Morgunblaðið - 30.04.1988, Side 22

Morgunblaðið - 30.04.1988, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988 Frá ráðstefnunni um framhaldsskóla. Morgunblaðið/Bjami Framhaldsskólakennarar: Innra starf framhalds- skólanna vanrækt Yfirlýsing stjórnar SÍNE: Sýnir alvarlegt hugarástand - segir Árni Sigfússon formaður SUS „ÞAÐ er átakanlegt til þess að vita að stjórn samtaka, sem ekki hafa gert neitt i mörg ár, skuli allt í einu ijúka upp til handa og fóta loksins þegar ungt fólk vill taka til hendinni og gera eitt- hvað, og reynir að koma í veg fyrir þessa viðleitni," sagði Ami Sigfússon, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, um þau ummæli stjórnar SÍNE í Morgun- blaðinu að SUS hafi haft af- skipti af innri málefnum SÍNE. Kosningar til stjómar SÍNE standa nú yfir og eru 11 manns í framboði. Formaður SÍNE hefur skorað á fímm þeirra að draga framboð sín til baka vegna þess að þeir séu tengdir SUS og hafí að auki stundað óheiðarlega kosninga- baráttu og baktjaldamakk. „Þama er í framboði meðal ann- ars fólk sem aðhyllist sjálfstæðis- stefnuna, en að ætla að það sé eitt- hvert skipulagt samsæri af hálfu SUS sýnir bara alvarlegt hugar- ástand hjá formanninum og stjóm- inni,“ sagði Ámi Sigfússon. „Sam- særiskenningar virðast vera ákaf- lega ofarlega í huga margra vinstri manna, þetta tilhieyrir kommúnisma fyrri tíma og er varla ástæða til að endurvekja slíkt.“ Ámi sagðist vísa öllum ásökun- um stjómar SÍNE á bug, en sagð- ist hins vegar fagna því að meðal frambjóðenda til stjómar samtak- anna væm sjálfstaeðismenn. „Það getur ekki venð nema gott fyrir SÍNE,“ sagði Ámi. Á RÁÐSTEFNU um málefni framhaldsskóla sem mennta- málaráðuneytið, Bandalag kenn- arafélaga og Háskóli Islands stóðu að fyrr í þessum mánuði var samþykkt eftirfarandi álykt- un um innra starf framhaldsskól- anna: „Á síðastliðnum 10-15 áram hafa viðhorf til framhaldsskólanáms gjörbreyst. Framhaldsskólum hefur fjölgað mjög og æ fleiri nemendur sækja nú í framhaldsnám. Þrátt fyrir öra uppbyggingu framhalds- skólakerfísins á síðastliðnum áram, bendir þó margt til þess að málefni þessa skólastigs hafí í mörgu verið látin reka á reiðanum og skólastarf þar oft einkennst af stefnuleysi. Innra starf skólanna hefur ekki verið nægilega sinnt og athyglin um of beinst að ytra skipulagi. Aðstöðuleysi hefur einnig í mörgum tilvikum háð starfí framhaldsskól- anna. Má þar nefna ófullnægjandi húsnæði, vanbúin skólasöfn og skort á tækjum og námsgögnum. Lág laun kennara og vanmat á störfum þeirra hafa leitt til þess að í mörgum greinum fást nú ekki menntaðir og hæfír kennarar til starfa. Nýlegar skýrslur um skólastarf benda til þess, að íslenski fram- haldsskólinn standist ekki þær kröf- ur, sem til hans þurfí að gera og renna stoðum undir ítrekaðar ábendingar kennara og samtaka þeirra um að gagngerra úrbóta sé þörf. Starfshópur um innra starf skóla á ráðstefnu um framhaldsskóla skorar á menntamálaráðherra að beita sér fyrir því að tekin verði upp markviss stefna í málefnum framhaldsskólans, og að tiyggð verði viðunandi starfsskilyrði nem- enda og kennara, hvað varðar vinnuaðstöðu og og námsgögn. Brýnt er einnig að skipuleggja end- urmenntun kennara. íslensk stjórnvöld mega ekki lengur skorast undan þeirri ábyrgð að takast á við vanda skólakerfís- ins.“ Kórsöngur í Skálholtskirkju FÉLAGAR úr Dómkórnum í Reykjavík syngja við messu í Skálholtskirkju á morgun, 1. maí, kl. 17. Það era um 20 söngvarar úr messuhóp Dómkórsins sem syngja mótettur og gömul íslensk sálmalög í nýjum útsetningum. Stjómandi kórsins er Marteinn H. Friðriksson. Íþróttahátíð við Breiðagerðisskóla foreldra. Hefst það klukkan 17 og lýkur hálftíma síðar. Atriði úr sýningu Sögusvuntunn- ar á Smjörbitasögu en hún verð- ur sýnd í síðasta sinn á morgun. Smjörbiti í síðasta sinn SÝNINGUM Sögusvuntunnar á brúðuleiknum um Smjörbita lýk- ur á morgun, 1. maí. Sýnt er kl. 15 á Fríkirkjuvegi 11. Miðasala er frá kl. 13—15 á sunnu- dag og tekið er á móti miðapöntun- um í síma 622215 kl. 13-14.30. Eftir sem áður verður leikhúsið á ferðinni milli skóla og leikskóla. (Fréttatilkynning) EFNT verður til íþróttahátíðar við Breiðagerðisskóla á laugar- dag, 30. apríl. Að hátíðinni stend- ur Foreldra og kennarafélag Breiðagerðisskóla. Keppt verður í ýmsum greinum, svo sem víða- vangshlaupi, reiptogi, boðhlaupi, pokahlaupi, handbolta og fót- bolta. Umfangsmesta atriði dagskrár- innar er víðavangshlaup um hverfíð sem hefst kl. 13.00. Verða þrenn verðlaun veitt í öllum aldursflokk- um, bæði drengjum og stúlkum. Frá klukkan 14.00 verður veitinga- sala í skólanum en um kl. 14.30 verða verðlaun í hlaupinu afhent. Þá hefst keppni í reiptogi. Um klukkan 15.30 keppa A og B- bekkir, 10-12 ára drengja og stúlkna, í handbolta og fótbolta. Samtímis hefst boðhlaupskeppni 6-9 ára bekkja. Dagskránni lýkur með poka- hlaupi milli nemenda, kennara og Nýtt hús Blaðaprents Framkvæmdir á lokastigi PRENTSMIÐJA Blaðaprents hf. hefur nú flutt starfsemi sína í nýtt húsnæði að Lynghálsi 9. Dagblöðin Tíminn, Alþýðublað- ið og Þjóðviljinn verða þvi prentuð þar framvegis. Að sögn Kristins Finnbogasonar hjá Tímanum ganga framkvæmdir við húsið vel og eru þær nú á lokastigi. „Þetta er allt að smeila saman, öll prentun er komin þama upp eftir núna og verið að ganga frá setningardeildum og öðru slíku," sagði Kristinn. Hann sagði að Tíminn áætlaði að flytja í nýja húsið í maí eða júní. Að sögn Kristins getur nýja prentvélin prentað 20.000 blöð á klukkustund, mest 68 síður í einu. Von er á viðbót við vélina síðar, sem auka mun afköst hennar. Þrjú dagblöð era nú prentuð hjá Blaða- prenti; Tíminn, Alþýðublaðið og Þjóðviljinn, auk ýmissa smærri blaða. Helgarpósturinn er einnig prentaður hjá Blaðaprent. Gamla prentvélin var sett upp í þá nýju og er hún nú á leið til útlanda að sögn Kristins.' Hið nýja hús Blaðaprents að Lynghálsi 9. Morgunbiaðið/Bjami Nýja prentvélin. Hún getur prentað 20.000 eintök á klukkustund, mest 68 síður í einu. Læknastofa mín verður lokuðfrá 1. maí nk. um óákveðinn tíma. Reynir Tómas Geirsson, læknir. Sérgrein: Kvenlækningar, Sólvallagötu 41, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.