Morgunblaðið - 20.03.1988, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1988
49
Helgihald
í Laugar-
neskirkju
FJÖLBREYTT helgihald verður
sunnudaginn 20. mars í Laugar-
neskirkju. Kl. 11 verður messa
með altarisgöngu. Einnig verður
barnastarf um leið eins og verið
hefur í vetur. Eftir messuna
bjóða félagar úr Æskulýðsfélagi
Lauganieskirkju upp á heitar
vöfflur. Vijja unglingamir með
þessu efla samfélagið í kirkjunni
og gera það ánægjulegra.
Þennan sama dag verður helgi-
stund á föstu kl. 17.00. Þá mun
Kirkjukórinn syngja undir stjóm
Ann Toril Lindstad, en hún mun
einnig leika einleik á orgelið. Þá
verður lesið úr píslarsögunni og
höfð bænastund.
(Fréttatilkynning.)
Þjóðarflokkurinn:
Kjaradeilur
verði leystar
með tilfærslu
fjármuna
ÞJÓÐARFLOKKURINN hefur
sent frá sér ályktun þar sem seg-
ir að lausn kjaradeilna felist í
tilfærslu fjármuna innan þjóð-
félagsins. Það sé staðreynd að
miklar krónutöluhækkanir séu
bein ávísun á verðbólgu, þar sem
ekkert bendi til að tekjur út-
flutningsgreina muni aukast. Þvi
telur flokkurinn að kjarabætur
lágalunafólks verði fyrst og
fremst að felast i verulegri lækk-
un á daglegum tilkostnaði heimil-
anna.
Flokkurinn leggur til að þessu
markmiði verði náð með lækkun
lánskjaravísitölu, sem hafi hækkað
of mikið undanfarin ár, og með því
að binda lánskjör við gjaldeyrisvog
Seðlabanka. Þetta muni bæði lækka
fjármagnskostnað atvinnuveganna
og virka sem veruleg kjarabót fyrir
mikinn hluta launafólks þar sem
fjármagnskostnaður skulda þess
yrði reiknaður af réttri upphæð
höfuðstóls.
Loks segir í ályktuninni að því
§ármagni sem sóað sé í verslunar-
og þjónustuhallir væri betur varið
til uppbyggingar og þróunar at-
vinnuveganna. Fjáraustur í óarð-
bærar framkvæmdir á vegum versl-
unar og þjónustugreina bitni á öll-
um landsmönnum.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Gjöf Margrétar Jónsdóttur
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Um síðustu helgi var í fáeina
daga opið hús í Listasafni ASÍ
í sambandi við listaverkagjöf
Margrétar Jónsdóttur til safns-
ins, en hún er nú nýlátin.
Margrét var sem kunnugt er
eiginkona Þórbergs Þórðarsonar
rithöfundar, og voru þau hjón
um árabil fastagestir á opnanir
flestra meiri háttar myndlistar-
sýninga í höfuðborginni og settu
svip sinn á þær.
Þau voru og persónulegir vinir
og kunningjar margra myndlist-
armanna og mun Margrét fljót-
lega hafa farið að festa sér
myndlistarverk, eftir að þau hófu
búskap. Smátt og smátt varð
þetta að hinni myndarlegustu
eign, enda hafði Margrét gott
auga fyrir myndlist, svo sem ljós-
lega kom fram á sýningunni, þar
sem voru 40 verk, aðallega
olíudúkar.
Það er og merkilegt, að Mar-
gréti skyldi takast að koma upp
jafn góðu safni ákveðins tímabils
í framsækinni íslenzkri myndlist,
þegar þess er gætt, að fjárráð
þeirra hjóna munu hafa verið af
skomum skammti og lítill af-
gangur til listaverkakaupa. En
vafalítið munu listamennimir
margir hveijir með ánægju hafa
komið til móts við Margréti, enda
talið sér heiður að eiga myndir
í húsi stílsnillingsins, sem átti
aðdáun þeirra óskipta.
Allt um það þá er áhuginn að
baki lofsverður og gjöfin dijúg
búbót við myndaeign safnsins,
sem bætir sjálft litlu við eign
sína, en nýtur sem fyrr gjafmildi
einstaklinga, safnara sem lista-
Margrét Jónsdóttir
manna. En það er í hæsta máta
undarlegt að láta jafn ágæta
sýningu höfðinglegrar gjafar og
milljónavirði standa aðeins íjóra
daga, þegar þess er gætt að
önnur sýning og sýnu risminni
stóð þar yfír í mánuð eða svo
við nánast enga aðsókn.
Það er áberandi að það vom
öðm fremur ljóðræn hálfóhlut-
læg myndverk, sem höfðuðu
helzt til Margrétar, ásamt mynd-
um hugræns andrúmslofts og þá
gjaman af húsum og frá sjávars-
íðunni — vettvanginum eins og
hann var, áður en stríðsgróðinn
flæddi yfír landið og skolaði svo
mörgu í burt tengdu hinum svo-
nefndu kreppuárum — en sem
var í senn fagurt og myndrænt,
enda stórhugur í mannfólkinu.
Auðvitað safnaði Margrét ekki
skipulega myndum sínum, heldur
eftir hjartanu og auraráðum
hveiju sinni, og þó er árangurinn
býsna heillegur og viðbótin á
eftir að verða mikilvægur hlekk-
ur í uppbyggingu listasafnsins.
Frjáls á fjórum hjóíum
ogí„eigin“húsi!
Að velja sér ferðamátann Flug og bíl er sjálfsagt mál fyrir hvem þann sem vill fá sem mest
út úr ferðalaginu. Þessi möguleiki verður enn álitlegri ef þú velur sumarhús að auki, fyrir þig og
fjölskyiduna (eða ferðafélagana)!
Auktu nýrri vídd í Mið-Evrópuferðina með því að ráða ferðinni sjálfur og búa í „eigin“ húsi!
Verðdæmi:
LUXEMBORG: Flug + bíll í 2 vikur frá kr. 16.210 á mann.* SUPER-APEX verð. Bfll í B-flokki.
WALCHSEE: Flug + íbúð í Hgerhof í 2 vikur frá kr. 25.920 á mann.* Flogið til Salzburg.
Tímabilið 10. júlí til 28. ágúst. BQl í B-flokki í 2 vikur kr. 22.160.
BIERSDORF: Flug + íbúð í 2 vikur frá kr. 18.490 á mann.* Flogið til Luxemborgar.
Tímabilið 18. júní til 9. júlí. SUPER-APEX verð. Bfll í B-flokki í 2 vikur kr. 17.940.
SALZBURG: Flug + bíll í 2 vikur frá kr. 22.780 á mann.* Bíll í B-flokki.
* Meðaltalsverð á mann miðað við 2 fuilorðna og 2 böm, 2ja —11 ára.
FLUGLEIÐIR
-fyrírþíg-
Allar nánari upplýsingar á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum um allt land og ferðaskrifstofum.