Morgunblaðið - 05.05.1988, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Séð yfir fundargesti í fundarsal hins nýja húsnæðis sjálfstæðismanna á Blönduósi.
Blönduós:
Sjálfstæðishúsið
tekið í notkun
Blönduósi.
Sjálfstæðisfólk í Austur-Húna-
vatnssýslu hefur eignast glæsi-
lega félagsaðstöðu á Húnabraut
13 á Blönduósi. Þetta húsnæði var
formlega tekið i notkun sl. Iaugar-
dag að viðstöddum gestum. Þor-
steinn Pálsson forsætisráðherra
var meðal gesta við opnunina.
Óskar Húnfjörð er formaður
stjómar Sjálfstæðishússins og hefur
hann verið aðal driffjöðrin í að koma
þessu húsnæði í endanlegt form.
Margir hafa lagt hönd á plóginn til
að gera þetta að veruleika.
Á opnunarhátíðinni voru flutt
mörg ávörp og bárust Sjálfstæðis-
húsinu á Blönduósi margar gjafir
og ámaðaróskir.
Sú hugmynd að eignast húsnæði
fyrir flokksstarfið er ekki nema árs-
gömul og sl. vor var stofnað hlutafé-
lag um húsakaup. í sumar keyptu
sjálfstæðismenn í Húnavatnssýslu
síðan hluta af efri hæð Húnabrautar
13 á Blönduósi eins og fyrr er getið.
í vetur hafa sjálfboðaliðar unnið að
frágangi húseignarinnar og var hús-
næðið formlega tekið í notkun 23.
T5>Lbamalka()utinn
í'tn11-
U.S.A.
<§-ta.ttisgötu 12-18
Förum til U.S.A. næstu daga. Önnumst milligöngu
á bílakaupum. Lægsta fáanlegt verð.
Upplýsingar í síma 25252 milli kl. 17-19.
Ath.: Opnum í nýju húsnæði bráðlega.
FASTEIGNAMIDLUN
SÍMI25722_
(4línur) ff
FYRIRTÆKI
BLÓMA- OG GJAFAVÖRUVERSLUN í glæsil. eigin hús-
næðií Austurborginni. Þekkt verslun. Vel staðsett.
BLÓMA- OG GJAFAVÖRUVERSLUN í verslunarmiöstöö.
Ýmis skipti mögul. Góö kjör.
SÖLUTURN MEÐ NÝLENDUVÖRUR staösettur á Stór-
Reykjavíkursvæöinu. Rótgróin verslun. Góð velta.
SOLBAÐSSTOFA f glæsil. húsnæöi. Allt ný tæki. Góö greiðslukjör.
TÍSKU- OG SNYRTIVÖRUVERSLUN í miöborginni. Smásala.
Heildsala.
SNYRTIVÖRUVERSLUN í verslunarmiöstöð I Vesturbæ.
SPORTVÖRUVERSLUN I verslmiöstöö. Rótgróiö fyrirtæki.
BARNAFATAVERSLUN í miðborginni. Góö kjör. Akv. sala.
TÍSKUVÖRUVERSLUN á Laugavegi. Nýtt húsnæði.
DAGSÖLUTURN í Austurborginni í nýju húsn. Gott verö.
SÖLUTURNAR víösvegar um borgina. Mjög hagstæö greiöslukjör.
EFNAVÖRUFYRIRTÆKI í matvælaiönaöi.
BÓKA- OG RITFANGAVERSLUN i verslunarmiöstöð í Austur-
borginni.
MATVÖRUVERSLUN i Vesturborginni. Velta 5 millj. á mánuöi.
PYLSUVAGN viö skemmtistaö. Góð velta.
MATSÖLUVAGN vel staösettur. Góö kjör.
SKEMMTISTAÐUR vel þekktur. I góöu húsnæði. Ýmis eignaskipti
koma til greina. Góð kjör. Frábært tækifæri.
Óskar Mikaelsson löggiltur fasteignasali.
POSTHUSSTRÆTI 17
i
Morgunblaöiö/Jón Sigurðsson
Þorsteinn Pálsson forsætísráð-
herra.
apríl. Húsnæði það sem hér um
raeðir er um 130 fermetrar og rúmar
ágætlega um sextíu manns í sæti.
Jón Sig
a
Hamraborg - 2ja
Mjög fallegar íb. á 3. og 5. hæð
ásamt bílskýli.
Furugrund - 3ja
Falleg 87 fm íb. á 3. hæð. V.
4,4 m.
Hamraborg - 3ja
Snotur 85 fm ib. á 3. hæð (efstu).
Suðursv. Bílskýli. V. 3,9 m.
Fífusel - 4ra
Falleg 114 fm íb. á 2. hæð
ásamt 12 fm aukaherb. í kj.
Bílskýli. V. 5,4 m.
Álfaskeið - 5 herb.
Falleg 125 fm endaíb. á 2.
hæð. 25 fm bílsk. Ákv. sala.
Daltún - parhús
Fallegt nýl. ca 280 fm hús
á þremur hæðum. Mögul.
á séríb. í kj. Garöskáli. 30
fm bílsk.
KjörBýli
FASTEIGNASALA
Nýbýlavegi 14, 3. hæð
Rafn H. Skúlason lögfr.
T-Iöfðar til
XXfólks í öllum
starfsgreinum!
HATUNI 6A SlMI (91)24420
ASEA Cylinda
þvottavélar*sænskar og sérstakar
Fá hæstu neytendaeinkunnir fyrir þvott, skolun,
vindingu, taumeðferð og orkusparnað. Efnis-
gæði og öryggi einkenna ASEA. Þú færð ekki
betri vélar!
3ÍS. iFDniX
Burtfararprófstónleik-
ar í Tónlistarskólanum
TÓNLISTARSKÓLINN
Reylyavík heldur burtfarar-
prófstónleika föstudaginn 6.
maf kl. 18 í sal skólans, Skip-
holtí 33.
Kristín Guðmundsdóttir flautu-
leikari flytur verk eftir M. Giul-
iani, Atla Heimi Sveinsson, J.
Ibert, J.L. Tulou og Hindemith.
Catherine Williams ieikur með á
píanó og Þorvaldur B. Þorvaids-
son á gítar.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og öllum heimill.
(Fréttatilkynning)
Kristín Guðmundsdóttir flautu-
leikari.
Fug'Iaskoðunarferð
F erðafélagsins
FERÐAFÉLAG íslands efnir til Brottfor er frá Umferðarmiðstöð-
fuglaskoðunarferðar á Suðurnes
laugardaginn 7. mai nk. Allt frá
árinu 1967 hefur Ferðafélagið
skipulagt fuglaskoðunarferðir og
í Uós hefur komið að fuglaskoðun
er tómstundagaman sem stór hóp-
ur fólks hefur áhuga á.
Farfuglamir eru flestir komnir (
byijun maí og þá er rétti tíminn fyr-
ir svona ferðir. Merkileg heimilda-
skrá hefur þróast í fuglaskoðunar-
ferðum Ferðafélagsins, en allt frá
árinu 1970 hafa þátttakendur skráð
þær fuglategundir sem sést hafa í
ferðunum og borið saman hvaða
fuglar sjást frá ári til árs. Þessi skrá
er afhent hveijum og einum í upp-
hafi ferðar.
í þessum ferðum hafa oft sést
sgaldséðir fuglar sem flækst hafa
hingað til lands með farfuglunum
eins og t.d. sást skeggþema.
inni, austanmegin, kl. 10 árdegis.
Fyrst verður ekið út á Álftanes og
skyggnst eftir margæs, en nú á hún
að vera á leið sinni til varpstöðvanna
sem em á Grænlandi. Ekið verður
um HafnarQörð og síðan sem leið
liggur út á Garðskaga og til Sand-
gerðis, en á þessum slóðum sjást
allflestir vaðfuglar. Þá verður haldið
út á Hafnaberg sem er aðgengileg-
asta fuglabjarg fyrir íbúa höfuð-
borgarsvæðisins. Vert er að vekja
athygli á því að í Hafnabergi má sjá
allar bjargfuglategundir landsins, að
haftyrðlingnum undanskildum, en
hann er aðeins að finna í Grímsey.
Þátttakendum er ráðlagt að hafa
með sér sjónauka og fuglabók AB.
Fararstjórar em sérfræðingar í fugl-
alífi og svara þeir greiðlega spum-
ingum forvitinna áhugamanna um
fugla. (Fróttatilkynning)
Hjónin á Gauksstöðum, þau Helga Þorsteinsdóttir og Jóhannes Jóns-
son.
Gjafir til minningar
um hjónin á Gauks-
stöðum í Garði
í TILEFNI aldarafmælis Jóhann-
esar Jónssonar, útvegsbónda á
Gauksstöðum f Garði, hinn 4.
apríl 1988, minntust börn hans
og konu hans, Helgu Þorsteins-
dóttur, þeirra hjóna með veg-
legri peningagjttf til kvenna-
deildar SVFI og Bjðrgunarsveit-
arinnar Ægis. Gjöfin var afhent
formttnnum þessara deilda á
Menningarviku I Garði hinn 16.
aprfl sl.
Þeim hjónum, Helgu og Jóhann-
esi, varð 14 bama auðið, 7 sona og
7 dætra og eru 9 þeirra enn á lífi.
Það gefur augaleið, að það hefur
verið á brattann að sækja að koma
svo stórum hópi til manns, en það
tókst þeim hjónum ágæta vel, enda
dugnaði þeirra og samheldni við-
bmgðið. Boðorð þessa tíma var þá,
sem endranær, að allir legðu hönd
á plóginn og strax í æsku tóku
bömin til hendinni, jafnt innan sem
utan heimilisins.
Jóhannes sótti sjóinn af kappi en
Helga var f forsvari í landi og verk-
aði aflann ásamt bömum sfnum.
Saltfiskframleiðslan á Gauksstöð-
um hafði orð á sér fyrir gæði og
að jafnaði verkaði þessi fjölskylda
500 til 600 skippund árlega á þess-
um árum. Auk fískverkunarinnar
önnuðust Helga og bömin rekstur
búsins, sem taldi eina 14 gripi f
ijósi.
Reisn og snyrtimennska sat í
fyrirrúmi hjá þeim hjónum á Gauks-
stöðum og þau létu til sfn taka í
öllum málum, sem til velferðar
máttu verða í byggðarlaginu. Þau
voru t.d. aðalhvatamenn í björgun-
armálum í Garði og víðar á Suður-
nesjum. Helga varð fyrsti formaður
kvennadeildar SVFÍ f Garði sem
stofnuð var 10. mars 1934 og Jó-
hannes fyrsti formaður Björgunar-
sveitarinnar Ægis, sem stofhuð var
ári síðar.
(Frúttatilkynning)