Morgunblaðið - 30.04.1988, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988
23
Áhyggjiœfm að fyrirtæki kaupi
erlenda vöru í stað innlendrar
- segir Víglundur Þorsteinsson formaður FÍI
Morgunblaðið/Sverrir
Frá fundi félagsmálaráðherra með forstöðumönnum ríkisstofnana.
Fundur félagsmálaráðherra með for-
stöðumönnum ríkisstofnana:
Fjögnrra ára áætlanir
um jafnrétti kynjanna
Konur gangi fyrir um ábyrgðarstöður
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA,
Jóhanna Sigurðardóttir, og
Jafnréttisráð héldu fyrir
skömmu fund með ráðuneytis-
stjórum og forstöðumönnum
allra ríkisstofnana, sem hafa
yfir 20 starfsmenn í þjónustu
sinni. Á fundinum voru kynntar
fyrir forstöðumönnunum hug-
myndir um fjögurra ára fram-
kvæmdaáætlanir um jafnréttis-
mál innan hverrar stofnunar.
Að sögn Elsu Þorkelsdóttur,
framkvæmdastjóra Jafnréttis-
ráðs, voru forstöðumennirnir
mjög opnir fyrir slíkum hug-
myndum og niðurstaða fundar-
ins jákvæð. Hugmyndir þessar
verða lagðar fyrir ríkisstjórn-
ina í þessari viku eða næstu.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Elsa Þorkelsdóttir að gert
væri ráð fyrir því að í hverri ríkis-
stofnun yrðu gerðar fjögurra ára
áætlanir um jafnrétti kvenna og
karla innan stofnunarinnar. Hug-
myndir um þessa tilhögun verða
lagðar fyrir ríkisstjóm í þessari
viku eða næstu, og ríkisstjómin
mun þá væntanlega samþykkja
að lagt verði fyrir þessa aðila að
gera slíkar áætlanir.
Elsa sagði að hugmyndin að
þessum áætlunum væri komin frá
Noregi, þar hefði norska Stór-
þingið samþykkt svipað fyrir-
komulag og taka ætti upp hér.
Jafnréttisráð hefði snarað út-
drætti úr norsku áætlununum á
íslensku og kynnt fyrir forstöðu-
mönnunum. Tillögumar fela í sér
að staða kynjanna verður jöfnuð
í nefndum og konum fjölgað í
ábyrgðarstöðum, að sögn Elsu.
„Það hefur verið rætt um að
beita þeirri reglu að þar sem tiln-
efnt er í nefndir verði tilnefndir
tveir, karl og kona, og ráðherra
velji síðan með tilliti til sem jafn-
asts hlutfalls kynjanna," sagði
Elsa. „Hvað ábyrgðarstöður varð-
ar hefur verið gert ráð fyrir því
að ef staða losnar og karl og kona
sækja um, skuli það kynið, sem í
minnihluta er í starfsstéttinni,
ganga fyrir, svo fremi að viðkom-
andi uppfylli skilyrði til starfans.
Gott dæmi er þá að konur myndu
ganga fyrir sem skólastjórar
næstu Qögur árin, en skólastjóra-
starfíð er afar kynbundið."
Elsa sagði að áætlað væri að
kynna svipaðar hugmyndir fyrir
fulltrúum stærstu sveitarfélag-
anna á landinu á fundi í byrjun
maí.
ÍSLENSKUM iðnrekendum er það
áhyggjuefni að samtök eins og
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
skuli kaupa erlenda vöru i stað
innlendrar, að sögn Víglundar
Þorsteinssonar, formanns Félags
íslenskra iðnrekenda, en SH hef-
ur undanfarið keypt umbúðir fyr-
ir f iskafurðir frá Bandaríkjunum,
Englandi og Finnlandi. Bjarni
Lúðviksson, framkvæmdastjóri
þjá SH, sagði i samtali við Morg-
unblaðið fyrir skömmu að 15%
gengisfelling myndi afmá mis-
muninn á verði erlendra og
íslenskra umbúða á einni nóttu.
Viglundur sagði í samtali við
Morgunblaðið að vegna t.d. kostn-
aðar við birgðahald væri ekki
réttlætanlegt að kaupa erlenda
vöru ef hún væri einungis 10 til
15% ódýrari í innkaupum en inn-
lend.
Víglundur sagði að gengisfelling,
án heildarendurskoðunar á efna-
hagsstefnunni, væri ekkert annað en
víxilframlenging. „Menn eru langt
komnir með að endurskoða tekjuöfl-
unarhlið ríkisfjármálanna en hafa
hins vegar ekkert endurskoðað út-
gjaldahliðina," sagði Víglundur. „Op-
inberir aðilar þurfa að endurskoða
stefnu sína varðandi lánsfjáröflun en
mikil lánsfjáröflun þeirra heldur uppi
mjög háum raunvöxtum hérlendis og
þeir valda atvinnufyrirtækjunum erf-
iðleikum.
Gengisfelling, án þess að menn séu
búnir að koma á góðu efnahagslegu
jafnvægi, ést upp á augabragði. Iðn-
rekendur eru alveg sammála fisk-
vinnslumönnum um að raungengi
krónunnar sé of hátt. Hins vegar
teljum við óhjákvæmilegt að menn
nái fyrst tökum á öðrum þáttum
efnahagsstefnunnar áður en þeir
fara að fíkta við gengi krónunnar.
Félag íslenskra iðnrekenda telur að
ríkisstjórnin og sveitarfélögin eigi að
endurmeta fíárfestingarmál sín með
sama hætti og hundruð fyrirtækja
eru að gera nú, þannig að hægt sé
að ná efnahagslegu jafavægi.
Menn þurfa að hætta að spenna
upp raunvextina og koma á stöðug
leika því annars má vænta þess ac
framleiðslufyrirtæki, og sum þjón-
ustufyrirtæki, þurfi að gripa til upp
sagna starfsfólks í stórum stíl og þac
er mín skoðun að uppsagnimar hjí
Granda hf. séu einungis forsmekkur-
inn að þeirn," sagði Víglundur.
Brids:
Úrslitakeppni
íslandsmóts _
í tvímenningi
í dag hefst úrslitakeppni ís-
landsmótsins f tvímenningi þar
sem 24 por spila til úrslita um
íslandsmeistaratitilinn 1988.Spil-
að verður á Hótel Loftleiðum.
Keppnin hefst kl. 13 í dag. Síðan
verður spiluð önnur lota í kvöld og
mótinu lýkur svo á morgun. Góð
aðstaða er fyrir áhorfendur.
Heiðmörk:
Hliðum lokað
Vegna aurbleytu í vegum
og eldhættu hefur hliðum að
Heiðmörk við Jaðar, Silunga-
poll og Vífílsstaðahlíð verið
lokað fyrir allri umferð um
stundarsakir til að koma í veg
fyrri skemmdir á vegum og
gróðri.
( <VK SIHÍ.m
1.4 C.L
HONDA CIVIC '88
- Á liðnum árum hefur HONDA CIVIC tekið
breytingum og sífellt orðin betri og glæsilegri.
- Enn á ný hefur HONDA tekið forustuna í
hönnun bíls hvað varðar tækni og útlit, sann-
kölluð fyrirmynd annarra.
- í CIVIC er lagt til grundvallar að fá sem
mest rými og þægindi fyrir ökumann og far-
þega. Því er náð með hinni nýju tvíbeinsfjöðrun
(Double wishbone) að framan og aftan og um
leið frábærum aksturseiginleikum, er gefa
stóru bílunum ekkert eftir.
- Nú eru allir CIVIC bílarnir með 16-ventla
vélum og þú hefur valkost um 1,3L 75 hest-
öfl, 1,4L 90 hestöfl, 1,6Li 116 hestöfl eða 1,6i
DOHC 130 hestöfl.
Kynntu þér Honda Civic, valkost vandlátra.
A ISLANDl, VATNAGORÐUM 24
HONDA/WILLIAMS
heimsmeistari
í Formúlu 1
'86og '87