Morgunblaðið - 30.04.1988, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
„Au-pair“ Gautaborg
íslensk læknafjölskylda með tvö börn, 7 og
2ja ára, óskar eftir au-pair stúlku til eins árs
frá miðjum júlí ’88. Þarf að vera sjálfstæð,
reglusöm, barngóð og helst átján ára eða eldri.
Áhugasamar sendi upplýsingar á auglýsinga-
deild Mbl. fyrir 10. maí merktar: „Barngóð”.
Góðar aukatekjur
Sölufólk óskast í spennandi söluverkefni. Góð-
ir tekjumöguleikar og sveigjanlegur vinnutími.
Viðkomandi mun taka þátt í sérstöku þjálfun-
arnámskeiði.
Lysthafendur vinsamlega leggið inn upplýs-
ingar um nafn, aldur, búsetu og fyrri störf
til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 5. maí nk.
merkt: „Sala - 88".
________________
Stýrimann
og háseta
vantar á 182 tonna bát sem gerður er út á
línuveiðar frá Norðurlandi.
Upplýsingar í vinnusíma 96-33120 og heima-
síma 96-22923.
Skrifstofustarf
Vön skrifstofustúlka óskast til starfa hálfan
daginn, helst eftir hádegi.
Eiginhandarumsóknum, er tilgreini aldur og
fyrri störf, óskast skilað ti| auglýsingadeildar
Mbl. fyrir 6. maí merktar: „Á - 938".
m REYKJÞMÍKURBORG «■*
=
Aautoin Stödcci 'l'
Heimilishjálp
Á heilsugæslustöð Hlíðasvæðis vantar konu
í fjölbreytt og skemmtilegt starf hálfan dag-
inn.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
622320.
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Aðstoðarlæknir
Staða reynds aðstoðarlæknis við skurðdeild
Landakotsspítala, er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 31. maí 1988. Staðan
veitist frá 1. október 1988.
Reykjavik 29. april 1988.
Starfsfólk óskast
tiJ sumarafleysinga. Ýmis störf.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
688500.
Siglufjörður
Blaðbera vantar til sumarafleysinga.
Upplýsingar í síma 96-71489.
Atvinna!
Starfsfólk óskast nú þegar við fjölbreytta fisk-
vinnsluvinnu. Góðar smáíbúðir.
Upplýsingar í símum 93-86720 og 86624.
Laus staða við
verkfræðideild
Háskóla íslands
Staða kerfis- og rafeindafræðings við verk-
fræðideild Háskóla íslands er laus til um-
sóknar.
Starfið er einkum fólgið í því, að hafa yfirum-
sjón með tækjum og tölvum deildarinnar og
sjá um þjónustu fyrir deildina í rafeindamál-
um. Æskileg menntun er tæknifræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um náms-
feril og störf umsækjanda skulu sendar til
skrifstofu deildarinnar á Hjarðarhaga 6, 107
Reykjavík, fyrir 25. maí 1988.
Nánari upplýsingar veitir Valdimar K. Jóns-
son, deildarforseti, í síma 694653.
Menntamálaráðuneytið,
25. apríl 1988.
Viðskiptafræðingur
af sölu- og markaðssviði óskar eftir starfi.
Ýmislegt kemur til greina, einnig starf úti á
landi.
Upplýsingar í síma 43395.
Kennarar
Við Myllubakkaskóla í Keflavík verður tekin
í notkun ný og fullkomin viðbygging næsta
haust. í kjölfar þess hyggjumst við auka og
efla skólastarfið og auglýsum því eftir:
Sérkennara, tónmenntakennara, heimilis-
fræðikennara, myndmenntakennara, íþrótta-
kennara, talkennara og kennara forskóla-
barna.
Nánari upplýsingar um störf þessi veitir
Kristján Á. Jónsson, skólastjóri í símum
92-11450 og 92-11686.
Myllubakkaskóli.
Sjúkraþjálfari
- hlutastarf
Sjúkraþjálfari óskast í hlutastarf.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
688500.
Stýrimaður
Stýrimann vantar á mb. Halldór Jónsson SH
217 frá Ólafsvík. Báturinn rær með þorska-
net og fer síðar á rækjuveiðar.
Upplýsingar í síma 93-61128 og hjá skip-
stjóra í símum 93-61385 og 985-21794.
Stakkholt hf.
Snyrtivörur
Starfskraftur óskast til að hafa umsjón með
sölu og dreifingu á þekktum snyrtivörum.
Viðkomandi þarf að hafa þekkingu á snyrti-
vörum, kunna ensku, geta unnið sjálfstætt
og hafa stjórn á fólki.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. sem
fyrst merktar: „S - 2757“.
Akureyri
Hjúkrunarfræðingar
Við dvalarheimilið í Skjaldarvík vantar deild-
arstjóra frá 1. júlí. Heimilið er um 7 km norð-
an Akureyrar. Þar búa 70 manns.
Upplýsingar um starfið gefur hjúkrunarfor-
stjóri í síma 96-23174 eða 96-21640.
Upplýsingar um kaup og kjör gefur starfs-
mannastjóri Akureyrarbæjar í síma
96-21000.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSK) Á ÍSAFIRÐI
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
- Ijósmæður
Óskum að ráða til sumarafleysinga:
★ Hjúkrunarfræðinga.
★ Sjúkraliða.
★ Ljósmóður.
Upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra í síma
94-3014 eða -3020 alla virka daga milli kl.
8.00 og 16.00.
Lausar stöður
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar rann-
sóknastöður við Raunvísindastofnun Háskól-
ans sem veittar eru til 1-3 ára:
a) Ein staða sérfræðings við eðlisfræðistofu.
b) Þrjár stöður sérfræðinga við jarðfræði-
stofu.
c) Þrjár stöður sérfræðinga við stærðfræði-
stofu.
Stöðurnar verða veittar frá 1. september nk.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins. Umsækjendur skulu hafa lokið
meistaraprófi eða tilsvarandi háskólanámi
og starfað minnst eitt ár við rannsóknir.
Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsókna-
starfa, en kennsla þeirra við Háskóla íslands
er háð samkomulagi milli deildarráðs raun-
vísindadeildar og stjórnar Raunvísindastofn-
unar Háskólans, og skal þá m.a. ákveðið,
hvort kennsla skuli teljast hluti starfsskyldu
viðkomandi starfsmanns.
Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og
skilríkjum um menntun og vísindaleg störf,
skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 27. maí nk.
Æskilegt er, að umsókn fylgi umsagnir frá
1-3 dómbærum mönnum á vísindasviði
umsækjanda um menntun hans og vísinda-
leg störf. Umsagnir þessar skulu vera í lok-
uðu umslagi sem trúnaðarmál og má senda
þær beint til menntamálaráðuneytisins.
Menntamálaráðuneytið,
27. april 1988.