Morgunblaðið - 05.05.1988, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLABIÐ, FTMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988
Málflutningur í kaffibaunamáli fyrir Hæstarétti:
Starfsmenn SIS vissu að
viðskiptin voru sviksamleg
- sagði Bragi Steinarsson, vararíkis-
saksóknari, í sóknarræðu sinni
STARFSMENN SÍS gerðu sér grein fyrir því að af þeirra hálfu
hefðu viðskipti SÍS við Kaffibrennslu Akureyrar verið sviksamleg.
Þetta kom meðal annars fram í sóknarræðu Braga Steinarssonar,
vararikissaksóknara, fyrir Hæstarétti í gær.
Bragi hóf ræðu sína á að reifa
málið og forsögu þess og fór yfír
ákæruna. Þar kom fíam, að Erlend-
ur Einarsson, fyrrum forstjóri SÍS,
og Hjalti Pálsson, fyrrum fram-
kvæmdastjóri innflutningsdeildar
SÍS, eru ákærðir fyrir flársvik og
þrír starfsmenn fyrirtækisins, þeir
Sigurður Ámi Sigurðsson, Gísli
Theódórsson og Amór Valgeirsson,
em ákærðir fyrir hlutdeild í brotum
yfirmanna sinna. Héraðsdómur
sýknaði ákærðu af ákæm um
skjalafals og sagði Bragi að þeim
sýknulið væri ekki áfrýjað, en hins
vegar hefði ákæmvaldið áfrýjað
sýknudómi yfír Erlendi Einarssyni.
Þá vitnaði Bragi í niðurstöður hér-
aðsdóms f málinu, en þeirra er get-
ið á öðmm stað hér á síðunni, ásamt
tildrögum málsins.
Bragi fór yfír reikninga vegna
viðskiptanna og tók fram, að
ákæmefnið lyti að öllu þvf, sem
teldist umfram venjuleg umboðs-
laun. Hann sagði, að þegar reikn-
ingar, sem hefðu verið hærri en
raunvemlegt kaupverð sagði til um,
hefðu verið sendir til Kaffibrennsl-
unnar, þá hlyti það að vera vegna
þess að ákvörðun um slíkt hefði
verið tekin hjá SÍS. Slfkar ákvarð-
anir tækju undirmenn ekki, heldur
yfirmenn. Þá væri ljóst, að sú full-
yrðing, að tvöfalt kerfí vörureikn-
inga, hærri og lægri, væri frá Bra-
ilíumönnum komið og SÍS hefði
orðið að notast við það, væri al-
röng. Það væri umhugsunarefni
hvort Brasilfumenn hafí þá ein-
göngu krafíst þessa á ákæmtfma-
bilinu. Hvergi komi fram að sér-
stakar óskir um slíkt kerfí hafí
komið frá Brasilíumönnum, nema í
tveimur tilfellum, þegar greitt var
fyrir kaffíð í Sviss. Allar óskir um
þetta kerfí hafi ýmist komið frá SÍS
eða að beiðni SÍS frá NAF, Norr-
æna samvinnusambandinu, sem
SÍS er aðili að.
Kaffibrennslan vissi ekki
um tekjurnar
Varðandi samninga um kaffí-
kaup milli NAF og Brasilfumanna
sagði Bragi að vottað væri að þess-
ir samningar hefðu verið sendir til
SÍS, þó ákærðu hafí ekki kannast
við að hafa séð þá. Vitnaði hann
þar til framburðar Hjalta Pálssonar
fyrir sakadómi, þar sem Hjalti
kvaðst ekki hafa séð reikningana
fyrr og að hann áliti að þeir sem
stóðu í kaffíviðskiptunum hafí ekki
taiið ástæðu til að sýna sér þá.
Bragi benti á, að forráðamenn
Kaffíbrennslu Akureyrar hefðu ekki
fengið vitneskju um þær miklu tekj-
ur, sem SÍS hafði af kaffíviðskipt-
unum, fyrr en í ársbyijun 1981,
þegar einhliða ákvörðun hafði verið
tekin hjá SÍS _um að endurgreiða
hluta þeirra. Á þessum tfma hafí
verið farið að þrengja að Kaffí-
brennslunni, sem einmitt þá lagði
fram beiðni til verðlagsstjóra um
hækkun á kaffíverði. Fram-
kvæmdastjóri Kaffíbrennslunnar
hafí sent verðlagssfjóra gögn um
innkaupsverð kaffís, án þess að vita
að þau gögn sýndu ekki raunveru-
legt kaupverð kaffísins. Hjalti Páls-
son hafi tekið þá ákvörðun, að frá
fyrri hluta árs 1981 skyldi Kaffí-
brennsian fá helming teknanna af
innflutningnum. Hins vegar hafí
forráðamenn Kaffibrennslunnar
ekki vitað að tekjur höfðu áður
runnið óskiptar til SÍS.
Þessu næst ræddi Bragi hversu
mjög þessar tekjur SÍS vegna af-
sláttar af kaffikaupum hefðu aukist
árið 1980 og 1981. Þá hefðu háar
fjárhæðir safnast upp hjá skrifstofu
SÍS í London, sem fékk senda
greiðslu Kaffíbrennslunnar og
greiddi sjálf lægri reikninginn til
seljanda. Vegna þessara uppsöfri-
uðu tekna hefði þurft að taka
ákvörðun um það innan SÍS hvert
þær skyldu renna. Þessar telcjur
hafí verið fluttar á reikning SÍS
fyrir umboðslaun innflutningsdeild-
arinnar. Bragi vitnaði í skýrslu
Geirs Geirssonar, endurskoðanda
SÍS, þar sem fram kemur að þar
sem um háa fjárhæð hafí verið að
ræða, sem hafí verið flutt milli
reikninga á óvenjulegan hátt, hafí
verið getið um þetta í skýrslu hans
til stjómar SÍS. Þar hafí verið gerð
sú athugasemd, að tekjur þessar
stöfuðu af sérstökum afslætti í
kaffíviðskiptum. Seljendur veittu
afslátt, sem greiddur væri f formi
ávísana á frekari kaffíkaup, en ekki
greiddur út í reiðufé. Þá benti Bragi
á, að Geir hafí borið að árið 1980
hafí afslátturinn aukist mjög og
verið orðinn stór hluti af kaffí-
verði. Því hefði mátt vera ljóst að
tekjur vegna afsláttarins ættu betur
heima hjá endanlegum kaupanda
kaffísins, Kaffíbrennslunni, heldur
en SÍS.
Vorið 1980 fór Geir Geirsson á
skrifstofu SÍS í London til að endur-
skoða gögn þar. Bragi benti á að
Geir hefði þá ekki rekist á tvöfalda
reikninga vegna kaffíviðskiptanna
og hefði borið fyrir dómi að hann
hefði frétt að þáverandi forstöðu-
maður skrifstofunnar, Gísli Theó-
dórsson, hefði haldið þessum gögn-
um aðskildum frá þeim bókhalds-
gögnum, sem verið var að endur-
skoða. Þá hafí Geir borið að hann
hefði heyrt að Hjalti Pálsson hafí
gefíð fyrirskipanir um að tvöfalt
kerfí reikninga skyldi notað f við-
skiptunum.
Bragi Steinarsson Qailaði þessu
næst um viðbrögð við skýrslu Geirs
Geirssonar, endurskoðanda, til
stjómar SlS. Komið hefði fram að
Valur Amþóreson, stjómarformað-
ur SÍS og Kaffíbrennslunnar, hefði
fengið vitneskju um miklar tekjur
SÍS vegna afsláttarins daginn fyrir
aðalfund Sambandsins. I samtali
hans við Geir hefði komið fram að
það væri álit Erlendar Einaresonar
og Hjalta Pálssonar að SÍS bæru
þessar tekjur vegna aðildar Sam-
bandsins að NAF. Valur hefði hins
vegar kannað málið nánar og sent
Geir til London til að kanna gögn
þar. Sigurður Ámi Sigurðsson, þá-
verandi foretöðumaður skrifstof-
unnar f London, hafí borið að Geir
hafi komið þangað fyrirvaralaust í
september 1981, að beiðni Vals.
Sigurður hafí þá beðið um frest ti)
að ræða við yfírmann sinn, Erlend
Einarsson, og hafí Erlendur sagt
að Geir gæti skoðað gögn um við-
skiptin í Reykjavík. Bragi benti á,
að þegar Geir var þá á ferð í Lon-
don hafí verið skammt liðið sfðan
hann var þar við endurekoðun
síðast, en þá hafí gögnum verið
haldið frá. Bragi sagði, að f máli
þessu vörpuðu yfírmenn sökum á
undirmenn sfna, en undirmenn
gerðu slfkt sfður, enda ættu þeir
atvinnu sína undir velvild yfírmann-
anna.
Valur Amþóreson skipaði síðan
nefnd til að kanna þessi viðskipti
nánar og hveijum bæra þessar af-
sláttargreiðslur. Hann fékk Geir
Geirsson og Guðmund Skaftason,
lögfræðilegan ráðunaut Kaffi-
brennslunnar, til að sitja í nefnd-
inni. Með þeim störfuðu Geir Magn-
ússon, yfírmaður fjármáladeildar
SÍS og Snorri Egilsson, skrifstofu-
sfjóri innflutningsdeildar. Guð-
mundur Skaftason taldi kaffí-
brennsluna eiga afsláttinn, þar sem
um pmboðsviðskipti hefði verið að
ræða, en Sambandsmenn töldu að
afslátturinn skyldi renna til SÍS,
þar sem hann væri til kominn vegna
aðildar SÍS að NAF. Engin nicur-
bandinu. Hann vísaði til framburðar
Gísla Theódórssonar hjá lögreglu
um að hann hafí fengið fyrirmæli
frá Hjalta Pálssyni og Sigurði Áma
Sigurðssyni um að innheimta
brúttóreikninga hjá Kaffíbrennsl-
unni. Fyrirmæli til seljenda kaffis-
ins um tvöfalda reikninga hafí kom-
ið frá innflutningsdeild SÍS, en mis-
munur upphæðanna á reikningun-
um hafí verið lagður inn á reikning
skrifetofunnar í London. Gísli hafí
sfðan sagt fyrir dómi að hann hafí
fengið boð frá fóðurvöradeild SÍS
um að tveir reikningar vegna við-
skiptanna væra væntanlegir og
ætti að innheimta brúttóreikninginn
reglurannsókn, en Hjalti dró þau
til baka fyrir dómi og vildi kalla
viðskiptin „samráðskaup". Þá benti
Bragi á að Sigurður Árni, Gísli og
Amór teldu allir að um umboðs-
viðskipti hafí verið að ræða. Kaffí-
kaupin hafí verið færð í bókhaldi
Kaffíbrennsiunnar sem bein að-
fangakaup og Kaffíbrennslan talin
innflytjandinn. SÍS hafi hins vegar
ekkert bókað hjá sér um viðskiptin
nema hvað tekjur vegna þeirra vora
færðar sem umboðslaun.
Þessu næst fjallaði vararíkissak-
sóknari um þær vamarástæður að
um bein kaup SÍS hafí verið að
ræða, en ekki umboðsviðskipti.
Hann taldi slíkt Qarstæðu, enda
hefði SÍS þá þurft að leggja spilin
á borðið, færa viðskiptin tii bókar
hjá sér og senda verðlagsstjóra
verðútreikninga. Veijendur hafí
bent á, að SÍS hafí tekið lán í Lon-
don til að fjármagna kaffíkaupin
og á sumum reikningum hafí SÍS
verið tilnefnt sem kaupandi. „En
hvað liggur að baki því að SÍS greið-
ir reikningana í London?", spurði
Bragi. Hann benti á að eðli viðskipt-
anna hafí ekkert breyst við þá til-
högun og það hafí aldrei verið ætl-
Við upphaf sóknarræðu vararík-
issaksóknara, Braga Steinars-
sonar, þegar málflutningur f
kaffibaun&málinu hófst fyrir
Hæstarétti f gær. Sex dómarar
hlýða á málflutning, en finun
munu dæma málið. Er þetta gert
vegna umfangs málsins, svo
tryggt sé að dómur sé fullskipað-
ur þó einn dómara forfallist.
Reiknað er með að málflutningur
standi fram f miðja næstu viku.
staða fékkst, en SÍS ákvað síðar
einhliða að endurgreiða Kaffí-
brennslunni.
„Oftekin umboðslaun“
endurgreidd
Bragi fíallaði um samþykkt
stjórnar SlS, þar sem tekjur af
kaffibaunainnflutningnum vora til
umræðu. Hann benti á, að stjómin
hafí talið að SÍS hafí eignað sér
hærri umboðslaun en efni stóðu til.
Því bæri að endurgreiða Kaffí-
brennslunni afslátt fyrir árin 1979,
1980 og 1981. Þá lagði Bragi á það
mikla áheralu, að stjóm SIS hafí
samþykkt að láta gera könnun á
hveijir bæra ábyrgð á þessari til-
högun viðskiptanna. Stjómin hafí
tekið fram, að hver vörategund
ætti að standa undir sér og hagstæð
innkaup ættu að koma neytendum
til góða. Þá sé það orðað svo í sam-
þykkt stjómarinnar að samþykkt
sé að endurgreiða Kaffíbrennslunni
oftekin umboðslaun, samtals rúmar
42 milljónir. Nefndin, sem kanna
átti hver bæri ábyrgð á viðskiptun-
um, hafí aldrei starfað og verið lögð
niður þegar opinber rannsókn á
málinu hófst.
Þessu næst ræddi Bragi nánar
þá fullyrðingu sína, að kerfí tvö-
faldra reikninga væri ekki frá Bras-
iifumönnum komið, heldur Sam-
hjá Kaffíbrennslunni. Gísli kvaðst
hafa rætt þetta við Sigurö Áma,
en ekki við Hjalta eða Erlend. Hann
teldi þó að ákvörðun um slíkt hefði
Sigurður Ámi tæpast tekið, hún
hlyti að vera frá Hjalta komin.
Máli sínu til stuðnings benti
Bragi einnig á framburð Sigurðar
Áma, sem bar að hann teldi SÍS
hafa beðið NAF um tvöfalda reikn-
inga og NAF komið skilaboðum um
það til seljenda í Brasilíu, eða SÍS
óskað beint eftir því við seljendur.
Ákvörðun um þennan þátt viðskipt-
anna hafí komið frá íslandi. Þá
hafí Sigurður Ámi gefíð Lundúna-
skrifstofunni fyrirmæli um að senda
hærri reikningana tii Kaffíbrennsl-
unnar, að skipan yfírmanns síns,
Hjalta.
Bragi sagði að SÍS hefði lagt
áherelu á að Kaffibrennslan frétti
ekki af afslættinum. í skeyti SÍS
til brasilískra seljenda kæmi fram
að fyrir misskilning hefðu reikning-
ar vegna viðskiptanna verið sendir
beint til banka á Akureyri, þrátt
fyrir samning um að þeir yrðu send-
ir til skrifstofunnar I London. Vora
seijendumir beðnir um að tilkynna
banka sfnum að þessir reikningar
yrðu aldrei greiddir á íslandi. Eina
leiðin til að fá greiðslu væri að fá
bankann á Akureyri til að senda
skjölin til London. Þá hafí Sigurður
Ámi sent NAF skeyti með tilmæl-
umum að sendur yrði nýr reikning-
ur yfír ákveðna sendingu, þar sem
eingöngu yrði tilgreint brúttóverð.
Umboðsviðskiptí
í máli þessu hefur mjög verið
deilt um hvemig líta beri á við-
skipti Sambandsins og Kaffi-
brennslunnar. Bragi sagði f ræðu
sinni að ekki Iéki vafí á því að um
umboðsviðskipti væri að ræða.
Vísaði hann þar til ummæla Þrastar
Sigurðssonar, framkvæmdastjóra
Kaffíbrennslunnar, Vals Amþórs-
sonar, Guðmundar Skaftasonar og
ummæla Hjalta Pálssonar við lög-
unin. Þvf sé röksemd veijendanna
að þessu leyti Iéttvæg. Og það að
SÍS hafí verið tilgreint sem kaup-
andi á einhveijum reikningum stafí
einungis af því að NAF leit á SÍS
og Kaffíbrennsluna sem eitt og hið
sama. Viðskiptin hafí þrátt fyrir
þetta verið umboðsviðskipti og SÍS
hafi aðeins getað krafíst hæfilegr-
ar, sanngjamrar þóknunar fyrir
milligönguna. ✓
Loks §allaði Bragi um þá laun-
ung, sem verið hefði á viðskiptunum
gagnvart Kaffíbrennslunni og
sagði, að ástæða hennar hefði verið
sú, að forráðamenn Sambandsins
og aðrir starfsmenn hafí vitað, að
um sviksamlegt athæfí var að ræða.
Hann vitnaði í framburð Þrastar
Sigurðssonar, framkvæmdastjóra
Kaffíbrennslunnar, en þar kom
fram, að Þröstur vissi ekkert um
tilvist tveggja reikninga fyrir hveija
sendingu. Hann hefði ekki vitað
betur en allar bætur vegna kaup-
anna hefðu rannið til Kaffibrennsl-
unnar, eftir að SÍS hafði tilkynnt
að greiðslur skyldu renna þangað.
Bragi benti á að Valur Amþóreson
hefði ekki vitað um afsláttargreiðsl-
umar fyrr en hann sá skýrslu end-
urekoðandans. Þá hafí Sigurður
Gils sagt að það væri ljóst að verið
var að plata Kaffíbrennsluna og það
hefði lengi tfðkast og Geir Geirason
hafí ekki vitað um tilvist tvöfaldra
reikninga fyrr en hann fór til Lon-
don til að endurekoða gögn skrif-
stofunnar þar. Geir Magnússon
hefði heldur ekkert um þetta vitað
fyrr en hann fékk yfírlit um tekjur
Lundúnaskrifetofunnar. „Þetta
sýnir hvílík leynd var viðhöfð,"
sagði vararíkissaksóknari og bætti
við að ljóst væri að ákærðu í málinu
hafí vitað að viðskiptin væra svik-
samleg.
Bragi Steinarsson lauk ekki
sóknarræðu sinni í gær og heldur
áfram f dag þar sem frá var horfið.
Að ræðu hans lokinni taka veijend-
ur til við að flytja ræður sínar.
fcí