Morgunblaðið - 05.05.1988, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988
Minnisblað vegna skattbyrði og
athugasemdar fjármálaráðherra
Þorgeir Ólason við eitt verka sinna.
Morgunblaðið/Sveinn Markússon
Myndlistarsýn-
ing í Jónshúsi
Jónshúai, Kaupmannahöfn.
Athyglisverð málverkasýning
var opnuð í félagsheimilinu í
Jónshúsi 22. april sl. Þar sýnir
kornungur málari, Þorgeir Óla-
son, 17 olíumálverk og eru mynd-
imar frumraun hans á listasvið-
inu.
Þorgeir Ólason fæddist í Hafnar-
fírði 1967 og notaði unglingsárin
ekki til náms, heldur var sjómaður
á netabátum og togurum. Hann
hætti á sjónum vegna fótbrots í
fyrra, þá tvítugur. Kom hann til
Danmerkur í haust og varð nem-
andi á Thorstedlund Kunsthöjskole
í Frederikssund á haustönn. Þar
efldist áhugi hans á teiknun og
málun svo að síðan um jól hefur
hann málað m.a. mjmdimar á sýn-
ingunni hér og stefhir nú í listnám
og sækir um nám á myndlistabraut
eða í auglýsingateiknun.
Viðfangsefni Þorgeirs eru ijöl-
breytt og litimir sterkir, drátthagur
er hann í besta lagi og bera mál-
verkin góð íslensk nöfn.
Sýning Þorgeirs Ólasonar mun
standa til 27. maí. _ G.L.Ásg.
eftir Vilhjálm
Egilsson
Verslunarráð íslands sendi frá
sér upplýsingar um skattbyrði í
hlutfalli af landsframleiðslu í
tengslum við athugasemdir við virð-
isaukaskattsfrumvarp ríkisstjóm-
arinnar.
Eftirfarandi tafla var birt yfír
skattbyrði af sköttum til ríkissjóðs
í hlutfalli af landsframleiðslu:
% af VLF
1983 22,0%
1984 22,5%
1985 21,7%
1986 22,0%
1987 22,4%
1988 24,7% áætl.
Áætlun Verslunarráðsins um
skattbyrði á árinu 1988 byggðist á
forsendum um skattheimtu, verðlag
og þjóðarframleiðslu sem lágu fyrir
á lokastigi fjárlagagerðarinnar fýrir
sl. áramót og vanmetur skattbyrð-
ina frekar en hitt þar sem ekki er
t.d. tekið tillit til skattahækkana
við efnahagsráðstafanir í febrúar.
Þrátt fyrir þessa of varfæmu
áætlun Verslunarráðsins er þyng-
ing á skattbyrðina frekar en hitt
þar sem ekki er t.d. tekið tillit til
skattahækkana við efnahagsráð-
stafanir í febrúar.
Fjármálaráðherra fullyrðir hins
ftl9'
r
bömin
—~“eru búnir 7
Við erum að innrita 7-12 ára börn til viku og hálfs mánaðar dvalar hjá
' okkur í sumar.
Reiðnámskeið, íþróttir, leikir, sveitastörf, siglingar, ferðalög, sund,
kvöldvökur og fleira.
Verð: Vikunámskeið kr. 9750.- Hálfsmánaðarnámskeið kr. 19500.-
(systkinaafsláttur).
Tímabil
23. maí - 28. maí. Vikunámskeið
29. maí - 3. júní
5. júní - 17. júní Hálfsmánaðarnámskeið
19. júní - 1. júlí
3. júlí - 15. júlí —
17. júlí - 29. júlí
1. ágúst - 13. ágúst —
14. ágúst - 26. ágúst
,T' i *t *
Innritun fer fram á skrifstofu SH Verktaka Stapahrauni 4, Hafnarfirði, sími 652221.
Missið ekki af plássi í sumar!
öfónmÚi
Sumardvalarheimilið Kjarnholtum Biskupstungum.
vegar að hér sé skakkt reiknað og
fær sjálfur út að skattbyrði verði
24,2% á þessu ári. Þessa tölu fær
ráðherrann væntanlega út með því
að taka niðurstöðutölu fjárlaga um
skatttekjur og bæta við skatta-
hækkunum við efmahagsráðstafan-
ir og deila síðan í allt saman með
nýjustu landsframleiðslutölu Þjóð-
hagsstofnunar.
En hér fípast fjármálaráðherra í
reikningslistinni. Þegar fjárlög voru
samþykkt fyrir sl. áramót lifðu
stjómvöld enn opinberlega í þeim
draumaheimi að verðbólga á árinu
1988 yrði í eins stafs tölu og allar
tölur í fjárlögum eru byggðar á
þeirri forsendu. Eins og almenning-
ur veit hækka skattgreiðslur nokk-
uð í takt við verðlag og tekjur,
ekki síst þegar staðgreiðslan er tek-
in gild. Reyndar er líka útlistun á
því að skatttekjur ríkissjóðs muni
hækka vegna nýrra verðlagsfor-
sendna í fréttatilkynningu fjármála-
ráðuneytisins dags. 29. apríl.
Talan sem ráðherrann notar til
þess að mæla landsframleiðsluna
byggir hins vegar á raunhæfara
mati á verðbólgunni á árinu þar sem
miðað er við að hún verði 16%.
Mikilvægt er að sömu verðlags-
forsendur séu notaðar þegar tvær
tölur sem þessar eru bomar saman
því að annars verður allur saman-
burður út í hött. T.d. dettur fáum
í hug að miða kaupmátt launa á
þessu ári við verðlag eins og það
var í fyrra.
Ef fjármálaráðherrann notaði við
útreikning á skattbyrðinni sömu
verðlagsforsendur á skatttekjur í
teljaranum og hann notar á lands-
framleiðsluna í nefnaranum fengi
hann mun hærra hltufall fyrir skatt-
byrðina.
Það er ágætis heimadæmi fyrir
ráðherrann að sjá hvað kemur út
þegar miðað er við sömu verðlags-
forsendur bæði í teljara og nefnara.
Vilhjálmur Egilsson
„Mikilvægt er að sömu
verðlagfsf orsendur séu
notaðar þegar tvær töl-
ur sem þessar eru born-
ar saman þvi að annars
verður allur saman-
burður út í hött.“
Annað atriði sem kemur inn í
þetta mál er stórbætt innheimta á
sköttum. Nú verður fróðlegt að
fylgjast með því hvort bætt skatt-
skil leiði til lægri skatta eða auk-
inna útgjalda. Verði skattar ekki
lækkaðir þegar skattskilin batna
þýðir það að sjálfsögðu hærri skatt-
byrði fyrir þjóðina í heild.
Höftmdur er framkvæmdastjóri
Verslunarráðs íslands.
Skógræktarfélag Reykjavíkur:
Landgræðsluskóg-
ar sameiginlegt
átak landsmanna
Skógræktarfélga Reykjavíkur
sáði trjáfræi í 1680 fermetra og
stakk út 280.000 græðlingum á
síðasta ári, segir f skýrslu stjómar
félagsins, sem lögð var fram á
aðalfundi nýlega. Gróðrarstöð
félagsins f Fossvogi afhenti um
380.000 plöntur úr stöðinni og
voru 83.300 plöntur gróðursettar
í Heiðmörk. Sfðastliðið sumar
vann skólafólk 5.100 dagsverk þjá
félaginu og gróðursetti meðal
annars rúmlega 174.000 plöntur.
Á aðalfundinum var samþykkt
ályktun, þar sem kemur fram að
aukin umræða um ástand gróður-
lendis, stórfelldar breytingar á bú-
háttum og árangursrík samvinna
landgræðslu- og skógræktarmanna
á síðustu árum hafí aukið áhuga
almennings á þátttöku í uppgræðslu
landsins. „Nú blæs góður byr til
átaks um endurheimt landgæða og
ber að nýta hann. Má víða merkja
aukinn áhuga einstaklinga og
Wli
■' "'pSI '— ki í i
.
PBilMJr:
áhugamannafélaga á því að fá að
taka þátt í að græða landið. Land-
græðsluskógar eiga að vera sameig-
inlegt átak allra landsmanna og
munu þá verða öllum til hagsbóta."
Er því beint til stjómvalda að þau
sjái til þess að allir, sem áhuga hafa
á skógrækt og landgræðslu fái land
til ræktunar. Enn fremur að lögum
verði breytt, unnið að banni við
lauságangi bú§ár og séð til þess að
skattakerfíð hvetji einstaklinga og
fyrirtæki til skógræktar- og land-
græðslu. Skorar fundurinn á stjóm-
völd að nýta þann aukna meðbyr sem
nú er og auka fé til skógræktar og
landgræðslu um leið og unnið er að
breytingum sem gera þarf á lögum
og reglugerðum.
í stjóm félgasins eiga sæti Þor-
valdur S. Þorvaldsson arkitekt, Jón
Birgir Jónsson verkfræðingur, Bjöm
Ófeigsson stórkaupmaður, Ólafur
Sigurðsson arkitekt og Bjami K.
Bjamason lögfræðingur.
FLUGLEIÐIR
-fyrirþíg-