Morgunblaðið - 30.04.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988 .
Verkfallið í Leifsstöð:
50 bókaðir á með-
an verkfallsverð-
ir brugðu sér frá
„Látum þetta ekki koma fyrir aftur,“
sagði Magnús Gíslason formaður VS
Keflavík.
UM 50 manns notuðu tækifærið á meðan verkfallsverðir hurfu af
braut í flugstöð Leifs Eirikssonar í gær og náðu að láta innrita sig
til flugs til Bandaríkjanna. Fyrr um morguninn höfðu verkfallsverð-
ir mætt fylktu liði og hindruðu farþega í að láta skrá sig með þrem
vélum er voru að fara til Evrópu á vegiun Flugleiða. „Þetta látum
við ekki koma fyrir aftur, við vorum fáliðaðir í gær, en von er á
liðsauka frá Borgarnesi, Selfossi og Reykjavík í nótt,“ sagði Magnús
Gíslason formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja i samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. Magnús taldi líklegt að verkfallsvakt yrði
í Flugstöðinni allan sólarhringinn.
Fáir farþegar mættu til flugs í
Flugstöðinni í gærmorgun, en þá
voru þijár vélar Flugleiða á leið til
Evrópu. Verkfallsverðir voru ekki
eins flölmennir og morguninn áður,
enda hafði náðst samkomulag við
Amarflug um nóttina. Flestir far-
þeganna sneru á braut þegar þeir
sáu viðbúnaðinn, einn gerði þó til-
raun til að komast í gegnum vamir
verkfallsvarða, en hafði ekki erindi
sem erfíði. Yfírmenn Flugleiða, Sig-
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Um 50 farþegar náðu að láta innrita sig til flugs hjá Flugleiðum eftir að verkfallsverðir höfðu yfirgef-
ið Flugstöðina. Það er Jón Óskarsson stöðvarstjóri sem afgreiðir farþegana.
urður Helgason forstjóri Flugleiða
og lögmaður Vinnuveitendasam-
bands Islands voru á staðnum, en
höfðust ekkert að.
Eftir að vélamar voru famar
laust eftir kl. 8:00 tóku verkfalls-
verðimir að tínast á braut og komu
ekki aftur fyrr en um þijúleytið.
Þá höfðu um 50 farþegar náð að
láta skrá sig til flugs með einu vél-
inni sem flaug til Bandaríkjanna í
gær og fór hún til Orlando.
Amarflugsmenn höfðu gert sam-
komulag við VS fyrr um morguninn
og gekk flug þeirra eðlilega. Flogið
var kl. 13:00 til Amsterdam og í
morgun kl. 7:00 átti að fljúga á
sömu leið og var vélin fullbókuð að
sögn Inga Gunnarssonar stöðvar-
stjóra Amarflugs.
- BB
VEÐUR
I/EÐURHORFUR í DAG, 30.4. 88
YFIRLIT f gær: Austur við Noreg er minnkandi 1.022 mb hæð en
yfir N-Grænlandi er vaxandi 1.025 mb hæð. Um 500 km suður af
landinu er 1.000 mb lægð, en þokast austur.
SPÁ: Fremur hæg norðaustanátt. Lítilsháttar þokumóða við norö-
austurströndina og slydda á noröanverðum Vestfjörðum, annars
staðar úrkomulaust og jafnvel bjartviðri sunnan- og austanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á SUNNUDAG: Fremur hæg norðan- og norðaustanátt,
smá skúrir eöa slydduól um norðaustanvert landið, en víða bjart-
viðri sunnan- og suövestanlands. Hiti 1—3 stig.
HORFUR Á MANUDAG: Sunnan- og suðvestangola eða kaldi um
vestanvert landið með smá súld, en hægviðri og úrkomulaust í
öðrum landshlutum. Hiti 1—2 stig.
TÁKN: y, Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius
stefnu og fjaðrirnar • V Skúrir
-( \ Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig. * V Ét
-Q^ Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
Há,,skýiað / y / * / * • 5 9 Þokumóða Súld
'ÚSk Skýjað W/Æ&ým / * / * Slydda / * / GO Mistur —Skafrenningur
BBk Alskýjað * * * * Snjókoma * # * K Þrumuveður
%k%. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hfti veður Akureyri 1 þoka Reykjavík 9 skýjað
Björgvin 12 skýjað
Helsinki 12 léttskýjað
Jan Mayen -i-3alskýjað
Kaupmannah. 6 rigning
Narssarssuaq 5 léttskýjað
Nuuk +2 alskýjað
Ósló 14 skýjað
Stokkhóimur 1S léttskýjað
Þórshöfn 6 skúr
Algarve 17 skýjað
Amsterdam 12 mistur
Aþena vantar
Barcelona 18 skýjað
Berfin 16 skýjað
Chicago 4 heíðskírt
Þeneyjar 18 alskýjað
Frankfurt 13 hilfskýjað
Glasgow 9 léttskýjað
Hamborg 14 mistur
Laa Palmas 21 léttskýjað
London 9 rigning
Los Angeles 12 hoiðskírt
Lúxemborg 14 skýjað
Madrfd 16 alskýjað
Mataga 26 léttskýjað
Mallorca 20 skýjað
Montreal 6 rigning
New York 9 skúr
Paria 16 skýjað
Róm 19 skýjað
San Diego 13léttskýjað
Winnlpeg 6 léttskýjað
Samningaviðræður ríkisins og KÍ:
Viðræðulisti settur
saman og fundur
boðaður á mánudag
Samninganefndir rikisins og Kennarasambands íslands funduðu
í gær og var þá settur saman viðræðulisti og nýr fundur boðaðaur
á mánudag. Á fundi samninganefnda rikisins og Hins íslenska kenn-
arafélags, sem haldinn var á miðvikudag, miðaði hins vegar lítið í
samkomulagsátt, enda ekki rætt um einstök samningsatriði. Nýr
fundur hefur ekki verið ákveðinn.
Indriði H. Þorláksson, formaður
samninganefndar ríkisins, sagði að
um miðjan apríl hefði samninga-
nefndin lagt fram tillögu til HÍK
og KÍ um tilhögun viðræðna og var
tillagan í níu liðum. Jafnframt hefði
því verið lýst yfir, að ef kennarar
teldu viðræðum betur komið með
öðru fyrirkomulagi, til dæmis undir
stjóm ríkissáttasemjara, væri
samninganefnd ríkisins fús til að
ræða slíkan möguleika. „Á fundin-
um á miðvikudag fengum við engin
svör frá HÍK um þessar tillögur
okkar," sagði Indriði. „Við lýstum
hins vegar yfír vilja okkar til að
ræða við fulltrúa HÍK þegar þeim
sem segir að á fundinum hafí samn-
inganefnd ríkisins ekki lagt fram
neitt tilboð til kennara, þó kröfur
HÍK hafí lengi legið ljósar fyrir.
Þá hafí HÍK vænt svars á fundinum
við fyrirspum sinni til stjómvalda
um það, hvort opinber ummæli fjár-
málaráðherra um vinnutíma kenn-
ara endurspegluðu mat ríkisstjóm-
arinnar á störfum kennara. Slíkt
svar hafí ekki borist. Vegna þessa
hafí stjóm og samninganefnd HÍK
samþykkt ályktun, þar sem kemur
fram að kennaramir hafí af því
þungar áhyggjur ef samningar
þeirra verða enn lausir þegar næsta
skólaár hefst. Þá sé ljóst að HÍK
hentar, en annar fundur hefur ekki
verið ákveðinn."
Eftir fundinn á miðvikudag sendi
HÍK frá sér fréttatilkynningu, þar
telji sér ekki fært að semja um
kaup og kjör við fjármálaráðherra
meðan hann haldi því fram að kenn-
arar svíkist um í starfí sínu.
Fínnsk þjóðlist sýnd
í Norræna húsinu
SÝNING á verkum eftir finnska
listmálarann Akseli Gallen-Kallela
verður opnuð i Norrænahúsinu í
dag, laugardag. Hér er um að
Talinnhafa
orðið úti
EKKI hefur verið leitt í þ'ós hvert
var banamein skoska sjómannsins,
sem fannst látinn í Vestmannaeyj-
um á miðvikudag. Talið er likleg-
ast að hann hafi orðið úti.
Eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu í gær fann vegfarandi mann-
inn látinn á hraumkambi ofan við
Vestmannabraut á miðvikudags-
kvöld. Lík hans var flutt til Reykja-
víkur til krufningar, en dánarorsök
var ókunn í gær. Flest bendir þó til
að hann hafí sofnað á hraunkambin-
um og orðið úti.
ræða myndskreytingar við kvæða-
bálkin Kalevala, en á sýningunni
eru einnig Ijósmyndir, sem teknar
hafa verið i þorpum karelskra
kvæðamanna. Loks verður sýnt
safn af grfsk-kaþólskum fkonuni.
„Akseli Gallen-Kallela (1865-
1931) hefur verið kallaður þjóðlistar-
maður Finnlands vegna þess hve fjöl-
hæfur og miklvægur aflvaki hann
hefur verið í þjóðlegn fínnskri menn-
ingu. Gallen-Kallela hóf listferill sinn
skömmu fyrir síðustu aldamót og var
frumkvöðull þess þjóðemisrómatíska
stíls, sem þróaðist í Finnlandi um
þær mundir til mótvægis við sífellt
aukinn þrýsting stjómvalda í St.
Pétursborg, þegar þau hugðust kæfa
fínnska þjóðmenningu og gera landið
að öllu rússneskt," segir meðal ann-
ars í fréttatilkynningu frá Norræna
húsinu.
Sýningu þessari eru gerð skil í
menningarblaði Morgunblaðsins f
dag.