Morgunblaðið - 05.05.1988, Síða 29

Morgunblaðið - 05.05.1988, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988 29 Bandaríkin: Forsetahjónin vísa staðhæf- ingnm stj ömuspákonu á bug Washington, Rcuter. BLAÐAFULLTRÚI bandarísku forsetafrúarinnar, Nancy Reag- an, sagði i gær að hvorki Ronald Reagan Bandaríkjaforseti né kona hans hefðu ráðfært sig við Joyce Jillson, stjömuspákonu í Los Angeles, eða boðið henni í Hvita húsið. Hún staðfesti þó að forsetafrúin hefði ráðfært sig við „vin sem fæst við stjörnu- spár“ í Los Angeles til að full- vissa sig um öryggi forsetans eftir morðtilraunina árið 1981. Tímaritið Newsweek hefur skýrt frá því að minningabók Donalds Regans, fyrrum starfsmannastjóra Bandaríkjaforseta, greini meðal annars frá því að bandarísku for- setahjónin hafí ráðfært sig við stjömuspámenn til að ákveða fundaáætlun forsetans og hvenær best væri fyrir hann að ferðast. Joyce Jillson hélt því síðan fram á þriðjudag að hún hefði verið beðin að koma í Hvíta húsið eftir að skot- ið var á Reagan fyrir utan gistihús i Washington. Hún vjldi þó ekki segja hvort það hefði verið forsetinn eða kona hans sem hefði beðið hana að koma í Hvíta húsið. Hún sagðist aldrei gefa upp nöfn viðskiptavina Blaðafulltrúi forsetafrúarinnar sagði hins vegar í gær að Jillson hefði aldrei talað við forsetahjónin. „Frú Reagan er fullviss um að hún hefur aldrei talað við hana," sagði Crispen. Reagan Bandaríkjaforseti vfsaði þvf á bug á þriðjudag að stjömuspár hefðu áhrif á ákvarðan- ir sínar. Crispen sagði að forsetafrúin hefði ráðfært sig óformlega við vin sinn í Los Angeles og þá aðeins til að fullvissa sig um að forsetinn væri ekki í hættu. Nouema. Reuter. Nýja Kaledónía: Varað við skæruliðastyrj öld stríðs og vöruðu við tilraumim til að frelsa 23 gísla, sem þeir hafa á valdi sínu. „Ef stjómin í París neitar að ræða við okkur um fullt sjálfstæði er kominn tími til að beijast fyrir því. Við emm búnir að fá okkur fullsadda af því að vera virtir að vettugi," sagði Leopold Joredie, leiðtogi Sósíölsku frelsisfylkingar- innar. í yfírlýsingu frá samtökunum var einnig varað. við tilraunum til að leysa 23 franska gísla úr haldi og sagt, að það gæti stofnað lífi þeirra í hættu. KANAKAR, sem átt hafa í úti- stöðum við frönsk yfirvöld á Nýju Kaledóníu, kváðust í gær búnir til allsherjarskæruliða- Olíuverð: Olíufatið tal- ið geta lækk- að í 10 dollara Jakörtu, Reuter. OPEC-ríkin greinir á um hversu mikið þurfi að draga úr fram- Ieiðslu til að hækka olíuverð. Sum þeirra óttast að oliufatið fari jafnvel niður f tíu dali verði ekki dregið verulega úr fram- leiðslunni, að þvf er haft var eft- ir heimildarmanni innan OPEC í gær. „íranir, Alsírmenn, Venesúela- menn og Líbíumenn telja að ef OPEC-ríki og ríki utan samtakanna draga ekki úr framleiðslunni fari olfufatið niður í tíu dali,“ sagði heimildarmaðurinn. Olíuverðið fór niður í minna en 10 dali á olíufatið árið 1986 en hækkaði eftir sameiginlegar að- gerðir 13 aðildarríkja OPEC, sam- tökum olíuútflutningsríkja. Síamstvíburar skildir að Reuter Litlu síamstvíburasysturaar f Jóhannesarborg f Suður-Afríku sem fastar voru saman á höfði voru skildar að á þriðjudaginn. Að- gerðin sem tók margar klukkustundir heppnaðist ágætlega að mati lækna. Þó kemur ekki í ljós fyrr en eftir tvo daga hvernig systrunum sem heita Mpho, Gjöf, og Mphonyana, Litla gjöf, reið- ir af. Önnur systranna, Mphonyana, er illa haldin og varð að gangast undir aðgerð í gær vegna blæðinga. Hin systirin sem sést hér á myndinni, Mpho, hefur tekið framförum eftir aðgerð- ina og gladdi það starfsfólk sjúkrahússins þegar hún gaf til kynna að hún væri svöng. Systurnar litlu eru 16 mánaða og eiga eftir að fara oft undir læknishendur áður en yfir lýkur. Andstæðingar „glasnost“ í Sovétríkjunum: Sumum sjónarmið- um er gert hærra undir höfði en öðrum Moskvu. Reuter. ÍHALDSSAMIR andstæðingar umbótastefnu Kremlverja kvarta yfir, að þeir séu múl- bundnir. Þeir staðhæfa, að glasnost-stefnan nái aðeins til stuðningsmanna hennar, að þvf er sagði í Prövdu, málgagni kommúnistaflokksins, í gær. Blaðið varði stefnu Mikhails S. Gorbatsjovs Sovétleiðtoga og reyndi að útskýra, hvers vegna það hefði ráðist harkalega á grein, sem birtist í víðlesnu blaði, og kallað hana stefnuyfírlýsingu aft- urhaldsafla, sem væru andstæð umbótum í landinu. Ennfremur sagði í Prövdu, að blaðinu hefðu borist yfír þúsund bréf frá lesendum vegna pistilsins um greinina en greinin sjálf birt- ist í dagblaðinu Sovjetskaja Rossija, sem kemur út í öllum sovétlýðveldunum, 13. mars síðastliðinn. í þremur af hveijum fjórum bréfum var tekin afstaða með Prövdu, að því er sagði í blaðinu. En í hinum var kvartað yfír ólýð- ræðislegri umfjöllun blaðsins, þegar það gagnrýndi íhaldsmenn. I greininni í Sovjetskaja Rossija, sem birt var sem bréf frá kennara í Leningrad, var stjóm- artíð Stalíns ákaft varin. Greinin olli miklu fjaðrafoki, og óttuðust margir af stuðningsmönnum Gor- batsjovs, að hann hefði orðið und- ir í Kreml. „Lenín þaggaði aldrei niður í neinum," hafði Pravda eftir einum bréfritaranna, I. Pozdnyakovu, frá borginni Khabarovsk. „Hvemig stendur á því, að mitt í öllu talinu um glasnost og lýð- ræði, eiga sum sjónarmið greiða leið fram í dagsljósið, en önnur ekki?“ sagði í bréfí A. Golenkovs, sem býr á Moskvusvæðinu. Einn bréfritaranna, sem varði greinina eftir kennarann frá Len- ingrad, líkti viðbrögðum Prövdu við „ijöldaaftökur". Þrálátur orðrómur hefur verið á kreiki í Moskvu þess efnis, að aðalhugmyndafræðingur Kreml- veija, Jegor Lígatsjov, hafi staðið á bak við birtingu greinarinnar í Sovjetskaja Rossija og beðið lægri hlut, þegar í brýnu sló milli hans og Gorbatsjovs eftir birtinguna. En ekki virðist linna innan- flokkseijum í kommúnistaflokkn- um um umbótastefnuna, ef marka má nýlegar greinar í sovéskum blöðum. Síðustu daga hafa birst bréf í blaði menningarmálaráðuneytis- ins, Sovjetskaja Kultura, þar sem haldið er fram, að stefna Gor- batsjovs mæti vaxandi mótspymu og ekki sé loku fyrir það skotið, að efnt verði til samsæris gegn honum. í frásögn Prövdu sagði, að blað- ið hefði fordæmt greinina svona harðlega, af þvi að í henni hefði ekki verið látið við það sitja að tjá skoðanir, heldur hefði einnig verið leitast við að þjappa saman íhaldsöflum, sem væru mótfallin umbótum stjómarinnar í Kreml. Leiðtogi Baráttusamtaka Samstöðu: Handtekinn við heim- komuna til Póllands Var fluttur við annan mann úr landi á laugardaginn Varsjá, Reuter. PÓLSKI andófsmaðurinn, Korn- el Morawiecki, sneri heim til Póllands í gær eftir að hafa leit- að til læknis í Róm. Ættingjar Morawiecki segja að hann hafi verið handtekinn á ný við kom- una tíl Varsjár. Honum var sleppt úr fangelsi ásamt öðrum andófs- manni, Emil Kolodziej, síðastlið- inn laugardag og voru þeir settir um borð í flugvél sem flutti þá til Rómar. Þá vildu þeir ekki fara frá Varsjá nema að tryggt væri að þeim yrði hleypt aftur inn i Pólland eftir læknisaðgerð- ina. Ættingjar Morawiecki segja að óeinkennisklæddir menn hafí tekið hann með sér með valdi eftir kom- una til Varsjár. Hafði Morawiecki sest inn í langferðabifreið sem flyt- ur farþega frá flugvellinum, þegar hún var stöðvuð, hann tekinn og honum ekið á brott í sendiferðabif- reið. Prestur sem var í för með honum var einnig fluttur á brott. Panama: Leyft að taka fé af banka- reikningum Panamaborg, Reuter. BÖNKUM í Panama verður fyr- irskipað að opna á mánudag og þá eiga Panamabúar að geta tek- ið fé af reikningum sínum, að þvi er panamíska ríkissjónvarpið skýrði frá á þriðjudag. Hagfræðingar segja að minni bankar í Panama hafí ekki nægilegt reiðufé og hætta sé á að þeir þurfí að hætta viðskiptum verði þeir neyddir til að opna aftur. Liklegt er að bönkunum verði refsað fari þeir ekki að fyrirskipunum ríkis- stjórnarinnar. Talsmaður banka í Panama sagði að bankaráð ríkisstjómarinnar myndi skipa svo fyrir að bankar yrðu opnaðir samkvæmt skilmálum sem settir voru 29. mars. Ekki yrði leyft að taka meira en fjórðung innistæðu á ávisanareikningum á mánuði og fímm prósent af spari- reikningum. Reuter Korael Morawiecki og Emil Kolodziej á flugvellinum i Róm á þriðju- dag. Morawiecki er leiðtogi Baráttu- samtaka Samstöðu, sem klofnaði út úr Samstöðu, ólöglegu verkalýðs- hreyfingunni í Póllandi, árið 1985 vegna skoðanaágreinings hans og Lechs Walesa. Morawiecki og Emil Kolodziej var sleppt úr fangelsi á laugardag og voru þeir sendir til Rómar, þar sem þeir voru báðir undir læknishendi. Kolodziej er einnig félagi í Baráttusamtökum Samstöðu. Hann varð eftir í Róm til frekari rannsókna en grunur leik- ur á að hann sé með æxli í skeifu- göm. Þeir höfðu báðir setið í fang- elsi frá því í nóvember þar til þeim var sleppt á laugardaginn. Morawiecki reyndi á þriðjudag að fljúga til Póllands með flugvél pólska flugfélagsins LOT en fékk ekki að fara um borð í vélina. Var því borið við að ekki væri laust sæti í henni, þrátt fyrir að hann hefði átt bókað far. Hann flaug til Var- sjár í dag með flugvél vestur-þýska flugfélagsins Luftahansa og að sögn starfsmanna þess pantaði hann sætið í eigin nafni. Flutningur bandarískra kjarnorku- eldflauga frá Vestur-Þýskalandi: Samningur um eftirlit Sovétmanna undirritaður Bonn, Reuter. VESTUR-Þjóðveijar og Sovét- menn undirrituðu samning í gær sem heimilar sovéskum eftirlits- mönnum að ganga úr skugga um að meðaldrægar kjarnorkueld- flaugar Bandaríkjamanna verði fluttar frá Vestur-Þýskalandi. Sovéski sendiherrann í Bonn, Júlí Kvitsinskíj, og Hans-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Vest- ur-Þýskalands, undirrituðu þennan tvíhliða samning. Kvitsinskíj hvatti NATO-ríkin til að bæta ekki brott- flutninginn upp með því að endur- nýja önnur kjamorkuvopn, en sov- ésk stjómvöld hafa sagt að slíkt gengi gegn anda Washington-sátt- málans um upprætingu skamm- og meðaldrægra kjamorkueldflauga. Genscher sagði að viðræður um jafnvægi i hefðbundnum vopnabún- aði þyrftu að hefjast sem fyrst.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.