Morgunblaðið - 30.04.1988, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988
Leiðrétting í tilefni af
rangfærslum Vilhjálms
Egilssonar um skattbyrði
eftir Jón Baldvin
Hannibalsson
í fréttum sl. miðvikudagskvöld
mun Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs, hafa
látið nokkur orð falla um aukna
skattbyrði ríkissjóðs á þessu ári. Þar
sem þessi ummæli voru afar villandi
og raunar alröng á köflum, þá er
nauðsynlegt að hið rétta komi fram.
Það eru engar nýjar fréttir, að
hlutfall skatttekna ríkissjóðs af þjóð-
arframleiðslu sé hærri nú á þessu
ári en í fyrra. Ástæðan er einföld.
Hún er sú, að í fyrra var bullandi
halli á ríkissjóði, en í ár er gert
ráð fyrir hallalausum rekstri.
Þar með er þó ekki öll sagan sögð.
Vilhjálmur telur skattahækkunina
frá því í fyrra vera upp á 5V2 millj-
arð. Þetta er ekki rétt. Hann hefur
lagt vitlaust saman. Ef við lítum á
hlutfali skatttekna af þjóðarfram-
leiðslu, kemur í ljós, að það hækkar
úr 22,5% 1987 í 24,2% 1988. Þetta
VITA5TÍG 13
26020-26065
Vindás. 2ja herb. ib. 55 fm á 2.
hæð. Verð 3,5 millj.
Laugavegur. 2ja herb. íb. 35 fm.
Verð 1650-1700 þús.
Reykás. 2ja herb. ib. á 1. hæð. 75
fm. Fallegar innr. Sérgaröur. Hagstæö
lán áhv. Laus. Verð 3,8 millj.
Áiftahólar. 3ja herb. ib. á 2. hæð
75 fm. Geysimikið útsýni. 40 fm bilsk.
Meðalholt. 3ja herb. íb. 75 fm á
2. hæð. Verð 4,1-4,2 millj.
Flyðrugrandi. 3ja herb. íb. góð á
2. hæð. Suðursv. Verð 4,5-4,7 millj.
Vesturgata. 3ja herb. ib. 80 fm
á 2. hæð i tvíbhúsi. Verð 3,5-3,6 millj.
Engjasel
4ra-5 herb. falleg íb. 117 fm á 3. hæð
auk bílskýlis. Fallegar innr. Fráb. út-
sýni. Suðursv.
Melabraut - Seltjnesi
Efri sérh. í þríbhúsi. 110 fm. Fráb. út-
sýni. Tvöf. bílsk. Verð 7,5 millj.
Laugarnesvegur. Parhús á
tveimur hæðum. 130 fm auk bílsk. Mik-
ið endurn. Parket. Verð 6,5 millj.
Bergur Oliversson hdl., 5H
Gunnar Gunnarsson, s. 77410,
Jón Baldvin Hannibalsson
svarar til 4.300 m.kr. á núgildandi
verðlagi.
En það er ekki nóg með, að Vil-
hjálmur leggi vitlaust saman. Hann
fer líka ansi fijálslega með raun-
verulegar ástæður þessarar skatta-
hækkunar. í hvað fara peningar
skattborgaranna, spyr hann í vand-
lætingartóni. Ég skal segja honum i
hvað þeir fara.
Af þessum rúmlega 4 milljörðum,
sem skattbyrðin eykst um á þessu
ári, fer meira en helmingurinn, um
2.200 m.kr. í auknar bamabætur,
auknar lífeyrisgreiðslu og auknar
niðurgreiðslur á búvörum. Það sem
eftir stendur fer í það að ná saman
endum í ríkisbúskapnum. Til þess
að stöðva gegndarlausan hallarekst-
ur á ríkissjóði undanfarin þrjú ár.
Til þess að þurfa ekki að halda
áfram að bæta við erlendu skulda-
súpuna. Hún er víst nógu mikil fyrir.
Þetta em nú staðreyndimar í
málinu. Um þetta snýst uppstokkun-
in á skattkerfinu. Þetta verða menn
að skilja.
Ég get hins vegar verið sammála
Vilhjálmi um það, að vandi ríkis-
fjármálanna sé útgjaidavandi frem-
ur en tekjuvandi. Ekki síst þegar
okkur hefur tekist að koma tekjuöfl-
unarkerfinu í lag. Enda er næsta
mál á dagskrá að taka til hendinni
á útgjaldahliðinni. Losna út úr
þessu sjálfvirka útgjaldakerfi. Um
það erum við sammála.
Höfundur er fjármálaráðherra.
SIMAR 21150-21370
SOLUSTJ, LARUS P. VALDIMARSSOMI
LOGM. JOH. PORÐARSON HRL,
Bjóðum til sölu meðal annarra eigna:
Laus strax með stórum bílskúr
4ra herb. góð íbúð miðsvæðis í Kópavogi aö meöalstærö með sér-
inng. Góð sameign. Rúmgóð geymsla í kj. Góð lán geta fylgt.
í þríbýlishúsi við Snorrabraut
Ný endurbyggð 4ra herb. íbúð 1. hæð um 105 fm nettó í reisulegu
steinhúsi. Hiti og inngangur sér. Tvö góð kjallaraherb. með snyrtingu.
Hæðin er laus 1. júní nk. Þetta er glæsileg eign á góðu verði.
í gamla góða Austurbænum
3ja herb. rúmgóð íbúð á 3. hæð (þakhæð) skammt frá Sundhöllinni.
Nýlega endurbyggð með stórum og góðum kvistum. Sólsvalir. Góð
geymsla í kjallara. Sanngjarnt verö.
Glæsileg eign - öll eins og ný
Skammt frá Bústaðakirkju raöhús á pöllum í Fossvogi tæpir 200 fm
nettó. 4 rúmgóð svefnherb. Glæsileg lóö. Góður bílskúr.
Breiðholt - Hvassaleiti - skipti
Þurfum að útvega 3ja herb. góöa íbúð í Hóla- eöa Seljahverfi. Skipti
möguleg á 3ja-4ra herb. góðri íbúð viö Hvassaleiti meö bilskúr. Nán-
ari uppl. á skrifstofunni.
í Seláshverfi - hagkvæm skipti
Góð 4ra-5 herb. ibúð óskast. Skipti möguleg á góðu einbýlishúsi með
4 svefnherb. Nánari uppl. á skrifstofunni.
Stórt og vandað einbýlishús
óskast til kaups í Breiðholti eða Selási ekki minna en 200 fm. Aðeins
vönduð eign kemur til greina. Skipti möguleg á úrvalsgóðu endarað-
húsi meö rúmgóöu vinnuplássi og bílskúr. Nánari uppl. trúnaðarmál.
Opið í dag
frákl. 11 til kl. 16.
Nú er rétti tfminn
til fasteignakaupa.
ALMENNA
FASTEI6NASA1AN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
Karlakórinn Fóstbræður
Karlakórinn Fóstbræður
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Karlakórinn Fóstbræður heldur
sína árlegu tónleika fyrir styrktar-
félaga sína þessa dagana í Lang-
holtskirkju og er efnisskráin að
því leyti til óvenjuleg að hún sam-
anstendur aðallega af íslenskum
lögum en aðeins fjögur laganna
eru eftir Stravinskí.
Tónleikarnir hófust á þjóðlaga-
syrpu í raddsetningu eftir Viktor
Urbancic ojg var þar margt fallegt
að heyra. A sínum tíma lét Urban-
cic sér annt um að íslensk tón-
skáld, sem mörg hver lærðu hjá
honum tónsmíði, leituðu sér efnis
í þessum sérstæða tónlistararfí
og sjálfur raddsetti hann mörg
þekktustu þjóðlög okkar, sem
fram að þeim tíma höfðu aðeins
verið til í einraddaðri gerð..
Ragnar Bjömsson stjómandi
Fóstbræðra átti eina þjóðlaga-
syrpu sem í hans gerð heitir Runa,
og var þar einnig margt fallegt
að heyra, þó heild „rununnar"
væri nokkuð slitrótt. Þama var
fítjað upp á ýmsum útfærslu-
möguleikum, bæði í hljómskipan
og samsetningu radda og m.a. var
nokkrum lögum slengt saman í
eitt, er hljómaði oft mjög
skemmtilega. Lagið Sú var fríðust
rósa rós er fallega unnið en úr
því mætti að ósekju vefa meira
og svo má í raun segja um nokkr-
ar aðrar útsetningamar, sem
sumar hverjar em of stuttar.
Nú sigla svörtu skipin, eftir
Karl 0. Runólfsson er góð
tónsmíð. Sama má segja um Brim
eftir Pál ísólfsson en Brim og fjög-
ur lög eftir Stravinskí vom þau
lög tónleikanna sem lakast vom
flutt af kómum. Einsöng í Brimi
Páls söng Bjöm Jónatan Emilsson
og söng hann af smekkvísi. Fyrir
nokkmm ámm vom þeir sem um
tíma höfðu stjómað Fóstbræðram
fengnir til tónsetja ljóðakom eftir
Helga Sæmundsson, er hann
nefndi Blómarósir og var nokkur
skemmtan í þessu þá og ekki
óskemmtilegt að heyra þessi lög
aftur.
Tónleikunum lauk með Fóst-
bræðrasyrpu nr. 2, sem Jón Þórar-
insson raddsetti er hann stjómaði
kómum og þar er smekklega far-
ið með söngva eftir Áma Thor-
steinsson. Lögin hans standa enn
fyrir sínu og vom vel flutt. Kórinn
var vel samstilltur og söng margt
mjög vel og þó efnisskráin í heild
væri ekki erfíð, var söngurinn í
heild smekklega útfærður. Undir-
leikari með kómum var Jónas
Ingimundarson og má segja það
sama um leik hans og flutning
kórsins í heild. Þá lék Jónas með
fíðlunemanda er flutti útfærslu
Kreislers á fíðluverki eftir Corelli.
Það kann að vera gott að gefa
nemendum tækifæri til að koma
fram en varla á samkomu sem
þessari, þar sem slík uppákoma
getur snúist upp í sársaukafulla
upplifun, takist nemanda miður,
sakir reynsluleysis. Hér fór þó
allt vel að þessu sinni.
Sinf óníutónleikar
Efnisskrá: Mozart, fiðlukon-
sert f A-dúr, K. 219. Tsjaj-
kovskíj, Rókokkó-tilbrigðin op.
33. Prokofjev, Rómeo og Júlía,
svíta nr. 2. Einleikarar: Judith
Ingólfsson, Miriam Ingólfsson.
Stjórnandi: Larry Newland.
Tónleikamir hófust á einleiks-
verkum sem flutt vora á fjöl-
skyldutónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar um síðustu helgi,
þ.e. á A-dúr fíðlukonsert Mozarts
og Rókokkó-tilbrigðunum eftir
Tsjajkovskíj. Svo sem þá vom
systumar góðar og í raun ekki
þörf að bæta neinu við fyrri
umsögn, nema að ítreka, að báð-
ar em gott efni í frábæra tónlist-
armenn.
Tónleikunum lauk með Rómeó
og Júlíu svítunni nr. 2 að við-
bættum einum þætti úr þeirri
fyrstu. Tónlist Prokofjevs er í
senn elskuleg og stórbrotin og
auk þess sérlega leikræn. Hljóm-
sveitarritháttur hans er sérkenni-
legur og hafa af því spunnist
ýmsar sögur, að þar hafi ýmsir
aðrir en höfundurinn hjálpað til
að einhverju eða jafnvel öllu
leyti. Hvað sem því líður er ótrú-
legt að einhveijir aðstoðarmenn
hafi ráðið nokkm um gerð tón-
listarinnar, því auðvitað mótast
útfærsla hugmyndarinnar af því
hvaða hljóðfæri á að flytja hana,
svo að vart verður skilið á milli
þess að semja og útfæra tón-
hugmyndimar.
Sinfóníuhljómsveit íslands lék
svítuna mjög vel og sérstaklega
þó síðasta þáttinn, þ.e. þann úr
þeirri fyrstu, er fjallar um dauða
Túbalts. Þar var hraðinn og öll
útfærsla hljómsveitarstjórans,
Larry Newlands, sterk og á köfl-
um ofsafengin, svo að sjaldan
hefur hljómsveitin leikið með
meiri glæsibrag. Vonandi gefst
Larry Newland
tækifæri til að heyra Newland hann fái þá meira en eitt verk
stýra hljómsveitinni oftar og að til að takast á við og móta.