Morgunblaðið - 30.04.1988, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.04.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988 15 „Lögin gætu drepið naut“ - segir Sverrir Stormsker Morgunblaðið/Sverrir Johnny Logan kom fram við opnun Evrópvisjónklúbbsins og náði upp feiknagóðri stemmningu. um hálsinn stærðarinnar spjöld í keðju sem tilgreina stöðu þeirra. Þykir mönnum mismikil prýði af spjöldunum. Þá eru nokkur liðanna með óeinkennisklædda, vopnaða öryggisverði, t.d. Þýskaland, Bret- land — en IRA er með stöðvar í Dyflinni — og ísrael. Leiðsögumað- ur íslenska hópsins sagði blaða- manni að eftir að ófriðurinn á her- teknu svæðunum magnaðist l.efðu borist sprengju- og íkveikjuhótanir til margra þeirra staða sem gyðing- ar sæktu í Dyflinni, m.a. barna- skóla. Á fimmtudag kom forsætisráð- herra írlands í stutta heimsókn og var mikill viðbúnaður vegna komu hans. Leitaði mikill fjöldi öryggis- varða að sprengjum í upptökuverinu með aðstoð tröllaukinna Scháfer- hunda. Þá er að vona að Stefán Hilmars- son verði laus við kvefið þegar að úrslitakvöldinu kemur. Hermann Gunnarsson mun lýsa keppninni fyrir íslenskum sjón- varpsáhorfendum. Hann segir lýs- inguna leggjast vel í sig, rétt eins og íþróttalýsingar á sínum tíma. íslenska dómnefndin í Söngrakeppninni ÍSLENZKA dómnefndin í Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva 1988 hefur verið valin. Hátt á þriðja hundrað manna gaf kost á sér til setu í nefndinni. Samkvæmt reglum EBU skulu fjórir þátttakendur vera á aldrin- um 15 til 25 ára, fjórir 26 til 35 ára, Qórir 36 til 45 ára og fjórir 46 til 60 og eldri. Einnig á að vera jöfn skipting á milli kynja úr sem flestum starfsstéttum og sem víðast af landinu. Dómnefnd- ina skipa 16 manns sem greiða atkvæði fyrir Islands hönd. Mark- ús Örn Antonsson, útvarpsstjóri, er formaður nefndarinnar og Guð- rún Skúladóttir ritari. Með tilliti til þessara reglna hafa eftirtaldir verið valdir til að sitja í dómnefndinni, sem mun starfa í sjónvarpssal á meðan bein útsending á söngvakeppninni stendur yfir frá Dyflinni, nk. laug- ardagskvöld 30. apríl, kl. 19.00: Árni Gunnarsson, ferskfisk- matsmaður, Vestmannaeyjum, Ásgeir Guðnason, nemi, Reykjavík, Davíð Sveinsson, skrifstofumað- ur, Stykkishólmi, Elín Þóra Stefánsdóttir, vitavörð- ur, Galtarvita, Ellý Þórðardóttir, matráðskona, Reykjavík, Erla Björk Jónasdóttir, fiðlusmið- ur, Mosfellsbæ, Guðrún Kristmannsdóttir, fisk- vinnslukona, Brekkuholti, Stokks- eyri, Hólmfríður Jónsdóttir, nemi og netagerðarm., Neskaupstað, Jónas Engiíbertsson, strætis- vagnastjóri, Reykjavík, Jónína Bachmann, bréfberi, Hafn- arfirði, Kjartan Þór Kjartansson, sjómað- ur, Suðureyri, Ólafur Egilsson, bóndi, Hunda- stapa, Mýrasýslu, Sigrún Kristjánsdóttir, nemi í MA, Kópaskeri, Sigurður Fanndal, kaupmaður, Siglufirði, Sigurður Ægisson, prestur, Djúpavogi, Þórdís Garðarsdóttir, húsmóðir og starfsm. á ellih., Garði. Dyflinni. Frá Urði Gunnarsdóttur, blaðamanni DÓMNEFNDIR þátttökulanda í Evrópusöngvakeppninni fella sína dóma yfir lögum og flytjend- um í kvöld. En Morgunblaðið fór þess á leit i vikunni að Sverrir Stormsker gerði sínar athuga- semdir við keppinautana og birt- ast þær hér ásamt kynningu á flytjendunum. Sverrir var heldur ómyrkur í máli um keppnina. „Lögin eru svo leiðinleg að þau gætu drepið naut. Ég hugsa að annaðhvort vinni breski silfur- refurinn eða sú svissneska. Og ef við lendum aftur í 16. sæti, skíri ég dúettinn upp á nýtt og kalla hann „Skíthoven“. Lið íslands, Beathoven, mætir fyrst til leiks í keppninni í kvöld. Þegar „Sókratesi" hefur verið varp- að yfir álfunna þvera og endilanga stígur Tommy Korberg frá Svíþjóð á sviðið. Hann syngur lag Py Back- man „Uppljómuð borg“ (Stadt i ljus). Korberg vann söngvakeppn- ina í Svíaríki með miklum yfirburð- um. Lagahöfundinum hefur nýlega verið lýst í einu Stokkhólmsblað- anna sem Tinu Turner Svíþjóðar. Um Korberg sagði Sverrir: „Þetta er næstbesti söngvarinn en næstversta lagið.“ Finnska lagið „Hýr augu“ (Nauravat silmat muistetaan) hljómar næst á öldum ljósvakans. í dagskrá keppninnar er flytjendun- um, hljómsveitinni Boulevard lýst sem fijálslegri, ungæðislegri hljóm- sveit sem leikur grípandi og venju- leg lög. Finnarnir höfðu annarleg áhrif á Sverri. „Það er hægt að hlusta á þetta lag í finnsku ástandi. Drukkinn," varð honum á orði. Á hæla Finnum syngur Scott Fitzgerald frá Bretlandi lagið „Farðu“ (Go) eftir Julie Forsyth. Hann átti nýlega lag í þriðja sæti breska smáskífulistans. Um lag Forsyth lét Sverrir þau orð falla að það væri ,jafn hall- ærislegt og Díönu-prinsessu- greiðsla söngvarans." Fimmti flytjandinn í Dyflinni verður tríóið M.F.O, Mazhar Alan- son, Fuat Guner og Ozkan Ugar, frá Tyrklandi. Þeir hafa samið lög og sungið saman í fimmtán ár og þykja enn vaxtarbroddurinn í tyrk- neskri tónlist. Einhvetjir kynnu að minnast framlags þeirra til Söngva- keppninnar árið 1985, „Didai didai dai“. Lagið í ár, „Sufi“ telur Sverrir Stormsker að sé leiðinlegasta Evrósjón lag sem hann hefur nokkru sinni heyrt. „Ég þarf ekki að hengja mig ef illa fer, mér nægir að hlusta á lagið,“ sagði hann. Spánveijar senda sveitina La Decada til keppni að þessu sinni. Flytja þeir lagið „Stúlkan sem ég elska“ (La chica que yo quiero) eft- ir Enrique Peiro og Francisco Dondiego. Að mati Sverris gæti spænska lagið gert góða lukku í „tyrk- nesku baðhúsunum“ eins og hann orðaði það. Gerard Joling er einn af vinsæl- ustu söngvurum Hollands og hefur ferðast víða um heiminn. í Taiwan hefur hann unnið til silfur og platín- umplatna vegna sölu hljómplatna sinna. Hann keppir fyrir hönd þjóð- ar sinnar með laginu „Shangri-la“ eftir Peter De Wijn. Telur Sverrir hljómkviðu Nið- urlendinga „stórkostlega frum- legt listaverk". Þegar Evrósjón var haldið í Isra- el árið 1979 var Yardena Arazi í hlutverki kynnisins. Þremur árum áður hafði hún náð þeim árangri að verða í þriðja sæti keppninnar ásamt félögum sínum í sveitinni „Chocolate-Menta-Mastik“. Hún hefur margoft verið útnefnd söngv- ari ársins í ísrael. í Dyflinni syngur Arazi lagið „Ben Adam“ eftir Boris Dimitshteim og Ehud Manor. Morgiinblaðsins. Sverrir er þó ekki sannfærður um höfundarrétt ísraelanna þvi hann segir Ben Adam stolnasta lag sem hann hafi nokkru sinni heyrt. „Ég hafði heyrt lagið 70 sinnum áður en hún frumflutti það,“ sagði hann. Svissneska söngkonan Celine Dion syngur lagið „Farið ekki fram- ar án mín“ (Ne partez pas sans moi) eftir Nella Martinetti. Hún er ættuð frá Kanada og hefur unnið til verðlauna víða um heim. Þessa dagana starfar Dion jöfnum hönd- um í París og Róm. Dion fær vægari dóma hjá Sverri. „Þetta er skemmtilegur söngstíll hjá norninni. Lagið er svona ágæt „dinnermúsík", segir hann. Tíunda lagið í röðinni er „Flyttu Reuter Stefán Hilmarsson í miklum ham við æfingar á Sókratesi á sviðinu í Dyflinni. Myndin var tekin í vikubyijun. hann heim“ (Take him home) í flutningi írsku sveitarinnar Jump the gun. Þetta lag verður á fyrstu breiðskífu sveitarinnar sem vænt- anleg er á markað. Síðastliðið sum- ar kom fyrsta smáskífa Jump the gun út og hlaut ágætar viðtökur. „Þetta lag gæti lent í fyrsta sæti hjá trúarofstækismönnum," var sú einkun sem Sverrir gaf gestgjöfunum. Þjóðveijar sigla í kjölfar íra. Maxi og Chris Garden flytja þá „Lag fyrir vin“ (Lied fur einem fre- und). Þær mæðgur hafa sungið og spilað saman um langan aldur. Hér tefla Þjóðveijar fram sömu lagahöf- undum og færðu þeim sigur árið 1983, höfundum „Dulítils friðar" Ralph Siegel og Dr. Bemd Meinun- ger. „Stefið er stolið frá Elton John,“ segir Sverrir um vinaróð- inn. „Laginu verður vonandi vísað úr keppni“. Næsti söngvari er einnig þýsku- mælandi. Austurríkismaðurinn Wilfried Scheutz flytur sönginn „Lisa Mona Lisa“ eftir sjálfan sig, Klaus E. Kofler og Ronnie Herb- holzheimer. Scheutz á fjórtán stórar plötur að baki. Hann leikur, dans- ar, syngur og spilar á gítar við mikla hylli í heimalandi sínu. „Þetta hefur sömu áhrif á mig qg vondi maturinn í Dublin," var allt sem Sverrir hafði um Sche- utz að segja. Nú mæta Kirsten Siggaard og Sören Bundagrand til keppni fyrir Danmörku í þriðja sinni. Þau hafa komið fram saman og sitt í hvoru lagi. Sören samdi lagið „Skilurðu hvað ég á við“ (Ka’ du se hva’ jeg sa’) við texta eftir Keld Heick sem hefur sent sex slíka í Evrósjón gegnum tíðina. Telur Sverrir að danska lagið gæti hlotið samúð dómnefnda og lent í fimmta sæti. Aphrodite Fryda ver heiður Grikklands með laginu „Trúður" (Clown) eftir Demitris Sakislis. Áphrodite hefur sungið opinberlega í sjö ár og lærði á harmóníku í ára- tug. Sakislis hefur iðulega tekið þátt í söngvakeppni Evrósjón, Þes- salóniki og íþöku. Að mati Sverris lenda Grikkjar í 15. sæti. „Þetta er söngkona með ógnvekjandi tennur,“ sagði hann. Frá Bergen mætir Karoline Kru- ger til leiks fyrir hönd Noregs. Hún er átján ára og stundar nám við menntaskóla. Hún kom fyrst fram í sjónvarpi 14 ára gömul en undir- býr nú fyrstu breiðskífu sína. Lagið „Fyrir jörðina okkar“ (For var jord) er samið af Erik Hillestadt og An- ita Skorgan sem keppt hefur í Evró- sjón fjórum sinnum. „Stelpan er augnakonfekt. Lagið er eyrnavítissódi," segir Sverrir um framlag frænda okk- ar. „Látið sólina skína“ segja Belgar í Dyflinni þegar sextándi flytjand- inn stígur á sviðið. Söngvarinn Jos- eph Reynaert er margreyndur Evró- sjón keppandi og segir Dylan og Bítlanna vera efsta í plötubunkan- um sínum. Lagahöfundurinn Philippe Anciaux er þekktari í heimalandi sínu sem ljóðskáld er lætur félagsleg málefni til sín taka. „Þetta er fyrirtaks árshátið- arlag,“ að mati Sverris. Sautjánda þjóðin er Lúxemborg sem teflir fram átján ára gamalli stúlku Lara Fabian að nafni. Hún er ættuð frá Belgíu og Ítalíu. Lara stundar nám í nútímadansi, jass- ballet og steppi. Hún flytur lagið „Að trúa“ (Croire). Höfundur text- ans, Alain Carcia átti einnig lag í Evrósjón árið 1983 og 1986. „Lagið er mátulegt á Lúxem- borgara,“ segir Sverrir. í fyrra sungu ítalir um fólkið við sjávarsíðuna og naut lagið „Gente di rnare" nokkurra vinsælda hér á landi. Nú mætir Luca Barbarossa til Dyflinnar með lagið „Ég skrifa þér“ (Ti Scrivo) eftir sjálfan sig. „Þetta er spagettírokk með pizzutexta," segir Sverrir og seg- ir allt á sömu kokkabókina lært. „Þetta er vont fyrir meltinguna." Frakkar eru nítjándir í röðinni. Ekki ómerkari maður en Gerard Lenorman er keppandi þeirra, en eitt laga hans var nýlega valið þriðja vinsælasta lag aldarinnar í Frakkl- andi. Við samningu lagsins „Meist- arasöngvari" (Chanteur de charme) naut Lenorman aðstoðar Claude Lemesle sem býr að tveggja ára- tuga reynslu í faginu. Hann hefur samið lög fyrir Nana Mouskouri, Mireille Metieu, Johnny Hallyday og Sacha Distel meðal annarra. „Titillinn er skemmtilegt öfug- mæli,“ sagði Sverrir um lag Le- norman. Þegar íslendingar riðu á vaðið með Gleðibankann fyrir tveimur árum söng portúgalska tátan Dora lagið „Vertu ekki vondur við mig“ (Nao sejas mau p’ra mim) fyrir hönd Portúgal. Nú snýr hún aftur í Evrósjón með „Ég er komin heim í heiðadalinn" (Voltarei) eftir Jose Calvario og Jose Niza. Calvario átti heiðurinn að síðustu tilraun Doru og Niza tekur nú þátt í Evrósjón fjórða sinni. „Þetta er góð útsetning á Save all your kisses for me“ sagði Sverrir. Ekki fylgir sögunni hvað júgó- slavneska lagið heitir sem rekur lestina í Dyflinni. Það er flutt af sveitinni Silfurvængir sem hefur notið sívaxandi vinsælda í Júgó- slavíu frá stofnun árið 1979. Hljóm- sveitin höfðar mest til táninga, sem veita henni það brautargengi er nægir til að verma efstu sæti vin- sældalistans ár eftir ár. „Ég hef aldrei heyrt lagið sem betur fer,“ voru ummæli Sverris um Júgóslavana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.