Morgunblaðið - 05.05.1988, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988
Sölutap hleypur á millj-
ónum vegna verkfallsins
— segir Gísli Jónsson framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Akureyrar
Lagið tekið á krúttmagakvöldi í Sjallanum.
Krúttmagakvöld haldin
í Sjallanum um helgina
„ÞESSI verkfallstími hefur ver-
ið mjög dapurlegur hjá okkur.
Fólk hefur afpantð ferðir, bæði
suður og til annarra landa, á
hveijum degi og hleypur söl-
utap vegna þessa hjá okkur á
„NOKKUÐ hefur borið á veik-
indum hér á Akureyri, sem
Jíklega eru af sama stofni og
sú inflúensa sem hefur gengið
yfír á höfuðborgarsvæðinu, þó
ekki sé beint hægt að tala um
faraldur," sagði Hjálmar Frey-
steinsson yfirlæknir Heilsu-
gæslustöðvar Akureyrar í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, en
nokkuð hefur borið á /orföllum
barna og unglinga i skólum og
á dagheimilum síðustu daga.
Ekki liggja fyrir niðurstöður úr
prófunum frá Akureyri, en að sögn
-
N áttúrulækninga-
félag Akureyrar:
Félagar á
á þriðja
hundrað
AÐALFUNDUR Náttúrulækn-
ingafélags Akureyrar var hald-
inn fyrir skömmu í Laxdals-
húsi. Fundurinn var vel sóttur.
Nokkrir nýir félagar gengu í
NLFA og eru þeir nú á þriðja
hundrað.
Stjóm NLFA næsta starfsár er
þannig skipuð: Áslaug Kristjáns-
dóttir formaður, Dýrleif Jónsdóttir
varaformaður, Matthildur Egils-
dóttir ritari, ísak J. Guðmann
gjaldkeri, Haukur Berg Bergvins-
son, Kristbjörg Ásbjamardóttir og
Sigurður Ami Kristinsson með-
stjómendur.
í skýrslu formanns kom m.a.
fram að stjómarfundir voru 10 á
liðnu ári og félagsfundir 3, auk
þess einn kynningar- og fræðslu-
fundur í félagi við Gigtarfélagið á
Norðurlandi eystra.
Margar nefndir störfuðu á árinu
og voru þeim þökkuð giftudijúg
störf. Bingónefndin var umsvifa-
mest, hélt mörg bingó og eitt stór-
bingó á Hótel KEA. Flóamarkaður
var í gangi, kökusala á göngugöt-
unni á Akureyri og hinn árlegi
Kjamalundardagur síðsumars.
NLFA gaf í fýrsta sinn út síma-
skrá og það fyrir allt svæði 96.
Mest hefur þó mætt á bygging-
arnefnd. í henni eru Haukur Berg
Bergvinsson, Ágúst Jónsson og
Lýður Bogason. Nefndin hélt 15
bókaða fundi á árinu. Múrhúðun
í Kjamalundi er að mestu lokið
og eru nú til umfjöllunar þeir
áfangar sem fyrirhugað er að
vinna að í sumar.
Árgjald í NLFA er 300 krónur
en styrktarfélagar greiða helmingi
hærra gjald.
einhverjum milljónum króna,“
sagði Gísli Jónsson fram-
kvæmdastjóri Ferðaskrifstofu
Akureyrar í samtali við Morg-
unblaðið.
„Áberandi var að fólk. sem
Hjálmars, er líklega um að ræða
inflúensu af A-stofni. „Sjúkling-
amir geta fengið töluverðan hita,
beinverki, magaóþægindi, kvef og
hósta. Það er engin sérstök með-
ferð við þessu önnur en sú að fara
vel með sig. Fólk, sem tekur flens-
una í sig, er veikt í þetta fjóra til
fímm daga og mest er inflúensan
smitandi þegar fólk er að veikj-
ast,“ sagði Hjálmar.
Hann sagði að aðallega virtist
þetta leggjast á böm og unglinga,
en eldra fólk hefði verið sprautað
fyrir inflúensu fyrir áramótin og
ættu þær sprautur að vera í fullu
gildi ennþá.
hugðist fara á ráðstefnur og fundi
erlendis, afpantaði miða sína, auk
þess sem mikill samdráttur var í
svokölluðum helgarpökkum þar
sem tvö af stærstu hótelum bæjar-
ins, KEA og Varðborg, voru lok-
uð.“
Gísli sagðist hafa setið einn
á skrifstofunni í verkfallinu og
reynt að sinna eftir megni öllu því
sem upp hefði komið, en fímm
starfsmenn hans voru allir í verk-
falli. „Sumir viðskiptavina okkar
tóku þessu ástandi ákaflega vel,
en aðrir voru hundfúlir. Þá fannst
mér það skjóta nokkuð skökku við
að á meðan önnur ferðaskrifstofa
hér í bænum fékk að hafa skrif-
stofustjóra sinn í vinnu, var minn
skrifstofustjóri rekinn heim auk
tveggja annarra skrifstofustjóra
hjá næstu fyrirtækjum hér við
mig,“ sagði Gísli.
Hann sagðist vera þess fullviss
að þetta verkfall myndi hafa ein-
hver áhrif á ferðamannafjölda til
landsins í sumar. Slíkar uppákom-
ur spyrðust fljótt út. „Mér sýnast
bókanir hér ætla að verða færri
en undanfarin tvö ár. Hinsvegar
þori ég engu að spá um hversu
miklu þar munar."
HIN árlegu krúttmagakvöld
verða haldin í Sjallanum um
helgina, föstudags- og laugar-
dagskvöld. Fimm ár eru nú liðin
síðan fyrst var haldið slíkt kvöld
og vegna gífurlegrar þátttöku,
hafa krúttmagakvöld hlotið ár-
legan sess í skemmtanalifi
kvenna, ekki bara norðlenskra
þvi hópar alls staðar að af
landinu fjölmenna á þessar vin-
sælu skemmtanir.
Upphafskonur krúttmagakvölds-
ins voru þær Herdís Ingvadóttir og
Helga Ámadóttir, og ásamt þeim
starfar tíu kvenna skemmtinefnd
ár hvert. Nefndin semur öll
skemmtiatriði sjálf og að sögn
Herdísar er óspart gert grín af lífinu
og tilverunni. Ingimar Eydal hefur
fylgt konunum eftir frá byijun og
sér um hljóðfæraleik ásamt hljóm-
sveit sinni. „Við höfðum aldrei heyrt
að haldin væru konuskemmtikvöld,
að konur færu einar út að skemmta
sér. Hinsvegar eru karlaskemmti-
kvöld alvanaleg. Talið er sjálfsagt
að þeir til dæmis borði saman ýmist
f hadegi eða á kvöldin og skemmti
sér saman þess á milli. Okkur þótti
því tilhlýðilegt að vita hvaða við-
tökur þessi hugmynd okkar fengi á
meðal kvenna og kom þessi mikla
þátttaka okkur virkilega á óvart,"
sagði Hérdís.
Krúttmagakonur hafa einu sinni
haldið krúttmagakvöld á Broadway
í Reykjavík og ætla þær einnig
suður nú. Skemmt verður í lokuðum
klúbbi, Mánasal í Þórskaffí, þann
11. maí, en opið krúttmagakvöld
verður haldið þar 13. maí. A slíkum
kvöldum er boðið upp á hlaðborð
sjávarrétta. Því næst fer fram
skemmtidagskrá, sem stendur til
kl. 23.00 og það er ekki fyrr en
um miðnætti sem karlmennimir fá
inngöngu í gleðina.
Menntaskólanum gefnar
Æviskrár MA-stúdenta
Morgunblaðið/Rúnar Þor
Knútur Óskarsson, formaður útgáfustjómar Æviskráa MS-stúdenta afhendir Jóhanni Sigurjóns-
syn, skólameistara, fyrsta eintak fyrsta bindis. Gunnlaugur Haraldsson, ritstjóri, fylgist með.
FYRSTU eintök Æviskráa MA-
stúdenta vora formlega afhent
Jóhanni Sigurjónssyni skóla-
meistara í gærmorgun. Það
voru þeir Gunnlaugur Haralds-
son þjóðháttafræðingur og rit-
stjóri verksins og Knútur
Oskarsson í útgáfustjóra sem
afhentu bindið, en þeir eru á
meðal þeirra stúdenta MA sem
útskrifuðust frá skólanum árið
1973. Aðrir f útgáfustjóra eru
Málfriður Þórarinsdóttir,
Björgvin Þorsteinsson, Kristján
Pálmar Amarsson og Hulda
Ólafsdóttir.
Á tíu ára stúdentsafmæli ár-
gangsins, 1983, var ákveðið að
ráðast í þetta verk, en alls verða
bindin fímm. Þetta fyrsta bindi
inniheldur æviskrár fyrstu stúd-
enta skólans, frá 1927 til ársins
1944.
í tilefni af 10 ára stúdentsaf-
mæli sínu ákváðu stúdentar, út-
skrifaðir frá MA árið 1973 að
minnast skólans með því að annast
samantekt og útgáfu á æviskrám
allra MA-stúdenta á tímabilinu
1927-1973. Sú ákvörðun var kynnt
skólameistara, kennurum og gest-
um í Akureyrarkirkju þann 17. júní
1983 með afhendingu sérstaks
gjafabréfs, þar sem þessi fyrirheit
voru skjalfest. Jafnframt lögðu
stúdentar fram ákveðna fjárhæð
hver og einn í þar til gerðan stofn-
sjóð. Varðandi efnismeðferð var
mörkuð sú meginstefna að birta
ekki aðrar upplýsingar um einka-
hagi, en þær sem komu fram I
svörum og voru samþykktar af
stúdentum eða aðstandendum
þeirra. Til að auka sem mest ætt-
fræðilegt gildi ritsins var einnig
ákveðið að geta föður- og móður-
foreldra viðkomandi ásamt upplýs-
ingum um fseðingardag og -ár,
dánardag og -ár, starf þeirra og
búsetu. I allflestum tilvika kostaði
þetta tímafreka leit í prentuðum
og óprentuðum ættfræðiritum,
prestþjónustubókum, manntölum
og öðrum skjalagögnum, auk þeirr-
ar aðstoðar sem Hagstofa íslands
lét í té. Þá var þeirri meginreglu
fylgt um námsferil stúdenta að
miða einvörðungu við framhalds-
nám að loknu stúdentsprófi. Þeirri
meginviðmiðun var fylgt við rita-
skrá og ritastörf að geta fyrst og
fremst sjálfstæðra útgáfuverka og
starfa manna við ritstjóm og út-
gáfu hvers konar. Varðandi einstök
efnisatriði skal að lokum getið
þeirrar viðleitni að rekja saman
skyldleika og tengdir MA-stúdenta.
Vorið 1987 gekk útgáfustjóm
frá samningi við bókaútgáfuna
Steinholt I Reykjavík um útgáfu á
æviskránum. Án efa munu flestir
finna til þess hversu lífsferill norð-
anstúdenta er samofínn sögu MA
og mótaður af þeirri samhyggju
og vináttu, sem sjálfkrafa tengir
skólasystkin sterkum böndum á
langri samleið, segir Gunnlaugur
meðal annars. Má ætla að MA-
stúdentinn Kristján Eldjám hafi
mælt fyrir munn margra er hann
í formála að sögu skólans minntist
fyrstu samfunda með svofelldum
orðum: „Undarlegt er til þess að
hugsa, svo fersk er sú minning í
huga mér, þegar ég gekk við hlið
föður míns inn langa ganginn til
fyrsta fundar við skólameistara,
þar sem ég var honum og skóla
hans falinn til næstu fimm ára. í
móðu löngu liðinna daga er þessi
stund Ijóslifandi fyrir mér og við
hana tengdar tilfinningar af mörg-
um toga, svo að ekki er með öllu
auðvelt sundur að greina. Ætla
má að margur hafi svipaða sögu
að segja, því öll hljótum vér, sem
skólann sóttum, iðulega að hug-
leiða hversu mjög og á hvem hátt
það urðu oss örlagaspor sem vér
stigum, þegar vér gengum í fyrsta
sinn inn um skólans dyr.“
Skólameistari þakkaði þessa
góðu gjöf fyrir hönd skólans og
sagði jafnframt við tækifærið að
ýmsir hefðu efast um að af þessu
verki yrði. „Þessir nemendur vom
hálfpartinn siðustu geirfuglamir,
ef svo má að orði komast. Þeir
höfðu gengið í gegnum ýmsa um-
brotatíma á sviði skólamála á með-
an hippatímabilið var og hét eða
’68-kynslóðin svokallaða. En hitt
er þó staðreynd að gamlir nemend-
ur hafa alla tíð verið skólanum hlið-
hollir og sýnt honum einstaka
tryggð. Eldri árgangar hafa flykkst
hingað til okkar ár hvert þegar
útskrifað er, gefíð skólanum gjafir
og leitast við að koma eigin bömum
og bamabömum til náms hjá okk-
ur,“ sagði Jóhann.
Áskrifendur að bókinni á
Reykjavíkursvæðinu geta í þessari
viku nálgast bókina í forlaginu
Steinholti, Engjateigi 9, Verk-
fræðingahúsinu. Annars verður
hún send áskrifendum I póstkröfu.
Flensan komin norður:
Einkennist af hita, hósta,
kvefi, bein- og magaverkjum