Morgunblaðið - 30.04.1988, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í kvöld:
250 milljónir fylgjast með þeg-
ar íslendinerar hefia leikinn
Dyflinni, frá Urði Gunnarsdóttur blaðamanni Morgunblaðsins. 3
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva verður haldin í 33.
sinn í kvöld. 250 milljónir áhorf-
enda munu fylgjast með flutningi
lagsins 21, sem á að teljast ijóm-
inn af þvi besta sem evrópskir
popptónlistarmenn hafa uppá að
bjóða. Mikið hefur þó verið deilt
um ágæti laganna og gæði
keppninnar. Það breytir því ekki
að meðal flestra þátttökuþjóða
er mikill áhugi á keppninni.
Mestur mun hann vera á Norð-
urlöndum og i Suður-Evrópu.
Keppnin hefur þótt úr takti við
það sem er að gerast í poppheimin-
um og hafa írar lýst því yfír að
þeir ætli að hressa örjítið upp á
yfírbragð keppninnar. í því skyni
hafa þeir fengið unga og upprenn-
andi rokkhljómsveit „Hothouse
Flowers" til að koma fram þegar
flutningi laganna er lokið.
Sviðið er glæsilegt og mjög
nýtískulegt. Þá mun ætlunin að
lífga aðeins upp á kynningar lag-
anna til að höfða til jmgri áhorf-
enda en hingað til, segir Avril Mac-
Rory, sem er yfír skemmtidagskrá
írska sjónvarpsins.
Lengi framan af virtist sem ekk-
ert lag væri öðru fremur sigur-
stranglegra, en eftir að veðbankar
birtu fyrstu tölur hlýtur svissneska
lagið að teljast sigurstranglegast.
íslenska lagið hefur verið að færast
upp á við í veðbönkum. Keppendur
vafra annað slagið um anddyri upp-
tökuversins og brosa vingjamlega
framan í fréttamenn sem eru í leit
að fýsilegu viðtalsefni eða kræsi-
legu slúðri.
Gott dæmi er viðtal sem írskur
útvarpsmaður átti við breska þátt-
takandann, Scott Fitzgerald. Þar
lýsir Scott því fjálglega hvað hljóm-
sveitin sé unaðsleg, sviðið sé svo
fagurt að hann fái tár í augun og
írska þjóðin vinaleg. Scott segist í
viðtalinu ekki geta hugsað sér að
hafa undirleikinn af bandi, það sé
hræðileg tilhugsun. Útvarpsmaður-
inn, viðmælandi hans, komst svo
við af hinum vingjamlegu ummæl-
um að hann sagði Scott að hann
ætti að vera íri. Klykkti þá Scott
út með því að rekja ættir afa síns
til írlands.
Frá íslandi koma 20 manns, þar
af eru 5 fjölmiðlamenn. Það er at-
hyglisvert að á meðan rás 2, út-
varpsstöð í eigu Ríkisútvarps/Sjón-
varps, á í harðri samkeppni við hin-
ar stöðvamar, er hún sú eina hinna
3 stærstu, sem ekki sendir fulltrúa
á staðinn fyrr en á næstsíðasta
degi. Óneitanlega vakna upp spum-
ingar eins og hvort ekki hefði verið
réttara að senda útvarpsmann í stað
t.d. Hrafns Gunnlaugssonar. Hans
hlutverk hér virðist í fljótu bragði
næsta lítilvægt.
Dagskráin hefur verið löng og
ströng og undir vikulokin voru þátt-
takendur famir að lýjast. Minni-
háttar kvefpest hijáði flesta íslend-
ingana hér og er ekki útséð um
endalok hennar þegar þetta er rit-
að. Verst er kveftilfelli Stefáns
Hilmarssonar söngvara.
Frá morgni til kvölds þeytast
keppendur milli staða til að vekja
á sér athygli því þessi keppni snýst
ekki hvað síst um að koma sér á
framfæri áður en sjálft úrslitakvöld-
ið verður. Hér hefur mörgum brögð-
um verið beitt. Norðmenn og Lúx-
emborgarar senda 18 ára söng-
konur, Þjóðveijar senda mæðgur,
Danir senda verðandi móður, Grikk-
ir verða með dansara á sviðinu, að
ógleymdum íslendingum sem hafa
meðferðis sterkasta mann f heimi,
Jón Pál Sigmarsson. Hann hefur
vakið feikna athygli, auk þess sem
hann er mörgum kunnur úr keppn-
um á borð við Hálandaleikana.
Morgunblaðið/Sverrir
Camilla Rós Guðmundsdóttir, Margrét Hreinsdóttir og Sverrir Stormsker virða fyrir sér mannlifið í
Graftonstræti, aðalverslunargötu Dyflinnar.
Haldið var íslendingakvöld á
fímmtudagskvöld þar sem aðalnúm-
er kvöldsins var Jón Páll. Hann blés
upp hitapoka við tóna „Sókratesar"
þar til pokinn sprakk. Þá var Sverri
Stormsker afhent heiðursútgáfa af
öllum þátttökulögunum af norskum
athafnamanni.
íslensku keppendumir hafa stað-
ið sig með prýði, fjöldi viðtala hefur
verið tekinn við þá, bæði af írskum
og erlendum blaðamönnum.
Og Sverrir Stonnsker, íslands
svarti sauður, eins og Hrafn Gunn-
laugsson kynnti hann á dögunum,
hefur ekki reynst hinn svarti sauður
hér á írlandi. Yfírlýsingar hans eft-
ir sigurinn í keppninni á íslandi
skutu mörgum skelk í bringu. En
hann hefur verið þjóðinni til sóma.
Keppnina telur hann óneitanlega
mjög hálfvitalega. „Það gefur lífínu
lit að taka þátt í svona aulakeppni
og sjá öll skrautlegu fíflin. Að taka
þátt í greindarlegum keppnum er
hundleiðinlegt." Segist Sverrir hafa
stundað landkynningu af miklu
kappi, án þess að taka fyrir
greiðslu. Sagði hann til dæmis frá
konu sem kom að máli við hann
og bað hann að segja sér hvers
konar fólk íslendingar væru. Upp-
lýsti Sverrir hana um að íslending-
ar væru þrenns konar; vinnusjúkl-
ingar, drykkjusjúklingar og þeir
sem væru hvort tveggja.
Kostnaður við söngvakeppnina
er að þessu sinni tæpar 110 milljón-
ir íslenskra króna og er það þungur
baggi fyrir jafnlitla sjónvarpsstöð
og RTE, að sögn Avril MacKenna,
frá RTE. írska flugfélagið Ryan
Air og Sony-samsteypan styrkja
RTE um liðlega 70 milljónir auk
fleiri smærri fyrirtækja. Þykir ímm
keppnin of kostnaðarsöm í landi þar
sem atvinnuleysi er um 20%. .
Um 300 írskir starfsmenn eru
við keppnina en auk þeirra koma
tæplega 700 keppendur og aðstoð-
arfólk þeirra og um 300 fjölmiðla-
menn. Skipulagning svo stórrar
keppni sem þessarar er mikið
vandaverk sem írum hefur farist
vel úr hendi að undanskildum rútu-
ferðum milli hótela og Simmons-
court upptökuversins, sem hafa
brugðist nær algerlega. Að öðru
verður vart fundið. Sviðsmyndin er
til að mynda mjög glæsileg. Mikið
hefur verið í hana lagt, sem dæmi
má nefna þá 15.000 metra af neon-
ljósum sem eru á sviðinu sjálfu.
Sérstök lýsing er fyrir hveija þátt-
tökuþjóð og tveir risaskermar til
hliðar við sviðið setja óneitanlega
svip á keppnina. Hefur sviðinu helst
verið líkt við myndir á borð við
„Star Wars".
Talið er að um 250 milljónir
manna muni fylgjast með keppninni
Jón Páll hefur vakið mikla athygli. Hér lyftir hann fréttamanni irska sjónvarpsins.
Morgunblaðið/Sverrir
Morgunblaðið/Sverrir
Ragna Fossberg, sambýliskona
Bjöms Emilssonar, kaupir lyf
handa íslensku kvefgemlingunum.
í beinni útsendingu og að síðar
muni 350 milljónir manna víðs veg-
ar um heim sjá keppnina, sem mun
vera mjög vinsæl t.d. í austantjalds-
löndum. Auk þess verður hún sýnd
í Ástralíu og Ameríku.
Kynnar verða þau Michelle Rocca
og Pat Kenney. Michelle starfar
sem fyrirsæta og kynnir í sjón-
varpi. Hún var kjörin ungfrú írland
árið 1980. Pat Kenney er þekktur
útvarps- og sjónvarpsmaður í
heimalandi sínu.
Keppnin fer fram í upptökuveri
RTE, sem er 33 ára gömul vöru-
skemma. Auk upptökusalarins hýsir
vöruskemman fyrrverandi „Evró-
visjónþorpið", þar sem er að finna
fréttamiðstöð, bankaútibú, póst-
útibú og fjölda matsölustaða og
kráa.
Öryggisráðstafanir vegna keppn-
innar eru mjög strangar og fá menn
engan aðgang að athafnasvæði
RTE-sjónvarpsstöðvarinnar án þess
að vera í „keðjuliðinu" svokallaða.
Allir þátttakendur hafa hangandi