Morgunblaðið - 20.03.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1988
59
ir Pjöllunum, Fljótshlíð og Landeyj-
um. Hafnaraðstaða var þar allt
önnur og betri heldur en hafnlaus
strönd sveitanna. Hinir aðfluttu
Eyjabúar höfðu mest eigin dugnað
á að treysta, því að skotsilfur var
lítið hjá flestum þeirra. Upp í hug-
ann kemur erindi úr aldamótaljóði
Einars Benediktssonar:
Sá veglegi aftur hvers íslendings þarf
að ávaxtast gegnum vort líf og vort starf
sem sterkasti þáttur alls þjóðarbandsins
við þrautimar stríðu og lífslgorin blíð.
Lát fyllast hljóm þeirra fomu strengja,
lát frumstofninn haldast, en nýtt þó tengja
við kjamann, sem stóðst, svo að kyn vort
ei hvarf
’ sem kom eitt í haft sandsins.
Fegurra mál á ei veröldin víð,
né varðveitt betur á raunanna tíð;
og þrátt fyrir tízkur og lenzkur og lýzkur
það lifa skal ómengað fyrr og síð.
Án þess týnast einkenni og þjóðemi
mannsins,
án þess glatast metnaður landsins.
Um langt árabil var á heimili Tóm-
asar vertíðarfólk, sem naut þar
bezta atlætis, og sumir voru jafnvel
„innlimaðir" í fjölskylduhópinn.
Þá taldi Tómas að hann hefði
verið einstaklega heppinn með for-
menn á bátum sínum, þeir hefðu
haft hin ágætustu tök á starfí sínu,
verið útsjónarsamir með afbrigðum,
þannig að bæði aflamagn og nýtni
var með því bezta sem þekktist.
Gott vinfengi var með Tómasi
og fóstra mínum, Th. Thomsen
vélsmiðameistara, sem fannst mikið
til um dugnað Tómasar og árvekni.
Átti fóstri minn margar góðar
minningar um Tómas Guðjónsson.
Þrír synir Tómasar af fyrra
hjónabandi urðu allir vinir mínir og
þá sérstaklega jafnaldri minn,
Hannes stýrimaður, sem er heitinn
eftir afa sínum. Hannesi lóðs, sem
var frægur maður í Eyjum á sínum
tíma.
í lok þessarar greinar um heið-
ursmanninn Tómas M. Guðjónsson
skulu tilfærð ummæli vinar hans,
Jóhanns Þ. Jósefssonar, þingmanns
Eyjamanna um langan aldur og
sjávarútvegsráðherra um skeið.
Ummælin birtust í minningarorð-
um, sem rituð voru í þetta blað 15.
júlí 1958, en Tómas hafði orðið
bráðkvaddur mánuði fyrr. Eru því
senn liðin rétt 30 ár frá andláti
hans. Þar segir m.a.:
„Við Tómas höfðum frá æsku-
árum náin kynni hvor af öðrum og
alla tíð til dauðadags hans. Við
sættum svipuðum örlögum í æsku
vegna ástvinamissis og urðum báð-
ir hvor í sínu lagi mjög ungir að
leggja fram alla krafta okkar í þágu
heimila okkar til stuðnings mæðr-
um okkar, þegar hafíð hafði hrifíð
til sín feðuma. í þessu sem öðru
var Tómas einskis manns eftirbát-
ur. Hann gerðist sjómaður á unga
aldri og varð „háseti snemma harð-
ur og snar/við hryðjur vos og
svakk" eins og segir í kvæðinu um
Þorgeir í Vík. En Tómas lét ekki
lengi við það sitja að vera háseti,
hann varð brátt formaður í vélbát
og eigandi að sínum parti. Útgerð
rak hann síðan ásamt öðmm störf-
um alla ævi og alltaf af góðri fyrir-
hyggju og mesta myndarskap.
Annars vann hann verzlunarstörf
og að skipaafgreiðslu, sem hann
hafði með höndum til æviloka, fyrst
í annarra þjónustu, meðan hann var
starfsmaður hjá Gísla J. Johnsen
konsúl, en síðan fyrir eigin reikning
og tókst jafnan vel, þótt oft væri
við ramman reip að draga meðan
vöm- og póstskip varð að afgreiða
fyrir opnu hafí, oft í vondum veðr-
um. Kom honum þá mjög að haldi
hin meðfædda kunnátta til sjós og
reynsla hans sem bátsformanns.
Tómas Guðjónsson var maður
félagslyndur og ötull við hvert það
starf, sem hann tók sér fyrir hend-
ur, hvort heldur einn eða í félagi
með öðmm. Hann var traustur fylg-
ismaður allra helztu framfaramála,
sem Vestmanneyingar komu á fót
eftir aldamótin, til þess að treysta
atvinnulífíð, og starfaði að þessum
hugðarefnum sínum til æviloka.
Þegar Björgunarfélag Vestmanney-
inga var stofnað var hann frá upp-
hafí ein af sterkum stoðum þess
félagsskapar. í stjóm Lifrarsam-
lagsins var hann áratugum saman
og reyndist þar tillögugóður og for-
sjáll, eins og vænta mátti. Af
Olíusamlagi Eyjamanna hafði hann
frá byijun og alla tíð, meðan kraft-
ar leyfðu, hin farsællegustu af-
skipti. Munu hér þó ekki talin öll
þau trúnaðarstörf er Tómasi vom
Jóhann Þ. Jósefsson, alþingis-
maður og ráðherra.
falin, því að þau vom mörg, en
góður málstaður átti sér vísan
stuðning hvarvetna þar sem hann
var. i félagsskap Oddfellowa í Eyj-
um var hann áhugasamur meðlimur
allt frá því að félagið var stofnað
og til dauðadags.
í ágætri minningargrein um
Tómas, er birtist í Vestmannaeyja-
blaðinu Fylki 27. júní, segir ritstjór-
inn m.a.: „Ef leitast væri við að
fínna Tómasi M. Guðjónssyni stað
í sögu Vestmannaeyja mundi hann
hiklaust verða settur á bekk með
þeim mönnum, sem stundum em
nefndjr aldamótamenn, þ.e. þeir
sem vom ungir og fullir starfsorku
og starfsþrár í dögun íslenzks sjálf-
stæðis. Það vom einmitt þeir ungu
menn, sem sýndu, svo að ekki varð
um villzt, að íslendingar gátu vel
staðið á eigin fótum og höfðu hug
og dug til að afla sér þeirra tækja,
sem þurfti til að sækja björgunina,
leggja gmnninn að þeirri framtíðar-
höll, sem allir þráðu að risi sem
fyrst af gmnni, fijálst land, sjálf-
stæð þjóð. Þeim fækkar nú óðum,
sem þátt tóku í því gmndvallar-
starfí. En starf þeirra verður til
eftirbreytni ungum framfarasinn-
uðum mönnum á öllum tímum, það
verður niðjunum hvöt til að feta
dyggilega í fótsporin. Tómas M.
Guðjónsson skilaði miklu dagsverki.
Nú þegar því er lokið ber að þakka
öll störf Tómasar, unnin af trú-
mennsku og ríkri réttlætiskennd.
Við eigum á bak að sjá hjartaprúð-
um dreng, góðri og göfugri sál, sem
ávallt var reiðubúin til að rétta
hönd, þar sem þörf var á hveijum
tíma.“
Frá árinu 1952 var Tómas skip-
aður konsúll Danmerkur í Vest-
mannaeyjum og var hann í því
starfí sem öðm samvizkusamur og
mjög vel látinn og naut góðs álits
danska sendiráðsins hér.
Tómas var tvíkvæntur. Var fyrr?-
kona hans Hjörtrós, dóttir Hannes-
ar hafnsögumanns Jónssonar á
Miðhúsum og Margrétar Brynjólfs-
dóttur frá Norðurgarði í Eyjum, en
Hjörtrós lézt árið 1926. Síðari kona
Tómasar, Sigríður Magnúsdóttir frá
Brekkum í Oddasókn á Rangárvöll-
um, lifír mann sinn.
Tómas var jarðsunginn í Landa-
kirkju í Vestmannaeyjum 21. júní
og var svo mikið fyölmenni þar sam-
an komið, að kirkjan tók langt frá
því allan þann mannfjölda. Sýnir
þetta hinar miklu almennu vinsæld-
ir hins látna og hluttekningu Eyja-
manna við fráfall þessa þraut-
reynda fomstumanns þeirra á ýms-
um sviðum."
Þannig skrifar Jóhann Þ. Jósefs-
son, vinur og samstarfsmaður Tóm-
asar M. Guðjónssonar, um athafna-
manninn, sem hann þekkti frá
fyrstu tíð og kunni að meta. Báðir
þessir látnu ágætismenn reistu
sterkar stoðir undir velferð Vest-
manneyinga og sjálfstæði þjóðar-
innar í heild.
Höfundur er tseknifræðingur.
KOSTA AQKYNNAST
SKÍDA-
BAKTERIUNNI
I SUMAR
Námsfteið í Skíðaskðlanum
erfiolloggóðgjöf.
Verð (allt innlfalið)■■
frá fri: 14.300
til kr. 17.900
Innritun er hafin og bœklingar með öllum
upplýsingum liggja frammi
á Ferðaskrifstofunni Úrval.
UPPLÝSINGAR OG BÓKANIR:
FHmSKRIFSTOfAN ÚRVAL
VID AUSTURVOIL
SÍMI 26900
OG UMBOÐSMENN ÚRVALS UM LAND ALLT
Frábært úrval
litsjónvarpstækja
í öllum stærðum
Frábær greiðslukjör.