Morgunblaðið - 05.05.1988, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988
Skipulagsstjórn ríkisins:
Hafnar kæru vegna
lóðarstækkunar
MEIRIHLUTI skipulagBstjómar
ríkisins telur að hafna beri kæru
íbúanna við Tjarnargötu til fé-
lagsmálaráðherra vegna stækk-
unar á lóð ráðhússins. Einn
stjórnarmanna, Guðrún Jóns-
dóttir arkitekt, telur að kæran
eigi rétt á sér. Niðurstöðu ráð-
herra vegna kærunnar er ekki
Sveitarstjórn-
ir geta gefið út
graftarleyfi
- segirMagnús
E. Guðjónsson
„ÉG TÚLKA úrskurð félags-
málaráðherra á þann veg að
byggingarnefnd geti veitt graft-
arleyfi en að sveitarstjórnir verði
að staðfesta leyfið svo það öðlist
gildi,“ sagði Magnús E. Guðjóns-
son framkvæmdastjóri Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, en
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hefur afturkallað
ieyfi byggingamefndar
Reykjavíkurborgar til byrjunar-
framkvæmda við ráðhúsið við
Tjörnina.
Magnús vitnar í 9. gr. byggingar-
laganna, þar sem segir að bygging-
ameftid veiti leyfi til að grafa
grunn, byggja hús eða rífa og seg-
ist ekki geta skilið úrskurð ráðherra
á annan veg en að byggingamefnd-
ir hafí heimild til að veita leyfí til
að grafa grunn og að leyfíð öðlist
fullt gildi eftir að sveitarstjómir
hafí staðfest það. Enda sé það að
öðru leyti í samræmi við lög.
að vænta fyrr en byggingar-
nefnd Reykjavíkurborgar hefur
fjallað um kæruna og sent ráð-
herra umsögn um hana.
íbúamir kærðu til félagsmála-
ráðherra sameiningu lóðanna við
'Ijamargötu 11 og Vonarstræti 11
auk lóðarstækkunar að gangstétt-
arbrún og við niðurkeyrslu að bif-
reiðageymslu. Við það stækkar lóð
ráðhússins úr 1.268 fermetram í
4.333 fermetra.
Meirihluti skipulagsstjómar
leggur til að kærunni verði synjað,
þar sem ekki verði fallist á rök
kærenda á þeirri forsendu að lóðar-
mörkin séu í alla staði eðlileg og
geti ekki talist bijóta í bága við
samþykkt skipulag. Stækkunin
breyti ekki eðli byggingarinnar eða
notkun svæðisins.
í bókun Guðrúnar Jónsdóttur
arkitekts, segir; „Ég lýsi furðu
minni á því að meirihluti skipulags-
stjómar vilji taka afstöðu í þessu
lóðarstækkunarmáli án þess að full-
nægjandi yfírlit yfír þær tilfærslur
og breytingar á mörkum og stærð-
um þess svæðis, sem ýmist er kall-
aður byggingarreitur, samkeppnis-
reitur eða lóð ráðhúss, liggi fyrir.
í því sambandi vil ég meðal annars
vekja athygli á áliti ríkislögmanns
frá 2. febrúar 1988 til félagsmála-
ráðherra. Þar segir á bls. 9 að lóð-
in sé 3.880 fermetrar. Ekkert hef
ég séð um afmörkun þeirrar lóðar
og er það eitt af því, sem þyrfti að
athuga ekki síst vegna þess að þar
er talað um lóð ráðhúss en ekki
byggingarreit.
Ut frá þeim gögnum, sem nú
ligfÖa fyrir verður ekki annað séð
en að gengið sé á grenndarrétt fólks
við Tjamargötu, þar sem lóðarmörk
hafa færst nær húsunum. Þetta
V estmannaeyjar:
Skansinum lokað
vegna skulda
Veitingahúsinu Skansinum í
V estmannaeyj um hefur verið
lokað vegna vanskila eiganda
hússins á söluskatti.
Eigandi Skansins rekur jafn-
framt Hótel Gestgjafann og veit-
ingahúsið Gestgjafann í Vest-
mannaeyjum, en rekstur þeirra mun
Fáskrúðsfirði.
VEGNA ófærðar á fimm kíló-
metra vegarkafli í sunnanverð-
um Fáskrúðsfirði hefur orðið að
feija vörur úr flutningabilum,
sem koma að sunnan, i aðra
flutningarbUa austan vegarkafl-
ans. Ástand þetta hefur varað i
nokkra daga og er ekki útlit fyr-
ir að breyting verði þar á til
batnaðar á næstunni.
ófæri vegarkaflinn tekur við þar
sem bundna slitlagið endar að sunn-
an og vegna aurbleytu komast stór-
ir flutningabflar ekki yfír. Því hefur
verið gripið til þess ráðs að fetja
vörumar með léttari bflum og jepp-
um yfír ófæra kaflann. Að sögn
Guðjóns Þórarinssonar, rekstrar-
stjóra Vegagerðarinnar, nemur
kostnaður við viðgerð á veginum
hefur ekki verið kynnt fyrir þeim.
Þá tel ég að lóðarstækkunin feli í
sér breytingu á staðfestu deiliskipu-
lagi Kvosar. Lóðarstærðir era þar
tilgreindar fyrir einstök hús, en
þessi lóð heftír verið stækkuð vera-
lega frá því að ráðherra staðfesti
uppdráttinn þótt með sé talin sú
breyting, sem skipulagsstjóm heim-
ilaði á byggingarreit nú fyrir
skömmu.
Ég vil vekja athygli á misræmi
milli landnotkunar og nýtingarhlut-
falls, stærð þess, aðalskipulags
Reykjavíkur og lóðarafmörkunar.
Vegna ófullkominna gagna hef ég
ekki tök á því hér á fundinum að
gera þessum þætti frekari skil. Þá
skal vakin athygli á því að á af-
stöðumynd ráðhúss, sem samþykkt
var í byggingamefnd 28. aprfl, er
lóðarstærðin tilgreind 3.294 fer-
metrar í stað 4.333 fermetra."
Morgunblaðið/Sverrir
Heimili Verndar vígt
Félagasamtökin Vernd reka heimili fyrir fyrrverandi fanga í
húsi við Laugateig í Reylgavik. Á heimilinu eiga mennimir at-
hvarf á meðan þeir eru að ná fótfestu í lífinu á ný. Heimilið var
vígt í gær að viðstöddu fjölmenni. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson,
sóknarprestur Laugamessóknar, blessaði starfsemina og heimil-
ið. Hann flutti heimilinu gjöf frá Laugamessókn, bibliu og sálma-
bók. Jóna Gróa Sigurðardóttír formaður Veradar veittí gjöfinni
viðtöku og er myndin tekin við það tækifæri. AJUs geta 18 vist-
menn dvalist í senn á Laugateiginum og er langur biðlisti eftir
rúmi. Félagasamtökin Verad hafa starfað síðan árið 1960.
Boeing 727 þotan flýgur til Lundúna í dag:
Flugleiðir leigðu hlera
hjá Delta-flugfélaginu
Hlerinn sem datt gerður upp og notaður að nýju
VONAST er til að viðgerð Ijúki
i dag á Boeing 727 þotu Flug-
leiða TF-FLG sem misstí hlera
af hjólabúnaði i lendingu á Heat-
hrow flugvelli á mánudag.
Fyrsta flugferð vélarinnar eftir
viðgerð verður til Lundúna. Þess
má geta að þotan hafði siðast
viðkomu i Reykjavík áður en hún
hlerinn rifnaði af henni þjá
nokkura dilk á eftír sér.
Nokkram vandkvæðum reyndist
bundið að fá réttan hlera á vélina
og leituðu Flugleiðir til 20 flugfé-
laga þar til rétti hluturinn fannst
að sögn Gunnars Valgeirssonar
verkstjóra f viðhaldsdeild félagsins
á Keflavíkurflugvelli. Bandaríska
flugfélagið Delta Airlines féllst loks
á að leigja hlera sem var sendur
halda áfram, að minnsta kosti enn
um sinn. Ekki fengust upplýsingar
um hversu mikið eigandinn skuldar
í söluskatt, en Kristján Torfason,
bæjarfógeti í Vestmannaeyjum,
staðfesti í samtali við Morgunblaðið
að til áðumefndra innheimtuað-
gerða hefði verið gripið vegna van-
skilanna.
Fáskrúðsfjðrður:
Vörur ferjaðar yfir
ófæran vegarkafla
Moigunblaðið/Bjöm Blöndal
Flugvirkjar skoða hlerann sem Flugleiðir leigðu af Delta flugfélag-
inu. Á borðinu er einnig hlerinn sem féll i húsagarð i Lundúnum á
mánudag. Hann reyndist ekki mikið skemmdur og verður að lokinni
viðgerð komið fyrir á sinum stað.
um einni milljón króna og verður
ekki ráðist í slíkar framkvæmdir
þar sem flármagn er ekki til. Á
sfðastliðnu 8umri var unnið allmikið
efni til að styrkja þennan vegar-
spotta en það efni bíður hér í haug-
um og hefur ekki verið notað.
Albert.
I .undúniim. Vélin verður fyrst
íim sinn útbúin nýjum hlera sem
var tekinn á leigu hjá bandarisku
flugfélagi. Síðan á að gera upp
hlerann sem hafnaði i húsagarði
í Pinner og setja hann aftur á
sinn stað. Bresk flugmálayflr-
völd hafa atvikið til rannsóknar
en blaðafulltrúi Flugleiða býst
ekki við því að atvikið dragi
með flugi frá Atlanta á þriðjudag.
Þegar til átti að taka kom í ljós
að mikilvægt stykki fylgdi ekki með
í sendingunni. Leit hófst að nýju
og fannst stykkið í Glasgow. Til
þess að tryggja að hann bærist með
skilum flaug starfsmaður Flugleiða
með hlutinn í vasanum til Kaup-
mannahafnar f gærkvöldi og kom
honum um borð í vél til íslands.
Hálendinu lokað fyrir umferð
GREIÐFÆRT er á öUum aðal-
vegum landsins. Búið er að moka
helstu leiðir sem eru ófærar að
vetrarlagi. í dag mun Vegamála-
stjórí loka hálendisvegunum fyr-
ir allri umferð.
Engar þungatakmarkanir era á
vegum norður fyrir land allt austur
á Djúpavog. Vegir sem að'ollu jöfnu
eru ekki færfr þyngri ökutækjum í
þfðunni á vorinn, s.s. til Sigiufjarðar
og í Skagafjörð, era nú opnir án
takmarkana. Vegaeftirlitið á þó von
á því að þegar þiðni frekar geti
ástendið versnað.
Hálendisvegimir, þar með talinn
Kjalvegur, Sprengisandsleið og
Öskjuleið, verða lokaðir allri umferð
fram f júnímánuð. Þetta er gert til
að verja vegina á þeim tíma þegar
hættast er við skemmdum og Vega-
gerðina skortir mannskap til að
sinna viðgerðum.
Gangi allt að óskum verður þotan
ferðbúin sfðdegis í dag og flýgur
til Lundúna.
Brotni hlerinn sem hylur hjóla-
búnað vélarinnar þegar hún er á
flugi kemur til umræðu á breska
þinginu f dag. Robert Hughes þing-
maður borgarhlutans sem Flug-
leiðaþotan átti leið yfír þegar
óhappið varð fór fram á yfírlýsingu
samgönguráðherra um málið. Bresk
flugmálayfírvöld hafa þegar hafíð
rannsókn á atvikinu.
„Mér er málið skylt þar sem ég
bý sjáifur f næsta nágrenni flugyall-
arins. Það sem fyrst og fremst vak-
ir fyrir okkur er að komast til botns
í þessu máli og vemda borgarana
fyrir frekari himnasendingum, “
sagði Robert Hughes. „Mig skiptir
engu máli hvaða flugfélag á í hlut
en við verðum að vita hvort þessi
flugvélategund sé nægilega öragg,
hvað hafí í raun og vera gerst."
Bogi Ágústsson blaðafulltrúi
Flugleiða sagði að félagið hefði
ekki ástæðu til að óttast rannsókn
á óhappinu. Þætti honum ótrúiegt
að atvikið hefði nokkur áhrif á við-
skipti félagsins í Bretlandi. „Við
höftim ekkert að fela og vonandi
leiðir rannsóknin f ljós að allt við-
hald á flugvélum félagsins er óað-
fínnanlegt," sagði Bogi.
Orsakir óhappsins era enn
ókunnar. Aðspurður hvort hlerinn
umræddi hefði ekki getað laskað
vélina þegar hann rifnaði af vildi
Bogi ítreka fyrri yfirlýsingar Flug-
leiða þess efnis að farþegar vélar-
innar hefðu aldrei verið f neinni
hættu.
Að sögn talsmanns breska sam-
göngumálaráðuneytisins eru skráð
59 atvik undanfarin áratug þar sem
hlutir hafa fallið af flugvélum ná-
lægt Lundúnum. Síðustu tólf mán-
uði hafa oröið tfu slfk óhöpp. Engin
slys hafa þó orðið á mönnum af
völdum , aðeins skemmdir á mann-
virkjum. „Aðflugsbrautir flugvéla
að Heathrow liggja yfír þéttbýl
svæði. Það heyrir hinsvegar til und-
antekninga að þær fljúgi yfír Pinn-
er þar sem hluturinn féll af Flug-
leiðaþotunni," sagði talsmaðurinn.
í gær var missagt í blaðinu að
hlerinn hyldi nefhjól vélarinnar.
Hann lokar hjólahúsinu stjómborðs-
megin.