Morgunblaðið - 30.04.1988, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 30.04.1988, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988 Hlutur aldraðra í skoðanakönnunum eftir Hallgrím Magnússon Skoðanakannanir hafa á síðustu árum orðið mikilvægt hjálpargagn við ákvarðanatöku af ýmsu tagi. Fjölmiðlar hafa notað þær ( auglýs- ingaskyni og þær veita stjómmála- mönnum mikilvægar upplýsingar um fýlgi almennings við ýmis mál- efni. Þeir, sem framkvæma skoð- anakannanir, taka því á sig mikla ábyrgð, sem felst í því að fram- kvæma kannanir samviskusamlega samkvæmt þeim reglum, sem um skoðanakannanir gilda. Rétt valið úrtak er eitt af því sem getur skipt sköpum um, hvort könn- unin er einhvers virði eða ekki. Fyrir nokkrum vikum skrifaði Gísli Sigurbjömsson forstjóri Elliheimil- isins Grundar grein hér í blaðið, þar sem hann velti því fyrir sér hvort um mistök væri að ræða, þegar öldruðum er sleppt við val úrtaks fyrir skoðanakannanir eða hvort þetta sé gert af ásettu ráði og þá hvers vegna. Athugasemd Gísla er mjög þörf einmitt nú, þegar lykil- orðið er að „vera hress" og þeim sem ekki „er hress" er vísað út í hin ystu myrkur. Aldur þeirra sem valdir eru í skoðanakannanir, sem ætlað er að mæla t.d. fylgi við stjómmálaflokka, skoðanir á ýms- um þjóðmálum eða notkun hljóð- varps og sjónvarps, er með ýmsu móti. Þegar þetta var lauslega kannað símleiðis, kom eftirfarandi í ljós: í stjómmálakönnunum sínum hefur Dagblaðið kosningaaldur sem viðmiðun, þ.e.a.s. frá 18 ára aldri og engin efri aldursmörk. Félags- vísindastofnun Háskóla íslands hef- ur gert nokkrar þjóðmálakannanir og þá spurt fólk á aldrinum 18—80 ára. Sama stofnun hefur einnig gert nokkrar kannanir á notkun útvarps og sjónvarps, en þær kann- anir taka eingöngu til fólks á aldrin- um 15—70 ára. Landlæknisembæt- tið hefur gengist fyrir 2 könnunum um viðhorf_ fólks til heilbrigðis- starfsfólks. í fyrri könnuninni 1985 var úrtakið frá 18—70 ára, en í seinni könnuninni 1987 var úrtakið frá 18—75 ára. Þessi upptalning vekur nokkra furðu. Torvelt er t.d. að sjá, hvers vegna notkun fólks yfir sjötugt á hljóðvarpi og sjónvarpi er ekki könnuð, einkum í ljósi þess að þessi aldurshópur er af mörgum ástæðum líklegur til að nota útvarp og sjón- varp talsvert mikið. Einnig er ill- skiljanlegt að þegar verið er að kanna viðhorf fólks til heilbrigðis- starfsfólks skuli þeim aldurshópi vera sleppt, sem að öllum líkindum þarf mest á aðstoð heilbrigðiskerfis- ins að halda. Er hugsanlegt að ástæða þess að öldruðum er gjaman sleppt þegar mæla á skoðanir fólks sé það almenna viðhorf að gamalt fólk, einkum ijörgamalt, sé orðið svo lasburða, að það geti ekki svar- Fyrirlestur um kvíða- stillandi lyf PRÓFESSOR M.H. Lader frá Institute of Psychiatry Univers- ity of London mun halda fyrir- lestur í Domus Medica fimmtu- daginn 5. maí nk. kl. 17.30. Fyrirlesturinn mun fjalla um nýjungar á sviði kvíðastillandi lyfja. Prófessor Lader, sem kemur hingað á vegum Geðlæknafélags íslands, hefur um árabil unnið brautryðjendastörf við rannsóknir á áhrifum kvíðastillandi lyfja svo og svefnlyfja. að fyrir sig eða haft skoðanir? Erf- itt er um að dæma, hversu almenn þessi skoðun er og hve áhrif hennar er á viðmót við aldraða og fram- kvæmdir í þágu þessa hóps. Stund- um virðist þó frekar vera reiknað með því að þessi aldurshópur hafí ekki lengur sjálfstæðan vilja eða skoðanir. Onnur hugsanleg skýring á úti- lokun aldraðra úr skoðanakönnun- um er sú að verið sé að reyna að halda niðri þeim fjölda í könnun- inni, sem ekki svarar, því reikna má með að stærra hlutfall fólks á aldrinum 75 ára og yfír geti ekki svarað t.d. símakönnun vegna heilsubrests heldur en yngra fólkið. Á geðdeild Landspítalans hefur á undanfömum árum verið unnið að ítarlegri könnun geðheilsu 85—88 ára fólks í landinu. Farið var til allra, sem til náðist á þessum aldri og spumingalisti lagður fyrir. Spumingalisti þessi var fyrst og fremst ætlaður sem hjálpargagn til að greina geðsjúkdóma hjá öldmð- um, enda sérhannaður til þess. Nokkrar spumingar úr listanum gefa þó ágæta mynd af almennri líðan fólks á þessum aldri. Mikil- vægt er að niðurstöður af þessu tagi séu birtar á opinberum vett- vangi ef það skyldi verða til þess að Ieiðrétta bjagaðar hugmyndir fólks um líðan hinna fjörgömlu. Úrtakið úr þessari könnun vom allir íslendingar, sem fæddir vom á þriggja ára tímabili (árin 1895— 1897). Þegar könnunin var gerð árið 1983 vom 1.049 lifandi áþess- um aldri í landinu. Ekki náðist til 173 einstaklinga, en flestir þeirra bjuggu úti á landi. Tekið var viðtal við 878 eða 83,5% af öllum en af þeim vom 76 viðtöl ófullnægjandi, oftast vegna veikinda. Þeir sem ekki náðist til höfðu svipaða heilsu og aðstæður og þeir 876, sem spurðir vom. Hér á eftir verða birt- ar niðurstöður nokkurra spuminga, sem lagðar vom fyrir þá 800 sem fullnægjandi viðtal var tekið við. Eitt af því, sem hefur mikil áhrif á andlega líðan fólks, er hvort það hefur miklar áhyggjur. í töflu 1 sést að tiltölulega fáir hafa miklar áhyggjur, konur þó meiri en karlar. Ástæðan fyrir þessum mun gæti t.d. verið sú, að karlar eigi erfíðara með að viðurkenna að þeir hafí miklar áhyggjur, en einnig er hugs- anlegt að konur séu í erfíðari að- stöðu en karlar t.d. vegna þess að á þessum aldri hafa fleiri konur misst maka sinn en karlar. Spurt var um áhyggjuefni, sem veldur einhverjum en ekki endilega miklum áhyggjum. Það er athyglis- vert, hve fáir hafa áhyggjur af fjár- málum sínum. Aðeins 1,5% hafa áhyggjur af fjármálum sínum, en 98% hafa ekki slíkar áhyggjur. Þeir sem á höfuðborgarsvæðinu búa hafa ívið meiri áhyggjur að þessu leyti en þeir sem búa á landsbyggð- inni. Þegar hugsað er til þess að ellilífeyrir með hámarks tekjutrygg- ingu er 24.258 kr. á mánuði í mars 1988 og greiðslur úr lífeyrissjóðum eru enn fremur oft af skomum skammti, er líklegt að þessi niður- staða sýni nægjusemi þessarar kyn- slóðar fremur en að þetta fólk hafí næga fjármuni undir höndum. Einnig er athyglisvert að fjárhags- áhyggjur eru meiri á Reykjavíkur- svæðinu en á landsbyggðinni. Um 20% fólks á aldrinum 85—88 ára hafa áhyggjur af eigin heilsu og 9% af heilsu annarra (tafla 2). Hin- ir kvæntu hafa þó meiri áhyggjur að þessu leyti eins og við mátti búast. Ekki gætir mikillar svartsýni um framtíðina hjá þessum aldurshópi (tafla 3). 6,6% karla og 14,7% kvenna telja sig vera svartsýn á framtíðina og þeir sem búa einir eða með maka sínum eru minnst svartsýnir. U.þ.b. 30% karla og40% kvenna fínna mikið fyrir þreytu yfír daginn. Þessi niðurstaða er að vissu leyti óvænt, meira en helming- ur fólks fast að níræðu fínnur ekki sérstaklega fyrir þreytu. Sama má segja um niðurstöður úr næstu spumingu, „hefurður verið of slapp- ur til að gera það sem þig langar til“. U.þ.b. 35% fólks telur sig vera of slappt til að gera það sem það langar til, en aðeins rúmlega 10% líður alltaf þannig. Slappleiki virðist því ekki mjög oft vera til fyrirstöðu hjá 85—88 ára gömlu fólki. Rúmlega 20% karla og 30% kvenna segjast vera einmana. Mest- ur er einmanaleikinn að sjálfsögðu hjá þeim sem búa einir, en athyglis- vert er að á langdvalarstofnunum eru mjög margir einmana. Á langdvalarstofnun virðast vistmenn þannig hafa töluverða tilhneigingu til að einangrast frá umhverfínu. Mjög fáir eru ósáttir við lífíð, 4—6%, en 66 eru vel sáttir með líf sitt og tilveru. Þessar niðurstöður benda til þess að flestir í hópi hinna háöldmðu séu vel eða sæmilega sáttir við sína til- veru, hafí ekki miklar áhyggjur yfirleitt og telji sig að öllu jöfnu geta gert það sem hugur þeirra stendur til hvetju sinni. Meiri hluti þeirra er við allgóða heilsu, og þeir eru heilsunnar vegna jafn færir og aðrir landsmenn til að taka afstöðu til þjóðmála og dægurmála. Þetta er ennfremur bjartsýnisfólk upp til hópa. Það eru sjálfsögð mannréttindi að tekið sé tillit til aldraðra á sama hátt og annarra í þjóðfélaginu í stað þess að stía þeim frá sem óábyrgum einstaklingum með eng- ar skoðanir. Vonandi taka skoðana- kannanir hér eftir tillit til þessa, því ef vissir hópar eru undanskildir úr úrtakinu rýrir það gildi niður- stöðunnar mjög mikið. eftír Halldór Jónsson Það er ávallt tjón að verkfalli. Þau verðmæti, sem ekki skapast af vinnu hugar og handa, eru að eilífu glötuð mannkyninu. Rétt eins og dauði og eyðileggingarbijálæði styijalda. Ef maður lítur til sögunnar, þá hafa verkalýðsleiðtogar einir sér aldrei fært umbjóðendum sínum betri lífskjör, svo neinu nemi. Það eru vísindi og tækni, sem hafa gert framleiðslu lífsgæðanna ódýrari) þannig að menn hafa orðið ásáttir um, að vinnandi fólk fengi aukna hlutdeild í framlegðinni. Þekking og tækni skapa meiri verðmæti með minni vinnu og þannig verður eitt- hvað til að skipta. Fyrir 40 árum kostaði flugfar til Ameríku um 500 dollara að því að ég hef heyrt. Nú kostar það minna en 500 dollara. Og dollarinn er ekki lengur dollar heldur 20 cent eða svo. Kaupið hefur farið úr doll- ar á tímann upp í 10 eða meira. Hver útvegaði þessa kjarabót? Svarið er Boeing, Douglas, Pratt og Whitney og fleiri tæknifyrir- tæki. Ekki verkföll eða önnur átök. Hveriir eru þeir þættir sem réðu því að Islendingar bjuggu við góð- æri síðasta ár? Steingrímur Her- mannsson, Þorsteinn Pálsson eða Guðmundur J.? Eða hitastigið í sjón- um, veðurfarið, lækkandi olíuverð, sæmilegur friður á vinnumarkaði og verðhækkun á erlendum mörk- uðum? Nú hafa verzlunarmenn verið í verkfalli. Hveijum er það þung- bærast? Þeim sem lægst hefur laun- in og þarf á hverri krónu að halda til þess að lifa? Eða þeim, sem hef- ur há laun, þó hann missi þau verk- Hallgrímur Magnússon Tafla 1 Könnun á líðan fólks á níræðisaldri Hefur miklar áhyggjur Já Nei Svara Fjöldi % % ekki % BP- Karlar 12,6 86,8 0,6 318 Konur 18,0 80,7 1.2 482 Höfuðb.sv. 17,7 81,1 1.2 486 Aðrir kaupst. 8,8 90,4 0.7 136 Þorp og sveitir 16,3 83,1 0,6 178 Býr ein(n) 9,7 88,3 1,9 154 Býr með maka 8,6 90,7 0,7 140 Býr hjá ættingjum 12,0 86,6 1,4 217 Á langdvalarstofn. 25,6 74,0 0,3 289 Tafla 2 Áhyggjuefni: eigin heilsa Já Neí Svara Fjöldi % % ekki % sp. Karlar 18,2 81,1 0,6 318 Konur 24,7 74,9 0,4 482 Býr ein(n) 21,4 78,6 154 Býr með maka 17,9 80,7 1,4 140 Býr hjá ættingjum 19,4 79,7 0,9 217 Á langdvalarstofn. 26,6 73,4 289 Áhyggjuefni: heilsa ann- arra Já Nei Svara Fjtfldi % % ekki% sp. 9,1 90,6 0,3 318 8,5 90,9 0,6 482 5,3 94,7 151 16,8 82,7 0,5 220 5,8 93,5 0,7 429 Halldór Jónsson fallstímann? Samningamönnum, sem láta fella fyrir sér samningana? Hvers vegna er kjaradeilan látin bitna á fólkinu en ekki samninga- mönnunum? Það er miklu nærtæk- ara að þrengja að samningamönn- unum, svipað og gert er þegar kjósa skal páfa. Herða að þeim, þegar deilan harðnar. Þeir hafí endanlegt umboð til samninga, eins og kardínálamir. Þeir verði læstir inni, með vaxandi harðrétti, takist ekki samningar með góðu. Á meðan getur fólkið unnið og haldið litlu laununum sínum. Það er bábilja, að ríkisvaldið geti verið hlutlaust f samningum. Ríkis- valdið hlýtur að vera aðili að öllum kjaradeilum, vegna þess að það setti lögin um verkföll og vinnudeil- ur sem heimila fámennum hópum að setja fjöldann í verkfall, úthlutar starfsleyfum iðnaðarmanna, lækna, útgerðarmanna og svo framvegis og leggur á skatta. Það getur því aldrei verið hlutlaus áhorfandi eins Tafla 3 Svartsýni á framtíðina Já Nei Svara Fjöldi % % ekki % sp. Karlar 6,6 92,8 0,6 318 Konur 14,7 84,4 0,8 482 Höfuðb.sv. 11,9 87,2 0,8 486 Aðrir kaupstaðir 8,8 89,7 1,5 136 Þorp og sveitir 12,4 87,6 178 Ógift 10,6 89,4 151 Gift 7,3 92,7 220 Áður giftir(ar) 14,0 84,6 1,4 429 Býr ein(n) 5,2 94,2 0,6 154 Býr með maka 2,9 97,1 140 Býr hjá ættingjum 11,1 88,0 0,9 217 Á langdvalarstofn. 19,4 79,6 1,0 289 Tafla 4 Já Nei Svara Fjöldi % % ekki% sp. Klarlar 29,6 68,9 1,6 318 Konur 42,5 56,0 1,5 482 Hefur þú verið of slappur til að gera það sem þig lang- artil % Já stund- .TAB alltaf % Já Nei ekki% Svara Fjöldi sp. Karl- 22,0 ar 11,3 62,6 4,1 318 Kon- 22,2 ur 11,2 62,7 3,9 482 Ertu einmana Já Nei Svara Fjöldi % % ekki % sp. Karlar 21,7 74,8 3,5 318 Konur 31,3 67,0 1,7 482 Ógift 32,5 65,6 2,0 151 Gift 11,8 83,6 4,5 220 Áður gift 33,8 64,8 1,4 429 Býrein(n) 36,4 63,6 154 Býr með maka 7,9 86,4 5,7 140 Býr hjá ættingjum 23,5 75,6 0,9 217 Á langdvalarstofn. 35,3 61,6 3,1 289 Hversu sáttur ertu við líf ið eins og það er nú? Vel Sœmil. Ósátt. Svara Fjöldi sóttur sáttur % ekki% sp. Karlar % 66,7 % 26,7 4,4 2,2 318 Konur 66,6 25,1 6,0 2,3 482 Höfundur er læknir á geðdeild Landspitsdans. „Það er bábilja, að ríkisvaldið geti verið hlutlaust í samningum. Ríkisvaldið hlýtur að vera aðili að öllum kjaradeilum, vegna þess að það setti lögin um verkföll og vinnu- deilur sem heimila fá- mennum hópum að setja fjöldann í verk- fall, úthlutar starfs- leyfum iðnaðarmanna, lækna, útgerðarmanna og svo framvegis og leggur á skatta. Það getur því aldrei verið hlutlaus áhorfandi eins og tízka virðist vera að halda fram.“ og tízka virðist vera að halda fram. Finnst nokkrum það skynsamlegt í raun og veru, að láta 400 stéttarfé- lög, hvert með meira og minna stöðvunarvald, beijast um kaup- taxta á 120.000 manna vinnumark- aðnum okkar, þegar vitað er að kjörin ráðast mest af allt öðru? Skyldi í rauninni engu vera hægt að breyta í þessu þjóðfélagi? Hvorki kjördæmaskipan og atkvæðismis- vægi né baráttuleiðum til bættra lífskjara? Höfundur er annar af forstjórum Steypustöðvarinnar hf. Hvers á láglaunafólkið að gjalda? Karlar Konur Ógift Gift Áður giftir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.