Morgunblaðið - 20.03.1988, Page 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1988
SVAR
MITT
eftir Billy Grahain
Fóstureyðingar
Ég hef heyrt að þú sért á móti fóstureyðingum. Ég er á
öndverðum meiði því að ég lít svo á að konur eigi að
ráða fullkomlega yfir líkama sínum.
Ég veit að þetta er mál sem ristir ákaflega djúpt í tilfínning-
alífí fólks. í hvert skipti sem ég svara spumingu um þetta
streyma bréfín til mín! Nú á dögum er þetta orðið pólitískt
mál. Ég fjalla ekki um það frá því sjónarmiði heldur ræði um
það sem siðferðilegt og andlegt mál.
Já, ég er andvígur fóstureyðingum (nema í sjaldgæfum til-
vikum eins og þegar lif móðurinnar er augljóslega í hættu og
fóstureyðing er skárri kosturinn af tvennu illu). Spumingin
mikla er þessi: Litla lífveran í kviði konunnar, er hún aðeins
líkamsvefur eða er hún eitthvað meira — mannleg vera —
jafnvel þegar hún er mjög ung og ekki lífvænleg ef hún nyti
ekki skjólsins í móðurkviði?
Það er einmitt í sambandi við þetta sem fólk kemst oft í
mikla geðshræringu og reynir að fínna svör í samræmi við
óskir sínar og langanir. En við verðum að reyna að virða þetta
fyrir okkur í ljósi skynseminnar.
Ég er kristinn maður og því er Biblían æðsti mælikvarði
minn, því að ég trúi því að hún sé orð Guðs og að sannindi
hennar séu algjör. Ég kann að hafa skoðanir á ýmsum hlut-
um, en hafí Guð talað um eitthvert málefni ber mér að sveigja
skoðanir mínar að því sem Biblían segir.
Spyijum því hvort Biblían segi nokkuð um það hvort fóstr-
ið sé mannvera í augum Guðs.
Já, hún talar um það. Með ýmsum líkingum bendir hún á
fóstrið sé mannleg vera. Guð sagði t.d. við Jeremía: „Áður en
ég myndaði þig í móðurlífí útvaldi ég þig og áður en þú komst
af móðurkviði helgaði ég þig. Ég hef ákvarðað þig til að vera
spámann þjóðanna" (Jer. 1,5).
Eða hyggjum að dæminu um Jóhannes skírara. Þegar
María, móðir Jesú, varð þunguð fyrir verkan heilags anda fór
hún strax í heimsókn til Elísabetar frænku sinnar, en hún
gekk með Jóhannes. Móðir Jóhannesar sagði: „Þegar hljómur-
inn af kveðju þinni barst til eyrna mér tók barnið viðbragð
af gleði í kviði mér“ (Lúk. 1,44). Þarna er gefíð í skyn að
fóstrið sé fullkomlega mannleg vera.
Ég vona að þú íhugir hvar þú stendur. En ég vona líka að
þú rannsakir Biblíuna sjálf, ekki aðeins að því er þetta mál
varðar heldur vegna þess að þú þarft á Jesú Kristi að halda.
t
Móðursystir mín,
SYLVIA FAURBYE,
FÆDD ÓLAFSDÓTTIR,
búsett f Kaupmannahöfn,
er látin.
Jarðarförin hefur farið fram.
Gunnar Oddsson.
t
UNNSTEINN GUÐMUNDSSON,
lést á heimili sínu þann 17. mars sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Elfnbjörg Kristjánsdóttir og börn.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sfmi 681960
Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjof um gerð og val legsteina.
S S.HELGASON HF STEINSMIÐJA SK0VMJVEGI 4Ö SÍMI 76677
Minning:
Ragnar Brúnó
Guðmundsson
Fæddur 15. júlí 1936
Dáinn 4. marz 1988
Við erum litil böm
og hjörtu ókunnra manna
eru leikvellir okkar.
0g sem við eram lítil
þá eigum við enga spum
nema lífið;
ekkert svar
nema dauðann.
(Vilmundur Gylfason)
Það fer vel á því að hefja kveðju-
orð til Ragnars frænda míns á ljóði
Vilmundar Gylfasonar, því ljóð-
skáldið, fræðimaðurinn og mann-
vinurinn Vilmundur var maður að
skapi Ragnars. Enda var Vilmundur
bæði skáld og sagnfræðingur, auk
stjómmálastarfa sinna, en allt voru
þetta svið sem Ragnari voru hug-
leikin.
Þegar ég man fyrst eftir Ragn-
ari, fyrir hartnær fjörutíu árum, er
ólíklegt að gátur Iífs og dauða hafi
verið famar að leita verulega á
hann, en þá var hann lífsglaður
skólastrákur, sem stóð í hópi skóla-
systkina að loknu miklu afreki, sem
sé að búa til risastóra snjókerlingu
á skólalóðinni. Galsafengnar at-
hugasemdir flugu og einhver sagði
hana svo vel gerða, að engu væri
líkara en hún drægi andann. Ragn-
ar lagði þá til að mannkynssögunni
yrði fómað á hana, til að hún kæmi
þó í þennan heim með menningar-
legan bakgrunn.
Að þessu var gerður góður rómur
og hlegið dátt og það var ekki laust
við að stolt bærðist í ungu btjósti
yfír því að þessi glæsilegi og
skemmtilegi náungi væri frændi
minn.
Og snemma beygist krókurinn
að því sem verða vill og því kom
það ekki á óvart, að Ragnar hafði
alla tíð mikinn áhgua á öllu sem
laut að menningu og listum og
drakk í sig allt sem hann komst
yfir í þeim efnum. Hann sótti mynd-
listarsýningar, klassíska tónleika
og aðra menningarviðburði og var
vel heima í þeim efnum. En hann
sótti ekki menninguna eingöngu út
á við, heldur las hann mikið af bók-
um um margháttuð efni og á ýms-
um tungumálum.
Hann átti kynstrin öll af fræðirit-
um um hin ýmsu svið þekkingar;
sögu, landafræði, stjömufræði og
náttúrufræði, svo eitthvað sé nefnt
og þau voru ekki aðeins á íslensku,
heldur einnig á ensku, Norðurlanda-
málunum, þýsku, spönsku ogjafn-
vel latínu.
Hann mun hafa sofnað út frá
þessari eftirlætisiðju sinni, að til-
einka sér fróðleik og grúska í hinum
fjölbreytilegustu fræðum, hinn ör-
lagaríka morgun snemma í mars,
þegar kviknaði í út frá lampa í
svefnherbergi hans og hann lést af
völdum elds og reyks sem af því
leiddi.
Þeir sem að búi hans komu eftir
brunann höfðu á orði að sjaldan
hefðu þeir sé annað eins úrval
fræðirita saman komið utan bóka-
safna.
Ragnar var sonur Gunnþóru
Magnúsdóttur og Guðmundar R.
Magnússonar, fyrrum verkstjóra
hjá Hitaveitu Reykjavíkur, sem nú,
þegar hann stendur á áttræðu, fylg-
ir einkasyni sínum til grafar. Ragn-
ar ólst upp hjá móður sinni og hélt
heimili með henni meðan hún lifði,
en hún lést í júlí árið 1981.
Með Ragnari og móður hans voru
ætíð miklir kærleikar og hann
reyndist henni betri en enginn eftir
að hún kenndi þess sjúkdóms, sem
að lokum dró hana til dauða. Þá,
eins og jafnan áður, studdi hann
hana af öllum mætti og reyndist
henni í alla staði eins og best varð
á kosið, allt þar til yfír lauk. Það
er hinsvegar ekki undrunarefni
þeirra sem þekktu Ragnar, því hann
var alla tíð einstakt ljúfmenni.
Hann steig ungur sín fyrstu spor
í atvinnulífínu undir handleiðslu
föður síns hjá Hitaveitunni, þar sem
hann starfaði í nokkur ár, en fór
síðar í siglingar með millilandaskip-
um. Þar hefur hann notið sín vel
og ekki þótt ónýtt að fá tækifæri
til að sjá sig um í heiminum, afla
sér þekkingar og víkka sjóndeildar-
hring sinn. Honum var margt til
lista lagt, átti mikið safn verkfæra
og lagði gjörva hönd á margt. Hann
starfaði í nokkur ár sem yfírmaður
í eldhúsi hjá vamarliðinu á
Keflavíkurflugvelli, svo jafnvel
eldamennska fyrir fjölda manns
hefur ekki vafíst fyrir honum.
Ragnar hefur nú yfirgefíð þenn-
an heim og hvílir við hlið þeirrar
sem hann unni mest í lífinu; móður
sinnar. Fari hann í friði, með þeirri
von okkar sem eftir lifum, að hann
megi hamingju njóta handan þessa
heims.
Og sem við eram litil
þá eigum við enga spurn
nema lífið;
ekkert svar
nema dauðann.
t
Móðir mín og dóttir,
VILBORG EINARSDÓTTIR,
Ijósmóðir, Háaleitisbraut 48,
lést í Landspitalanum föstudaginn 18. mars.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristín Aradóttir,
Einar Benediktsson.
t
Elskuleg móðir, tengdamóöir, amma og Jangamma,
INGIBJÖRG SIGURGEIRSDÓTTIR,
Framnesvegi 61, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 21. mars kl. 15.00.
Katrín Irvin, Sigurður Svavarsson,
Ingibjörg Sigurðardóttir, Alexander G. Bridde,
Gróa M. Sigurðardóttir, Erling Eiríksson,
Einar Sigurðsson
og barnabarnabörn.
t
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÁSTRÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR,
Torfalœk,
sem lést sunnudaginn 13. mars sl., verður jarðsungin frá Blöndu-
óskirkju föstudaginn 25. mars kl. 14.00.
Torfi Jónsson.
Jóhannes Torfason, JónTorfason,
Elín Sigurlaug Sigurðardóttir, Sigrfður Kristinsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar
móður minnar og systur,
GUÐRÚNAR Á. SÍMONAR
óperusöngkonu.
Sérstakar þakkir til sr. Sigurðar Hauks Guðjónssonar, Unnar
Þórðardóttur, Jakobs Sigurðssonar, Söngskólans i Reykjavik og
félaga hennar þar.
Fyrir hönd móðursystur minnar,
Ludvig Kári Forberg.
t
Þökkum innilega fyrir samúð, hjálp og vináttu við andlát og útför
eiginmanns míns,
ÓSKARS KJARTANSSONAR,
gullsmiðs,
Stórateig 26, Mosfellsbæ.
Andvirði þakkarkorta renna til krabbameinssamtakanna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Herdís Þórðardóttir.
GÞ