Morgunblaðið - 05.05.1988, Blaðsíða 64
WRIGLEY’S
SYKURLAUSX,
JWtrjpitiMiiWð*
upplýsingar
m
um vörur og
þjónustu.
FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
Óvenju mikið
um fæðingar:
Sængurkonur
sendar heim
á fjórða degi
FÆÐINGAR hér á landi hafa verið
með mesta móti það sem af er þessu
ári. Einkum hefur þetta verið áber-
andi nú síðustu vikumar og að sögn
Guðmundar Steinssonar læknis á
fæðingadeild Landspítalans hefur
orðið að grípa til þess ráðs að senda
sængurkonur heim á flórða degi eft-
ir fæðingu.
Undir venjulegum kringumstæð-
um fá þær viku til að jafna sig á
fæðingadeildum eftir bamsburð.
Fiskveiðasjóður:
Smíði 4
fiskiskipa
í Portúgal
samþykkt
"fISKVEIÐASJÓÐUR hefur sam-
þykkt lánveitingu til smíði á fjór-
um 150-180 tonna fiskiskipum í
Portúgal samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Kaupendur skip-
anna eru þijú útgerðarfyrirtæki
á Höfn i Homafirði og eitt f
Hrísey. Hér er um svonefnd fjöl-
veiðiskip að ræða en hönnunina
annaðist ráðgjafafyrirtækið Ráð-
garður. Samningsverð hvers
skips er 238.600.000 escudos sem
samsvarar um 68 miHjónum
króna.
Þorsteinn Broddason, hjá Nidana
sem er umboðsaðili skipasmíðastöðv-
arinnar í Portúgal, sagði í samtali
við Morgunblaðið að upphaflega
hefði verið samið um smíði skipanna
20. desember sl. en sámningurinn
síðan endurskoðaður í mars. Sá
samningur hafí verið endanlega
samþykktur í síðustu viku. Sagði
Þorsteinn að skipin væru frambyggð
með skutrennu og búin mjög öflug-
um veiðibúnaði. Þau væru búin
tveimur 16 tonna togspilum á milli-
dekki og 4 grandaraspilum. í þremur
þeirra væri 900 hestafla Deutz-vél
um en í einum yrði 900 hestafla
Stork-vél. Lengdin væri tæplega 26
metrar, breidd tæpir 8 metrar og
dýpt að aðaldekki 3,80 metrar. Þá.
væru skipin einangruð fyrir fryst-'
ingu um borð og miðaðist búnaður
við að hún yrði tekin upp.
—4 Sjá nánar viðskiptablað Bl.
Morgunblaðið/Bjöm BJöndal
LEIGUHLERISETTUR Á SINNSTAÐ
Flugvirkjar Flugleiða unnu að því fram eftir nóttu að koma á
sinn stað hlera við hjólabúnað Boeing 727 vélar félagsins, sem
missti sams konar hlera í lendingu við London s.l. mánudag.
Þessi hleri var leigður hjá bandaríska flugfélaginu Delta. Hlerinn
sem datt verður gerður upp og settur á sinn stað að lokinni
viðgerð. Sjá nánar bls. 2
Þrettán félög verslunarmanna:
Verkföllum aflýst eftir
samþykkt nýrra samninga
NÝIR samningar við verslunar-
menn voru undirritaðir og sam-
þykktir í gær af öllum þeim
þrettán félögum sem enn voru í
verkfalli, og verkföllum rúmlega
4000 verslunarmanna hefur ver-
ið aflýst í kjölfarið. Nýju samn-
ingarnir eru á svipuðum nótum
og miðlunartillaga rikissátta-
’semjara, sem felldir voru í félög-
unum á laugardaginn, en gera
ráð fyrir 350 króna hærri launa-
uppbót á mánuði og 5000 króna
greiðslu í júní. Þá gilda þeir
skemur en miðlunartillagan, eða
til 20. febrúar á næsta ári í stað
10. apríl.
Ákveðið var að bera hina nýju
samninga upp samdægurs í öllum
félögunum til að draga verkföllin
ekki lengur en nauðsyn bæri til.
Samningarnir voru samþykktir með
miklum meirihluta atkvæða alls
staðar. Hjá Verslunarmannafélagi
Suðumesja voru þeir samþykktir
Sjóefnavinnslan hf. á Reykjanesi:
Lyfjafyrirtækin Delta og
Pharmaco gera tilboð
Grindavik.
Gríndavik.
STJÓRN Sjóefnavinnslunnar hf.
t^fur borist 45 mil^jóna króna
tilboð í allar eigur fyrirtækisins,
að orkuverinu undanskildu, frá
lyfjaframleiðslufyrírtækjunum
Pharmaco hf. og Delta hf. t til-
boðinu gera þau ráð fyrir að fá
alla orku án endurgjalds í 15 ár.
í tilboði lyfjaframleiðslufyrir-
tækjanna gera þau ráð fyrir að
greiða tilboðsupphæðina á 15 árum
án vaxta en með verðbótum. Að
auki eru skilyrði í tilboðinu sem
snúa að hitaveitu Suðumesja, m.a.
að fá orkuna frá henni endurgjalds-
laust í 15 ár ef af kaupunum verð-
ur. Stjóm Sjóefnavinnslunnar hf.
hefur vfsað tilboðinu til stjómar
hitaveitunnar til umsagnar áður en
frekari viðræður fara fram við
Pharmaco hf. og Delta hf.
„Miðað við verðlag á orku nú er
hér um að ræða um 30 milljónir
króna á ári,“ sagði Jón Gunnar
Stefánssson, stjómarformaður Sjó-
efnavinnslunnar hf., í samtali við
Morgunblaðið. Lyfjafyrirtækin tvö
hafa verið í samstarfí við Sjóefna-
vinnsluna hf. undanfarin ár um
framleiðslu og markaðssetningu á
kísl og tilraunir þeirra með áburð
gegn unglingabólum hafa borið
góðan árangur enn sem komið er.
Kr. Ben.
með 179 atkvæðum gegn 54, hjá
Félagi verslunar- og skrifstofufólks
á Akureyri 220-81, hjá Verslunar-
mannafélagi Hafnarflarðar 169-26,
í Ámessýslu 151-36, á Sauðárkróki
42-24, í Vestmannaeyjum 20-5, á
ísafírði 58-8, á Akranesi 31-15, á
Húsavík 62-13, í Borgamesi 64-0,
í Bolungarvík 26-12 og á Siglufirði
22-1.
Viðmælendur Morgunblaðsins
voru sammála um það að þessi
fjórða og síðasta lota samningavið-
ræðna verslunarmanna hefði geng-
ið fljótt og vel fyrir sig, ekki síst
vegna þess að viðsemjendur hafi
ákveðið að beita ekki hörðum að-
gerðum á meðan á viðræðunum
stóð. Steini Þorvaldsson; formaður
Verslunarmannafélags Amessýslu,
sagði að samningurinn væri viðun-
andi áfangasigur fyrir verslunar-
menn, og Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, sagði að
eins og málin hefðu þróast hefði
friðurinn verið keyptur réttu verði.
Við undirritun samninganna
sagði Guðlaugur Þorvaldsson, ríkis-
sáttasemjari, að deilan hefði verið
óvenju erfið og hörð á köflum. Leó
Kolbeinsson, formaður Verslunar-
mannafélags Borgamess, sagði að
líklega þyrfti að leita aftur til ársins
1963 til að fínna jafnlangvinna og
harða deilu verslunarmanna.
Sjá ennfremur fréttir og viðtöl
á miðopnu.
Hækkar
bensín-
lítrinn í
33,80 kr.?
OLÍUFÉLÖGIN hafa lagt inn
til Verðlagsstofnunar ósk um
6% hækkun á útsöluverði á
bensfni. Verði beiðni félag-
anna samþykkt hækkar
bensínlítrínn um 1,90 kr., úr
31,90 f 33,80 kr.
Olíufélögin fá nú eingöngu
blýlaust bensín frá Sovétríkjun-
um og stafar helmingur hækk-
unarinnar af því en hinn helm-
ingurinn er vegna hækkunar á
bensínverði á heimsmarkaði. Þó
bensínlítrinn fari í 33,80 kr.
verður hann enn 1,20 kr. lægri
en þegar bensínverðið var sem
hæst, þ.e. í árslok 1985 þegar
lítrinn kostaði 35 krónur.
Olíufélögin hafa ekki sótt um
hækkun á verði á gasolíu eða
svartolíu. Búist er við að verð-
lagsráð taki beiðni olfufélag-
anna fyrir á fundi í næstu viku.