Morgunblaðið - 20.03.1988, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1988
53
Ingibjörg Sigurgeirs-
dóttir - Minning
Fædd 1. apríl 1919
Dáin 11. mars 1988
Kveðja frá Húsmæðrafélagi
Reykjavíkur
Hún Ingibjörg okkar er látin.
Hún lést 11. mars sl. Við félagskon-
ur í Húsmæðrafélagi Reykjavíkur
minnumst hennar sem einstakrar
félagskonu. Ingibjörg var vinur vina
sinna, hún var samviskusöm og
vandvirk svo af bar.
Ingibjörg starfaði um árabil með
okkur í félaginu. Með okkur störf-
uðu einnig tvær systur hennar,
Katrín Bergrós og Þórunn, sem
látnar eru fyrir nokkrum árum. Þær
systur voru allar einstaklega mynd-
arlegar hannyrðakonur. Þórunn
systir Ingibjargar rak hannyrða-
verslunina Refil við Aðalstræti um
árabil. Þær systur voru einstaklega
örlátar á efni og garn til félags-
kvenna til þess að vinna úr fyrir
basar félagsins. Með þeim systrum
komu einnig á fundi til okkar fjöld
vinkvenna og náinna skyldmenna.
Reyndust allar þessar konur félag-
inu vel.
Sólargeislinn í lífi Ingibjargar var
Katrín, einkadóttir hennar. Katrín
er gift Sigurði Svavarssyni og héldu
þau heimili saman. Katrín og Sig-
urður eiga 3 börn og er okkur fé-
lagskonum ógleymanleg gleði Ingi-
bjargar þegar fyrsta langömmu-
bamið faeddist, og var Ingibjörg svo
lánsöm að hafa heilsu til þess að
gæta bamsins meðan móðirin lauk
námi.
Við félagskonur eigum ógleym-
anlegar minningar um margar
skemmtiferðimar sem famar hafa
verið á vegum félagsins og síðast
en ekki síst frá dvöl þeirra mæðgna,
Ingibjargar og Katrínar með okkur
I orlofsbúðum í Danmörku vorið
1983.
Ingibjörg vann allan sinn starfs-
aldur í Sundhöll Reykjavíkur og em
því ekki ófáir sundhallargestir sem
minnast hennar frá þeim tíma. Fé-
lagskonur í Húsmæðrafélagi
Reykjavíkur hittast eftir hádegi á
hveijum mánudegi og dvelja þar
saman með handavinnu og gerð
basarmuna. Ingibjörg var ein þess-
ara kvenna sem aldrei lét sig vanta
í hópinn. Dapurlegt verður því að
sjá stólinn hennar auðan. En við
konumar vitum að hún dvelur með
okkur þessa dagstund eins og áður,
,og er það huggun í harmi.
Við félagskonur í Húsmæðrafé-
lagi Reykjavíkur sendum Katrínu
og fjölskyldu hennar okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur með þakklæti
fyrir góðar stundir með Ingibjörgu
og við biðjum Guð að blessa ykkur
öll.
Félagskonur
MENNT ER MÁTTUR
Byrjendanámskeið
á PC tölvur
Kjörið tækifæri
fyrir þá, sem vilja
kynnast hinum
frábæru kostum PC-
tölvanna, hvort heldur
sem er, í leik eða starfi.
Leiðbeinandi
DAGSKRÁ
* Grundvallaratriði við notkun PC-tölva.
* Stýrikerfið MS-DOS.
* Ritvinnslukerfið WordPerfect.
* Töflureiknirinn Multiplan.
* Umræður og fyrirspurnir.
Logi Ragnarsson
tölvunarfræðingur.
Tími: 22., 24., 29.,
og 30. mars
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28.
kl. 20-23
Upplýsingar og innritun í
símum 687590 og 686790
VR og BSRB styðja sína félaga
til þátttöku í námskeiðinu
Birting afmælis- og
minningargreina.
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
1 ■Bl :LAR IX
UÓSRITUNARVÉ
Ml( 2RÖSOI HUGBÚNAÐUR FT
GÆÐADYNUR IB
I
Mölle
Fyrirliggjandi í eftirtöldum stærðufn:
Teg. Standard 105 x 200cm -kr.11.500.-
Teg. Melle 80 x 200 cm - kr. 13.300.-
90x200cm -kr. 13.600,-
105X200cm -kr. 18.300,-
120x200cm -kr.22.600,-
- ’ 160X200cm -kr. 31.300.-
Teg. Uni-lux 90x200cm -kr. 19.100.-
105x200cm -kr. 22.800.-
120x200 cm -kr. 27.000.-
160X200cm -kr. 37.700.-
Nokkrar tegundir af höfða-
göflum og tilheyrandi lappir
eða bogar fyrirliggjandi.
HÖNNUNl • GÆÐI • ÞJÓNUSTA
!■■■
KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF.
Húsgagnadeild - Laugavegi 13 - Sími 625870
SACCO
hrúgöldin
f