Morgunblaðið - 05.05.1988, Page 24

Morgunblaðið - 05.05.1988, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988 Iþróttir — ómenning? eftir Steinar J. Lúðvíksson Hér á árum áður mun sú skoðun hafa verið ríkjandi að hverskonar íþróttaiðkun væri fremur fáfengileg og ómenningarleg tómstundaiðja. Þeir menn sem eyddu tíma sínum í slíkt voru annað hvort taldir sérvitr- ingar eða vitgrannir nema hvort tveggja væri. Slík sjónarmið eru löngu liðin tíð. Almennt er nú viður- kennt að íþróttir eru ein hollasta tómstundaiðja sem hægt er að velja sér og að þær geti fyrirbyggt sjúk- dóma og ótímabæra líkamshrörnun. Því hefur mjög verið hvatt til íþrótta- iðkana bama og ungmenna til þess að fólk haldi áfram íþróttaiðkun þótt árin færist yfir. Hefur verið íögð á það áhersla að skapa íþrótta- æskunni sem bærilegasta aðstöðu til æfinga og leikja svo og öllum almenningi. En það sjónarmið sem minnst er á í upphafsorðunum er þó greiniiega ekki alveg liðið undir lok. Það kom glögglega fram í orðum eins forystu- manns í fslenskum stjómmálafiokki f stuttu útvarpsviðtali fyrir skömmu og er mér til efs að fslensk fþrótta- æska hafi fengið jafn kaldar kveðjur frá stjómmálamanni í seinni tíð. Er hér átt við orð sem Þórhildur Þor- leifsdóttir þingmaður Kvennalistans lét falla er rætt var við hana og Birgir ísleif Gunnarsson mennta- málaráðherra um þau fyrirheit fslensku rfkisstjómarinnar að hér- lendis yrði byggt íþróttahús sem rúmaði 7.000—8.000 áhorfendur ef íslendingum yrði falið að sjá um heimsmeistarakeppnina f handknatt- leik 1993 eða 1994, en eins og flest- um mun kunnugt hefur Handknatt- leikssamband Islands lagt fram formlega umsókn um keppnina og verða greidd atkvæði um það á þingi sambandsins í Seoul í september nk. hvaða þjóð verður valin til að sjá um keppnina. Ekki er óeðlilegt að um það skuli skiptar skoðanir hvort íslendingar eigi að sækjast eftir því a halda heimsmeistarakeppnina í handknatt- leik og hvort byggja skuli slíkt íþróttahús sem rætt er um en án slíks húss eða fyrirheita um það eig- um við ekki möguleika á að fá að halda keppnina. Samkvæmt reglum Alþjóða handknattleikssambandsins þarf hús er rúmar a.m.k. 7.000 áhorfendur að vera til staðar. Skal það tekið fram að þessar reglur eru nýlegar og voru ekki í reglum IHF er Islendingar lögðu fyrst fram umsókn sína um mótið. Það er rétt hjá Þórhildi Þorleifs- dóttur að þegar kemur að stórfram- kvæmdum hlýtur spurningin um for- gangsröð að skjóta upp kollinum. Við Islendingar eigum eftir að gera margt og margir aðilar knýja á um flármagn. Sjónarmið eru mismun- andi og hver reynir að ota sínum toga. En að halda því fram og ítreka, eins og Þórhildur gerði í umrseddu viðtali, að það komi íslenskri íþrótta- æsku lítt til góða að slíkt íþróttahús sé byggt ber vitni um anað hvort yfirmáta þröngsýni eða vanþekk- ingu. Þar er greinilega horft fram hjá þeirri staðreynd að þrátt fyrir að keppnisíþróttimar séu ef til vill það sem mest ber á í íþróttalífinu er þó æskulýðs- og íþróttastarf iþróttafélaganna það mikilsverðasta í íþróttalífinu. „Það eru til ýmsar fjárfestingar sem myndu borga sig betur og til dæmis skulum við þá bara taka uppeldi bamanna okkar f þessu landi," sagði Þórhildur í við- talinu. Ætli henni sé ekki kunnugt að fþróttahreyfingin gegnir einmitt veigamiklu hlutverki í þvf uppeldi og að hundmðir ef ekki þúsundir manna leggja ómælda vinnu á sig við það starf. Kannski hefur hún ekki fylgst með því vegna þess að þessi hópur hefur ekki hátt — vinnur að mestu störf sfn í kyrrþey og myndar ekki háværan þrýstihóp. Ég Kápur sem fara vel! r ^ Póstsendum um alit land. KAPGSALAN BORGARTGNi 22 SÍMI 23509 Næg bflastæði AKGREYRI HAFNARSTRÆTI 88 SÍMi 96-25230 Steinar J. Lúðvíksson „Við sem stöndum að umsókn íslands um heimsmeistarakeppn- ina í handknattleik ger- um okkur viösulega vonir um að sagan geti endurtekið sig. Að keppnin verði til þess að auka enn áhuga æskufólks á íþróttum og íþróttastarf i — ekki bara á handknattleik heldur íþróttum í heild. Þórhildur Þorleifsdótt- ir telur slíkt sennilega ekki æskilegt.“ hygg að æskulýðsstarf íþróttafélag- anna snerti flest heimili á íslandi beint og óbeint og að flestir séu þakklátir fyrir það starf sem þar er unnið. Nú er auðvitað auðvelt að segja að æskulýðsstarf íþróttafélaganna sé gott og blessað svo og almenn- ingsíþróttir en að það komi byggingu íþróttahallar og heimsmeistara- keppninni í handknattleik nákvæm- lega ekkert við. Þvf er til að svara að hvarvetna eru afreks- fþróttimar taldar æskilegur hvati ungs fólks til fþróttaiðkana og þær vega einnig þungt í mótun áhuga á íþróttastarfinu. Þetta er ekkert SIEMENS Glæsilegeldavél meðbakstursvagni! Yfir- og undirhiti, blást- ur, blástursgrill og keramikhelluborð. SMITH& NORLAND Nóatúni 4 S. 28300 séríslenskt fyrirbrigði heldur alþjóð- legt. Við íslendingar höfum dæmin augljóslega fyrir okkur. Árið 1972 réðumst við í það stórvirki að halda heimsmeistaraeinvígið í skák. Þá þurftu forystumenn skákhreyfingar- innar að leita stuðnings ríkisvalds- ins. Sem betur fer höfðu ráðamenn þá víðsýni og skilning til þess að veita stórhuga mönnum stuðning. Ég hygg að enginn efist nú um að sá stuðningur borgaði sig þótt ef til vill sé erfítt að meta það í krónum og aurum. íslendingar eru nú ein mesta skákþjóð heimsins og skák- áhugi almennur — við eigum fleiri stórmeistara en allar hinar Norður- landaþjóðimar til samans. Við sem stöndum að umsókn íslands um heimsmeistarakeppnina í handknatt- leik gemm okkur vissulega vonir um að sagan .geti endurtekið sig. Að keppnin verði til þess að auka enn áhuga æskufólks á fþróttum og íþróttastarfi — ekki bara á hand- knattleik heldur íþróttum í heild. Þórhildur Þorleifsdóttir telur slíkt sennilega ekki æskilegt. í viðtalinu lét hún þau orð falla að keppnisí- þróttimar á íslandi væru til þess fallnar að leggja „hugmyndafraeði- legan gmndvöll að starfi flokks eins og Sjálfstæðisflokksins". Að vísu vefst það vemlega fyrir mér að skilja hvað þingmaðurinn á við með þessum orðum en líklega á hún við það að keppni á íþróttavöllunum leiði sjálfkrafa til þess að viðkomandi kjósi Sjálfstæðisflokkinn. Undirrit- aður hefur haft kynni af fþrótta- hreyfingunni á íslandi frá bamæsku og getur upplýst Þórhildir Þorleifs- dóttur viti hún það ekki að þeir sem reyna með sér á íþróttavöllunum em úr öllum flokkum og af öllum stigum þjóðfélagsins. Ætli það geti ekki einmitt verið að þátttaka í íþróttum og þeim félagsskap sem þeim fylgir hafi orðið til þess að auka skilning ungmenna á högum og viðhorfum hvers annars — frekar en að íþrótta- starfið miði að því að skipa öllum f sama stjómmálaflokk? Það er al- kunna að Kvennalistinn hefur af dugnaði barist fyrir úrbótum, t.d. í dagheimilismálum og með framan- greindum rökum Þórhildar mætti segja að tilgangurinn með því væri að „leggja hugmyndafræðilegan grundvöll að starfi flokks eins og Kvennalistans". Engum mun þó í raun og vem detta slíkt í hug. Við sem höfum unnið að því að fá heimsmeistarakeppnina f hand- knattleik hingað höfum bent á það að það kynni að hafa töluvert þjóð- hagslegt gildi fyrir okkur að fá keppnina hingað og að gjaldeyris- tekjur hafa henni gætu orðið vem- legar. Þórhildur Þorleifsdóttir sagði í viðtalinu að þær tölur sem nefndar hefðu verið væm hreinar getgátur. „Það er auðvitað hægt að fá út úr því dæmi hvað sem maður vill og gjaman gefur maður sér þá útkom- una fyrst og reiknar síðan dæmið aftur á bak og finnur sér stærðina sem gefur útkomuna," sagði hún í umræddu viðtali. Undirritaður er ekki stjómmálamaður og veit satt að segja ekki hvaða reikningsað- ferðir þeir nota en ummæli Þórhildar benda til þess að hún kunni eitthvað fyrir sér í slfkum reikningskúnstum sem hún nefnir. Nú vill svo til að umrsedd heimsmeistarakeppni er ekki sú fyrsta sem haldin er og fyr- ir liggja upplýsingar frá þeim lönd- um sem hafa haldið keppnina á und- an okkur. Út frá þeim hefur verið reiknað og reynt að meta hugsanleg- ar gjaldeyristekjur. Vitanlega er um áætlanir að ræða en ekki blákaldar staðrejmdir. Þær geta aldrei orðið til fyrr en að keppninni lokinni. Þór- hildur gat þess einnig í viðtalinu að íslensku hótelin væru meira og minna á hausnum og mátti á henni skilja að það væri ekki þess vert að reyna að gera eitthvað til þess að skapa þeim verkefiii. Ég hef enga trú á öðru en aðstandendur hótel- anna myndu taka þvf með sæmileg- um þökkum að hótelin fylltust af gestum þótt ekki væru nema þær þijár vikur sem keppnin stendur en geta má að hún er haldin á „dauð- asta“ ferðamannatímanum á ís- landi, þ.e. um mánaðamótin febr- úar-mars. Þórhildur ræddi einnig um hversu greiða leið íþróttaforystan virtist eiga að ákveðnum stjómmálamönn- um og ráðamönnum þjóðarinnar og að þeir virtust ginnkeyptari fyrir aðstoð við hana en t.d. menningar- starfsemi. Nú er það svo að víða um lönd er íþróttastarf flokkað undir menningarstarfsemi og það gerum við líka sem erum að reyna að vinna íþróttunum gagn. Auðvitað er það rétt að æskilegt væri að veija meira fjármagni tii menningarviðburða og til íslenskra listamanna. En ef Þór- hildur skipar íþróttunum annan sess en því sem hún kallar menningu væri ráðlegt fyrir hana að kynna sér málið svolítið áður en hún fullyrðir um mismun. Hvemig væri að hún tæki sér fyrir hendur að bera saman það fjármagn sem hið opinbera veit- ir til þeSs sem hún kallar menningu annars vegar og svo íþrótta hins vegar. Hún gæti t.d. byijað á því að bera saman fjárveitingar til íþróttasambands Islands annars vegar og til Sinfóníuhljómsveitar íslands hins vegar. Ég hugsa að forystumenn íþrótta- hreyfingarinnar á íslandi séu alls ekki sammála Þórhildi Þorleifsdóttur um að það hafi verið auðvelt að sækja fjármagn til starfseminnar til hins opinbera. Ef Þórhildur veit það ekki þá en rétt að upplýsa hana hér og nú um að þungi fþróttastarfsins hvílir á herðum sjálfboðaliða. Vitan- lega koma bæði ríkisvald og sveitar- stjómir inn í fjármögnun stórra íþróttamannvirkja, en í flestum til- fellum eru íþróttamannvirkin og þá sérstaklega fþróttahúsin jafnframt skólamannvirki og má geta þess að víða skortir mjög á að unnt sé að framfylgja lögum um íþróttakennslu vegna skorts á íþróttahúsum. Þá er það staðreynd sem þeir þekkja vel sem koma nálægt hinu fijálsa íþróttastarfi að skortur á íþróttahús- um stendur starfinu verulega fyrir þrifum og hefur m.a. orðið til þess að takmarka frjölda þeirra sem taka þátt í íþróttum. Oftast bitna slfkar takmarkanir á fullorðna fólkinu sem ekki æfir með keppni fyrir augum þar sem fþróttafélögin telja það skyldu sfna að láta ungmenniii ganga fyrir. Stórt íþróttahús myndi því bæta nokkuð úr brýnni þörf. Það yrði ekki reist fyrir heimsmeistara- keppnina eina heldur er óhætt að slá því föstu að það yrði fullnýtt jafnskjótt og það kæmist í gagnið. Benda má einnig á það að Skáksam- band íslands hefur lengi haft hug á því að sækja um að halda Ólympíu- skákmót hérlendis en ekki hefur getað orðið af því vegna þess að nægjanlega stórt hús er ekki til. Umrædd íþróttahöll myndi henta vel fyrir slíkt mót og því allar Ifkur á þvf að mótið fengist hingað fljótlega eftir að húsnæðið væri til staðar. Þórhildur lauk orðum sfnum í út- varpsviðtalinu með yfirlýsingu um að stuðningur ríkisstjómarinnar við byggingu umrædds íþróttahúss og þar með við umsókn um heimsmeist- arakeppnina væri „náttúralega glöggt dæmi um forgang ykkar karl- manna í góðum stöðum í lífinu". Um slíka yfirlýsingu er raunar ekk- ert hægt að segja annað en það að sá sem hana gefur hlýtur að vera úr tengslum við raunveraleikann. Þann raunveraleika að íþróttastarfið á íslandi er ekki nein séreign karl- manna — ekki nein séreign þeirra sem komist hafa vel áfram í lífinu — heldur er íþróttahreyfingin stærsta flöldahreyfing kvenna og karla á íslandi. í íþróttastarfinu taka þátt bæði eídri og yngri, þeir sem era vel stæðir og þeir sem lakara era settir. f fþróttastarfinu hefur jafnrétti rfkt f raun og vonandi verð- ur svo um langa framtíð. Að lokum þetta: íslendingar beij- ast harðri baráttu við Svía um HM 1994. Hvor þjóðin verður fyrir valinu sem mótshaldari kemur ekki f ljós fyrr en á þingi alþjóðasambands handknattleiksmanna sem haldið verður f Seoul í september. En Svfar munu örugglega telja það gott inn- legg í baráttu sína að sá flokkur sem 8amkvæmt skoðanakönnunum er nú stærsti stjómmálaflokkurinn á ís- landi er á móti þvf að íslendingar haldi keppnina. Höfundur er ritatjóri og vara- I fiimMiliir HanHlrnnttla;baaHm- banda fatanda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.