Morgunblaðið - 30.04.1988, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988
Atkvæði
verða tal-
in í kvöld
Atkvæðagreiðslu um mála-
miðlunartillðgu sáttasemj ara
lýkur í félögum verslunarmanna
í kvöld. Talning hefst strax að
henni lokinni og verður verkfalli
strax aflýst ef tillagan verður
samþykkt.
Fyrri dagur atkvæðagreiðslunn-
ar var í gær. Þátttaka var mismik-
il. I stærsta félaginu, Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur, höfðu
tæplega 2.000 greitt atkvæði þegar
lokað var klukkan 19. Á ellefta
þúsund félagar eru í VR. Kosið er
í anddyri Verslunarskóla íslands og
verður kjörstað lokað kl. 18.
Frumvarp um
viðskiptabann
á Suður-Afríku
FRUMVARP um bann gegn við-
skiptum við Suður-Afríku og
Namibíu var lagt fram í neðri
deild Alþingis í gær. Flutnings-
menn frumvarpsins eru fimm
þingmenn úr öllum flokkum
nema Borgaraflokki. Fyrsta um-
ræða um frumvarpið fór fram í
gær og er stefnt að þvi að af-
greiða frumvarpið sem lög á
þessu þingi.
Jón Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra, skýrði frá því á Alþingi að
þessi mál hefðu verið til umræðu í
ríkisstjóminni að undanfömu og
hefði síðastliðinn fimmtudag verið
samþykkt frá honum tillaga þess
efnis að þvl yrði beint til fulltrúa
stjómarflokkanna í utanríkismála-
nefnd Alþingis að þeir beittu sér
fyrir að fram kæmi í neðri deild
þingmannafrumvarp um bann við
viðskiptum við Suður-Afríku og
Namibíu.
Á siðasta ári voru fluttar inn
vörur frá Suður-Afríku fyrir 32,9
milljónir króna eða 0,05% af heild-
arinnflutningi og út voru fluttar
vömr fyrir 4,5 milljónir króna eða
0,01% af heildarútflutningi.
Sjá nánar á þingsíðu.
Símamynd/Reuter
Stúlkumar sem hrepptu fimm efstu sætin i keppninni á Taiwan. Lengst til vinstri er full-
trúi Taiwan sem varð i fimmta sæti, þá kemur Sigríður sem varð i þriðja sæti, í miðju er
sigurvegarinn frá Dóminikanska lýðveldinu, þá ungfrú Portúgal, sem varð i öðru sæti, og
loks ungfrú Venezuela, sem hreppti fjórða sætið.
Fegurðarsamkeppni á Taiwan:
Sigríður í
þriðja sæti
SIGRÍÐUR Guðlaugsdóttir varð i þriðja
sæti i alþjóðlegri fegurðarsamkeppni,
sem haldin var í Taipei á Taiwan i
gær. Tæplega 60 stúlkur hvaðanæva
úr heiminum tóku þátt í keppninni, en
fyrsta sætið hreppti stúlka frá Dómin-
ikanska lýðveldinu og i öðru sæti varð
ungfrú Portúgal.
Sigríður varð í þriðja sæti í Fegurðars-
amkeppni íslands í fyrra og fylgdi því
þátttaka í keppninni á Taiwan. Fyrir ár-
angur sinn í keppninni á Taiwan fékk
Sigríður 5.000 dollara í verðlaun, eða um
200 þúsund krónur íslenskar, og auk þess
gullúr og gullhring. Að sögn móður henn-
ar, Berglindar Oddgeirsdóttur, hringdi
Sigíður heim að lokinni keppninni í gær
og lét vel af dvöl sinni á Taiwan og ár-
angri sínum í keppninni. Ekki nefndi
Sigríður að nein freistandi tilboð hefðu
fylgt í kjölfarið og kvaðst Berglind ekki
eiga von á að dóttir sín tæki slíkum tilboð-
um þótt þau bærust enda væri hún ráðin
sem flugfreyja hjá Amarflugi í sumar.
Dómnefnd um lektorsstöðu í stjórnmálafræði:
Tveir umsælgenda hæf-
ir, einn hæfur að hluta
í GÆR tók deildarfundur í Fé-
lagsvisindadeild Háskóia íslands
fyrir álit dómnefndar um hæfi
fimm umsækjenda um lektors-
stöðu í stjómmálafræði við Há-
skólann. Tveir umsækjendur voru
dæmdir hæfir til að gegna stöð-
unni, stjómmálafræðingamir Ól-
afur Þ. Harðarson og Gunnar
Helgi Kristjánsson. Tveir umsækj-
endur voru að mati dómnefndar
ekki hæfir til starfans. Fimmti
umsækjandinn, dr. Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, var dæmdur
hæfur að hluta til, eins og Þórólf-
ur Þórlindsson, forseti deildarinn-
ar, orðaði það í samtali við Morg-
unblaðið. Deildarfundurinn
greiddi í. gær atkvæði um það
hveijum ætti að mæla með. At-
kvæði féUu þannig að Ólafur fékk
15 atkvæði, Gunnar 1 og einn seð-
Ul var auður.
í dómnefndinni sátu Sigurður
Líndal, lagaprófessor, Jónatan Þór-
mundsson, forseti lagadeildar, Svan-
ur Kristjánsson, dósent í Félagsvfs-
indadeild og Gunnar Gunnarsson,
lektor við Félagsvísindadeild.
Niðurstöður dómnefndar um þá
umsækjendur, sem ekki voru dæmd-
ir óhæfir,- eru svohljóðandi:
„Gunnar Helgi Kristinsson:
Umsækjandi hefur lokið B.A. prófi
og M.Sc. prófí f stjómmálafræði (Pol-
itics). í verkum hans kemur fram
þekking á undirstöðugreinum í
stjómmálafræði og hæfi til rann-
sókna á a.m.k. einu af tilgreindum
sérsviðum (samanburðarstjómmál).
Hann telst því hæfur til að gegna
lektorsstöðu í stjómmálafræði eins
Get sungið af mun meiri
krafti en égþorði að vona
- segirStefán
Hilmarsson
söngvari
Dyflinni, frá Urði Gunnar»d6ttur blaða-
manni Morgunblaðsins.
STEFÁN Hilmarsson söngvari
Beathoven var kominn á ról f gær
og söng á lokaæfingunum tveim-
ur, sem þá fóru fram f söng-
höllinni í Dyflinni. „I fyrradag
var ég rúmfastur með hálsbólgu
og bronkitis og var hreint ekki
orðið um sel þegar ég var sem
slappastur. En æfingin gekk
framar vonum og ég get sungið
af mun meiri krafti en ég þorði
að vona,“ sagði Stefán f samtali
við Morgunblaðið eftir fyrri æf-
inguna f gær. Sænski söngvarinn
Tommy Körberg var hins vegar
langt frá sfnu besta á æfingunni
og sprakk á limminu vegna
eymsla f hálsi.
Eftir æfinguna hélt Stefán rak-
leiðis á hótelið þar sem hann eyddi
deginum yfir suðukatli, til að flýta
bata sínum og er hann nú óðum
að jafna sig af kvefpestinni, sem
hefur hijáð hann og marga íslend-
ingana hér.
Stefán sagði að ef frá eru talin
veikindin hefði hann haft mikla
ánægju af dvölinni á írlandi. „Það
Morgunblaðið/Sverrir
Stefán Hilmarsson söngvari Beathoven eyddi mestu af gærdegin-
nm yfír gufukatli, en hann er nú óðum að ná sér af veikindunum
sem hafa hijáð hann undanfama daga.
er einstakt að fá að upplifa keppn-
ina og allt sem henni fylgir. Annað
kvöld verð ég heimsfrægur í þrjár
mfnútur og það má ekki ein einasta
sekúnda fara úrskeiðis á meðan á
því stendur."
Hann var inntur eftir því hvaða
vonir hann gerði sér um gengi
íslensku keppendanna í kvöld: „Eg
held að við lendum í kringum 10.
sæti. Ég vona að fslenskir áhorfend-
ur hafi gaman af keppninni, en
þeir ættu ekki að gera sér of mikl-
ar vonir. Mér finnst vera litið niður
á íslendinga í þessari keppni og það
er eins og fólk geri ekki ráð fyrir
okkur. En við erum með besta lag,
sem hefur heyrst í þessari söngva-
keppni, ég fer ekkert ofan af því.
Hins vegar þurfum við lfklega að
taka oftar þátt f henni áður en
menn fara almennt að reikna með
okkur í alvöru."
Á fimmtudag var haldið vel
heppnað íslendingakvöld á vegum
Steina hf. Þar vakti Jón Páll meðal
annars mikla athygli er hann blés
upp hitapoka þar til hann sprakk.
í flestum veðbönkum hér á Iríandi
er íslendingum spáð 13. sætinu í
keppninni. Um efstu sætin beijast
eftir sem áður Sviss, Svíþjóð, Bret-
landi og Þýskaland, en þýsku
mæðgumar hafa vakið óskipta at-
hygii fjölmiðla undanfama daga.
Sjá fréttir á bls. 14 og 15.
og hún er auglýst.
Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son: Háskólamenntun umsækjanda
er fyrst í heimspeki og sagnfræði
en síðar lauk hann doktorsritgerð í
stjómmálafræði (Politics). Nánar til-
tekið er ritgerðin á sviði gildakenn-
inga (nomiative theory) um stjóm-
mál. I dómnefndaráliti um lektors-
stöðu í heimspeki við heimspekideild
er tekið fram að umsækjandi sé
hæfur til að gegna lektorsstöðu í
stjómmálaheimspeki. Af ritverkum
umsækjanda má ráða að hann sé
hæfur til að annast kennslu og rann-
sóknir á sviði gildakenninga um
stjómmál sem er eitt af sérsviðum
stjómmálafræði. Veigamikill þáttur
hennar og annarra ritverka, sem
umsækjandi hefur skrífað á grund-
velli hennar, er samanburður á ólíkri
þjóðfélagsskipan, m.a. eftir því hvaða
gildi menn aðhyllast. Er megininntak
í þessum rannsóknum umsælq'anda
hvort og hvemig markaðsöfl annars
vegar og miðstýring hins vegar móta
ólíkar þjóðfélagsgerðir og stjómmál
almennt. Þessi verk geta fallið undir
samanburðarstjómmál sem eitt af
tilgreindum sérsviðum. Verður um-
sækjandi samkvæmt þessu. talinn
hæfur til kennslu og rannsókna á
sviði samanburðarstjómmála. Hins
vegar verður það ekki ráðið af náms-
ferli umsækjanda né heldur hefur
hann sýnt fram á það með ritverkum
sínum að hann hafi þá þekkingu á
helstu kenningum og rannsóknarað-
ferðum í stjómmálafræði að hann
teljist hæfur til kennslu í undirstöðu-
greinum hennar.
Ólafur Þ. Harðarson: Umsækj-
andi hefur lokið B.A. prófi og M.Sc.
prófí í stjómmálafræði (Politics). í
verkum hans kemur fram góð þekk-
ing á undirstöðugreinum f stjóm-
málafræði. Af ritverkum umsækj-
anda má ráða að hann sé hæfur til
að annast kennslu og rannsóknir á
tveimur af þeim sérsviðum sem til-
greind eru í auglýsingu (saman-
burðarstjómmál; hegðun og viðhorf
kjósenda). Kosningarannsóknir hans
teljast til viðamikilla rannsókna. Auk
þess hefur umsækjandi annast um-
fangsmikla kennslu í stjómmála-
fræði og aðferðafræði við Háskóla
íslands síðan 1980. Hann telst þvf
vel hæfur til að gegna lektorsstöðu
í stjómmálafræði eins og hún er
auglýst."
Niðurstaða deildarfundarins verð-
ur send menntamálaráðherra, sem
skfpár í stöðúna.