Morgunblaðið - 30.04.1988, Blaðsíða 30
30______________
Þjóðminjasafnið
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988
Bókagjöf frá rík-
isstjóm Bretlands
MARK F. Chapman, sendiherra
Breta á íslandi, afhenti á mið-
vikudaginn Þjóðminjasafninu
nokkrar bækur um fornleifa-
fræði að gjöf frá ríkisstjórn
Bretlands, i tilefni af 125 ára
afmæli safnsins.
Þór Magnússon þjóðminjavörður
veitti gjöfinni viðtöku. Efni bókanna
nær yfir menra en 1000 ára sögu
Bretlands og írlands. Forstjóri Brit-
ish Museum, sir David Wilson, sem
jafnframt er þekktur fomleifafræð-
ingur, valdi bækumar.
Morgunblaðið/Bjami
Frá aðalfundi Sambands íslenskra rafveitna. í ræðustól er Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sendiherra Breta, Mark F. Chapman og Þór Magnússon þjóðminja-
vörður virða fyrir sér bókagjöfina.
Hagnaður Sparisjóðs Bol-
ungarvíkur á árinu 1987
Aðalfundur Sambands íslenkra rafveitna:
Unnið við Jöfur KE 17 í Stálvík.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Einkavæðing raforku-
kerfisins mikið rædd
Á AÐALFUNDI Sambands íslenskra rafveitna, sem haldinn var á Hót-
el íslandi i Reykjavík í gær, sagði Aðalsteinn Guðjohnsen, formaður
sambandsins að sumir hefðu tilhneigingu til reyna að draga úr sjálf-
stæði raforkufyrirtækja á sama tíma og verið væri að huga að því í
grannlöndunum að gera fyrirtækin sjálfstæðari. Aðalsteinn gagnrýndi
þann afslátt sem hann sagði að Landsvirkjun hefði veitt á rafhitun
hjá tilteknum fyrirtækjum. Það væru félagslegar aðgerðir þar sem
farið væri eftir því í verðlagningu til hvers orkan væri notuð en ekki
hvernig hún væri notuð eins og verið hefði.
sagði að í Svíþjóð hefði mörgum
sveitarfélaga- og ríkisveitum verið
breytt i hlutafélög og Telge Energi
hefði verið eitt þeirra. Hann lýsi
kostum og göllum breytingarinnar
en taldi að kostimir væru mun meiri
en gallamir.
A fundinum var Aðalsteinn Guðjo-
hnsen kosinn formaður Sambands
íslenskra rafveitna, Halldór Jónat-
ansson varaformaður, Eiríkur Boga-
son gjaldkeri og Jón Öm Amarson
ritari. Fundinn sóttu um 90 fulltrúar
raforkufyrirtækja landsins, iðnaðar-
ráðuneytis, Orkustofnunar og Raf-
magnsveitna ríkisins.
Friðrik Sophusson, iðnaðarráð-
herra, sagði að óánægja með raf-
orkuverð stafaði m.a. af mismunandi
álestrarreglum raforkufyrirtækja.
Sum fyrirtækjanna jöfnuðu greiðsl-
unum yfir árið en önnur ekki. Einnig
hefði verið 2 til 3 gráðum kaldara
eftir sl. áramót en í meðalári. Ríkið
hefði þó gert ráðstafanir til að koma
í veg fyrir frekari hækkanir á raf-
magni og létt skuldir Orkubús Vest-
fjarða og Rarik. Friðrik sagði að
fengnir hefðu verið ráðgjafar til að
athuga skipulag raforkudreifingar.
Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, flutti erindi um
einkavæðingu breska raforkukerfis-
ins og sagði m.a. að hún gæti haft
í för með sér aukna möguleika á
útflutningi raforku héðan til Bret-
lands.
Johan Ekwall, frá Telge Energi,
tæpar 10 milljónir króna
Bolungarvik.
A AÐALFUNDI Sparisjóðsins
sem haldinn var nú um helgina
kom fram í skýrslu Sparisjóðs-
stjórans, Sólbergs Jónssonar, að
innlán Sparisjóðsins á árinu 1987
hafi aukist úr 218 milljónum
króna i 306 miljónir króna eða
um 40,28%.
Innlánsaukning eftir að innlán í
ársbyíjun hafa verið hækkuð um
lánskjaravísitölu var 14,76%. Útlán-
in jukust hins vegar um 43,7%.
Laust fé sparisjóðsins í sjóði og
lausar bankainnistæður voru
42.150.000 krónur og höfðu hækk-
að á árinu um 29.978.000 krónur.
Tekjur hækkuðu á árinu um
39.874.000 eða 76%. Rekstrar-
kostnaður hækkaði um 32.874.000
krónur eða 66%. Vaxtatekjur hækk-
uðu um 83% og vaxtagjöld um 91%.
Samkvæmt rekstrarreikningi var
hagnaður af rekstri krónur
9.945.000 sem færður var til hækk-
unar í varasjóði. Hagnaður af reglu-
legri starfsemi fyrir skatta sem
hlutfall af brúttótekjum var 12,69%.
Eigið fé í árslok nemur 94.105.000
krónur eða 22,41% af niðurstöðu-
tölu efnahagsreiknings og lækkaði
sú prósenta á árinu um 1,17%. Eig-
ið fé samkvæmt lögum um banka
og sparisjóði er 39,56% og hafði
lækkað á árinu um 3,29%. Að lokum
kom fram að bókfært virði fast-
eigna og búnaðar sem hlutfall af
eigið fé er 24,84%.
- Gunnar
GENGISSKRÁNING
Nr. 81. 29. apríl 1988
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala g*ngl
Dollari 38,72000 38,84000 38,98000
Sterlp. 72,51600 73,74000 71,95700
Kan. dollari 31,49100 31,58900 31,37200
Dönsk kr. 6,02970 6,04840 6,09920
Norsk kr. 6,29640 6,31600 6,21340
Sænsk kr. 6,61150 6,63190 6,60060
Fi. mark 9,70910 9,73920 9,71100
Fr. franki 6,83310 6,85430 6,88450
Belg. franki 1,10970 1,11310 1,11630
Sv. franki 27,92340 28,01000 28,26280
Holl. gyllini 20,71140 20,29440 20,80040
V-þ. mark 23,22250 23,29440 23,36370
it. lira 0,03120 0,03130 0,03155
Austurr. sch. 3,30380 3,31400 3,32520
Porl. escudo 0,28340 0,28420 0,28500
Sp. peseti 0,35060 0,35170 0,35000
Jap. yen 0,31076 0,31172 0,31322
írskt pund 61,93300 62,12500 62,45000
SDR (Sérst.) 53,56450 53,73050 53,84110
ECU.evr. m. 48,14250 48,29170 48,38780
Tollgengi fyrir april er sölugengi 28. mars
Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er
62 32 70.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 29. apríl.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) vorð (kr.)
Þorskur 30,00 30,00 30,00 0,500 15.000
Þorskur(ósL) 41,50 33,00 37,79 28,200 1.065.750
Ýsa - 35,00 35,00 35,00 0,250 8.750
Ýsa(ósl.) 48,00 38,00 42,45 20,670 877.630
Ufsi 9,00 6,00 8,66 4,260 36.900
Ufsifósl.) 12,00 5,00 9,99 3,150 31.500
Karfi 19,00 6,00 16,12 1,060 17.150
Skarkoli 35,00 15,00 27,96 0,110 3.100
Skarkoli(ósL) 15,00 15,00 15,00 0,150 2.250
Lúða 65,00 65,00 65,00 0,022 1.430
Skata 54,00 54,00 54,00 0,040 2.100
Langa 15,00 15,00 15,00 0,250 3.750
Langa(ósL) 20,50 15,00 18,44 0,400 7.375
Kinnar 40,00 40,00 40,00 0,112 4.480
Samtals 35,10 59,175 2.077.024
Selt var aðallega úr Saeborgu GK, Geirfugli GK, Skagaröst KE,
Dröfn RE, Hrafni Sveinbjarnarsyni GK og Hrafni Sveinbjarnar-
syni III GK. I dag verða seld 3 tonn af trollýsu og nk. mánudag
verða seld 50 tonn úr Bergvík KE, aðallega ufsi, karfi og gráiúða.
Jöfur KE 17 af-
hentur í lok maí
NÚ ER unnið að lokafrágangi á
tækjum og búnaði um borð í
rækjutogaranum Jöfri KE 17,
sem sjósettur var í skipasmíða-
stöðinni Stálvík i Garðabæ ný-
lega. Áætlað er að skipið verið
afhent eigendunum, Jarli hf í
Keflavík, um mánaðamótin mai-
júní og haldi þá til rækjuveiða.
Um borð í Jöfri er alhliða búnað-
ur til rækju- og fiskvinnslu og er
skipið fyrst íslenskra skipa, búið
rækjupillingarvél frá Kronborg í
Danmörku. Slíkar vélar eru ný-
komnar á markað en hafa verið
reyndar í fáeinum norskum og fær-
eyskum skipum og líkað afar vel,
að sögn Páls Axelssonar útgerðar-
stjóra Jöfurs. Jöfur KE 17 er um
300 brúttórúmlestir að stærð og er
áætlað kaupverð um 250 milljónir.
14 manna áhöfn verður á skipinu
en skipstjóri er Snorri Gestsson,
sem ásamt bræðrunum Páli og Birgi
Axelssonum er aðaleigandi Jarls hf.
Búinn að veiða 8
tófur og 5 minka
Miðhúsum, Reykhólahreppi.
BÓNDINN I Djúpadal, Samúel
Zakaríasson, er bæði góður
bóndi og mikill veiðimaður. í
vetur er hann búinn að skjóta
átta tófur og voru það allt saman
mórauðir steggir.
Af þessum átta tófum fékk hann
þijár sama kvöldið. Einnig er Samú-
el búinn að veiða fímm minka.
Samúel sagði að það væru 600
króna verðlaun fyrir tófuna og
sagðist hann búast við að hann
hefði svona 5 krónur á tímann við
að stunda þessa veiði. Verðlaunin
fyrir mink eru betri eða 500 krónur
fyrir veiddan mink.
„Enn er mikið um tófur hér,“
segir Samúel. „Til dæmis sé ég oft
eina hvíta, sem er stygg, og einn
daginn lá hún fram á klettabrún
og baðaði sig í sólskininu en ekki
var hún í skotfæri. En ég næ henni
seinna."
- Sveinn