Morgunblaðið - 20.03.1988, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1988
sus
Frá hugmyndum
til framkvæmda
Stjórnmálamenn
framtíðarinnar...
...munu verða með okkur á aukaþingi Sambands ungra sjálf-
stæðismanna í Vestmannaeyjum 25.-26. mars og vinna að
stefnumótun ungs sjálfstæðisfólks. Við ætlum að koma hug-
myndum okkar á framfæri við þetta unga fólk, sem nú lætur
æ meir til sín taka í stjórnmálum. Við treystum þessu fólki
til að koma hugmyndum íframkvæmd.
Ungt sjálfstæðisfólk! Takið þátt í stefnumótun, sem ber
árangur. Það verður unnið markvisst í Eyjum.!
Skráning á þingið er í síma 82900. Fresturtil skráningar
rennur út á þriðjudag.
p
GeirH.Haarde,
þingmaður Reykvíkinga.
Sólveig Pétursdóttir,
varaþingmaður í Reykjavík.
Einar K. Guófinnsson,
varaþingmaður
áVestfjörðum.
Kristinn Pétursson,
varaþingmaður
á Austfjörðum.
Sturla Böðvarsson, Arni Johnsen,
bæjarstjóri í Stykkishólmi og varaþingmaður
varaþingmaður á Vesturlandi. á Suðurlandi.
Vilhjálmur Egilsson, Tómas Ingi Olrich,
varaþingmaður varaþingmaður
á Norðurlandi vestra. á Norðurlandi eystra.
Ferðir-gisting-matur
★ Vestmannaeyjaferjan Herjólfur veitir
þinggestum afslátt. Ferð fram og til
baka kostar kr. 960.
★ Flugleiöir hf. veita 20% afslátt af
flugi til Vestmannaeyja.
★ Farfuglaheimiliö viö Faxastíg er nýtt
og þægilegt húsnæöi, þar sem gist-
ing kostar aöeins 370 krónur nóttin.
★ Hótel Þórshamar er nýjasta og
glæsilegasta hótelið í Eyjum, staö-
sett í hjarta bæjarins. Verö: 1.750
krónur nóttin.
★ Gistiheimilið Hvíld býöur upp á
þægilega gistingu. Verö: 1.000
krónur nóttin.
★ Veitingahúsiö Skútinn veitir þing-
gestum 20% afslátt af auglýstum
matseöli meöan á þinginu stendur.
★ Kaffi og lóttar veitingar veröa á boö-
stólum allan tímann á þingstaðnum
- á vægu veröi.
★ Barnagæsla veröur á svæöinu fyrir
þá sem vilja.
★ Þinggjald veröur 1.950 krónur. Inni-
falinn er glæsilegur kvöldveröur á
veitingahúsinu Munanum á hótel
Þórshamri á laugardagskvöldinu.
★ Þingsetning er klukkan 18.00 á
föstudag.
★ Allar nánari upplýsingar og skráning
í síma 82900.
oddviti á Grundarfirði og í 4.
sæti á lista sjálfstæðismanna á
Vesturlandi til Alþingiskosninga
1987.
DrífaHjartardóttir,
í sveitarstjórn á Hellu og í sjö-
unda sæti á lista Sjálfstæðis-
flokksins á Suðurlandi til þing-
kosninga 1987.
f---------------------------------------------------------------------1
Hefur þú áhuga á starfi ungs sjálfstæðisfólks?
Ég undirrit(uð/aður) óska eftir að:
□ ganga í Félag ungra sjálfstæðismanna
□ fá nánari upplýsingar um starf og stefnu ungs sjálfstæð-
| isfólks |
Nafn:.......................................................
Nafnnúmer:...................Fd/mán/ár:...................
Heimili:....................................................
Póstnúmer:.......Staður:....................................
Morgunblaðið/Jónas Sigurðsson
Nemendur Grunnskólans á Patreksfirði dðnsuðu í tvo sólarhringa
og öfluðu með þvi fjár til að koma upp félagsaðstöðu fyrir unglinga
á Patreksfirði.
Patreksfjörður:
Maraþondansleikur
í grunnskólanum
P&trekafirði.
Maraþondansleikur var hald-
inn um síðustu helgi í grunnskól-
anum á vegum nemenda skólans
og var dansað í iþróttasalnum.
Nemendur 6., 7., 8. og 9. bekkjar
skiptust á að dansa frá kl. 24 á
föstudagskvöld og fram til kl.
24 á sunnudagskvöld.
Tilgangurinn með þessu var að
safna peningum, en dagana áður
höfðu nemendur safnað áheitum hjá
bæjarbúum og söfnuðust liðlega
140 þúsund krónur. Ætlunin er að
þeir peningar fari í að kaupa eða
koma upp húsnæði til félagsaðstöðu
fyrir unglinga hér á Patreksfírði
og er þá ict við félagsmiðstöð eða
eitthvO annað sambærilegt. Hér á
Patreksfírði er ekkert húsnæði eða
aðstaða fyrir unglinga til þess að
koma saman, annað en skólinn.
Vonast unglingamir, sem að þessu
stóðu, að þetta verði til að þessum
málum verði hreyft hér á Patreks-
fírði.
Foreldra- og kennarafélag
grunnskólans hélt veglegan köku-
basar á sunnudag í skólanum til
styrktar verkefni sem er í gangi
hjá félaginu, en það er að bæta
aðstöðu nemenda í skólanum í
frítímum og öðrum stundum sem
skapast í skólastarfinu. Foreldra-
og kennarafélagið hefur eflst mjög
undanfarin ár og hafa verið haldnir
nokkrir fræðslu- og kynningarfund-
ir á vegum þess í skólanum og er
von að sú starfsemi megi aukast
sem mest í framtíðinni, skólanum
til heilla.
— Fréttaritari
Vorvörurrmr
erukomnar
Fallegir litir
Pósthússtræti 13, sími 22477,
í hjarta Reykjavíkur á homi Pósthússtrætis og Kirkjustrætis. I