Morgunblaðið - 05.05.1988, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 05.05.1988, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988 Aðalfundur Sam- taka sunnlenskra sveitarfélaga Kirkjuhíí'jarklaustri. AÐALFUNDUR Samtaka sunn- lenskra sveitarf élaga var haldinn að Kirkjubœjarklaustri dagana 15. og 16. aprll sl. Fundurinn var nyög fjölsóttur, fulltrúar komu frá öllum hreppum kjördæmis- ins, utan einum, enda kannski fuU ástæða tU því m.a. hafði ver- ið ákveðið að eitt af málefnum fundarins yrði hugmynd um stofnun samtaka sveitarfélaga utan höfuðborgarsvæðisins, auk þess sem svokallað gjaldheimtu- mál yrði rætt. Að venju hófst fundurinn á skýrslum stjórnar og hinna ýmsu „milliþinganefnda" auk reikninga samtakanna og fjárhagsáætlun. Þá voru ávörp gesta svo sem þing- manna kjördæmisins. Því næst kynnti Trausti Valsson hugmyndir sínar um veg yfír hálendið, vega- tengingu milli Suður- og Norður- lands, sem nokkuð hefur verið fjall- að um undanfarið sbr. þingsálykt- unartillögu sem liggur fyrir Al- þingi. Skýrði Trausti ítarlega þessa hugmynd og hugsanleg áhrif hen- anr á byggðaþróun. Styðst hann við það markmið að beina byggða- þróun framtíðarinnar inn á jarð- Morgunblaðið/Hanna Hjartardóttir Séð yfir fundarsalinn. í ræðustól er formaður atvinnumáíanefndar fundarins, Ómar Garðarsson, frá Vestmannaeyjum. Morgunblaðið/Hanna Hjartardóttir Valur Þórarinsson skýrir frá hugmyndum varðandi gjaldheimtur. hitasvæði landsins. Ávinningur að slíku yrði m.a. styttri vegalengdir milli landshluta. Gerði samgöngu- nefnd aðalfundarins síðan ályktun varðandi þetta mál, þar sem mælt er eindregið með framkominni þing- sályktunartillögu. Forstjóri Byggðastofnunar, Guð- mundur Malmquist, greindi frá tengslum stofnunarinnar við Suður- land og skýrði frá lánveitingum og annarri fyrirgreiðslu til svæðisins. Kom m.a. fram í máli hans að stofn- unin hefur ráðið mann í tímabundið starf við að gera könnun á helstu atvinnumöguleikum svæðisins ( kringum Kirkjubæjarklaustur. í tengslum við fundinn komu einnig starfsmenn Orkustofnunar og gerðu grein fyrir helstu athugun- um sem gerðar hafa verið á Suður- landi á síðasta ári, á vegum stofn- unarinnar. Þar var aðallega um 4 verkefni að ræða, þ.e.a.s. frumat- huganir á náttúrulegum forsendum fískeldis í V-Skaft., rannsókn á aðstæðum til sjótöku úr borholum í Flóa, rannsóknir vegna fiskeldis í uppsveitum Ámes- og Rangárvalla- sýslu og athuganir á jarðhita í Ölf- usi og Grafningi, með tilliti til físk- eldis. Þá skýrðu þeir einnig frá væntanlegum athugunum á þessu ári, og störfuðu með orkunefnd aðalfundarins. Nefndir störfuðu síðan á föstu- dagskvöld og fyrir hádegi á laugar- dag. Þá var mættur á fundinn Val- ur Þórarinsson frá Neskaupstað, sem skýrði fundarmönnum frá ýmsu því sem komið hefur fram varðandi hugmyndir manna um gjaldheimtur skv. nýjum reglum vegna staðgreiðslu, þar sem gert er ráð fyrir sameiginlegum gjald- heimtum ríkis og sveitarfélaga. Komu þama fram mjög nákvæmar upplýsingar sem ekki hafa hingað til legið fyrir og í framhaldi af því var sfðan samþykkt ályktun þar sem fundurinn leggur til að sveitar- félög á Suðurlandi stofni Gjald- heimtu Suðurlands og kjósi einn fulltrúa hvert í fulltrúaráð gjald- heimtunnar. Sé fulltrúaráðinu falið að ganga frá stofnsamningi gjald- heimtunnar, þar á meðal að kjósa tvo menn í stjóm hennar og velja henni stað. Gert er ráð fyrir að kalla ráð þetta saman innan 30 daga. Þá urðu að sjálfsögðu miklar umræður um áðumefnd mál fund- arins, þ.e.a.s. hugmyndina að stofn- un sambands sveitarfélaga utan höfuðborgarsvæðisins. Mætti til fundarins Sigurgeir Sigurðsson, formaður Sambands íslenskra sveit- arfélaga og mælti gegn slíkum hug- myndum, taldi hann að slíkt mundi aðeins veikja stöðu sveitarfélaga í því sem hann nefndi baráttu við ríkisvaldið. Komu fram mjög skipt- ar skoðanir enda hafði stjómin lagt fyrir fundinn tillögu um myndun slíks sambands. Samþykkt fundar- ins um þetta mál var síðan á þann veg að lýst var þungum áhyggjum vegna þeirrar byggðarröskunar sem orðin er og jafnframt veikri stöðu landsbyggðarinnar. Voru stjómvöld hvött til að gera ráðstafanir til að stöðva þessa þróun í samvinnu við sveitarfélög. Jafnframt var krafíst aðgerða af hálfu stjómvalda og fól fundurinn stjóm SASS að fylgja Morgunblaðið/Hanna Hjartardóttir Steingrímur Yngvarsson greinir frá ályktunum samgöngumála- nefndar aðalfundarins. Viltu: VÍSA GÆÐI ENDINGU OG ÖRYGGI Hjólbarðar fyrir allar tegundir bíla. Góðir hjólbarðar á réttu verði. Greiðslukjör; VISA - EURO afborganir t.d. ekkert út og hitt á 4 mánuðum. (Eitt dekk á mánuði?) JOFUR HF Nýbýlavegi 2. Simi 42600 Hjólbarðadeild opin 9—6 virka daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.