Morgunblaðið - 30.04.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988
41
Saiiitök kvenna á vinnu-
markaði með útifund
SAMTÖK kvenna á vinnumark-
aði munu, eins og undanfarin ár,
standa fyrir aðgerðum 1. maí.
Lagt verður af stað frá Hlemmi
og gengið í kjölfar göngu fulltrú-
aráðsins sem leið liggur að Hall-
ærisplani þar sem haldinn verður
útifundur.
Á fundinum verða flutt ávörp.
Meðal ræðumanna verður Salóme
Kristinsdóttir félagi í Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur. Á milli
atriða fá óánægjuraddir að njóta
sín.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
minna á að ástandið á vinnumark-
Skagfirðinga-
félagið:
aðnum hefur ekki oft verið alvar-
legra en nú. Láglaunakonur beijast
harðri baráttu fyrir lifíbrauði sínu.
Snótarkonur í Vestmannaeyjum
hafa vikum saman unnið að því að
ná fram sanngjömum kröfum
sínum án árangurs. Atvinnurekend-
ur hafa sýnt mikla óbilgimi í við-
ræðum við félög sem ekki hafa
samþykkt orðalaust stefnu Vinnu-
veitendasambandins og ríkisvalds-
ins í launamálum.
í dag era verslunarmenn víðsveg-
ar á landinu í verkfalli. Samtök
kvenna á vinnumarkaði styðja þá
heilshugar og hvetja fólk til þess
að taka þátt í aðgerðum Samtaka
kvenna á vinnumarkaði 1. maí og
sýna samstöðu og baráttuhug í
Ver^'- (Fréttatilkynning)
pantað bílinn í heilan dag til nám-
skeiðshalds fyrir alla starfsmenn
sína. Nánari upplýsingar um nám-
skeiðin fást hjá Iðntæknistofnun,
sem heldur upp á 10 ára afmæli
sitt nú á Norrænu tækniári.
ÍT*S
Aðalfundur Tón-
listarbandalagsins
AÐALFUNDUR Tónlistar-
bandalags íslands verður hald-
inn sunnudaginn 1. maí næst-
komandi. Fer hann fram í hinu
nýja félagsheimili tónlistar-
manna við Vitastíg 3 í
Reykjavík og hefst klukkan 17.
A aðalfundi TBÍ fara fram
hefðbundin aðalfundarstörf.
Formaður bandalagsins, Halldór
Haraldsson, flytur skýrslu sína og
greinir frá helstu þáttum í starf-
inu. Þá verður rætt um starfsemi
félagsheimilis tónlistarmanna sem
opnað var í haust. Fundinn sækja
fulltrúar aðildarfélaga Tónlistar-
bandalagsins en hann er einnig
opinn öllum tónlistarmönnum og
eru þeir hvattir til að fjölmenna
og skoða um leið hið nýja félags-
heimili.
(Fréttatilkynning)
Hlutavelta á
vegum kvenna-
deildar
KVENNADEILD Skagfirðinga-
félagsins i Reykjavík verður með
hlutaveltu og veislukaffi i
Drangey, Síðumúla 35, sunnu-
daginn 1. maí nk. kl. 14 til efling-
ar starfsemi sinni.
Kvennadeildin hefur ætíð lagt
áherslu á að styrkja góð málefni,
svo sem tækjakaup til sjúkrahússins
á Sauðárkróki og gefið dvalar-
heimili aldraðra í Skagafírði gjafir.
Síðastliðin þijú ár hefur kvenna-
deildin gefíð fé til styrktar viðgerð
á altarisbrík í Hóladómkirkju, sem
er einn dýrmætasti kirkjugripur á
íslandi, en viðgerðin er mjög kostn-
aðarsöm. m .
(Fréttatilkynning)
Klæðning
á Gaulveija-
bæjarveg
Gaulveijabæ.
ÁÆTLAÐ er að bjóða út með
vorinu undirbyggingu fyrsta
áfanga varanlegrar vegagerðar
á Gaulveijabæjarvegi. Um er að
ræða tveggja og hálfs kílómetra
kafla frá gatnamótum við Suður-
landsveg, rétt austan mjólkurbús
Flóamanna, og að Votmúlavegi. -
Að sögn'Steingríms Ingvarsonar
hjá Vegagerð ríkisins á Selfossi
verður unnið fyrir rúmlega fjórar
milljónir króna. Klæðning verður
síðan sett á veginn svo langt sem
fjárveitingin dugir.
- Valdim. G.
Grafíksýiiing
í Gallerí List
HELGA Ármanns opnar í dag
sýningu á grafík- og collage-
verkum í GaUeríi List í Skip-
holti 50b.
Helga lauk prófí úr grafíkdeild
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands vorið 1986. Hún hefur tekið
þátt í ýmsum samsýningum en
þetta er fyrst einkasýning hennar.
Hún starfar nú á grafíkverkstæði
í Ljósabergi 30 í Hafnarfirði.
Sýning Helgu í Gallerí List opn-
ar kl. 14 í dag. Hún verður opin
kl. 10—18 virka daga, um helgar
kl. 14—18 og henni lýkur 8. maí.
(Fréttatilkynning)
Ráðstefna um frumkvæði
kvenna í atvinnulífinu
FRUMKVÆÐI kvenna í at-
vinnulífinu verður til umræðu
á ráðstefnu sem Atvinnumála-
nefnd Reykjavíkur gengst fyrir
í dag, laugardag á Hótel Sögu.
Tilgangurinn með ráðstefnunni
er að stuðla að fordómalausri
umræðu um stöðu kvenna í at-
vinnulífínu og vekja um leið at-
hygli á þeim árangri, sem konur
hafa þegar náð á mörgum sviðum.
Alls verða 14 stutt framsöguer-
indi flutt á ráðstefnunni. Þar verð-
ur meðal annars fjallað um raun-
veralegan og ímyndaðan mun á
viðhorfum og aðstöðu karla og
kvenna úr röðum launþega og
atvinnurekenda. Ennfremur verð-
ur §allað sérstaklega um það,
hvort útboð á opinberri þjónustu
sé líkleg leið til þess að auka hlut
kvenna í sjálfstæðum atvinnu-
rekstri.
Til framsögu á ráðstefnunni
hefur valist fólk með fjölbreytta
starfsreynslu, sem á það sameig-
inlegt að hafa vakið athygli fyrir
störf sín á hinum ýmsu sviðum.
Fundarstjórar á ráðstefnunni
verða Ragnar Halldórsson for-
stjóri og Guðrún Ámadóttir fram-
kvæmdastjóri.
KARLAKÓRINN Jökull hélt ár-
lega vortónleika sína í Hafnar-
kirkju, föstudags- og laugardags-
kvöld.
Á efnisskrá var 21 sönglag úr
ýmsum áttum. Framflutt var lag
Egils Jónssonar, fyrrverandi tónlist-
arskólastjóra á Höfn, „Horaafjörð-
ur“, við texta Þorvarðar Stefánsson-
ar. Á þriðja hundrað manns hlýddu
Formaður Atvinnumálanefndar
Reykjavíkur er Jóna Gróa Sigurð-
ardóttir borgarfulltrúi en aðrir
nefndarmenn eru Barði Friðriks-
son lögfræðingur, Ámi Sigfússon
borgarfulltrúi, Guðrún Halldórs-
dóttir skólastjóri og Össur Skarp-
héðinsson borgarfulltrúi.
(Fréttatilkynning)
á kórinn að þessu sinni og var honum
vel tekið að vanda. Kórinn hyggur á
ferð í vesturátt innan tlðar.
Félagar í Jökli era nú í vetur 42,
flestir af Höfn og úr Nesjum, og
meðal söngmanna era þó nokkrir
sjómenn. Formaður stjómar kórsins
er Öm Amarson, undirleikari Guð-
laug Hestnes og söngstjóri frá stofn-
un 1973 Sigjón Bjamason.
- JGG
Vortónleikar Jökuls
Morgunblaðið/Þorkell
Guðni Ingimarsson, Per Johan Wahlborg, Dick Lindquist, Páll Kr. Pálsson, forstjóri Idntæknistofnunar
og Jónas Jónasson við festivagninn. Guðni og Jónas munu ásamt Svíunum leiðbeina á námskeiðunum.
Iðntæknistof nun:
Kennir hönnun og fram-
leiðslu með aðstoð tölvu
Lagt í hringferð um landið í næstu viku
IÐNTÆKNISTOFNUN hefur
tekið á leigu frá sænsku Vél-
tæknistofnuninni festivagn sem
útbúinn er fullkomnum tölvu-
búnaði til hönnunar og fram-
Ieiðslu. Starfsmenn stofnunar-
innar munu á næstunni, ásamt
sænskum sérfræðingum, ferð-
ast með vagninn um landið og
gangast fyrir námskeiðum æt-
luðum tækni- og iðnararmönn-
um, stjórnendum fyrirtækja og
öðrum þeim sem áiiuga hafa á
að kynna sér svokallaða
HAT/FAT tækni. HAT/FAT er
þýðing á alþjóðlegu skammstöf-
uninni CAD/CAM, sem stendur
fyrir hönnun og framleiðsla
með aðstoð tölvu.
Páll Kr. Pálsson forstjóri Iðn-
tæknistofnunar segir að enda þótt
nokkur hérlend fyrirtæki hafi að
hluta til tekið þessa tækni í sína
þjónustu, sum noti tölvur við
teikningu og hönnun og önnur
framleiði afurðir sínar með tölvu-
stýrðum vélum, hafí ótvíræðir
kostir þessarar tækni lítið nýst í
íslenskum iðnaði. Ennþá sé fátítt
að hönnun og framleiðsla sé tengd
saman með tölvum hérlendis þótt
svo þessi tækni hafí verið útbreidd
í flestum iðnvæddum löndum frá
því snemma á síðasta áratug.
Búnaðurinn sem Iðntækni-
stofnun hefur á leigu og þeir sem
við hann vinna hafa á undanföm-
um árum unnið að mörgum verk-
efnum fyrir sænsk iðnfyrirtæki.
Meðal viðskiptavina hafa verið
fyrirtæki eins og Saab/Scania,
Volvo, Bacho og Asea og hafa
Svíamir tveir sem kenna munu á
Dick Lundquist með rafsuðuhjálm af Asea-gerð sem margir íslensk-
ir iðnaðarmenn þekkja. Lundquist átti þátt í hönnunarvinnu við
þennan hjálm og leysti hana af hendi með tækjabúnaðinum sem
notaður verður við kennslu á námskeiðunum næstu daga.
námskeiðunum ásamt verkfræð-
ingum Iðntæknistofnunar unnið,
með þessum búnaði, að verkefnum
eins og endurbótum á hönnun
skiptilykla og annarra handverk-
færa fyrir Bacho, gerð rafsuðu-
hjálma frá Asea, hannað hurð-
arsnerla í Saab 9000, og er þá
fátt eitt talið. „En við erum ekki
sölumenn, við ætlum að miðla
kunnáttu, ekki selja nýjan bún-
að,“ sagði Gúðni Ingimarsson
vélaverkfræðingur.
Fyrsta námskeiðið hófst í
Reykjavík á fímmtudag og verða
námskeið þar næstu daga. 3. maí
verður haldið námskeið á Akur-
eyri og síðan á Sauðárkróki,
Hvolsvelli, aftur á Akureyri og á
Eyrarbakka þar sem Alpan hefur