp á vini og kunningja.
Sumir tínast heim í faðm fjölskyld-
unnar. Aðrir kallast á og skipu-
leggja áframhaldandi skemmtun á
nærliggjandi vertshúsi. Kristín
kveður, menn tínast út...
Mælið ykkur mót
við Don Giovanni!
Þeir lesendur sem hafa þrætt sig
í gegnum textann hafa nú fengið
smjörþefinn af því hvemig einni
óperasýningu vindur fram. Vita að
andrúmsloftið er fjörlegt þar í takt
við líðandi tónlistina hans Mozarts,
þess snillings. En það vantar mikið,
þegar sjálfa tónlistina vantar, því
það er nefnilega um hana, sem allt
snýst. En hana fáið þið beint í æð,
þegar þið leggið leið ykkar sjálf í
Islensku óperana einhvem tímann
á næstunni á stefnumót við Don
Giovanni. Konumar þarf vart að
hvetja til fundar við þennan al-
ræmdasta flagara bókmenntanna
og karlmennimir ættu að fylgja
þeim eftir, til halds og trausts. Það
er bara einn veginn f hverri sýn-
ingu ...
Texti: Sigrún Davíðsdóttir
Ljósmyndir: BAR
Þýskar, finnskar
og danskar
terylene lcápixr.
, Stærðir 32-54.
Verðfrákr. 6.800,-
V/Laugalæk-Sími 33755
HIOKI
HÁGÆÐA MÆLIR
hefur allt sem þarf, léttur og
nákvæmur og auðveldur í
notkun.
Eigum flestar aðrar gerðir
mæla s.s.:
Einangrunarmæla
A-V-Ohm-mæla
A-Tangir
Hitastigsmæla
Snúningsáttamæla
Snúningshraðamæla
Kynntuþér
verðoggæðiá
HIOKI
HIQKI 3231 piwitai- t
EESOÖifl HOLD"
-S.8.8.8
m)to MkQHzjjmAi/
©i©^© ©
i—A STSt,'
If |
HF.
Vatnagörðum 10
s: 685854, 685855
VIFTUREIMAR
optibelt
(onlinenial
Þrælsterkar reimar, tenntar
og sléttar
.
Stærsta sérverslun landsins
með reimar
FALKINN
m
Suðurlandsbraut 8, sími: 91-84670
105 Reykjavík
t