Morgunblaðið - 05.05.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988
31
Sovétríkin:
Steypa afturhaldsöfl-
in Gorbatsjov af stóli?
Menntamenn ræða opinberlega
hugsanlegt fall Sovétleiðtogans
Moskvu, Reuter.
SO VÉSKIR menntamenn deila nú
opinberlega um hvort Míkhaíl
Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkj-
anna, eigi á hættu að verða svipt-
ur völdum.
Sovéska dagblaðið Sovetskaja
Kultura birti á þriðjudag samtal,
þar sem tveir menntamenn reyna
að sannfæra ónafngreindan „efa-
semdamann" um að Gorbatsjov
muni halda velli. í sama blaði hafði
um helgina birst bréf þar sem gefið
er til kynna að Gorbatsjov eigi und-
ir högg að sækja vegna þess að
íhaldsöfl innan kommúnistaflokks-
ins séu farin að þrengja að honum.
í bréfinu er einnig lýst yfir að sá
möguleiki sé fyrir hendi að Gor-
batsjav verði steypt af stóli.
„Þeir sem eru reiðubúnir að beij-
ast fyrir perestrojku eru enn í minni-
hluta meiðal almennings," segir efa-
semdamaðurinn í samtalinu i Sov-
etskaja Kultura. „Og ef það er tilfel-
lið er sú hætta enn fyrir hendi að
atburðimir árið 1964 og næstu ár
endirtaki sig. Sagan sýnir að umbót-
um sem mistakast fylgja ávallt
gagnumbætur," svarar annar
menntamannanna. Hann vísar hér
til þess er Níkíta Khrústsjov var
sviptur vöidum árið 1964 á alls-
heijarfundi miðstjómar sovéska
kommúnistaflokksins. Eftirmanni
hans, Leoníd Brezhnev, er nú kennt
um efnahagslega hnignun Sov-
étríkjanna. —
„Hér komum við að erfiðustu
spumingunum," svarar heimspeki-
prófessorinn Júri Levada efasemda-
manninum ennfremur. „Em leið-
togar perestrojku nógu staðfastir til
að halda áfram umbótatilraununum
af sömu djörfung og þeir hófu þær?
Bera ósigranleg öfl þá ekki ofur-
liði?“ Hann veltir þvi ennfremur
fyrir sér hvemig fá megi fjöldann
til að taka virkan þátt í umbótatil-
Móðír Ferdinands Marcosar látin:
Marcos bannað að
koma í útf örina
Manila, Reuter.
CORAZON Aquino, forseti
Filippseyja, bannaði í gær Ferd-
inand Marcos, fyrrum einræðis-
herra Filippseyja, að snúa aftur
til Manila til að vera viðstaddur
útför móður sinnar, sem lést í
gær, 95 ára að aldri. Josefa
Edralin Marcos, hafði daginn
áður en hún lést ritað Aquino
bréf þar sem hún bað um að
syni sínum yrði leyft að snúa
heim. Ferdinand Marcos sagðist
ætla að reyna allt sem hann
gæti til að komast í útförina.
í bréfi sínu bað Josefa Marcos
forsetann um að fá að sjá son sinn
við hlið sér áður en hún yfirgæfi
þennan heim. Hún var lögð inn á
sjúkrahús á sunnudag vegna
lungnasýkingar, hita og sykursýki
og lést í gær.
Aquino sagði nokkmm klukku-
stundum eftir að Josefa Marcos
lést að tilfinningar þyrftu að víkja
fyrir þjóðaröryggi og gaf í skyn
að heimkoma Marcosar gæti valdið
pólitískri spennu í landinu. Hún
hefur áður tengt hann við áform
um valdarán í landinu.
í yfirlýsingu Marcosar, sem tals-
maður hans í Manila, Lito Go-
rospe, gaf út, segir að útlaginn
ætli að reyna allt sem hann geti
til komast til Filippseyja. Marcos
minnist þar ekki á yfirlýsingu Aqu-
inos.
Stjómarandstæðingar og skyld-
menni Marcosar hafa hvatt Aquino
til að leyfa honum að koma heim
Reuter
Josefa Edralin Marcos, móðir
Ferdinands Marcosar, fyrrum
einræðisherra Filippseyja, lést
í gær, 95 ára að aldri. Corazon
Aquino, forseti Filippseyja,
hefur bannað syni hennar að
vera viðstaddur útförina. Á
myndinni er Josefa Marcos áð
halda upp á afmæli sonar síns
í september árið 1986.
af mannúðarástæðum og þegar
Aquino hafnaði því kallaði lög-
fraeðingur Marcosar, Rafael Recto,
filippeysku stjómina „nýskræl-
ingja." Hann sagði að fjöldi stuðn-
ingsmanna Marcosar hefðu haft
samband við sig og sagt að ákvörð-
un Aquinos gæti leitt til mikilla
götumótmæla. „Þessi ákvörðun
ríður i bága við þá filippeysku
hefð sem skyldar okkur að greftra
foreldra okkar, jafnvel þótt við
þyrftum að koma frá tunglinu,"
sagði lögfræðingur Marcosar.
Óaló, frá Rune Timberlid fréttaritara Morgunblaðsina.
raununum.
Hagfræðingurinn Viktor Shejnís
segir að íhaldsöfiin hafi ekki upp á
neinn valkost að bjóða og það dragi
úr hættunni á að atburðimir árið
1964 endurtaki sig. Hann segir
einnig að almenningur í Sovétríkj-
unum hafi ekki orðið var við neinar
breytingar I daglega lífínu og sé
orðinn þreyttur á að hlusta á um-
bótaslagorð. Sheinís segir að mat-
væli og vörur séu enn af skomum
skammti og að grípa þurfí til
skyndiaðgerða til að koma í veg
fyrir kreppu sem íhaldsöflin gætu
annars hagnýtt sér.
Svíþjóð:
Kaupsýslu-
menn vilja
ganga í EB
Stokkhólmi. Reuter.
NÍUTÍU og einn af hveiju hundr-
aði sænskra kaupsýslumanna
vilja að Svíar gangi i Evrópu-
bandalagið, samkvæmt skoðana-
könnun, sem birtist í gær í hinu
áhrifamikla viðskiptablaði Dag-
ens Industri, sem gefið er út
daglega.
I könnuninni vora annaðhvort
syómarformaður eða forstjóri eitt-
þúsund fyrirtækja, sem öll hafa
yfir 200 starfsmenn, spurðir hvort
þeir væra hlynntir aðild Svía að
Evrópubandalaginu (EB).
Að sögn blaðsins verða niður-
stöður könnunarinnar vopn í hönd-
um samtaka sænskra iðnrekenda,
sem barist hafa fyrir því að Svíar
sæki um aðild að EB.
Yfirvöld í Svíþjóð hafa haldið því
fram að aðild að bandalaginu sam-
ræmdist ekki stjómarskrá landsins
og ströngum ákvæðum hennar um
að Svíþjóð skuli vera hlutlaust og
óháð ríki. Leiðtogar sænsku sljóm-
ar- og stjómarandstöðuflokkanna
hafa þó allir hvatt til þess að Svíar
fái aðild að innri markaði EB, sem
kemur til framkvæmda árið 1992.
í skoðanakönnun, sem gerð var
sl. haust meðal almennings, studdu
38% Svía aðild að EB, 25% vora
andvígir aðild og 37% sögðust óá-
kveðnir.
Noregur:
Þrír hermenn láta
lífið í sprengingu
ÞRÍR 19 ára gamlir norskir her-
menn létust samstundis þegar
sprengjuvarpa sprakk á heræf-
ingu á mánudagskvöld. Óhappið
varð með þeim hætti að sprengj-
an sprakk inni í hlaupi sprengju-
vörpunnar áður en hleypt hafði
verið af henni.
Hermennimir þrír sem létust
vora á heræfingum við Sandey
Fort í grennd við Tromse þegar
óhappið varð. Þeir vora allir nem-
endur í foringjaskóla norska hers-
ins.
Sprengjuvarpan, sem var notuð,
er þýsk en sprengjur í vörpuna era
framleiddar í Noregi. Bann hefur
lagt við notkun á þessum vopnum
þar til rannsókn á slysinu hefur
farið fram. Átta norskir hermenn
hafa látið lífíð í slysum við meðferð
sprengjuvörpu frá því árið 1945.
SIEMENS
LADY PLUS 45
45 sm breið
uppþvottavél
Hljóðlát og vandvirk.
Með 6 þvottakerfum.
Með vatnsöryggisloka.
Hentar vel þar sem fáir eru í
heimili eða þrengsli mikil í
eldhúsi.
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Taylor ísvélar
li
Hagstætt verð.
Gód kjör.
Eiríkur Ketilsson
Heildverslun, Vatnsstíg 3.
Símar: 23472, 25234, 19155.
Tekur þú
Geymir þú mikilvæg gögn i tölvunni þinni?
Hvað ef þau tapast og margra daga, vikna eða
jafnvel mánaða vinna fer forgörðum?
Turbo Backup afritunarforritið leysir vandann!
MTÆKNIVAL
Grensásvegi 7, 108 Reykjavlk, Box 8294, S: 681665 og 666064
" i .............m.....'.. ~
hSnM
HELGARTILBOÐ
2 NÆTUR fey,Kar
Frí gisting fyrir börn innan 12
ára í herbergi hjá forráðamönnum.
Frítt á dansleiki.
Frítt á kvikmyndasýningar.
Frí ferð til og frá Egilsstaðaflugvelli.
HOTEL
VALASKJALF
EGILSSTÖÐUM s 97-11500