Morgunblaðið - 24.03.1988, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1988
25
Stjórn Orkustofnunar:
„ Samdráttarað-
gerðum lokið“
Jakob Björnsson, orkumálastjóri, á ársfundi Orkustofnunar í gær.
Arsfundur Orkustofnunar;
Utflutningur raforku ekki
tímabær fyrr en um aldamótin
Töluvert hefur áunnist í því að
þróa rannsóknir Orkustofnunar
að breyttri verkefnastöðu orkuð-
inaðar. Jarðfrœðilegar grunn-
rannsóknir hafa - í samvinnu við
Landsvirkjun - verið fastur liður
i starfseminni. Tekizt hefur sam-
vinna milli Orkustofnunar og
hagsmunaaðila um grundvallar-
rannsóknir á sviði vatnamælinga.
Varmi, vatn
ogjarðsjór
til fiskeldis
Orkustofnun hefur unnið að
svæðisbundnum rannsóknum á
náttúrulegum skilyrðum fyrir
fiskeldi, sem geta haft framtíð-
aráhrif á staðarval og hönnun
fiskeldisstöðva og byggðaskipu-
lag almennt. Rannsóknirnar snúa
einkum að jarðvarma, heitu vatni
og köldu, sem og jarðsjó.
Freysteinn Sigurðsson og Lúðvík
S. Georgsson fluttu erindi um fram-
angreindar rannsóknir á ársfundi
Orkustofnunar sl. þriðjudag. Þær
eru hluti af þriggja ára áætlun um
könnun á jarðfræðilegum aðstæðum,
þar sem áætluð eru líkleg afköst,
rennsli og hiti, efnainnihalds vatns-
ins, sem og líkur á jarðhita í undir-
djúpum með jarðfræðilegum mæl-
ingum.
Stefnt er að lúkningu þessa
fiskeldisverkefnis árið 1990, en
verkhraði er háður fjárveitingum.
Ennfremur við hagsmunaaðila í
fiskeldi um rannsóknir í þeirra
þágu. Vonir standa til að sam-
vinna takizt um jarðfræðikort-
lagningu á jarðskjálftasvæðum og
víðar í samvinnu við aðrar ríkis-
stofnanir. Þetta er liður í nýta
rannsóknargetu Orkustof nunar
utan orkugeirans.
Framangreint kom fram í ávarpi
Jónasar Elíassonar, formanns
stjórnar Orkustofnunar, á ársfundi
stofnunarinnar sl. þriðjudag. Jónas
sagði ennfremur að ef úr yrði frek-
ari raforkusölu til stóriðju eða út-
flutnings þyrfti að herða á orkurann-
sóknum umfram það sem gert hefur
verið ráð fyrir.
Jakob Bjömsson, orkumálastjóri,
ræddi viðhorf í íslenzkum orkumál-
um. Ami Snorrason fjallaði um
vatnamælingar og vatnafarsathug-
anir, Freysteinn Sigurðsson og
Lúðvík Geirsson um varma, vatn og
jarðsjó til flskeldis og Einar Kjart-
ansson um úrvinnslu hafsbotnsmæl-
inga til olíuleitar.
Verkefni Orkustofnunar hafa
dregizt nokkuð saman undanfarin
ár. „Orkustofnun neyddist til að
fækka starfsfólki talsvert á árinu",
sagði Jónas Elíasson í ávarpi sínu.
„Það er skoðun stjómar Orkustofn-
unar að þessum samdráttaraðgerð-
um sem staðið hafa frá 1982, sé
lokið, og starfsmannahald nú komið
í frambúðarhorf. En sú niðurstaða
fékkst í athugun sem gerð var á
framtíðarumfangi rannsóknarstarfs
á Orkustofnun þar sem mið er tekið
af fjárfestingarþörf orkuðinaðarins
að starfsmannaQöldi svipaður og nú
er væri hæfilegur...".
Jakob Björnsson, orkumála-
stjórí, ræddi um frumathugun á
byggingu nýrrar álbræðslu í
Straumsvik, og möguleika á út-
flutningi á raforku um sæstreng
til Bretlandsa á ársfundi Orku-
stofnunar í gær. Orðrétt sagði
hann: „Ómögulegt er að segja
hvað framtíðin ber í skauti sínu
í þessum efnum, nema hvað telja
má víst að útflutningur verði ekki
tímabær fyrr en um eða upp úr
aldamótum. Það bezta sem við
getum gert er að vera í viðbragðs-
stöðu, reiðubúin að grípa tæki-
færí sem bjóðast kunna, en gera
okkur jafnframt grein fyrir óviss-
unni, þannig að við kostum ekki
of miklu til of snemma"
Orkumálastjóri velti og fyrir sér,
hvaða möguleikar séu á því mæta
hugsanlegri orkueftirspum til stór-
iðju og útflutnings, ef til kæmi.
„Orkugeta þeirra vatnsaflsvirkjana,
sem nú eru í byggingu eða á verk-
hönnunarstigi, og líklegra jarðgufu-
virkjana eins og á Nesjavöllum og
víðar, er um 4900 GWh á ári. Árið
2005 yrði eftir af þessari orkugetu
um 2000 Ghw á ári ef nýja álverið
í Straumsvík verður reist. Ef fyrsti
500 MW áfanginn í útflutningi kæmi
á því ári vantar 1500 GWh/a. Þær
væm t.d. fáanlegur í efri hluta Þjórs-
ár. Ef við nú hugsum okkur að út-
flutningurinn vaxi S 2000 MW og
14000 GWh/a frá 2005 til 2015
vantar 11.200 GWh árið 2015. Af
þeim mætti fá um 8.500 GWh/a úr
Jökulsá á Brú og 2800 GWh/a yrðu
að koma annarsstaðar frá, t.d. úr
efri og neðri hluta Þjórsár og frá
jökulsánum í Skagafirði. Þá em
Hvítá, Markarfljót og fleiri ár enn
ósnertar, svo að rúm væri fyrir ann-
að álver,. auk útflutnings, ef menn
svo kjósa. Vemlegur útflutningur
getur þannig farið fram samtímis
uþpbyggingu stóriðju í landinu". Við
skulum setja okkur það mark, sagði
hann, að hafa lokið forrannsóknum
á efri og neðri hluta Þjórsár 1995,
jökulsánna í Skagafirði og Jökulsá
á Brú ásamt með Jökulsárveitu á
Fjöllum.
ggh,.
'
J§ i: ■fjl'} /; ;/I 7' li(| •(% i <M h ft (ifp . ,.
Jötun málningin er fáanleg í 1300
litum. Gæðamálning sem meistar-
arnir mæla með. Strax innimálning,
Jotaplast (3 gljástig), Lord og Lady
lakkþykkni og margt fleira.
Húsasmiðjan hjálpar þér
við fermingarundirbúninginn
Þú ætlar ef til vill að mála, smíða, leggja á góifin,
klæða forstofuloftið eða klára eldhúsinnrétting-
una og vera búinn að þessu öilu fyrir páska. Þá
er einfaldast að hafa samband við Húsasmiðjuna.
FAGMENN í ÖLLUM DEILDUM
Þú nýtur leiðbeininga fagmanna við val á öllu
sem prýtt getur heimilið.
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA
Við gerum okkur far um að veita þér sem
mesta og besta þjónustu. Fermingarundirbún-
ingurinn verður léttari með aðstoð Húsasmiðj-
unnar.
HÚSA5MIÐJAN
SÚDARVOGI 3-5 ^ 687700