Morgunblaðið - 20.03.1988, Side 55
VIS£7RSQ
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1988
55
Euginia Ratti
Eug-inia Ratti
til Islands
ÍTALSKA óperusöngkonan Eug-
inia Ratti er væntanleg til íslands
27. mars nk. Þetta er i fimmta
skipti sem hún kemur hingað til
lands.
í upphafí kom Euginia Ratti
hingað á vegum Pólýfónkórsins til
að þjálfa söngfólk á hans vegum.
Að þessu sinni kemur söngkonan á
eigin vegum og heldur hér nám-
skeið fyrir söngvara sem margir
hvetjir hafa stundað nám hjá henni
á Ítalíu. Námskeiðið verður haldið
í Reykjavík dagana 28. mars til 8.
apríl.
Norrænt tækniár:
ÚO .
op Utvegsbanki Islands hf
Tékkareikningur.
BETRI TÉKKAREIKNINGUR
í NÝJUM BÚNINGI!
Tékkareikningur Útvegsbankans hefur tekiö
stakkaskiptum. Tékkheftin eru komin í nýjan
búning og settar hafa verið nýjar reglur er
varða yfirdráttarheimild, tekjulán og
sparnaðarsamkomulag. Þetta eru breytingar
til batnaðar sem gera verslun þína og
viðskipti þægilegri og ánægjulegri. Kynntu
þér þessar breytingar á næsta
afgreiðslustað bankans.
Hveragerði:
Skólakórínn með
söngskemmtun
Hveragerði.
KÓR Grunnskólans ( Hveragerði
gekkst fyrir söngskemmtun í
Hótel Ljósbrá þann 9. mars sl. Á
efnisskrá voru lög úr hinu vin-
sæla leikriti Kardimommubæn-
um eftir Torbjörn Egner. Söng-
stjóri var Margrét Guðmunds-
dóttir, tónlistarkennari skólans.
Metaðsókn var að tónleikunum
og undirtektir mjög góðar.
Kórinn er ungur að árum, hann
var stofnaður í bytjun nóvember á
síðasta ári. í byijun voru 30 nem-
endur á aldrinum 9 til 13 ára. Kór-
inn kom fyrst fram í desember á
nemendatónleikum Tónlistarskól-
ans í Hveragerðiskirkju og söng
síðan á „litlu-jólunum“ í Barnaskól-
anum.
Eftir áramótin var fleirum gefínn
kostur á að ganga í kórinn og fjölg-
aði þá félögum í 50. Hafíst var
handa við að æfa nokkur vinsæl-
ustu lögin úr Kardimommubænum
eftir Torbjöm Egner. Fór flutning-
urinn þannig fram að sögumaður
las söguþráðinn á milli sönglag-
anna, sem voru leikin í viðeigandi
búningum og einsöngvarar komu
fram í nokkrum atriðum. Þriggja
manna hljómsveit lék með.
Var þetta hin ágætasta skemmt-
un og bömunum og stjómanda til
mikils sóma og ekki spilltu hin
skemmtilegu sviðstjöld sem hand-
menntakennari gmnnskólans gerði
fyrir kórinn.
— Sigrún
Morgunblaðið/Sigrún Sigfúsdóttir
Myndin er tekin á söngskemmtun skólakórsins en hann flutti 16 lög
úr Kardimommubænum.
TÉKKAREIKNINGUR
*Eigir þú bankakort - átt þú kost á yfirdráttarheimild
á tékkareikningi þínum, allt að kr. 30.000 þú greiðir
ekkert aukagjald fyrir heimildina einungis vexti af
upphæðinni sem þú færð að láni.
*Tekjulán færðu eftir samfelld viðskipti við bankann
í 3 mánuði allt að kr. 150.000.- Lánshlutfallið eykst
að sjálfsögðu í hlutfalli við viðskipti þín við bankann
og meðalveltu hvcrju sinni.
*Sparnaðarsamkomulagið erekki bindandi. Þú getur
byrjað og hætt hvenær sem þú óskar.
Kynntu þér þessar breytingar, sem gera verslun þína
og viðskipti þægilegri og ánægjulegri.
FÁÐU ÞÉR BÆKLING Á NÆSTA
AFGREIÐSLUSTAÐ ÚTVEGSBANKANS.
Opið hús hjá Orkustofnun
í TILEFNI af Norrænu tækniári
verður „Opið hús“ á Orkustofnun
sunnudaginn 20. mars 1988 milli
kl. 13 og 17. Þar munu starfs-
menn kynna starfsemina og
hluta þeirra verkefna sem verið
er að fást við þessa stundina.
Orkustofnun, sem varð 20 ára á
síðasta ári, sinnir rannsóknum á
eðli og skilyrðum til nýtingar orku-
linda á íslensku yfirráðasvæði,
rannsóknum á orkubúskap þjóðar-
innar, auk þess sem hún er ríkis-
stjóm til ráðuneytis í orkumálum.
Á Orkustofnun starfa nú um 100
starfsmenn, með fjölþætta menntun
og reynslu á hinum ýmsu fræða-
sviðum er varða rannsóknir á og
undir yfirborði jarðar.
Meðal þess sem fólki gefst kostur
á að sjá og reyna eru sérútbúnir
mælingabílar, smíði og viðhald raf-
eindamælitækja, tæki til efnagrein-
ingar á heitu og köldu vatni, grein-
ing borkjama og bergsýna í smá-
sjám, tölvuúrvinnsla gagna vegna
olíuleitar á hinu umdeilda Hatton-
Rockall svæði, rekstur varmadælu,
hvemig jarðfræðikort eru búin til,
brugðið upp svipmyndum frá starf-
semi vatnamælinga og rannsóknum
virlq'unarstaða, gerð grein fyrir
ýmsum þáttum í orkubúskap þjóð-
arinnar og margt fleira, segir í
fréttatilkynningu frá Orkustofnun.
Ársfundur Orkustofnunar verður
haldinn á þriðjudag. Þar flytur Jak-
ob Bjömsson orkumálastjóri erindi
um starfsemi stofnunarinnar. Ámi
Snorrason fjallar um vatnamæling-
ar og veðurfarsathuganir. Frey-
steinn Sigurðsson og Lúðvík Ge-
orgsson gera grein fyrir niðurstöð-
um sérverkefna Orkustofnunar
1987 á sviði varma, vatns og jarð-
sjávar. Úrvinnsla á hafsbotnsmæl-
ingum til olíuleitar nefnist erindi
Einars Kjartanssonar og að því
loknu slítur Jónas Elíasson, formað-
ur stjómar Orkustofnunar, árs-
fundinum.