Morgunblaðið - 20.03.1988, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1988
51
Akranes:
Fjáröflimarútvarp
Góö tilbreyting í bæjarlífinu
Akranesi.
SUNDFÉLAG Akraness, sem á 40 ára afmæli um þessar mundir, setti
á stofn fjáröflunarútvarpsstöð á Akranesi dagana 4.-6. mars sl. i sam-
vinnu við Skagablaðið og rann allur ágóði af rekstri stöðvarinnar til
félagsins, en þar er unnið geysiöflugt félagsstarf, ekki síst fyrir yngri
kynslóðina.
Vel var til vandað í dagskrá stöðv-
arinnar og komu menn víða við.
Meðal efnis voru fréttir og frétta-
tengdir þættir, spumingaþættir auk
viðtalsþátta og tónlistarþátta.
Nokkrir burtfluttir Akumesingar
sem vinna við fjölmiðla önnuðust
sinn þáttinn hver. Útvarpsstjóri var
Sigurður Sverrisson, ritstjóri Skaga-
blaðsins, og að hans sögn tókust
þessar útvarpssendingar að mestu
leyti mjög vel, það voru helst erfið-
leikar með sendinn sem hefði verið
að angra þá, en með hjálp góðra
manna hefði verið komist yfír þá
erfíðleika.
Eins og áður kemur fram rann
allur ágóði af auglýsingatekjum og
öðrum áheitum útvarpsins til Sund-
félags Akraness og er víst að allt
fé sem safnaðist kemur því í góðar
þarfír. Sturlaugur Sturlaugsson,
formaður Sundfélags Akraness, seg-
ir að þessi leið til fjáröflunar hafí
ekki verið reynd áður á Akranesi
og undirtektir allra sem leitað hafí
verið til hafi verið frábærar. „Ég
held að allir sem unnu að þessu
hafí haft ánægju af því og þetta
verður okkur öllum minnisstætt. Ég
vil því nota þetta tækifæri til að
þakka öllum þeim sem á einn eða
annan hátt gerðu okkur kleift að
Tollari ’88
Lipur: Sérstaklega einfaldur í notkun.
Fróður: Kann tollskrána og tollareglur utan að.
Reyndur: Forritið hefur þegar gert þúsundir toll-
skýrslna frá áramótum.
Tollari ’88 er farsæl lausn á tollskýrslugerð
og verðútreikningum.
íslensk tæki,
Garðatorgi 5, sími 656510.
Sigurður Sverrisson útvarpsstjóri lét ekki sitt eftir liggja við stjómun einstakra þátta. Enda vanur
maður á réttum stað.
gera þetta eins vel úr garði og raun
varð á,“ sagði Sturlaugur. Ný sund-
laug verður tekin í notkun á Akra-
nesi í sumar og sundfélagið ætlar
að ráðast í kaup á dýrum tímatöku-
tækjum fyrir hina nýju sundlaug.'
Með slíku tæki opnast sá möguleiki
að halda stórmót í sundi á Akra-
nesi. í sumar er ætlunin að halda
aldursflokkamót í sundi en það mun
vera íjölmennasta sundmót hérlendis
ár hvert.
Útvarp Akranes var mikil tilbreyt-
ing í bæjarlífínu og var fólk almennt
sammála um að vel hafi til tekist.
Öll dagskrá stöðvarinnar var vel
unnin og mikill metnaður fylgdi öll-
um þeim sem þar komu við sögu.
Vonandi verður framhald á slíkri
starfsemi á Akranesi.
- JG
Tæknimennirair skiluðu sinu hlutverki með sóma.
<
Hönnun: Pétur B. Lúthersson.
Innanhússarkitekt FHÍ.
MAXIS HÚSGÖGN FYRIR
FERMINGUNA
Breidd: 95 cm
Hæð: 101 cm
Breidd: 95 cm
Hæð: 101 cm
mamsmasssmmsmmsmmmB
Dýnu- 191 cm x 100 cm A
stærðir: 191 cm x 90 cm B
200 cm x 90 cm C
A'ítt
Maxis húsgögnin hafa
slegið í gegn beggja
vegna Atlantshafsins.
Maxis föst í stórverslunum
í Evrópu og Bandaríkjun-
um þar sem gerðar eru
ströngustu kröfurum gæði
og útlit.
Sömu kröfur gerir ungt
fólk ó Islandi.
Ath. í tilefni ferminganna
bjóðum við upp ó gjafa-
kort.
Smiðjuvegi 9, Kópavogi,
simi (91)43500